Sin Fang gefur út Half Dreams
7.6.2012 - Georg Atli
Sin Fasng sendi frá sér stuttskífu um daginn og frumsýndi nýtt myndband (með kettinum sínum!). Við fengum tilkynningu um það og er hún svo hljóðandi:
Sin Fang hefur sent frá sér 12” vínylplötu sem ber heitið Half Dreams. Platan kemur út á vegum þýska útgáfufélagsins Morr Music. Half Dreams inniheldur fimm lög, meðal annars hið vinsæla Only Eyes. Það ber á ögn meira stuði og sumri á Half Dreams en fyrri verkum Sin Fang, plötunum Clangour og Summer Echoes.
Nýtt myndband við Only Eyes var á dögunum frumsýnt á hinum virta tímariti Bullett Magazine. Þar er Sin Fang að hanga með kettinum sínum, en eins og allir vita þá þykja kattarmyndbönd afar líkleg til vinsælda.
Sin Fang er sem stendur á stórum túr um meginland Evrópu að kynna Half Dreams. Við heimkomu um miðjan júní er áætlað að halda nokkra tónleika, þar á meðal huggulega útgáfutónleika í lok júní.
Tags: Sin Fang
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning |
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.

