Plata mánaðarins

19.4.2012 - Kristín Gróa

Plata mánaðarins er hin frábæra Ímynd fíflsins með Hljómsveitinni Ég. Þessi plata er ein af fáum plötum sem verður öflugri eftir því sem líður á hana. Hún er reyndar öll stórgóð en mér finnst bara vera svo mikill stígandi í gegnum plötuna að það er alveg eftirtektarvert. Í tilefni af því skulum við heyra titillag plötunnar sem er einmitt líka síðasta lag plötunnar.

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

10.4.2012 - Kristín Gróa

Plata aprílmánaðar er Ímynd fíflsins með Hljómsveitinni Ég

Ég setti plötuna Lúxus upplifun í fimmta sæti á listann minn “Topp 5 íslenskar plötur ársins 2010” en einhvernveginn breytast þannig listar alltaf eftir á. Tíminn einn leiðir í ljós hvaða plötur það eru sem virkilega lifa áfram hjá mér og ég get með sanni sagt að Lúxus upplifun hafi gert það. Eftir á að hyggja hefði hún líklega átt að deila toppsætinu með Prinspóló snilldinni Jukk. En svona er nú gott að vera vitur eftir á!

Í ljósi þess hversu hrifin ég var af síðustu plötu þá skil ég ekki af hverju ég stökk ekki á Ímynd fíflsins um leið og hún kom út. Kannski var hin svo góð að hún nægði mér? Ég veit það ekki en nú er ég búin að renna Ímynd fíflsins nokkrum sinnum í gegn og er mjög hrifin. Hér er að finna meira af því góða sem er að finna á Lúxus upplifun en mér finnst þessi þó vera aðeins rólegri svo fílingurinn er öðruvísi.

Fyrsta lagið sem ég vil hvetja ykkur til að hlusta á er Maðurinn sem er augljós hápunktur eftir fyrstu hlustanir.

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata Mánaðarins

25.3.2012 - Georg Atli

Ruddinn – I Need a Vacation

Ég verð að segja að þetta er plata sem vinnur rosa vel á, því oftar sem að maður hlustar því betri verður hún. Það er nefnilega pínu erfitt að komast inn í þennan 80′s/90′s syntha hljóðheiminn sem Ruddinn býr til eða amk þarf ég að vera búinn að undirbúa mig pínu fyrir það áður en ég byrja að hlusta.
En eins og ég sagði fyrst þá er mikið af New Order og (sérstaklega) Peter Hook í plötunni en svo þegar að maður er búinn að hlusta nokkrum sinnum í viðbót þá byrjar maður að heyra alls konar annað. Tónlistin minnir mig t.d. líka rosa mikið á Pet Shop Boys og jafnvel Depeche Mode á köflum (allt stórgóð bönd). Nú verður að segjast að þó að allar þessar hlómsveitir sem ég hef nefnt spila allar tónlist sem eru keyrðar áfram á grípandi syntha línum þá eru ær í grunninn mjög ólíkar. Það er því skemmtilegt að hlusta á Ruddann og heyra hvernig hann blandar þessu öllu saman. I Need a Vacation hljómar á köflum eins og tribute plata til heiðurs hljómsveitunum sem Bertel ólst upp við.

Lög vikunnar eru að þessu sinni tvö og gefa ágætis mynd af því hvernig lögin á plötunni eru nokkur hrærigrautur af áhrifavöldum Ruddans. Fyrra lagið er upphafs lag plötunnar og heitir Music Theory og það seinna Cover the Distance. Bæði mjög hressandi og eiga vel við svona á vorin.

Music Theory

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Cover the Distance

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

12.3.2012 - Georg Atli

Ruddinn – I Need a Vacation

Ég var svo lélegur að skrifa um plötu mánaðarins í síðasta mánuði að ég ákvað bara að framlengja febrúar plötuna fram í mars. Þess vegna ætla ég að byrja á því að benda á fyrstu færsluna um I Need a Vacation.

Lag þessarar viku er hinsvegar titil lagið. Það passar bara svo ótrúlega vel við veðrið þessa dagana. Ég held amk að það séu ekki margir landsbúar sem að eru ekki að láta sig dreyma um hlýjar strendur eða einhverskonar frí.

Lagið er sungið af Ruddanum og Heiðu (úr Hellvar) og eins og annarsstaðar á plötunni þá passa raddirnar vel saman og lagið er vel danshæf. Svo er einhvern vegin töluverður nostalgíufílíngur yfir því, eins og maður hafi bæði heyrt það og skemmt sér (vel) yfir því einhvern tíman miklu fyrr. Persónulega finnst mér þetta vera skemmtilegasta lagið á plötunni.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

13.2.2012 - Georg Atli

Ruddinn – I Need a Vacation
Loksins er komið að nýrri færslu um plötu mánaðarins. Í þetta skiptið er það nýjasta plata Ruddans sem kallast I Need a Vacation. Platan kom reyndar út í águst í fyrra þannig að hún er kannski ekkert glæný en það breytir því ekki að hún er mjög skemmtileg. Þessi plata er þriðja plata Ruddans og hún var í vinnslu í heil 3 ár. Heiða Eiríksdóttur (úr Hellvar) syngur flest lögin á plötunni en Ruddinn syngur líka auk þess sem Skapti Soulviper syngur eitt laganna á plötunni.

Tónlist Ruddans er staðsett einhversstaðar á milli rokk tónlistar og synthapopps og minnir um margt einmitt á Hellvar og auk þess heyrir maður sterk áhrif frá póst-pönki níunda áratugarins (það er mjög stutt í líkingar við hljómsveitir eins og t.d. New Order og jafnvel Cabaret Voltaire). Lögin er öll þannig uppbyggð að tempóið er hátt og platan er skemmtileg að hlusta á.

Við byrjum á laginu Too Distant for Us, sem er þriðja lag plötunnar. Það er Sungið af Heiðu og ég fann meira að segja myndband við það á youtube, gaman að því. PLötuna er hægt að nálgast á Gogoyoko.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata Mánaðarins

13.11.2011 - Georg Atli

Skurken – Gilsbakki

Lag vikunnar er lagið Stiklur. Mér finnst þetta vera besta lag plötunar, það byrjar hægt og uppbyggingin er dramatísk en svo keyrist það upp í alveg frábæran hraðan Drum n’ Bass/Drill n’ Bass kafla sem nær hápunkti við þriðju mínútu þar sem að Skurken leikur raflistir sínar einstaklega vel. Mér finnst nákvæmlega þetta lag staðfesta hvað þetta er góð plata. Tímalaust lag og það er sérstaklega skemmtilegt að heyra í hörpu slætti (eða einhverjum hljómlíkum synthagaldri, er ekki alveg nógu klár til að þekkja muninn) í laginu, maður er ekki alveg vanur því í þessari tegund tónlistar.

Skurken – Stiklur

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fyrir áhuga sama þá er Skurken að bjóða frítt niðurhal af plötunni Í Þágu Fallsins á Soundcloud-inu sínu, sem hann gerði í samvinnu við Prince Valium (annar flottur raftónlistarmaður sem þið gerið vel með að tjékka á).

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

6.11.2011 - Georg Atli

Skurken – Gilsbakki

Loksins komin tími á plötu mánaðarins! Í þetta skiptið verður það nýjasta plata listamannsins Skurken, sem ber nafnið Gilsbakki. Skurken hefur er einn af snjallari raftónlistarmönnum hér á landi og hefur verið ansi lengi að og gert ýmislegt, m.a. stofnaði hann nýlega Möller Records sem gefur plötuna einmitt út. Tónlistin hans fellur í flokk sem að heitir því hræðilega hrokafulla nafni Intelligent Dance Music eða IDM (það voru líklega einhverjir aðdáendur sem ákváðu þettan stimpil, ekki listamennirnir) og Gilsbakki er þess vegna sett á sömu grein og plötur eftir t.d. Autechre, Aphex Twin, µ-Ziq og Plastikman. Það má því eiginlega segja að það sé ansi þungur róður fyrir Skurken alveg frá byrjun. En þrátt fyrir fáránlega háan gæðastaðal sem er settur á vegna samanburðar við fyrrnefnda meistara þá virkar platan rosalega vel.

Lagið sem ég ætla að láta fylgja með er fyrsta lagið af plötunni, það heitir Römer (Harry Klein) og það nær stemningunni á plötunni ansi vel. Það er svona sæmilega melankólískt og það er hrærigrautur af allskonar hljóðum og hljómum. Skurken blandar saman allskonar áhrifavöldum t.d. píanóleiknum hjá Plone og jafnvel seinni tíma Aphex Twin sem og Plaid (sem ég skrifaði einhvern tíman pínulítið um í lista) og tekst það bara ansi vel. Hlustið endilega á lagið hér að neðan og fylgist með síðar í mánuðuinum því það er alltaf gaman að velgerðri raftónlist (en ef þið getið engan vegin beðið þá er hægt að hlusta hér).

Skurken – Römer (Harry klein)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

21.9.2011 - Kristín Gróa

Þið munið vonandi eftir plötu septembermánaðar, hinni frábæru Pink Boats með hljómsveitinni Vigri. Nafn plötunnar kemur víst úr upptökuferlinu en strákarnir tóku eftir því að þegar dagurinn leið undir lok og sólin settist þá urðu bátarnir við sjóndeildarhringinn alltaf bleikir í rauða sólsetrinu. Nafn hljómsveitarinnar er svo fengið frá síðasta skipinu sem afi bræðranna (og hljómsveitarmeðlimanna) Bjarka og Hans var skipstjóri á. Mér finnst bæði heitin tengjast fallega við hvort annað og söguna af því hvernig platan varð til.

Það er svo vert að vekja athygli ykkar á því að útgáfutónleikar hljómsveitarinnar eru á morgun, fimmtudaginn 22. september, og ég hvet ykkur eindregið til að mæta á staðinn. Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 20:30 og það kostar aðeins 1500 krónur inn. Forsala miða fer fram á midi.is.

Hlustum svo á lagið Animals :)

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

14.9.2011 - Kristín Gróa

Þá er komið að annarri færslunni um plötu septembermánaðar en það er platan Pink Boats með hljómsveitinni Vigri. Lag vikunnar er Sleep en það er að mínu mati eitt sterkasta lagið á plötunni. Það vill svo skemmtilega til að strákarnir gerðu (ásamt Ragnari Snorrasyni) alveg ofboðslega flott en um leið mjög óhugnanlegt myndband við þetta lag. Ég hvet ykkur þess vegna til að horfa á myndbandið og til að kaupa plötuna sem fæst m.a. hér.

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

8.9.2011 - Kristín Gróa

Þið hélduð kannski að við værum búin að gefast upp á plötu mánaðarins en það er nú aldeilis ekki! Við vorum bara í smá sumarpásu en nú er sumarið greinilega endanlega búið og við komin með plötu septembermánaðar í hendurnar.

Plata mánaðarins er Pink Boats með hljómsveitinni Vigri. Platan kom út 2. júní og er gríðarlega metnaðarfullt og vandað verk. Hljómsveitin sá sjálf um upptökur (en Birgir í Sundlauginni mixaði) og þær fóru fram í nokkrum íslenskum sveitakirkjum, elliheimili og kaffihúsi. Mér finnst hljómurinn á plötunni mjög innilegur og hlýr og ég held að valið á upptökustöðum hafi mikið með það að gera. Það ýtir eflaust undir þá tilfinningu að vita að þeir gerðu þetta allt sjálfir og við þessar óvenjulegu og oft einangruðu aðstæður. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að orða þetta en mér finnst eins og að þessi plata sé algjört “labour of love” og það heyrist. Það er líka merkilegt að þeir séu virkilega bara um tvítugt og skili af sér svona vönduðu verki.

Fyrsta lagið sem ég ætla að leyfa ykkur að heyra af plötunni er upphafslagið Awakening sem er kannski ekki mest grípandi lagið á plötunni en það er örugglega “stærsta” lagið og í augnablikinu í mestu uppáhaldi hjá mér. Mjög flott. Við fjöllum svo meira um plötuna á komandi vikum!

Vigri – Awakening

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin