Tónleika samantekt!!

5.1.2011 - Georg Atli

Eins og næstum alltaf þá er fullt að gerast í tónleikahaldi í Reykjavík.

Miðvikudagur
Þessi póstur kemur pínu seint fyrir miðvikudagstónleikana en kl. 22:00 verður hljómsveitin Blæti á Hemma og Valda

Fimmtudagur
Júníus Meyvant, Rökkurró, Mukkaló og Myrra Rós ætla að spila í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar 1000 kr. inn

Á Faktorý ætla Moses Hightower og Forgotten Lores að spila saman og það meira að segja bókstaflega, því að á einhverjum tímapunkti verða hljómsveitirnar saman á sviðinu. Það ætti að verða mjög áhugavert því að þessar hljómsveitir eru svakalega flottar á sviði og það verður örugglega gaman að heyra það sem þau spila saman, svo verður líka áhugavert að sjá hvort að það komist allir fyrir á sviðinu í einu…. svo kostar bara 1000 kall inn og tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 22:00

Síðan verða Retro Stefson með ókeypis tónleika á Bakkus og þar ætlar einhver leynigestur/hljómsveit að mæta líka. Partýið byrjar kl 10:30

Föstudagur
Á Sódómu verður FALK kvöld og þar verða Manslaughter, Krakkkbot, Krakkkslaughter, AMFJ, Oberdada von Brútal og Auxpan og á milli atriða ætlar DJ Djammhamar að spila.

Á Faktorý verða útgáfutónleikar We Made God en þeir voru að gefa út plötuna It’s Getting Colder með þeim ætla Rökkuró og Sleeps Like an Angry Bear að spila. Húsið opnar kl. 22:00 og fyrsta band fer á svið kl. 23:00, 500 kr. inn en fyrir 2000 færðu bæði plötuna og tónleikana.

Laugardagur
Á Laugardeginum verða svo ferðastyrktartónleikar Who Knew (eins og við sögðum frá í gær). Þeir fara fram á Sódómu og með Who Knew spila Sing for Me Sandra og Nolo að sjá um stuðið, 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja 22:00

Allar nánari upplýsingar eru að finna í tónleikadagatalinu okkar (sem er til hægri) við erum hægt og rólega að vinna í því að fylla inn í það lengra fram í tímann.
Eins og alltaf er svo hægt að senda okkur tónleika ábendingar á póstfangið toppfimmafostudegi@gmail.com eða þá pósta því á facebook vegginn okkar (endilega að like okkur og jafnvel deila gleðinni!). Svo má alltaf líka senda okkur eitthvað annað áhugavert efni sem er ekki tónleikatengt.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar |

2 athugasemdir við “Tónleika samantekt!!”

  1. Bedda sagði:
    6.1.2011 kl. 02:18

    Vildi bara þakka fyrir frábært framtak. Ég er að reka gistiheimili í bænum og skrifa daglega á tússtöflu hvaða tónleikar verða í gangi um kvöldið og því miður verður oft eitthvað útundan sem ég vissi ekki af þannig að þetta er rosalega þægilegt. Þið eruð með allar klær úti ólíkt öðrum vefjum sem mig grunar að birti bara hluti sem þeim eru sendir og í versta falli þeim er borgað fyrir. Keep up the good work

  2. Georg Atli sagði:
    9.1.2011 kl. 12:12

    Takk kærlega fyrir það. Alltaf gaman að heyra að einhver kunni að meta það sem að maður er að gera.

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin