Dirty Beaches tónleikar!

30.7.2012 - Georg Atli

“Einstaklingur sem ferðast um óravegu í leit að einhverju óræðu.”

Tónlistarmaðurinn Alex Zhang Hungtai er betur þekktur (þó að hann sé kannski ekkert rosalega þekktur) undir nafninu Dirty Beaches. Hann kemur frá Kanada og gefur plöturnar sínar út undir merkjum Zoo Music frá San Diego. Reyndar er það bara síðasta platan hans sem kom þaðan því að fyrstu útgáfur Dirty Beaches komu eingöngu á kassettum (hafa samt verið endurútgefnar á CD), sem er mjög lo-fi.

Dirty Beaches – Sweet 17

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Síðasta plata hans heitir Badlands og hefur verið að vekja verðskuldaða athygli, hún kom út í mars í fyrra (2011) og var ein af þeim plötum sem komu til greina fyrir Polarisverðlauna tilnefningu (hann var sem sagt “longlisted”)…. sem virðist lítilfjörlegt og flókið þegar að ég les þessa setningu yfir en til glöggvunar þá eru þetta kanadísku tónlistarverðlaunin og önnur nöfn á þessu lista voru t.d. Arcade Fire, Timbre Timbre, Destroyer og meistari Neil Young.

Dirty Beaches – A Hundred Highways

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Hann sækir greinilega innblástur í eldri hljómsveitir á borð við Cramps, Suicide og jafnvel Roy Orbison (tenging við David Lynch) og líkist þeim á vissan hátt (á rosalega skítugan lo-fi hátt) en þegar að ég hlusta á Badlands þá dettur mér alltaf frekar í hug einhverskonar hliðarafsprengi úr David Lynch mynd… sérstaklega Wild at Heart. Vegurinn og bílferð virðast vera þema orð plötunnar. Hér er viðtal við Dirty Beaches.

Ef að þið eruð engu nær hvernig tónlist Dirty Beaches hljómar þá sögðu bæði hipstera biblían Pitchfork og Wikipedia mér að hann sæki innblástur í myndir David Lynch, Jim Jarmusch og Wong Kar Wai og það tónar merkilega vel við tónlistina. Samkvæmt fréttatilkynningunni þá lýsir Hungtai svo tónlistinni sinni þannig “…að aðalpersónan Dirty Beaches sé einstaklingur sem ferðast um óravegu í leit að einhverju óræðu. Hann er útlagi sem á sér engan samastað.” Hvað svo sem það þýðir…

Tónleikarnir fara fram í Kaldalónssal Hörpu þann 4. september. Hér er facebook -hlekkur og það er hægt að kaupa miða hér. Singapore Sling sér um upphitun.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar |

Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin