Topp 5 erlendar plötur ársins 2012 – Georg Atli
11.1.2013 - Georg Atli
Erlendur árslisti í þessari viku. Það var rosa erfitt að velja þessar plötur úr og allt það, margar góðar eins og venjulega en mér fannst samt ekkert rosalega erfitt að raða þessum 5 efstu. Að mínu mati skáru þær sig frekar vel úr og voru áberandi bestar. Ég ætla samt að birta næstu sætin fyrir neðan listann minn og þær eru 10 í heildina og þeim er raðað í gæðaröð þannig að þetta eru í raun 15. -6. sætið, þó að það sé ekki merkt eða neitt svoleiðis.
Tame Impala – Lonerism
Four Tet – Pink
Beach House – Bloom
Titus Andronicus – Local Buisness
Grimes - Visions
Dirty Projectors – Swing Lo Magellan
Fiona Apple – The Idler Wheel Is Wiser Than The Driver Of The Screw And Whipping Cords Will Serve You More Than Ropes Will Ever Do
Diiv - Oshin
Sharon van Etten – Tramp
Japandroids – Celebration Rocks
5. Death Grips – Money Store
Hafði aldrei heyrt neitt um þessa hljómsveit og svo allt í einu kom sprengja. Fyrst var það plata sem spengdi á mér hausinn og var það ferskasta sem ég hafði heyrt innan rapp bransans í nokkuð langan tíma. Platan dalar reyndar svolítið eftir ítrekaðar hlustanir en hún kemur hérna inn á listan vegna alls attitude-sins. Plata sem er svo aggresíf að eftir á verður maður frekar ruglaður í hausnum og veit ekki alveg hvað var að gerast.
4. The Evens – The Odds
Ian McKaye er snillingur. Hérna er hann að semja tónlist með trommuleikaranum/söngkonunni Amy Farina (úr The Warmers) og það þarf ekkert frekari orð um þessa plötu
3. Dan Deacon – America
Álit mitt á Dan Deacon heldur áfram að aukast með hverri hlustun. Mæli líka með því að þið athugið mashup-ið hans (Wish Book vol. 1), það er mjög skemmtilegt og það er hægt að hlusta og sækja það frítt á soundcloud.
2. Moonface w. Siinai – Heartbreaking Bravery
Airwaves er líklega allra stærsta ástæðan fyrir því að þessi plata skorar svona hátt hjá mér. Ég var búinn að hlusta nokkuð á plötuna fyrir hátíðina og sá þá svo live. Það voru án efa bestu tónleikarnir sem ég sá þetta árið og platan hefur verið í mikilli spilun hjá mér eftir það. Spencer Krug er mjög frekar magnaður, las einhversstaðar að hann væri svara Kanada við Damon Albarn.
1. Frank Ocean – Channel Orange
Rosalegafrábær plata. Channel Orange er góð alveg út í gegn, byrjar rólega og líður áfram í fullkomnu samhengi sem er sorglega sjaldgæft. Textarnir eru flottir, taktarnir vandaðir og sálin og grúvið sem er þarna eru ótrúleg. Þetta er lang besta plata ársins og líka sú mest spilaða hjá mér, ég einfaldlega gat ekki hætt að hlusta.
Tags: Alt-J, Árslistar, Beach House, Diiv, Dirty Projectors, Django Django, Fiona Apple, Four Tet, Grimes, Japandroids, Sharon Van Etten, Sleigh Bells, Swans, Tame Impala, The XX, Titus Andronicus
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2013
7.1.2013 - Georg Atli
Tónlistarsjóðurinn Kraumur var að auglýsa eftir umsóknum fyrir 2013. Í auglýsingunni segir “Tónlistarfólk og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar geta sótt um stuðning fyrir verkefni sín” og það er líka hægt að sækja um fyrir önnur (tónlistartengd) fræðsluverkefni og viðburði.
Kraumur er sjálfstæður sjóður á vegum Auroru og meiginhlutverk hans er “að efla íslenskt tónlistarlíf með stuðningi og faglegri aðstoð við unga listamenn”.
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið eru veittar á heimasíðu Kraums: http://kraumur.is/samband/umsoknarferli-2013/
Umsóknarfresturinn er til 4. febrúar 2013.
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Topp 5 íslenskar plötur ársins 2012 – Georg Atli
4.1.2013 - Georg Atli
Eins og alltaf þá var alveg fáránlega erfitt að velja bara 5 plötur og ég bara get ekki með góðri samvisku skrifað færslu um bestu plötur ársins án þess að amk nefna þessar 10 sem koma í næstu sætum fyrir neðan þær. Þessar plötur sem koma hérna næst eru allt plötur sem að ég átti í erfiðleikum (mismiklum að vísu) með að skera frá Topp 5 listanum mínum og mér finnst allar eiga það skilið að þið athugið þær aðeins betur, mér finnst líka rétt að taka fram að mér þótti sérstaklega erfitt að sleppa plötum Hjaltalín og Múgsefjunar af loka 5 plötulistanum mínum. Í stafrófsröð eru það eftirfarandi plötur sem ég þurfti að skera frá lokalistanum:
Borko - Born to be Free
Cheek Mountain Thief – Cheek Mountain Thief
Davíð Þór Jónsson – Improvised Piano Works 1
Dream Central Station – Dream Central Station
Ghostigital – Division of Culture & Tourism
Hjaltalín – Enter 4
Muck – Slaves
Múgsefjun – Múgsefjun
Ojba Rasta – Ojba Rasta
Retro Stefson – Retro Stefson
Tilbury – Exorcise
Topp 5 íslensku plöturnar 2012
5. Pétur Ben – Gods Lonely Man
Önnur plata Péturs Ben er ótrúlega ólík þeirri fyrstu. Þyngri, erfiðari, tilkomumeiri og betri
4. Þórir Georg – I Will Die and You Will Die and it Will be Alright
Þórir Georg sendi frá sér eina af bestu plötum árins og hann gerði það í sama stíl og plöturnar hans hafa verið, með mikilli hæversku og lítillæti. Platan er heillandi og innileg og eins og oftast snýst hún að mestu leyti um Þóri Georg, gítarinn hans og texta.
3. The Heavy Experience – Slowscope
Þetta er ein af þessum plötum sem að er eiginlega bara hægt að hlusta á ef maður er einn heima hjá sér. Maður byrjar að spila hana og svo sekkur maður neðar í sætið sitt og reynir síðan af öllu afli að hægja á allri líkamsstarfseminni sinni svo að ekkert geti truflað mann við það að hlusta.
2. Moses Hightower – Önnur Mósebók
Sálartónlist á íslenska vísu. Skemmtileg plata með mikið af skemmtilegum pælingum, æðislega skemmtilegum textum og rosalega skemmtilegum lögum.
1. Sudden Weather Change – Sculptures
Frábær plata frá Sudden Weather Change sem að ég held að því miður hafi of margir miðlar hreinlega gleymt í sínum uppgjörum. Mjög þroskuð og heilsteypt plata. Það allra besta sem ég hef heyrt frá SWC og það besta sem ég heyrði í ár.
Tags: Borko, Cheek Mountain Thief, Davíð Þór Jónsson, Dream Central Station, Ghostigital, Hjaltalín, Moses Hightower, MUCK, Múgsefjun, Ojba Rasta, Pétur Ben, Retro Stefson, Sudden Weather Change, The Heavy Experience, Tilbury, Þórir Georg
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Árslistar!!!
3.1.2013 - Georg Atli
Á morgun byrjar síðan okkar aftur eftir óþarflega langa pásu og við byrjum með hvelli!
Þið megið skipta þessari klisju í fyrstu línunni út fyrir einhverja aðra ef þið viljið eða bara sleppa því alveg að lesa hana en það breytir því ekki að á morgun ætlum við að byrja að birta árslistana okkar. Eins og venjulega erum við ekkert með neitt lýðræðiskjaftæði og atkvæði einstakra Topp fimmara skipta engu máli því að við birtum bara okkar eigin lista fyrir hvern og einn og það getur verið mjög skemmtilegt að sjá hversu ólíkir/líkir þeir eru. Á morgun koma íslensku plötur ársins og næsta föstudag eftir það (11. jan) koma svo erlendu plöturnar og þar á eftir (18. jan) er röðin komin að lögum ársins. Gaman.
Til að hita upp er gott að renna yfir listana okkar frá því í fyrra og svo nokkra af helstu tónlistarfréttamiðlunum.
Topp 5 2012 íslenskt og erlent- Georg Atli (efst voru Snorri Helgason og PJ Harvey)
Topp 5 2012 íslenskt og erlent- Kristín Gróa (efst voru Of Monsters and Men og PJ Harvey)
Topp 5 2012 erlent - Snorri (efst var PJ Harvey)
Svo allir hinir:
Rjóminn valdi Exorcise plötu Tilbury þá bestu íslensku og erlendis var það Kishi Bashi.
Kraumur valdi 6 plötur á sinn úrvals lista en það voru plötur Hjaltalín, Ásgeirs Trausta, Retro Stefson, Moses Hightower, Péturs Ben og Ojba Rasta.
Straum.is fannst Ojba Rasta vera besta plata ársins
Fréttablaðið valdi (með gríðar lýðræðislegum hætti) Moses Hightower bestu plötu Íslands og Jack White átti erlendu plötu ársins (sem kom mér svolítið á óvart)
Fréttatíminn (bls. 50) notaði sömu aðferð og Fréttablaðið nema það að úrtakið var nokkuð stærra en úr 23 manna dómnefnd endaði Ásgeir Trausti á toppnum.
Ég nenni svo ekki að linka á alla þessa útlensku lista ef þið eruð ekki búin að lesa þá alla þá er google vinur ykkar.
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Föstudagslagið
23.11.2012 - Georg Atli
Langt síðan að við vorum með föstudagslag en hér kemur eitt gott. Lag dagsins er reyndar miklu frekar heimasíða eða öllu heldur tónlistarspilari, því að hann er eiginlega miklu frekar aðalatriðið í þessu. Það er nefnilega eitthvað til sem heitir Music Hack Day og það er ansi sniðugt fyrirbæri sem ég ætla nú ekki að útskýra hérna (bendi frekar á wikipedia) en MHD hefur verið haldið hér á íslandi (var í HR í lok október, ef ég man rétt) og reyndar út um allan heim (meðal annars á Sónar í Barcelona og hjá MIT háskólanum og bara fullt af stöðum).
Eitt af tækjunum sem ég fann í tengslum við þetta (frændi minn póstaði þessu á facebook-ið sitt í dag, takk Jón Grétar!) var Infinite Jukebox. Þetta er tæki sem að lúppar lögum í hringi þannig að það verður endalaust. Nördarnir geta lesið meira um þetta hér og hér en fyrir þá sem nenna ekki að lesa tæknilega röflið (sem er samt skemmtilegt) þá er lagið brotið noðir í takta (beats) og síðan notður algórythmi til að reikna út tengingar í laginu og síðan er búinn til nokkuð fallegt útlit og svo spilast lagið bara í hring eftir hring! Svo er hægt að nota lyklaborðið til að fikta í laginu (örva takkarnir, ctrl, shift og H).
Ég setti lagið Hvítir Skór með þeim BlazRoca og Ásgeiri Trausta inn í glymskrattann (þetta sem þeir gerðu fyrir Hljómskálann í gær) og það er svona hrikalega skemmtilegt, tjékkiði á þessu. Það þarf reyndar að fara út af Topp5 en fyrir svona skemmtilegheit er leyfist það alveg! Ég hvet ykkur svo bara til þess að skða þetta í ró og næði finna lag sem er þegar komið þarna inn eða hvað sem er og fikta ykkur áfram.
Blazroca og Ásgeir Trausti – Hvítir Skór (Infinity Jukebox)
p.s. það eru smá feilar í þessu sum lögin festast t.d. í stuttum lúppu og ef þið viljið spila lögin og gera eitthvað annað íá meðan þá verðiði að opna þetta í nýjum glugga (ekki nóg að vera í flipa)
Tags: Ásgeir Trausti, BlazRoca
Flokkað undir Föstudagslagið, Georg Atli | Comments Off
Íslenskur vínylmarkaður á Kexinu!
22.11.2012 - Georg Atli
Íslensk vínyl útgáfa stendur í miklum blóma þessi misserin enda er fátt eigulegra en góð (íslensk) tónlist á vínylplötu. Titlarnir hrúgast út í búðirnar í allskonar útgáfum, litaðar plötur, númeraðar plötur tvöfaldar plötur, 10″ plötur og allskonar margt fleira. Þess vegna er mér sérstaklega gleðilegt að birta þessa tilkynningu sem við fengum um Íslenskan vínyl markað semverður á Kex hostel á laugardag. Það Snorri Helgason sem stendur á bak við þetta skemmtilega framtak og þú getur (ef þú ert tónlistarmaður með “brakandi ferskan vínyl í pokahorninu”) meira að segja fengið að vera með, sendu bara póst á Snorra Helgason
Þeir sem ætla að vera með eru (ekki tæmandi listi því að það er alltaf að bætast nöfn við, best að fylgjast með á facebook):
Snorri Helgason, Borko, Tilbury, Retro Stefson, Ojba Rasta, Múm, Ásgeir Trausti, Ólöf Arnalds, Sin Fang, Legend, The Heavy Experience, Prinspóló, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Of Monsters and Men, For a Minor Reflection, Moses Hightower, Kira Kira, Valdimar, Berndsen og Lay Low.
Markaðurinn verður á Kex hostel á laugardaginn á milli 13 og 17 og það verður meira að segja lifandi tónlist líka! Hér er event-inn aftur.
Þangað til getið fengiuð smá innsýn inn í plötusafn Cut Chemist (Ozomatli, Jurassic 5)
Tags: Ásgeir Trausti, Berndsen, Borko, For a Minor Reflection, Hjálmar, Kira Kira, Lay Low, Legend, Moses Hightower, Múm, of monsters and men, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Prinspóló, Retro Stefson, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Sin Fang, Snorri Helgason, The Heavy Experience, Tilbury, Valdimar
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Þórir Georg með nýja plötu
14.11.2012 - Georg Atli
Við fengum tilkynningu um það að tónlistarmaðurinn Þórir Georg hafi verið að senda frá sér nýja plötu. Platan heitir I Will Die & You Will Die & It Will be Alright og kemur út á vegum Kimi Records (hér á landi) í tilefni plötunar verða svo ókeypis útgáfutónleikar í kvöld á Hemma og Valda Prikinu, þar sem platan verður til sölu bæði á CD og LP á tilboði. Það er gaman. Tilkynninguna getiði lesið í heild sinni hér að neðan en þar má líka finna lag af plötunni og allra neðst í færslunni eru tónleikadagsetningar Þóris í Þýskalandi… svona ef einhver ykkar skyldi vera á ferðinni.
Þórir Georg býður til útgáfuhófs í Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda miðvikudagskvöldið 14. nóvember kl. 21 vegna útgáfu nýrrar breiðskífu hans. Platan I Will Die & You Will Die & It Will be Alright kemur út föstudaginn 16. nóvember næstkomandi á vegum Kimi Records. Hún verður fáanleg á geisladiski og vínylplötu.Veitingar verða til sölu eins og venjulega á Hemma & Valda, en tónleikarnir verða ókeypis og hægt verður að kaupa plötuna á staðnum, á svona líka góðum kjörum.
Útgáfuhófið er á sama tíma lítið kveðjuhóf því daginn eftir heldur Þórir í tveggja vikna tónleikaferð um Þýskaland, en platan kemur út samtímis þar í landi hjá þýska útgáfufélaginu Stargazer Records. Dagskrá tónleikaferðarinnar má sjá hér að neðan.
Um I Will Die & You Will Die & It Will be Alright:
Þórir Georg er afkastamikill tónlistarmaður. Undanfarin ár hefur hann komið fram undir nafninu My Summer as a Salvation Soldier og einnig verið meðlimur í fjölmörgum rokksveitum á borð við Gavin Portland, Ofvitarnir, Deathmetal Supersquad og fleirum. I Will Die & You Will Die & It Will be Alright er persónuleg plata þar sem Þórir kemur einn að verkinu. Hann tekur upp og hljóðblandar, hljómjafnar og sér um hönnun á umslagi. Þrátt fyrir það er platan afar fjölbreytt og margslungin. Hún flakkar milli þess að vera þung og drungaleg rokktónlist yfir í glettna og persónulega tónlist þar sem rödd og gítarleikur Þóris fær að njóta sín.
Tónleikadagskrá:
14.11. Reykjavík – Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda
15.11. Köln – Lichtung
16.11. Hamburg – Hasenschaukel
18.11. Münster – Fachwerk Gievenbeck
21.11. Berlin – Intersoup
22.11. Osnabrück – Lagerhalle
23.11. Göttingen – Blooming Bar
24.11. Zwickau – Alter Gasometer
25.11. Chemnitz – Aaltra
26.11. Leipzig – Lu 99
27.11. Erfurt – Stadtgarten
29.11. Bayreuth – Glashaus
Tags: Deathmetal Supersquad, Gavin Portland, My Summer as a Salvation Soldier, Ofvitarnir, Þórir Georg
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Múgsefjun – Múgsefjun
13.11.2012 - Georg Atli
-Meira af næstum því sama frá Múgsefjun en það gerir ekki til því að þessi “sami hljómur” er bara svo vel heppnaður.-
Drengirnir í Múgsefjun gáfu út sína aðra plötu fyrir nokkru síðan (11. júní). Platan tók heil 3 ár í vinnslu og ég verðað segja fyrir mitt leyti að ég var eiginlega búinn að afskrifa þessa hljómsveit… hún hálfpartinn gleymdist sem er sorglegt því að Múgsefjun er ein af okkar skemmtilegustu hljómsveitum.
Það er mjög vinsælt þegar að fjallað er um tónlist (og þá plötur sérstaklega) að nefna einhver þekkt verk sem tiltekin tónlist minnir mann á. Þetta er gert til þess að lesandinn nái að tengja betur við það sem hann les og áttar sig nokkurn vegin á því hvernig platan sem skrifað er um hljómar. Þegar að ég fór að hugsa um þetta með Múgsefjun lenti ég í miklum vandæðum. Þessi plata hljómar nefnilega eins og svo margt án þess að hljóma eins og eitthvað ákveðið sem ég gæti nefnt. Er þetta of flókið? Málið er það að hljómsveitin Múgsefjun hefur fundið sér ákveðin hljóm þar sem úir og grúir af ólíkum stílum, töktum og stefnum. Þetta verður til þess að maður grípur strax við tónlistinni þeirra því að maður hefur heyrt eitthvað í líkingu við lögin þeirra áður en um leið aldrei nokkurn tímann. Þetta myndi ég segja að væri aðalsmerki tónlistarinnar þeirra og um leið það sem að gerir hana heillandi. Maður veit aldrei alveg hvert stefnan (tónlistarlega) er tekin í hverju lagi og rödd Hjalta svífur yfir öllu þessari “ringulreið” og setur punktinn á hárréttan stað.
Í Múgsefjun eru 5 meðlimir og ljóðfæraskipan er nokkuð klassísk; tveir gítarar (Björn Heiðar Jónsson og Hjalti Þorkelsson), bassi (Brynjar Páll Björnsson), trommur (Eiríkur Fannar Torfason) og auðvitað söngur (allir nema Eiríkur) en svo er spilar Sveinn Ingi Reynisson á slagverk, hljómborð og harmonikku sem að gefur hljómsveitinni skemtilegann hljóm. Þessi Múgsefjunar hljómur einkennist af sæmilega léttu en grípandi rokki sem er hlaðið utan á og einkennast af íburðarmiklum melódíum.
Það er mikill lopapeysubragur yfir tónlistinni á Múgsefjun… kannski meira svona síð-lopapeysubragur. Tónninn er þjóðlegur og fágaður. Þeir eru ein af þessum hljómsveitum sem halda merki íslenskunnar uppi með góðum textum, mér finnst það frábært. Það er bara skemmtilegra að hlusta á íslensku en útlensku, maður tengir betur og svona. Textarnir eru líka merkilegir fyrir aðrar sakir. Þeir eru í höndum Hjalta Þorkelssonar en það á samt ekki alltaf við því stundum eru þeir skrifaðir af fleiri en einum auk þess sem að Eiríkur Fannar á texta tveggja laga (Sendlingur og Sandlóa og Þá Skal Flýja). Textarnir eru flestir af nokkuð tvíræðnir og í flestum tilfellum þarf að hugsa aðeins ef maður ætlar að meðtaka boðskapinn. Það fer líka svolítið fyrir rími og meira að segja stuðlum og höfuðstöfum á þessri plötu, það eykur skemmtilega á þennan þjóðlega blæ sem fylgir Múgsefjun.
Platan í heild sinni er skemmtileg og gefur frábærri frumraun Múgsefjunar ekkert eftir hvað varðar fallegar útsetningar og grípandi melódíur. Textasmíðin er vönduð og það er gaman að velta merkingu textana fyrir sér (það má lesa þá alla á heimasíðu Múgsefjunar). Það er í raun yfir fáu að kvarta á þessari frábæru plötu Múgsefjunar. Hljómsveitin heldur sig að miklu leyti við sömu formúlu (sem svínvirkar) og á fyrri plötunni og gerir það vel en til að vera fullkomlega hreinskilinn þá hefði ég viljað sjá aðeins stærra skref áfram í þróun hljómsins.
Plötuna má bæði kaupa af Gogoyoko sem og af heimasíðu Múgsefjunar
Tags: Múgsefjun
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | Comments Off
Nýtt frá Gang Related
1.11.2012 - Georg Atli
Við fengum póst frá Gang Related um það að þeir hefðu hent í nýtt lag í tilefni af Airwaves. Við fengum póstinn reyndar í gær en ég gat bara ekki sett þetta inn þá vegna Airwaves og svoleiðis en það kemur bara núna og þið getið lesið hann að neðan!
Í tilefni af Iceland Airwaves ákváðu Gang Related að gefa út nýtt efni í dag. Lagið var tekið upp og unnið af þeim sjálfum og myndbandið gerði Helgi Pétur, trommari sveitarinnar. Lagið kallast Malibu og hægt er að nálgast frítt niðurhal af soundcloud síðu Gang Related (http://soundcloud.com/gangrelated/malibu). Þetta er aðeins forsmekkur af nýju efni sem hljómsveitin mun spila á tónleikum hennar á Airwaves hátíðinni.
Hljósveitin verður dugleg á hátíðinni en þeir munu spila á alls sjö tónleikum:
Miðvikudagur:
Kaffibarinn – 18:00
Dillon Rock Bar – 00:00
Fimmtudagur:
Amsterdam (ON-venue) – 21:40
Föstudagur:
Bar 11 – Gogoyoko off-venue – 20:00
Reykjavík Backpackers – 21:00
Laugardagur:
Bakkus – B-Waves – 20:00
Sunnudagur:
Reykjaví Backpakers – 15:00
Tags: Gang Related
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off
Fimmtudagsmeðmæli – Airwaves 2012
1.11.2012 - Georg Atli
Valkvíðinn eykst smám saman alla daga Airwaves þannig að á hverjum degi er aðeins erfiðara að ákveða hvað á að sjá og hverju maður verður að sleppa. Hérna kemur dagskrá dagsins eins og ég myndi vilja hafa hana. Byrjar snemma eða kannski frekar þaða ð listinn komi seint en ef þið flýtið ykkur náiði fyrsta bandi dagsins.
16:15 Hressó (off-venue) – Half Moon Run Það er gott að hafa það aðeins rólegra í byrjun, útlenskt
17:00 Eymundsson (off-venue) – Low Roar áfram rólegri en virkilega fallegri tónlist
18:00 Bar 11 (niðri) (off-venue) – Jesuslesfilles Hérna er svo komið að því að rokka, pönkað indí rokk á frönsku frá Kanada
19:00 Bíó Paradís (off-venue) – Stafrænn Hákon Ný e.p. plata á leiðinni, virðast halda áfram á poppaðri braut en halda samt góðu post-rokki. Virðast líka vera í góðu formi
20:00 Amsterdam – Oyama Íslensk nýstirni, hafa verið að vekja mikla athygli, spila drynjandi shogaze.
20:50 Iðnó – Cheek Mountain Thief Þetta eru víst líka útgáfu tónleikarnir. Breti sem fluttist á Húsavík til að semja tónlist.
21:20 Silfurberg – Jamie N Commons Annar breti. Þessi er með alveg svakalega rödd.
22:30 Gamli Gaukurinn – Sudden Weather Change Nýkonir frá Ameríkutúr og sendu nýlega frá sér frábæra plötu. Ætti ekki að klikka.
23:00 Þýski barinn – THEEsatisfaction Gæti verið snjallt að reyna að ná snemma inn á Shabazz Palaces og svo eru þær líka ansi góðar.
00:00 Þýski Barinn – Shabazz Palaces Áttu eina af plötum ársins í fyrra, hip hop með tvisti.
01:00 Hressó – Ranglehlods Danskur elektóníkus sem nýtir sér ýmsa áhrifavalda í tónlistinni sinni og ætti að enda kvöldið á hressandi hátt.
Tags: Airwaves 2012, Cheek Mountain Thief, Half Moon Run, Jesuslesfilles, Low Roar, Oyama, Rangleklods, Shabazz Palaces, Stafrænn Hákon, Sudden Weather Change, THEEsatisfaction
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

















