Topp 5 sumarlög – Georg Atli
12.6.2010 - Georg Atli
Púff ég er eitthvað svo lélegur að ég get eiginlega engu bætt við sumarlagalistann minn frá því í fyrra, það virðast vera topp 5 sumarlögin mín… en þess í stað fáiði bara 5 algerlega ótengd lög sem mér finnst rosa gaman að hlusta á núna, og af því að það er sumar núna þá verða þetta bara topp 5 sumarlögin mín. Húrra!

Þetta er einn af gæjunum sem spila með Justin Vernon í Bon Iver, veit ekkert meira svosem.

4. Beck & Bat For Lashes – Let’s Get Lost
Þetta er ekki cover eins og ég var að vona þegar að ég sá nafnið á laginu. Þau komu saman og skelltu í lag fyrir sándtrakkið með einhverri Twilight myndinni. Flott og það fer voðalega vel að heyra þau syngja þetta saman.

3. Buke & Gass – Medulla Oblongata
Buke & Gass eru skrítinn en mjög hæfileikaríkt tónlistarfólk. Þau heita Aron og Arone og búa til hljóðfærin sín sjálf og spila og syngja stundum með Blue Man Goup ( og búa til hljóðfæri fyrir þá). Buke er einskonar pimpað ukelele (6 strengja baritone ukelele) og gass er gítarbassi (guitar + bass = gass, en þetta er samt ekki bassagítar!). Mjög flott, mjög artí og væri örugglega rosa flott að sjá þau spila live. Fleirri lög á myspace-inu þeirra

2.Hot Chip – I Feel Bonnie (feat. Bonnie ‘Prince’ Billy)
Ég er aaaalveg að fara að fíla Hot Chip, bráðum. Megastuðboltarnir í Hot Chip fengu ofur indí hetjuna Will Oldham til að taka lagið með þeim. Þetta lag var kom út á smáskífu sem heitir I Feel Better. Vægast sagt frábært lag, enda gæti þessi uppskrift ekki klikkað (mér finnst ekkert með Will Oldham geta klikkað).

Þetta er uppáhalds lagið mitt af þessari fáránlega frábæru plötu. Ef þið eruð ekki búin að næla ykkur í eintak og hlusta á hana í ca. 5 daga í röð þá… mæli ég samt ekkert rosalega mikið með því, þið yrðuð örugglega rugluð af því. Eeeen platan (Treats) er samt rosalega góð, tjékkiði á henni!
Tags: Bat For Lashes, Beck, Bonnie Prince Billy, Buke & Gass, Hot Chip, Sean Carey, Sleigh Bells
Flokkað undir Georg Atli, Listar |
6 athugasemdir við “Topp 5 sumarlög – Georg Atli”
-
Kristín Gróa sagði:
12.6.2010 kl. 22:27Bahh trúi ekki að við höfum sett sama Sleigh Bells lagið og sömu myndina af þeim! Hahahaha…
-
Georg Atli sagði:
12.6.2010 kl. 22:36Mér finnst þetta stórkostlegt, alls ekki í fyrsta skipti sem við póstum sama lagi (eða amk mörgum sömu listamönnunum)! Held stundum að tónlistarsmekkur okkar sé of líkur til að vera að skrifa á sömu síðuna… eða þá að þetta sé bara allt of gott lag og þetta sé myndin sem kom fyrst upp á google, haha.
-
Kristín Gróa sagði:
12.6.2010 kl. 22:38Fjúff þetta er klárlega allt of gott lag en mér finnst þetta samt fyndið!
-
Snorri sagði:
13.6.2010 kl. 04:43Er ég alger gamliogþreytti en Sleigh Bells er bara ekki að gera neitt fyrir mig !
-
Georg Atli sagði:
13.6.2010 kl. 13:22Er það ekki bara ágætt að þau geri ekki neitt fyrir þig.. Það væri t.d. soldið kjánalegt ef við hefðum öll póstað þessu sama lagi. Óþarfi að öllum finnist þetta frábært.
-
Krissa sagði:
18.6.2010 kl. 16:03Er Sleigh Bells ekki líka þannig að annað hvort finnst þér þau blimmin’ snilld eða bara alls ekki?
