Ábreiður!
18.6.2012 - Georg Atli
Ég hef sagt það þó nokkrum sinnum áður að ég er coverlaganörd. Mér finnst eitthvað hrikalega áhugavert við þau. Mér er líka alveg sama hvort að fólk sé að spila annara manna lög til að heiðra höfundana sem samdi þau eða þá af því að það heldur að það geti gert betur eða jafnvel bara í einhverju flippi, allt jafn merkilegt. Ég hef hlustað á ótrúlega léleg coverlög og ótrúlega góð coverlög af alveg nákvæmlega jafn miklum áhuga.
En þegar að maður er svona nörd þá er gott að hafa eitthvað til að styðjast við og leita heimilda og svoleiðis, ein slík síða er www.covermesongs.com. Heil heimasíða sem eingöngu snýst um þessi coverlög (eða ábreiður eða tökulög, hvað sem þið viljið kalla þau). Nýjasta lagið sem er að vekja áhuga er útgáfa Ushers á lagi Foster the People, Pumped up Kicks, hann gerði þá útgáfu á miðvikudag í síðustu viku í Live Lounge þætti á BBC 1 (önnur góð coverlaga heimild!). Nú er ég búinn að hlusta nokkrum sinnum og ég hreinlega hef ekki getað ákveðiið hvort að mér finnst þetta gott eða slæmt…. hallast samt frekar að gott (þó að það sé ekki mjög indí). Frekar basic útgáfa samt þar sem hann er ekkert mikið að leika sér að laginu.
Usher – Pumped Up Kicks (Foster the People cover)
Hot Chip voru að senda frá sér nýja plötu (hlusta hér) en frábæra útgáfu af Prince laginu If I Was Your Girlfriend, þetta er líka live frá BBC.
Endum svo á undarlegri útgáfu af Grimes laginu Oblivion, þetta er gert af hljómsveitinni Total Slacker. Hún hefur verið að vekja smá umtal fyrir tónlistina sína en líka fyrir það að trommarinn er yngri bróðir Zach Condon úr Beirut. Þetta er svolítið skemmtilegt og öðruvísi.
Total Slacker – Oblivion (Grimes cover)
Tags: Foster the People, Grimes, Hot Chip, Prince, Total Slacker, Usher
Flokkað undir Georg Atli |
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.

