Nýtt frá Gang Related
1.11.2012 - Georg Atli
Við fengum póst frá Gang Related um það að þeir hefðu hent í nýtt lag í tilefni af Airwaves. Við fengum póstinn reyndar í gær en ég gat bara ekki sett þetta inn þá vegna Airwaves og svoleiðis en það kemur bara núna og þið getið lesið hann að neðan!
Í tilefni af Iceland Airwaves ákváðu Gang Related að gefa út nýtt efni í dag. Lagið var tekið upp og unnið af þeim sjálfum og myndbandið gerði Helgi Pétur, trommari sveitarinnar. Lagið kallast Malibu og hægt er að nálgast frítt niðurhal af soundcloud síðu Gang Related (http://soundcloud.com/gangrelated/malibu). Þetta er aðeins forsmekkur af nýju efni sem hljómsveitin mun spila á tónleikum hennar á Airwaves hátíðinni.
Hljósveitin verður dugleg á hátíðinni en þeir munu spila á alls sjö tónleikum:
Miðvikudagur:
Kaffibarinn – 18:00
Dillon Rock Bar – 00:00
Fimmtudagur:
Amsterdam (ON-venue) – 21:40
Föstudagur:
Bar 11 – Gogoyoko off-venue – 20:00
Reykjavík Backpackers – 21:00
Laugardagur:
Bakkus – B-Waves – 20:00
Sunnudagur:
Reykjaví Backpakers – 15:00
Tags: Gang Related
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off
Fimmtudagsmeðmæli – Airwaves 2012
1.11.2012 - Georg Atli
Valkvíðinn eykst smám saman alla daga Airwaves þannig að á hverjum degi er aðeins erfiðara að ákveða hvað á að sjá og hverju maður verður að sleppa. Hérna kemur dagskrá dagsins eins og ég myndi vilja hafa hana. Byrjar snemma eða kannski frekar þaða ð listinn komi seint en ef þið flýtið ykkur náiði fyrsta bandi dagsins.
16:15 Hressó (off-venue) – Half Moon Run Það er gott að hafa það aðeins rólegra í byrjun, útlenskt
17:00 Eymundsson (off-venue) – Low Roar áfram rólegri en virkilega fallegri tónlist
18:00 Bar 11 (niðri) (off-venue) – Jesuslesfilles Hérna er svo komið að því að rokka, pönkað indí rokk á frönsku frá Kanada
19:00 Bíó Paradís (off-venue) – Stafrænn Hákon Ný e.p. plata á leiðinni, virðast halda áfram á poppaðri braut en halda samt góðu post-rokki. Virðast líka vera í góðu formi
20:00 Amsterdam – Oyama Íslensk nýstirni, hafa verið að vekja mikla athygli, spila drynjandi shogaze.
20:50 Iðnó – Cheek Mountain Thief Þetta eru víst líka útgáfu tónleikarnir. Breti sem fluttist á Húsavík til að semja tónlist.
21:20 Silfurberg – Jamie N Commons Annar breti. Þessi er með alveg svakalega rödd.
22:30 Gamli Gaukurinn – Sudden Weather Change Nýkonir frá Ameríkutúr og sendu nýlega frá sér frábæra plötu. Ætti ekki að klikka.
23:00 Þýski barinn – THEEsatisfaction Gæti verið snjallt að reyna að ná snemma inn á Shabazz Palaces og svo eru þær líka ansi góðar.
00:00 Þýski Barinn – Shabazz Palaces Áttu eina af plötum ársins í fyrra, hip hop með tvisti.
01:00 Hressó – Ranglehlods Danskur elektóníkus sem nýtir sér ýmsa áhrifavalda í tónlistinni sinni og ætti að enda kvöldið á hressandi hátt.
Tags: Airwaves 2012, Cheek Mountain Thief, Half Moon Run, Jesuslesfilles, Low Roar, Oyama, Rangleklods, Shabazz Palaces, Stafrænn Hákon, Sudden Weather Change, THEEsatisfaction
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Gleðilega Airwaves hátíð!
31.10.2012 - Kristjana
Næstu 5 dagana er ekki annað hægt en brosa stanslaust út að eyrum, njóta lífsins, uppgötva nýtt og enduruppgötva gamalt. Airwaves er hafið og strax í dag er erfitt að velja – bæði á opinberu dagskránni og off-venue. Í dag eru 20 off-venue staðir með uppákomur og 8 opinber Airwaves venue.
Ég held að það sé nokkurn veginn gulltryggt að sama hvaða venue gengið er inn á í dag/kvöld – maður mun mæta fullt af fólki, upplifa góða stemningu, heyra góða tónlist og finna fiðrildunum í maganum fjölga við (enn) aukna tilhlökkun.
Gleðilega hátíð – njótið hverrar mínútu!
Mér finnst við hæfi að fagna með partí- og singalong klassík frá Prinspóló
Tags: Airwaves 2012, Prinspóló
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off
Miðvikudagsmeðmæli
31.10.2012 - Georg Atli
Það er svo gott að hafa plan þegar að það er mikið að gera og þess vegna ætla ég að búa til smá plan yfir það sem að mig langar að sjá í dag og deila því hérna með ykkur! Planið byrjar snemma þá svo að ég nái ekki alveg að byrja jafn snemma vegna vinnu en það er samt gott fyrir alla að vita hvað mig myndi langa að sjá kæmist ég frá. Að mínu mati þarf að taka einn dag í flakk milli staða og sjá sem flest. þessi dagskrá hérna fyrir neðan er skrifuð með það í huga.
15:00 Íslenski barinn (off- venue) – Futuregrapher (fínt að byrja á gæða elektróník)
16:00 Hressó (off- venue) – Blouse (útlenskt)
17:00 Eymundsson (off- venue) – Rif (Nýtt og lofar góðu)
19:00 Bar 11 (off- venue) – Jón Þór (Jón Þór (Lada Sport) var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna)
20:00 Kaldalón – Úlfur (bassaleikari Swords of Chaos er að gera góða hluti sóló)
20:50 Iðnó – Pascal Pinon (ný plata væntanleg)
21:40 Silfurberg – Ojba Rasta (Hin stóra reggae sveitin á íslandi er mjög hressandi)
22:30 Iðnó – Prinspóló (Vææntanlega fullt af nýju efni)
23:20 Iðnó – Sin Fang (Klikkar aldrei)
00:10 Silfurberg – Retro Stefson (frábær leið til að slútta fyrsta í Airwaves)
Tags: Blouse, Futuregrapher, Jón Þór, Ojba Rasta, Pascal Pinon, Prinspóló, Retro Stefson, Rif, Sin Fang, Úlfur
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Nokkrir góðir hlutir við Airwaves 2012
30.10.2012 - Georg Atli
Tryllingurinn hefst á morgun og hjá mér er spennan gríðarleg! Það er alltaf gríðarlegur valkvíði sem fyllir mann þegar að það kemur að því að velja hvað á að sjá og þar er ég engin undantekning, þess vegna bjó ég til þennan 5 atriða lista um það sem að ég mæli með að gera.
5. Off-venue!
Það er nauðsynlegt að fylgjast vel með off-venue dagsskránni líka því að það er bara allt allt allt of mikið á Airwaves til að maður nái því á kvöldin. Það er líka geðveikt næs að rölta snemma í bænum og dettainn á einhverja snilld sem er í gangi þar.
4. Eitthvað annað en tónlist!
Í ár er fullt annað en tónlist í gangi og þú gerðir vel ef þú tjékkaðir á einhverju sem er að gerast. Listasýningar, fyrirlestrar og bókaopnanir og allskonar. Farðu og skoðaðu t.d. í Airwaves appinu það er allskonar sniðugt og skemmtilegt í gangi
3. Swans, Django Django og/eða Dirty Projectors
Þetta er frekar basic stærstu/heitustu nöfnin á hátíðinni og þú ættir að sjá amk eitt þeirra.
2. Reykjavík og Retro Stefson
Sjáðu Reykjavík! og Retro Stefson að minnsta kosti einu sinni á Airwaves. Þetta er að mínu mati lang bestu íslensku live böndin í dag og þá er ég alls ekki að gera lítið úr neinum öðrum. R! og Retro Stefson eru bara betri og ef þú sérð hvorugt þá áttu eftir að sjá eftir því í langan tíma… eða amk þar til á næstu hátíð.
Reykjavík! spilar á Þýska barnum kl. 01:20 á föstudeginum (en aldrei off-venue) og Retro Stefson verða kl. 00:10 á miðvikudegi í Hörpu (Silfurbergi) og á sama stað á laugardeginum kl 23:00
1. Farðu á eitthvað sem þú veist ekkert um!
Það sem er það allra allra besta við Airwaves er það að þú hefur möguleikann á því að upplifa eitthvað alveg nýtt. Hlusta á eitthvað sem þú hefuraldrei hlustað á áður og kannski hugsanlega finna nýja uppáhalds tónlist. Þess vegna mæli ég með að þú farir amk einu sinni nákvæmlega ekkert eftir planinu þínu (eða einhvers annars) og veljir stað af handa hófi (helst eitthvað sem þú færir annars ekki) og tjékkir á einu bandi þar… eitt band er alveg lágmark.
Svo svona smá auka í lokinn þá henti ég í einn 8 Tracks lagalista með því allra helsta erlenda á hátíðinni
Tags: Airwaves 2012, Dirty Projectors, Django Django, Retro Stefson, Reykjavík!, Swans
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Airwaves – Shabazz Palaces
30.10.2012 - Kristín Gróa
Nú er Airwaves nánast alveg skollið á og ég vildi óska að ég gæti verið heima í Reykjavík að upplifa alla tónlistina og stemninguna. Búhú. Það verður að bíða en á meðan ætla ég bara að horfa á þetta KEXP performance hjá hljómsveitinni sem ég er svekktust yfir að missa af. Ef þið ætlið ekki að sjá Shabazz Palaces þá skil ég bara ekkert í ykkur!
Tags: Airwaves, Iceland Airwaves 2012, Shabazz Palaces
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | 1 athugasemd »
Airwaves – Phantogram
18.10.2012 - Kristín Gróa
Airwaves hljómsveit dagsins er ameríska dúóið Phantogram. Þau gáfu út plötuna Eyelid Movies árið 2010 sem er að mínu mati mjög áheyrileg plata. Í fyrra kom svo út EP platan Nightlife sem ég hef eiginlega ekki gefið mér tíma til að hlusta á en ég er að renna henni í gegn akkúrat núna og hún hljómar vel. When I’m Small af fyrri plötunni er annars í mestu uppáhaldi.
Phantogram spila í Listasafninu á fimmtudagskvöldinu kl. 21:00.
Tags: Airwaves, Airwaves 2012, Phantogram
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | Comments Off
Airwaves – Skálmöld
16.10.2012 - Georg Atli
Það er orðið svolítið þreytt að tengja Skálmöld við eitthvað sem heitir víkingarokk en ég ætla samt að gera það…
Víkingarokkararnir í skálmöld verða á Airwaves og það er alveg óhætt að mæla með því að sjá þá live. Hvort sem að þú fílar tónlistina eða ekki þá eru tónleikarnir mikið sjónarspil og þar er vægast sagt mikil keyrsla út í gegn.
Skálmöld verða að spila í Norðurljósasal Hörp á fimmtudeginum kl. 20:50 og sunnudag á Gamla Gauknum kl. 23:00 en ekkert off venue.
Tags: Airwaves 2012, Skálmöld
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off
Airwaves – Stafrænn hákon
12.10.2012 - Georg Atli
Stafrænn Hákon byrjaði sem eins manns verkefni Ólafs Josephssonar en er nú orðið að heilli hljómsveit og án efa ein af betri síð-rokk böndum íslands. Síðasta platan þeirra Sanitas kom út árið 2010 og það var þeirra 6. plata. Sú plata skar sig þó nokkuð úr fyrri verkum Hákons en Sanitas var léttari og í átt við eitthvað sem gæti hugsanlega kallast popp, útkoman var mjög góð og Sanitas var ein af betri plötum ársins, að margra mati.
Síðan þá hefur lítið heyrst frá þeim (lagahöfundur upptekinn við góðahluti með Náttfara) en nú í dag kom út nýtt lag og tilkynning um nýja plötu með hausti. Það þykja mér góðar fréttir.
Stafrænn Hákon verður að spila á Amsterdam kl. 00:10 á miðvikudagskvökdinu og í 3 skipti off-venue.
Tags: Airwaves 2012, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off
Airwaves – Ásgeir Trausti
10.10.2012 - Georg Atli
Það þarf líklega hvorki að kynna né hæpa þennan neitt. Ef þú hefur ekki búið net-, vina- og samskiptalaus í dimmum helli í Kirgistan þá ættiru að vita að það þarf að sjá og heyra Ásgeir Trausta spila amk einu sinni á komandi Airwaves hátíð.
Hann spilar kl. 00:10 á Þýska barnum á miðvikudagskvöldi og á laugardagskvöldi kl. 22:30 í Norðurljósasal Hörpu og 5 sinnum off-venue
Tags: Airwaves 2012, Ásgeir Trausti
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off











