Þórir Georg með nýja plötu
14.11.2012 - Georg Atli
Við fengum tilkynningu um það að tónlistarmaðurinn Þórir Georg hafi verið að senda frá sér nýja plötu. Platan heitir I Will Die & You Will Die & It Will be Alright og kemur út á vegum Kimi Records (hér á landi) í tilefni plötunar verða svo ókeypis útgáfutónleikar í kvöld á Hemma og Valda Prikinu, þar sem platan verður til sölu bæði á CD og LP á tilboði. Það er gaman. Tilkynninguna getiði lesið í heild sinni hér að neðan en þar má líka finna lag af plötunni og allra neðst í færslunni eru tónleikadagsetningar Þóris í Þýskalandi… svona ef einhver ykkar skyldi vera á ferðinni.
Þórir Georg býður til útgáfuhófs í Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda miðvikudagskvöldið 14. nóvember kl. 21 vegna útgáfu nýrrar breiðskífu hans. Platan I Will Die & You Will Die & It Will be Alright kemur út föstudaginn 16. nóvember næstkomandi á vegum Kimi Records. Hún verður fáanleg á geisladiski og vínylplötu.Veitingar verða til sölu eins og venjulega á Hemma & Valda, en tónleikarnir verða ókeypis og hægt verður að kaupa plötuna á staðnum, á svona líka góðum kjörum.
Útgáfuhófið er á sama tíma lítið kveðjuhóf því daginn eftir heldur Þórir í tveggja vikna tónleikaferð um Þýskaland, en platan kemur út samtímis þar í landi hjá þýska útgáfufélaginu Stargazer Records. Dagskrá tónleikaferðarinnar má sjá hér að neðan.
Um I Will Die & You Will Die & It Will be Alright:
Þórir Georg er afkastamikill tónlistarmaður. Undanfarin ár hefur hann komið fram undir nafninu My Summer as a Salvation Soldier og einnig verið meðlimur í fjölmörgum rokksveitum á borð við Gavin Portland, Ofvitarnir, Deathmetal Supersquad og fleirum. I Will Die & You Will Die & It Will be Alright er persónuleg plata þar sem Þórir kemur einn að verkinu. Hann tekur upp og hljóðblandar, hljómjafnar og sér um hönnun á umslagi. Þrátt fyrir það er platan afar fjölbreytt og margslungin. Hún flakkar milli þess að vera þung og drungaleg rokktónlist yfir í glettna og persónulega tónlist þar sem rödd og gítarleikur Þóris fær að njóta sín.
Tónleikadagskrá:
14.11. Reykjavík – Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda
15.11. Köln – Lichtung
16.11. Hamburg – Hasenschaukel
18.11. Münster – Fachwerk Gievenbeck
21.11. Berlin – Intersoup
22.11. Osnabrück – Lagerhalle
23.11. Göttingen – Blooming Bar
24.11. Zwickau – Alter Gasometer
25.11. Chemnitz – Aaltra
26.11. Leipzig – Lu 99
27.11. Erfurt – Stadtgarten
29.11. Bayreuth – Glashaus
Tags: Deathmetal Supersquad, Gavin Portland, My Summer as a Salvation Soldier, Ofvitarnir, Þórir Georg
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Fimmtudagsmeðmæli – Airwaves 2012
1.11.2012 - Georg Atli
Valkvíðinn eykst smám saman alla daga Airwaves þannig að á hverjum degi er aðeins erfiðara að ákveða hvað á að sjá og hverju maður verður að sleppa. Hérna kemur dagskrá dagsins eins og ég myndi vilja hafa hana. Byrjar snemma eða kannski frekar þaða ð listinn komi seint en ef þið flýtið ykkur náiði fyrsta bandi dagsins.
16:15 Hressó (off-venue) – Half Moon Run Það er gott að hafa það aðeins rólegra í byrjun, útlenskt
17:00 Eymundsson (off-venue) – Low Roar áfram rólegri en virkilega fallegri tónlist
18:00 Bar 11 (niðri) (off-venue) – Jesuslesfilles Hérna er svo komið að því að rokka, pönkað indí rokk á frönsku frá Kanada
19:00 Bíó Paradís (off-venue) – Stafrænn Hákon Ný e.p. plata á leiðinni, virðast halda áfram á poppaðri braut en halda samt góðu post-rokki. Virðast líka vera í góðu formi
20:00 Amsterdam – Oyama Íslensk nýstirni, hafa verið að vekja mikla athygli, spila drynjandi shogaze.
20:50 Iðnó – Cheek Mountain Thief Þetta eru víst líka útgáfu tónleikarnir. Breti sem fluttist á Húsavík til að semja tónlist.
21:20 Silfurberg – Jamie N Commons Annar breti. Þessi er með alveg svakalega rödd.
22:30 Gamli Gaukurinn – Sudden Weather Change Nýkonir frá Ameríkutúr og sendu nýlega frá sér frábæra plötu. Ætti ekki að klikka.
23:00 Þýski barinn – THEEsatisfaction Gæti verið snjallt að reyna að ná snemma inn á Shabazz Palaces og svo eru þær líka ansi góðar.
00:00 Þýski Barinn – Shabazz Palaces Áttu eina af plötum ársins í fyrra, hip hop með tvisti.
01:00 Hressó – Ranglehlods Danskur elektóníkus sem nýtir sér ýmsa áhrifavalda í tónlistinni sinni og ætti að enda kvöldið á hressandi hátt.
Tags: Airwaves 2012, Cheek Mountain Thief, Half Moon Run, Jesuslesfilles, Low Roar, Oyama, Rangleklods, Shabazz Palaces, Stafrænn Hákon, Sudden Weather Change, THEEsatisfaction
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Miðvikudagsmeðmæli
31.10.2012 - Georg Atli
Það er svo gott að hafa plan þegar að það er mikið að gera og þess vegna ætla ég að búa til smá plan yfir það sem að mig langar að sjá í dag og deila því hérna með ykkur! Planið byrjar snemma þá svo að ég nái ekki alveg að byrja jafn snemma vegna vinnu en það er samt gott fyrir alla að vita hvað mig myndi langa að sjá kæmist ég frá. Að mínu mati þarf að taka einn dag í flakk milli staða og sjá sem flest. þessi dagskrá hérna fyrir neðan er skrifuð með það í huga.
15:00 Íslenski barinn (off- venue) – Futuregrapher (fínt að byrja á gæða elektróník)
16:00 Hressó (off- venue) – Blouse (útlenskt)
17:00 Eymundsson (off- venue) – Rif (Nýtt og lofar góðu)
19:00 Bar 11 (off- venue) – Jón Þór (Jón Þór (Lada Sport) var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna)
20:00 Kaldalón – Úlfur (bassaleikari Swords of Chaos er að gera góða hluti sóló)
20:50 Iðnó – Pascal Pinon (ný plata væntanleg)
21:40 Silfurberg – Ojba Rasta (Hin stóra reggae sveitin á íslandi er mjög hressandi)
22:30 Iðnó – Prinspóló (Vææntanlega fullt af nýju efni)
23:20 Iðnó – Sin Fang (Klikkar aldrei)
00:10 Silfurberg – Retro Stefson (frábær leið til að slútta fyrsta í Airwaves)
Tags: Blouse, Futuregrapher, Jón Þór, Ojba Rasta, Pascal Pinon, Prinspóló, Retro Stefson, Rif, Sin Fang, Úlfur
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Nokkrir góðir hlutir við Airwaves 2012
30.10.2012 - Georg Atli
Tryllingurinn hefst á morgun og hjá mér er spennan gríðarleg! Það er alltaf gríðarlegur valkvíði sem fyllir mann þegar að það kemur að því að velja hvað á að sjá og þar er ég engin undantekning, þess vegna bjó ég til þennan 5 atriða lista um það sem að ég mæli með að gera.
5. Off-venue!
Það er nauðsynlegt að fylgjast vel með off-venue dagsskránni líka því að það er bara allt allt allt of mikið á Airwaves til að maður nái því á kvöldin. Það er líka geðveikt næs að rölta snemma í bænum og dettainn á einhverja snilld sem er í gangi þar.
4. Eitthvað annað en tónlist!
Í ár er fullt annað en tónlist í gangi og þú gerðir vel ef þú tjékkaðir á einhverju sem er að gerast. Listasýningar, fyrirlestrar og bókaopnanir og allskonar. Farðu og skoðaðu t.d. í Airwaves appinu það er allskonar sniðugt og skemmtilegt í gangi
3. Swans, Django Django og/eða Dirty Projectors
Þetta er frekar basic stærstu/heitustu nöfnin á hátíðinni og þú ættir að sjá amk eitt þeirra.
2. Reykjavík og Retro Stefson
Sjáðu Reykjavík! og Retro Stefson að minnsta kosti einu sinni á Airwaves. Þetta er að mínu mati lang bestu íslensku live böndin í dag og þá er ég alls ekki að gera lítið úr neinum öðrum. R! og Retro Stefson eru bara betri og ef þú sérð hvorugt þá áttu eftir að sjá eftir því í langan tíma… eða amk þar til á næstu hátíð.
Reykjavík! spilar á Þýska barnum kl. 01:20 á föstudeginum (en aldrei off-venue) og Retro Stefson verða kl. 00:10 á miðvikudegi í Hörpu (Silfurbergi) og á sama stað á laugardeginum kl 23:00
1. Farðu á eitthvað sem þú veist ekkert um!
Það sem er það allra allra besta við Airwaves er það að þú hefur möguleikann á því að upplifa eitthvað alveg nýtt. Hlusta á eitthvað sem þú hefuraldrei hlustað á áður og kannski hugsanlega finna nýja uppáhalds tónlist. Þess vegna mæli ég með að þú farir amk einu sinni nákvæmlega ekkert eftir planinu þínu (eða einhvers annars) og veljir stað af handa hófi (helst eitthvað sem þú færir annars ekki) og tjékkir á einu bandi þar… eitt band er alveg lágmark.
Svo svona smá auka í lokinn þá henti ég í einn 8 Tracks lagalista með því allra helsta erlenda á hátíðinni
Tags: Airwaves 2012, Dirty Projectors, Django Django, Retro Stefson, Reykjavík!, Swans
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Útgáfutónleikar The Heavy Experience
16.10.2012 - Georg Atli
Á laugardainn verða mjög áhugaverðir tónleikar í Aðventkirkjunni í Reykjavík (Ingólfsstræti 19). Þar ætlar hljómsveitin The Heavy Experience að vera með útgáfutónleika, en þeir gáfu út eina af betri plötum ársins í ágúst (umfjöllun væntanleg), með þeim verða Kría Brekkan og Just Another Snake Cult þannig að það má alveg segja það fyrirfram að þarna séu eðaltónleikar framundan.
Nánari lýsing á þessu öllu saman er í fréttatilkynningunni sem er hérna fyrir neðan.
Útgáfutónleikar:
THE HEAVY EXPERIENCE
ásamt Kríu Brekkan og Just Another Snake Cult
Aðventkirkjan í Reykjavík
Ingólfsstræti 19
20. október 2012
Hefjast 20:00
1500 forsala (Smekkleysa) / 2000 við hurð
Hér mé tilkynnist að hljómsveitin The Heavy Experience heldur útgáfutónleika sína 20. október 2012. Tónleikarnir fara fram í Aðventkirkjunni (Ingólfsstræti 19), hefjast klukkan 20:30 og miðaðverð er 1500 krónur í forsölu (Smekkleysa frá og með þriðjudegi) en 2000 við dyrnar á tónleikadag. Sérstakir gestir eru Kría Brekkan og Just Another Snake Cult
The Heavy Experience er fimm drengja reykvísk hljómsveit. Í ágúst kom út platan Slowscope.
Slowscope er fyrsta breiðskífa The Heavy Experience og er gefin út af útgáfu hljómsveitarinnar, Úsland útgáfu, í samstarfi við Kimi Records. Áður kom út samnefnd stuttskífa á vegum Kimi útgáfu árið 2010. Báðar þessar hljómplötur hafa eingöngu komið út á hinu forna formi vínylhljómplatna. Haldið er í heiðri albúm hefðinni, en hljómplatan inniheldur 6 lög, ósungin og hugarleiðandi. Ástandstónlist Enos kemur í huga, kaffiboð í Darmstadt upp úr aldarmótum, þó einnig útlagakántrýtónlist sjötta áratugarins og for-grugg Vesturstrandar Ameríku. Þrátt fyrir þetta er engin ógeðsleg nostalgía í tónlist hljómsveitarinnar. Hljómplötur The Heavy Experience eru samstarfsverkefni meðlima og enginn utanaðkomandi brýtur sköpunar- og ákvörðunnarhring hljómsveitarinnar. Þannig er heilsteyptu hugarástandi skilað ótruflað til hlustenda.
Kría Brekkan og Just Another Snake Cult leika á undan hljómsveitinni
Kría Brekkan er Kristín Anna Valtýsdóttir, en hún var löngum álfur í skóginum múm en hvarf á vit annarra ævintýra um 2006 og fór að vinna að költ performans seríu Kríu Brekkan í Eplaborginni. Kristín Anna hefur spilað með hljómsveitunum Stórsveit Nix Noltes, Mice Parade og Animal Collective og gefið út tónlist á fyrrnefndu Paw Tracks útgáfu. Í vor túraði Kría Brekkan austurströnd Bandaríkjanna með Plastic Gods og Muck.
Just Another Snake Cult er Þórir Bogason. Kalifornískur íslendingur. Lo-fi kóngur. Brimbretta messías. Einhvur líkti tónlist Þóris við samneyti Brian Wilsons og Ariel Pink. Það er ekki fjarri lagi. Eftir Þóri liggja ófaar upptökur. Ber helst að nefna breiðskífu hans frá 2010, The Dionysian Season, og ný útkomna stuttsnældu, Birds Carried Your Song Through the Night. Just Another Snake Cult var tilnefnd “Bjartasta von” Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010.
Tags: Just Another Snake Cult, Kría Brekkan, The Heavy Experience
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Cheek Mountain Thief heldur í tónleikaferð
5.9.2012 - Georg Atli
Við vorum að fá fregnir af því að Mike Lindsay og hljómsveitin hans Cheek Mountain Thief væri að fara í tónleikaferð um evrópu og héldi meira að segja tvenna tónleika hér á landi. Þeir fyrri verða í kvöld á Faktorý en þeir seinni verða á Húsavík, nánar til tekið í Gamla Bauk. Héðan heldur hann svo yfir til Englands, Frakklands og svo Hollands.
Þeir sem ekki kannast við Cheek Mountain Thief ættu kannski að muna eftir því þegar að gamla hljómsveitin hans Tunng kom og spilaði á góðum Airwavestónleikum 2010. Á þeirri hátíð hreifst Lindsay svo af landi og þjóð (sumum betur en öðrum) að hann ákvað að flytja hingað og hefur verið að semja tónlist undir merkjum Cheek Mountain Thief. Samnefnd plata kom svo út á þessu ári og hefur verið að vekja verðskuldaða athygli í erlendum fjölmiðlum.
Á tónleikunum í kvöld ætla Þórir Georg (sem virðist vera manna duglegastur við tónleikaspilerí þessa dagana) og Good Moon Deer spila með Cheek Mountain Thief og því má búast við ansi góðri skemmtun. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn.
Öll fréttatilkynningin fylgir hér fyrir neðan en fyrst ættuð þið að hlusta á nýjustu smáskífu kappans, Showdown, en þar er hinn magnaði Mugison til aðstoðar. Plötuna má svo hlusta á í heild sinni á Gogoyoko.
Tilkynningin:
Breski tónlistarmaðurinn Mike Lindsay og íslenska hljómsveitin hans, Cheek Mountain Thief, hefur fengið afbragðsviðtökur við nýrri breiðskífu þeirra, Cheek Mountain Thief. Platan kom út í ágúst í Bretlandi á vegum breska útgáfufélagsins Full Time Hobby (á vegum Kimi Records hér á landi) og hefur fengið frábæra dóma víðsvegar um Evrópu og í Bretlandi. Cheek Mountain Thief fékk meðal annars 4/5 í Q og The Sunday Times fór lofsamlegum orðum um plötuna og kallaði hana “a bizarrely beautiful album” – (The Sunday Times).
Cheek Mountain Thief er nú á leið í tónleikaferð um Evrópu til að fylgja eftir þessum vinsældum og mun koma fram í Bretlandi, Frakklandi, Hollandi sem og Íslandi, en tvennir tónleikar verða hér á landi áður en hljómsveitin leggur í hann.
Þeirri fyrri verða á Faktorý Bar í miðborg Reykjavíkur miðvikudagskvöldið 5. ágúst kl. 22 og er miðaverð 1.000 kr. Ásamt Cheek Mountain Thief koma fram Þórir Georg og spútníksveitin Good Moon Deer.
Föstudaginn 7. september verður svo haldið til Húsavíkur og haldnir heimkomutónleika á Gamla Bauk, tónleikarnir hefjast kl. 23 og kostar sömuleiðis 1.000 kr. inn.
Tags: Cheek Mountain Thief, Good Moon Deer, Mugison, Tunng, Þórir Georg
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Prince Rama
24.8.2012 - Georg Atli
Þrátt fyrir gríðar djúpa lægð hér á Topp 5 (við ætlum að taka okkur á… í alvöru!) er fullt að gerast í tónlist þessa dagana og mánuðina og þá sérstaklega í tónleikum.
Ég veit að þetta er að koma allt of seint en mig langar samt að benda á mjög áhugaverða tónleika sem verða í kvöld… eiginlega betra að segja á eftir.
Bandaríska systrasveitin Prince Rama er að fara að spila á tónleikum á Faktorý kl 23:00 og það verður að segjast að það ætti engin að missa af þessu. Prince Rama samanstendur sem sagt af 2 systrum sem ólust upp í Hare Krishna samfélagi í Flórída, þaðan fóru þær svo og lærðu allskonar í School of Museum of Visual Art í Boston en búa núna í Brooklyn og alveg nákvæmlega eins og það hljómar er tónlistin gríðarlega sækadelísk og gallsúr á köflum. Tónlistin er skemmtileg og alveg frábært að hlusta á ef þið eruð til í eitthvað aðeins öðruvísi.
Það er svo Kría Brekkan sem sér um upphitun en hana ættu flestir að þekkja enda frábær tónlistamaður og fyrrum múm liði auk þess sem hún spilaði með Mice Parade, Stórsveit Nix Nolte og Animal Collective!
Það er Gogoyoko sem sér um tónleikana og það er meira að segja hægt að kaupa/hlusta á Prince Rama (nýja platan, Trust Now) hjá þeim!
Það kostar 1500 krónur á miði.is og miðar við hurð eins og húsrúm leyfir.
Tags: Kría Brekkan, Prince Rama
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Japandroids eru að koma!
14.8.2012 - Georg Atli
Hinir mögnuðu Japandroids halda tónleika á Gamla gauknum, 22 ágúst!
Hljómsveitin Japandroids hefur verið í svolitlu uppáhaldi hjá okkur á Topp 5 (enda ein skemmtilegasta hljómsveitin í dag) og var fyrri platan þeirra meðal annars næst besta plata ársins 2009 hjá Kristínu Gróu. Í tilefni af tónleikum þeirra, seinna í mánuðinum þá settum við saman lítinn lista af spurningum, völdum út 5 spurningar og sendum á þá kappana. Hérna að neðan getiði lesið svörin þeirra (og spurningarnar!). Sá pistill er reyndar á ensku sökum gríðarlegrar leti minnar.
Japandroids hafa sem sagt gefið út tvær plötur (Post-Nothing og Celebration Rock) og í stuttu máli eru þær báðar frábærar. Tónlistinni er ekki auðvelt að lýsa en “kraftur” og “orka” eru orð sem að koma fljótt í hugann. Þetta er svona tónlist sem að kallar fram líkamleg viðbrögð, maður verður einhvern veginn þreyttu þegar að maður er búinn að hlusta. Svona eins og þegar að maður er búinn að hafa alltof gaman allt of lengi.
Þeir eru eingöngu 2 í hljómsveitinni annar spilar á trommur (David Prowse… ekki samt þessi David Prowse (haha)), hinn á gítar (Ben King) og báðir syngja, þannig að augljóslega leikur gítarinn stórt hlutverk hjá þeim. Ben king hefur lýst gítarleik sínum þannig að hann reyni að hljóma eins og að það séu 2 gítarar að spila í einu og honum tekst það frekar vel. Japandroids eru frægir fyrir það aða gefa allt sitt í tónleikana og enginn ætti að missa af þessu.
Auk þess eru Sudden Weather Change að hita upp þannig að þetta ætti að verða virkilega gott kvöld.
Kaupiði miða hér
Byrjum á glænýju myndbandi þeirra við eitt af hápunktum nýjustu plötu þeirra. Lagið er The House That Heaven Built og í myndbandinum getiði séð myndbrot frá tónleikaferð Japandroids um austurströnd Bandaríkjanna. Þar fyrir neðan eru svo spurningarnar okkar og svör Japandroids drengjanna.
Topp 5 spurningarnar okkar:
1. Before Post-Nothing was released you had decided that this would be your last effort as a band. Had you already made “life after Japandroids plans“ and was it a hard decision to cancel them and continue with Japandroids?
We made a plan to break up after we self-released our record, after we played our last few shows, after a bunch of things. So we never really got to the point where things actually stopped. Right when we’d finished doing all the things we’d planned to do, Unfamiliar Records got in touch with us and told us they wanted to put out our record. Then a whole bunch of other stuff started to happen soon after that. So we never really had any time to start working on a life after Japandroids. The main reason we were deciding to stop in the first place was because it seemed like we were at a bit of a dead end and that things weren’t progressing any more. It was very obvious to both of us that we should keep going once there was some interest in the band and we had the opportunity to tour and put our record out through a real record label. We had been waiting for something like that to happen for years.
2. Your albums are alike in many ways. Same producer, similar lyrical themes and even similar covers yet they are very different
records. The first one was kind of a final bang or a last chance and although Celebration Rock continues on with that excitement it‘s in a different way. The lyrics are a bit more mature (some would say better) and obviously you seem to know more about how to do things in the studio. Was there a difference in how you wrote the songs, recorded them etc? How was your approach different?
Making a record is a very different experience when you are aware that you have an audience. We knew that a lot of people would hear this record, and we knew that it was likely that we would be playing these songs every night for a long time. Being aware of all of that leads you to examine every aspect of each song very, very closely. It makes you a lot more critical of yourself, and it makes the songwriting and recording process more stressful. But in the end hopefully it also leads to better songs and a better album. So even though we recorded this album in the same studio with the same engineer, we approached this album completely differently, in terms of our attitude and our expectations. Three years had passed between these two albums and we spent all of that time playing music every day. So we had improved as musicians, and as singers, and we really pushed ourselves to make sure every song was as good as it could be, in terms of the writing, the mix and the recording. And lastly, our engineer Jesse Gander plays such an important role in helping us get the sound we’re looking for in the studio, and he keeps getting better each time we work with him. He deserves a lot of the credit for helpings us progress beyond what we were capable of in the past. He’s a trusted friend and a great engineer.
3. Icelandic bands are rather isolated from the biggest music scenes being way up here in the north (Iceland being an island and all that). It can be very difficult for the average band to get deserved hype and getting the industry‘s attention. How is that in comparison with bands from Vancouver?
Vancouver is pretty far away from any other major Canadian city, and it can be very difficult for Canadian bands to get gigs in to the US until they achieve a certain amount of success, so Vancouver can feel quite isolated. There are a lot of bands here, but there isn’t much of a “music industry” in Vancouver. I used to get frustrated by that, because a lot Vancouver bands don’t get the attention they deserve. At the same time, there seems to be this purity to a lot of the music coming out of Vancouver, because most bands do it because they love it, not because they’re trying to “make it big.” In Canada, there are cities you can move to that are known for their music scenes – places like Montreal and Toronto, for example. Many Vancouver musicians eventually make the move to one of those two cities. Most musicians who choose to stay in Vancouver choose to live here because they love this city, not because they think it is a good career choice. It’s not impossible to be a successful band in Vancouver, but I do think it is harder to do it here, compared to places like Montreal or Toronto.
4. Listening to you music I would say it shines through that
you‘ve listened to The Replacements a lot. Which other bands would you list as your biggest influences?
We both love the Replacements. I don’t think we’re really the type of band that sounds too similar to one specific scene or style, mostly because we seem to steal little bits and pieces from lots of different bands. Here’s a short list of some bands and artists both Brian and I really love:
The Hold Steady, Wire, Atlas Strategic, Wolf Parade, The Constantines, Hot Snakes, The Sonics, Husker Du, Bruce Springsteen, Tom Petty and the Heartbreakers, Dinosaur Jr, The Gun Club, The Dream Syndicate, Nirvana, Pixies, Mission of Burma, Television, Bob Dylan, The White Stripes, Fugazi.
I could keep going for a really long time, but that’s a pretty good list.
[Bendi svo líka á að þessari spurningu var svarað mun ítarlegar á facebook síðu Japandroids!]
5. Can you tell us the top 5 bands that you‘re listening to these days?
Abner Jay, Otis Redding, King Tuff, Apollo Ghosts, Low
Tags: Japandroids
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Popp/Tónar #5
9.8.2012 - Georg Atli
Bíó Paradís setti saman ansi áhugaverða tónleika/viðburðaröð í sumar sem við höfum gert skammarlega lítil skil. Þetta stendur til bóta og við getum sagt frá því að í kvöld (kl. 22:00) verður fimmta kvöldið og í þetta sinn verður frumsýnd myndin: Sudden Weather Change: Ljóðræn Heimildarmynd. Þar er á ferðinni mynd eftir einn af liðsmönnum SWC (Loji Höskuldsson) og fylgst er með árinu sem leið á eftir að hljómsveitin var valin Bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum 2009. Á eftir sýningu myndarinnar stígur svo hljómsveitin Oyama á svið en hún hefur verið að vekja nokkra athygli undanfarið. Þið getið lesið nánar um myndina hérna fyrir neðan en mér finnst rétt að taka það fram að þetta verður líklega eina sýningin á þessari mynd og aðgangur er ókeypis.
Í heimildarmyndinni ,,Sudden Weather Change: Ljóðræn Heimildarmynd,” fylgist leikstjóri myndarinnar, Loji Höskuldsson, með ári í lífi íslensku rokkhljómsveitarinnar Sudden Weather Change. Loji er jafnframt gítarleikari og söngvari SWC. Fylgist hann með árangri hljómsveitarinnar eftir að hún vann Björtustu Vonina á Íslensku Tónlistarverðlaununum árið 2009. Í myndinni fær áhorfandinn að skyggnast inn í stuttan evróputúr, upptökuferli og hugarheim hljómsveitarmeðlima.
Sudden Weather Change var að gefa út sína aðra breiðskífu Sculpture og verða útgáfutónleikarnir í byrjun september.
Ókeypis verður á viðburðinn sem hefst í Sal 1 klukkan 22:00.
Tags: Oyama, Sudden Weather Change
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Dirty Beaches tónleikar!
30.7.2012 - Georg Atli
“Einstaklingur sem ferðast um óravegu í leit að einhverju óræðu.”
Tónlistarmaðurinn Alex Zhang Hungtai er betur þekktur (þó að hann sé kannski ekkert rosalega þekktur) undir nafninu Dirty Beaches. Hann kemur frá Kanada og gefur plöturnar sínar út undir merkjum Zoo Music frá San Diego. Reyndar er það bara síðasta platan hans sem kom þaðan því að fyrstu útgáfur Dirty Beaches komu eingöngu á kassettum (hafa samt verið endurútgefnar á CD), sem er mjög lo-fi.
Dirty Beaches – Sweet 17
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Síðasta plata hans heitir Badlands og hefur verið að vekja verðskuldaða athygli, hún kom út í mars í fyrra (2011) og var ein af þeim plötum sem komu til greina fyrir Polarisverðlauna tilnefningu (hann var sem sagt “longlisted”)…. sem virðist lítilfjörlegt og flókið þegar að ég les þessa setningu yfir en til glöggvunar þá eru þetta kanadísku tónlistarverðlaunin og önnur nöfn á þessu lista voru t.d. Arcade Fire, Timbre Timbre, Destroyer og meistari Neil Young.
Dirty Beaches – A Hundred Highways
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Hann sækir greinilega innblástur í eldri hljómsveitir á borð við Cramps, Suicide og jafnvel Roy Orbison (tenging við David Lynch) og líkist þeim á vissan hátt (á rosalega skítugan lo-fi hátt) en þegar að ég hlusta á Badlands þá dettur mér alltaf frekar í hug einhverskonar hliðarafsprengi úr David Lynch mynd… sérstaklega Wild at Heart. Vegurinn og bílferð virðast vera þema orð plötunnar. Hér er viðtal við Dirty Beaches.
Ef að þið eruð engu nær hvernig tónlist Dirty Beaches hljómar þá sögðu bæði hipstera biblían Pitchfork og Wikipedia mér að hann sæki innblástur í myndir David Lynch, Jim Jarmusch og Wong Kar Wai og það tónar merkilega vel við tónlistina. Samkvæmt fréttatilkynningunni þá lýsir Hungtai svo tónlistinni sinni þannig “…að aðalpersónan Dirty Beaches sé einstaklingur sem ferðast um óravegu í leit að einhverju óræðu. Hann er útlagi sem á sér engan samastað.” Hvað svo sem það þýðir…
Tónleikarnir fara fram í Kaldalónssal Hörpu þann 4. september. Hér er facebook -hlekkur og það er hægt að kaupa miða hér. Singapore Sling sér um upphitun.
Tags: Dirty Beaches
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off













