Fullt af lögum!

8.9.2010 - Georg Atli

Minni á tónleika dagatalið okkar hérna til hægri, þið ættuð að geta fundið eitthvað skemmtilegt þar… fuuuulllt af skemmtilegum tónleikum framundan!

Ég er búinn að vera á leiðinni að setja mörg af þessum lögum hérna inn, í alveg merkilega langan tíma, en einhverra hluta vegna aldrei gert það… núna breytist það.

Byrjum á nokkrum nýjum og nýlegum lögum.

Í fyrsta lagi er Amiina að gera nýja plötu og búin að fá 2 nýja meðlimi og Dr. Gunni er að dreifa nýju lagi með þeim… af því að Topp 5 fílar íslenskt þá hoppum við á þá lest. (Takk Dr. Gunni!)

Svo var Justin Vernon/Bon Iver að syngja inn á lag með Kanye West, snilldarlag meira að segja.

Justin Vernon er greinilega þessi bissí týpa því hann var líka að syngja inn á lag með hljómsveitinni All Tiny Creatures.

Svo eitt lag sem kom út um daginn með eftirlæti allra hippsterana í dag Zola Jesus og annað með Fol Chen, sem er mjög skemmtilegt band

oooog svo uppáhaldið mitt tvö cover!!!
Lou Barlow (Lo-Fi hetja úr Sebadoh og Folk Implosion) kemur með live cover af laginu Bulletproof með La Roux.

síðan er það þessi fína útgáfa Taken by Trees (alveg þess virði að tjékka á þeirri hljómsveit) af laginu My Girls með Animal Collective, sem var einmitt eitt af bestu lögunum árið 2009! Platan þeirra East of Eden kom út í fyrra og svona sem bónusfróðleikur þá er heitir söngkonan í Taken By Trees Viktoria Bergsman og hún söng með Peter, Björn & John í laginu Young Folks.

Lög:
Amiina – What are We Waiting For
Kanye West – Monster (feat. Bon Iver, Jay-Z, Rick Ross, Nicky Minaj)
All Tiny Creatures – An Iris (feat. Justin Vernon)
Zola Jesus – Sea Talk
Fol Chen – The Holograms

Lou Barlow – Bulletproof (La Roux Cover)
Taken By Trees – My Boys (Animal Collective cover)

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað |

2 athugasemdir við “Fullt af lögum!”

  1. Kristín Gróa sagði:
    8.9.2010 kl. 23:28

    Mér finnst Sea Talk vera alveg ótrúlega töff lag en svo þegar ég heyrði fleiri lög með Zola Jesus þá fannst mér þau ekkert spes þrátt fyrir að þau séu með sama sándið… sem er skrítið. Ég var alveg á leiðinni að fara að skrifa færslu um það allt! ;)

  2. Georg Atli sagði:
    8.9.2010 kl. 23:33

    Já ég féll alveg fyrir Sea Talk en ekki alveg eins öllu hinu…. finnst það alveg flott en ekkert sérstakt samt. Ég er aftur á móti mjög ánægður með Fol Chen!

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin