• Þú ert hér: 
  • Upphafssíða
  • Topp 5 korter í lokun *Gestalisti* – Valgerður Jónsdóttir

Topp 5 korter í lokun *Gestalisti* – Valgerður Jónsdóttir

3.12.2010 - Georg Atli

Þema listans í dag kemur frá dyggum lesanda og aðdáanda (hennar eigin orð!) sem heitir Valgerður Jónsdóttir, ég veit svo sem engign fleiri feili á henni nema það að samkvæmt tölvupóstinum hennar á er hún í háskólunum…. húrra fyrir Valgerði!

En sem sagt af því að við erum sökkerar fyrir aðdáandabréfum og góðum listahugmyndum þá ákváðum við að bjóða henni bara að vera með og gera sína eigin útgáfu, sem kemur hér:

Time of my life- Bill Medley & Jennifer Warnes(dirty dancing..)

Er ekki alltaf gott að enda nóttina með lagi sem býður upp á ótrúlega sterka innlifun? hvort heldur sem fólk er búið með 3 eða 18 bjóra, þá er alveg gefið að allir taki skref eða fimm.

Hey – Pixies

Lagið sem allir kunna textann við..eða amk fyrstu tvær línurnar. Þetta er lagið sem við viljum enda á, þau kvöld sem í okkur er svolítið kúl næntíspúki sem vill frekar taka slow-slam(danstegund frá tíma grunge‘ins) en dramatíska 80s sveiflu.

Don‘t wanna miss a thing- Aerosmith

Skemmtilegasta við kortér í lokun er að enginn leynir því hvaða lagatexta hann kann. Við þetta lag fara kveikjarar á loft, fólk vangar, sumir fara niður á hné í innlifun sinni en aðrir fara einfaldlega út. Fyrir mitt leyti skal viðurkennast að ég myndi að öllum líkindum flokkast undir þá sem færu niður á hné en það skiptir ekki máli.

Heal the world- Michael Jackson

Tragískur endir á vonandi skemmtilegri nóttu með hressilegum danssyrpum. Þetta lag býður upp á frábæra möguleika á borð við vangadans og tjáningardans. Hvort tveggja mjög góðar leiðir til að enda kvöldið og fara heim. Svo höfum við nú líka öll soft spot fyrir honum Jacko.

Home- Edward Sharpe & The Magnetic Zeros

Lagið sem er svo skemmtilegt hvort heldur sem það er kortér í eða um miðbik nætur. Kannski ekki dramatískt eins og flest lögin hér að ofan en það heitir nú einu sinni HOME sem getur verið tákn um hvert skal haldið að því loknu.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Gestalisti |

Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin