Reykjavík Music Mess meðmæli #2 – Legend
23.5.2012 - Kristjana
Legend er dúett skipaður ekki ómerkari mönnum en Krumma Björgvinssyni og hljómborðsleikaranum Halldóri Björnssyni. Þeir Krummi og Halldór hafa lengi verið vinir og hafa verið að gera tónlist sitt í hvoru lagi í næstum 20 ár.
Þeir deila áhuga á elektrónísku goth poppi hljómsveita eins og Depeche Mode, Ministry, Bauhaus og Throbbing Gristle og tónlist Legend er í svipuðum dúr.
Spurningarnar 5
Legend voru svo vingjarnlegir að svara spurningunum okkar 5:
Hverjir eru stærstu áhrifavaldarnir ykkar?
“Fyrir þetta samstarf þá er það aðallega iðnaðarrokk frá áttatíu áratugnum. Mikill drif bassi og gamlir hljóðgervlar. Allt soldið ljúfsárt og kuldalegt.”
Hvað er næst á dagskrá hjá ykkur eftir RvkMM?
“Við erum að koma mikið fram og fylgja plötunni okkar, Fearless, eftir. Við erum að spila á tónlisthátið í Keflavík í næsta mánuði. Útgáfutónleikar í bígerð. Við erum bókaðir á Lunga á Seyðisfirði síðan er það Akureyri í Sept og fullt meira. Við erum með 3 tónlistamyndbönd á klippiborðinu, þannig að í sumar munu nokkur af þeim líta dagsins ljós.”
Með hverju mælið þið á RvkMM?
“Við mælum með því að þú reynir að sjá sitt hvor af öllu. Þetta eru allt frábærir listamenn sem koma þarna fram! En það má alls ekki missa af okkur
”
Bestu tónleikar sem þú/þíð hafið haldið?
“Okkur leið gríðarlega vel að spila á síðustu Airwaves hátið. Það voru vel heppnaðir tónleikar!”
Á hvað eruð þið að hlusta á núna?
“Killing Joke – Discography, The Germs- The Complete Anthology, Gatekeeper – GIZA Ep, Nitzer Ebb – Showtime.”
Hvar og hvenær?
Legend spila á Reykjavík Music Mess aðfararnótt laugardags kl. 02:00 á Faktorý. Enn er hægt að nálgast einhverja miða á midi.is.
Hægt er að nálgast plötu Legend, Fearless, hjá vinum okkar gogoyoko.
Tags: Bauhaus, Depeche Mode, Gatekeeper, Halldór Björnsson, Killing Joke, Krummi Björgvinsson, Legend, Ministry, Nitzer Ebb, Reykjavík Music Mess, The Germs, Throbbing Gristle
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað |
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.

