Last Shop Standing í Bíó Paradís í kvöld

18.4.2013 - Kristjana

Af vef Bíó Paradís: Last Shop Standing: The Rise, Fall and Rebirth of the Independent Record Shop er byggð á samnefndri bók eftir Graham Jones og fer í saumana á því hvers vegna plötubúðum í Bretlandi hefur fækkað um nærri tvö þúsund.

Myndin segir frá örum vexti plötubúða á sjöunda, áttunda og níunda áratugi síðustu aldar, áhrifum vinsældalistanna, samningunum á bak við borðið, hnignun vínilsins og upprisu geisladisksins, auk nýrra tækni.

Í Last Shop Standing heyrum við í eigendum rúmlega tuttugu plötubúða, leiðandi fólki í tónlistariðnaðnum auk tónlistarmanna á borð við Paul Weller, Johnny Marr, Norman Cook, Billy Bragg, Nerina Pallot, Richard Hawley og Clint Boon, sem segja okkur hvernig plötubúðir urðu og eru enn, stór þáttur í tónlistarlegu uppeldi þeirra, kærkomið athvarf sem gerði þeim kleift að uppgötva nýja tónlistarmenn og nýja tónlist.

Aðeins ein sýning verður á myndinni, í kvöld kl. 20:00. Sýningin er haldin í samstarfi við Lucky Records sem verða með brot af því besta úr búðinni til sölu áður en sýningin hefst.

Meira hjá Bíó Paradís og miðar hjá miði.is.

Tags:
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Robert the Roommate gefa út samnefnda plötu

8.4.2013 - Kristín Gróa

Hljómsveitin Robert the Roommate er okkur toppfimm-liðum bæði kunn og kær enda vinir okkar þar innanborðs. Þau gáfu út samnefnda plötu á dögunum og við gætum ekki verið stoltari af þeim :) Útgáfutónleikarnir þeirra verða í Iðnó kl. 21 á fimmtudagskvöldið en þar mun Skúli mennski hita upp. Miðaverð er 2000 krónur og það er hægt að nálgast miða í Iðnó og á midi.is. Ég hvet alla til að mæta!

Opinber fréttatilkynning hljóðar svo:

Fyrsta plata hljómsveitarinnar heitir Robert the Roommate, samnefnd sveitinni kemur út föstudaginn 5 mars. Platan var hljóðrituð í Stúdíó Sýrlandi, í október 2012.
Um hljóðritun og hljóðblöndun sá Bjarni Þór Jensson en hljóðjöfnun var í höndum Hafþórs Karlssonar. Sérstakur gestur á plötunni er Elvar Örn Friðriksson.
Öll lögin á plötunni eru frumsamin og má helst lýsa tónlistinni sem þjóðlagaskotinni popp og rokktónlist, með áhrifum frá sveitum á borð við Led Zeppelin og Fleet foxes.

Hljómsveitin var stofnum vorið 2010, fyrst með það í huga að spila saman tónlist eftir gömlu og góðu meistarana á borð við Bob Dylan & Leonard Cohen.
Um haustið tók sveitin þátt í Lennon ábreiðulagasamkeppni Rásar2 og bar hún sigur úr býtum.
Nú einbeitir hljómsveitin sér að því að spila eigið efni sem má kannski helst lýsa sem þjóðlagaskotinni popp/rokktónlist.
Hljómsveitina skipa Rósa Guðrún Sveinsdóttir: söngur, Daníel Helgason: gítar, Þórdís Gerður Jónsdóttir: selló og Jón Óskar Jónsson: slagverk.

Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Valdimar og Biggi Hilmars í kvöld

26.3.2013 - Kristjana

Kaffi, kökur, rokk & ról býður upp á hugljúft kvöld í kvöld. Valdimar og Biggi Hilmars verða í Edrúhöll SÁA í Efstaleiti 7. Húsið opnar kl. 20:00, ljúfir tónar hefjast 20:30 og það kostar aðeins 500kr inn. Svo gott sem gefins og allir velkomnir.


Tags: , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Woodkid þrenning

5.3.2013 - Kristjana

Í tilefni af væntanlegri plötu Woodkid, The Golden Age er ekki úr vegi að hita upp með þessari mögnuðu þrenningu. Ó þessi rödd.

Iron

Brooklyn

Og síðast, en tvímælaust ekki síst, I Love You

Tags:
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 unglingsárin

29.6.2012 - Kristín Gróa

90′s danstónlist

Þegar ég var tween þá var ég með skitsó tónlistarsmekk enda bara krakki sem vildi bæði hlusta á það sem var vinsælt og líka það sem bara ég fílaði. Það sem ég hlustaði á í einrúmi voru Bítlarnir, Elton John og Lenny Kravitz. Það sem ég hlustaði á með öðrum var Sálin, 90′s danstónlist og Take That. Ef ég verð að vera alveg hreinskilin þá man ég ekki til þess að hafa fílað Bítlana eitthvað meira en Sálina svo ég ætla ekkert að þykjast hafa kunnað eitthvað betra að meta en hinir krakkarnir. Af vinsældalistatónlistinni hefur 90′s danstónlistin þó enst mér á þann hátt að mér finnst enn gaman að heyra hana öðru hvoru. Ég hlusta auðvitað ekki á hana að staðaldri en hverjum finnst leiðinlegt að heyra Pump Up The Jam eða Rhythm Is a Dancer í góðu geimi? Engum!

Blur

Ég fékk Parklife í fermingargjöf frá vinkonu minni og að öllum öðrum gjöfum ólöstuðum þá held ég að það sé eftirminnilegasta fermingargjöfin. Ég elskaði Blur og veggfóðraði herbergið mitt með plakötum af Damon Albarn sem var uppáhaldið mitt. Ég og vinkona mín fórum með stjörnur í augunum á tónleikana þeirra í Laugardalshöll (alveg aaaaaleinar… mamma skutlaði okkur!) og ég get sko sagt ykkur það að ég á miðann ennþá. Eftir að ég fór að hlusta á Blur þá opnaðist britpop flóðgáttin og ég hlustaði mikið á Oasis, Pulp, Supergrass, Ash og The Bluetones. Blur voru samt (og eru) alltaf í uppáhaldi.

Smashing Pumpkins

Ég veit að sumir *hóst* Georg Atli *hóst* hata Billy Corgan meira en pestina og ég get fyllilega skilið það. Náunginn er auðvitað douche af hæstu gráðu. Það breytir því ekki að þegar ég var 15 ára þá komst ég einhvernveginn að því að þessi Smashing Pumpkins hljómsveit væri voðalega kúl svo ég keypti Mellon Collie And The Infinite Sadness án þess að vita nokkuð hvað það væri. Í stuttu máli þá elskaði ég þessa plötu. Ég hlustaði á báða diskana aftur og aftur og aftur, las textana eins og þeir væru ljóð (ég veit…) og krotaði Smashing Pumpkins hjartað á skólabækurnar mínar. Ég hugsaði með mér að ef ég myndi einhverntíma fá mér flúr þá myndi það vera Smashing Pumpkins hjartað. Hversu vandræðalegt væri það núna? Mjög. Þetta er ástæðan fyrir því að maður fær sér ekki flúr þegar maður er unglingur.

Radiohead

Just var fyrsta lagið sem ég féll fyrir hjá Radiohead og undarlega myndbandið við það sem gerir mig enn þann dag í dag pínu kreisí. Ætli hápunktur Radiohead aðdáunarinnar hafi þó ekki verið þegar Ok Computer kom út en ég hlustaði svo mikið á þá plötu að það er skrítið að diskurinn sé enn í heilu lagi. Seinna meir komu Kid A og Amnesiac og þó þær séu rosalega góðar þá missti ég hálfpartinn áhugann á Radiohead upp úr þeim tíma. Mikið ósköp er samt Ok Computer góð plata.

Pixies

Ég byrjaði að hlusta á Pixies því ég var skotin í strák. Er það ekki dæmigert? Ég var að verða 16 ára og hann fílaði Pixies svo ég ákvað að fíla Pixies. Sem betur fer þá fílaði ég Pixies virkilega mikið þegar ég fór að hlusta enda entist Pixies aðdáun mín mun lengur en aðdáunin á þessum strák. Ég keypti Surfer Rosa/Come On Pilgrim sumarið 1997 og mér fannst hún svo ógeðslega kúl og töff og ég varð auðvitað ógeðslega kúl og töff by proxy. Athugið að þetta gerðist auðvitað allt í höfðinu á mér og það tók enginn annar eftir því hversu fáránlega kúl og töff ég var. Ég skil ekkert í þeim.

Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Gal Musette

25.5.2012 - Kristjana

Fyrir 14 árum fæddist stúlka í Kaliforníu. Stúlkan var nefnd Gal og Kalifornía kippti sér lítið upp við nýjasta borgarann. Ári síðar gaf Stephen Merritt (ok, ok, Magnetic Fields) út 3 unaðslega góðar plötur, 69 Love Songs pt. 1, pt. 2 og, jú, pt. 3. Já, 69 lög um ástina frá öllum sjónarhornum. 69 góð lög um ástina frá öllum sjónarhornum!

Það er hægt að týna sér algjörlega í plötunum þremur, svo ekki sé minnst á allt hitt sem frá Merritt hefur komið. Það kom mér því ekkert gífurlega á óvart þegar ég sá að hin kaliforníska Gal dýrkaði og dáði Magnetic Fields og fannst bara sniðug hugmynd hjá henni að taka upp 70 love songs til heiðurs uppáhalds hljómsveitinni sinni. Ég bjóst hins vegar ekki við að þau yrðu góð en ég bara get ekki hætt að hlusta á þessa rödd.

Það verður allavega spennandi að sjá hvort henni tekst að halda þetta út nógu lengi til að ná 70 lögum. Það kannski hjálpar til að hún er 14 ára – hvað er betra en 70 lög um ástina þegar maður er á gelgjunni?

Tags: , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess meðmæli #3 – Man Made

24.5.2012 - Kristjana

Þó hinn breski Nile Marr sé enn ungur að árum, ekki nema 19 ára, hefur hann verið að koma fram sem Man Made í fjögur ár nú þegar. Á síðustu árum hefur hann m.a. spilað með Broken Social Scene og Bright Eyes og í lok 2011 gaf hann út samnefnda EP plötu. Man Made hlaut ansi ágætis viðtökur og eftir útgáfuna túraði hann um Bretland og Evrópu með Howler.

Man Made er nú að undirbúa útgáfu næstu EP plötu sinnar og mun spila hér, þar og allstaðar á seinni hluta 2012.

Spurningarnar 5

Man Made var svo vingjarnlegur að svara spurningunum okkar 5:

What are your biggest influences?

Modest Mouse are probably my biggest influence, I think mostly from being around them so much as a kid. Fugazi are a pretty big deal for me too, their whole ethos is a great code for a band to try to work by. As a guitar player though, i just want to be like John Reis in Hot Snakes. That guy’s playing is amazing.”

What’s next up for you after RvkMM?

“After this, I head back to the UK and I’m recording the next E.P. I’m doing it with some friends so I’m excited to see what happens. Then it’s back to playing shows, I want to be back in Iceland for Airwaves later in the year.”

What would you recommend seeing at RvkMM?

“There’s just so much on, I think if you’re planning on seeing anyone in particular you should forget it and just stay to see everyone.”

Best concert you’ve seen?

“Well, my current favourite would probably have to be seeing Hot Snakes play at the Brudenell in Leeds. It’s my favourite venue in the UK and it was Hot Snakes’ first UK tour in like 10 years or something stupid. I just figured they would be one of those bands I’d never get to see, and I was cool with that mind, so when they announced the shows, I freaked.

The Computers opened for them, and they were perfect. The singer started bleeding everywhere within the first 30 seconds, so you knew it was going to be a show. Then Hot Snakes came on and rocked it. I just parked myself front row, right infront of John Reis’ amp, it was a trip. That guy plays so loud and fast, and every riff he plays he looks like he’s just come up with it then and there. You can tell the guy really loves being a guitar player. I left that show totally deaf, and with all the merch I could get my hands on… FAN BOY !!!”

What are you listening to right now?

“Right now I’ve been listening to the last Eazy E record, Straight off the Streetz of Muthafuckin’ Compton quite a bit. The first Codeine album, Frigid Stars. I’ve found a whole new love of Moon Safari by Air. But mostly I’ve had the Meredith Sheldon record on loop. I think it’s out now. She’s amazing.”

Hvar og hvenær?

Man Made spilar á Reykjavík Music Mess á laugardagskvöldið kl. 22:00 á Faktorý og á sunnudaginn kl. 15:00 á Kex Hostel (frítt inn, vúhú!).

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess hefst í kvöld!

24.5.2012 - Kristjana

Loka loka áminning – Reykjavík Music Mess hefst í kvöld! Dagskrá kvöldsins er ekki af verri endanum en fram koma Cheek Mountain Thief, Tilbury, Dikta og Morðingjarnir. Tónleikarnir verða á Nasa, Reykjavík Music Mess miði veitir aðgang en einnig er hægt að kaupa miða einungis fyrir kvöldið í kvöld á miði.is.

Er ekki við hæfi að fá létta upphitun?

Cheek Mountain Thief (spila kl. 21:45)

Tilbury (spila kl. 22:30)

Dikta (spila kl. 23:15)

Morðingjarnir (spila kl. 00:30)

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess meðmæli #2 – Legend

23.5.2012 - Kristjana

Legend er dúett skipaður ekki ómerkari mönnum en Krumma Björgvinssyni og hljómborðsleikaranum Halldóri Björnssyni. Þeir Krummi og Halldór hafa lengi verið vinir og hafa verið að gera tónlist sitt í hvoru lagi í næstum 20 ár.

Þeir deila áhuga á elektrónísku goth poppi hljómsveita eins og Depeche Mode, Ministry, Bauhaus og Throbbing Gristle og tónlist Legend er í svipuðum dúr.

Spurningarnar 5

Legend voru svo vingjarnlegir að svara spurningunum okkar 5:

Hverjir eru stærstu áhrifavaldarnir ykkar?

“Fyrir þetta samstarf þá er það aðallega iðnaðarrokk frá áttatíu áratugnum. Mikill drif bassi og gamlir hljóðgervlar. Allt soldið ljúfsárt og kuldalegt.”

Hvað er næst á dagskrá hjá ykkur eftir RvkMM?

“Við erum að koma mikið fram og fylgja plötunni okkar, Fearless, eftir. Við erum að spila á tónlisthátið í Keflavík í næsta mánuði. Útgáfutónleikar í bígerð. Við erum bókaðir á Lunga á Seyðisfirði síðan er það Akureyri í Sept og fullt meira. Við erum með 3 tónlistamyndbönd á klippiborðinu, þannig að í sumar munu nokkur af þeim líta dagsins ljós.”

Með hverju mælið þið á RvkMM?

“Við mælum með því að þú reynir að sjá sitt hvor af öllu. Þetta eru allt frábærir listamenn sem koma þarna fram! En það má alls ekki missa af okkur ;-)

Bestu tónleikar sem þú/þíð hafið haldið?

“Okkur leið gríðarlega vel að spila á síðustu Airwaves hátið. Það voru vel heppnaðir tónleikar!”

Á hvað eruð þið að hlusta á núna?

Killing Joke – Discography, The Germs- The Complete Anthology, Gatekeeper – GIZA Ep, Nitzer Ebb – Showtime.”

Hvar og hvenær?

Legend spila á Reykjavík Music Mess aðfararnótt laugardags kl. 02:00 á Faktorý. Enn er hægt að nálgast einhverja miða á midi.is.

Hægt er að nálgast plötu Legend, Fearless, hjá vinum okkar gogoyoko.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess kveður Nasa með aukatónleikum

23.5.2012 - Kristjana

Reykjavík Music Mess gleðin eykst með hverjum deginum því nú hefur verið tilkynnt að sérstakir aukatónleikar verði haldnir á Nasa á fimmtudaginn, þann 24. Dikta, Tilbury, Cheek Mountain Thief og Morðingjarnir munu koma fram og tónleikarnir hefjast upp úr kl. 21. Reykjavík Music Mess miði mun veita aðgang en einnig verður hægt að kaupa miða einungis fyrir fimmtudagskvöldið á miði.is og við inngang og er miðaverðu einungis 1.000 kr.

Eins og við höfum áður nefnt munu alls 18 hljómsveitir koma fram á hátíðinni yfir helgina – á Nasa, Kex Hosteli og Faktorý. Meðal þeirra eru Reykjavík!, Benni Hemm Hemm, My Bubba & Mi frá Danmörku, Snorri Helgason og Laura J. Martin frá Englandi. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu hennar www.reykjavikmusicmess.com. Svo er um að gera að minna enn og aftur á að frítt er inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hostel.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin