• Þú ert hér: 
  • Upphafssíða
  • Japandroids halda tónleika á Íslandi

Japandroids halda tónleika á Íslandi

25.6.2012 - Kristín Gróa

Það er nú aldeilis magnað að hin frábæra sveit Japandroids ætli að halda tónleika í Reykjavík þann 22. ágúst næstkomandi. Platan þeirra Post-Nothing sem kom út árið 2009 skoraði hátt á árslistunum (þar á meðal mínum) og nýja platan þeirra Celebration Rock er ekki síðri. Hún er meira að segja svo frábær að mér finnst ekkert ólíklegt að hún endi á árslistanum mínum þetta árið (í alvöru tékkið á henni!). Þetta er frábært band og þeir eru víst alveg magnaðir á tónleikum svo það ætti enginn að missa af þessu!

Okkur barst fréttatilkynning sem hljóðar svo:

Rokkhljómsveitin Japandroids munu halda tónleika á Gamla Gauk miðvikudaginn 22. ágúst næstkomandi. Miðasala á tónleikana hefst 4. júlí næstkomandi og fer forsala fram á midi.is.

Japandroids hefur vakið mikla athygli undanfarin tvo ár eða frá því að þeirra fyrsta breiðskífa, Post-Nothing, kom út. Platan fékk frábæra dóma í flestum málsmetandi tónlistarmiðlum og þykir mikið afbragð. Ekki skemmir fyrir að Japandroids þykja frábært tónleikaband og kraftmiklir og skemmtilegir tónleikar þeirra fá frábæra dóma. Önnur plata plata Japandroids, Celebration Rock, kom svo út fyrir stuttu og hafa tónlistarrýnar farið hamförum við að ausa hana lofi.

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Tilkynning |

Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin