Topp fimm tónlistarmyndbönd Árna
12.12.2008 - Árni Sverrir
Upp úr síðari hluta 20. aldar hélt innreið sína í landið ógrynni vídjótæka og meðfylgjandi vídjóspól(n)a og þau kröfðust að sjálfsögðu nýyrðis og fæddust þá orðin myndband og myndbandstæki. Einhverra hluta vegna náðu þessi orð aldrei fótfestu en hið ágæta orð myndband hengdi sig af einhverjum ástæðum við enska orðið music video og úr varð orðið tónlistarmyndband sem hefur lifað góðu lífi fram á daginn í dag…sko íslenskuna!
The Presidents of the United States of America – Peaches
Ninjur, tríó og ferskjur…þrenna sem hefur sjaldan klikkað í tónlistarmyndbandaheiminum.
Erfið byrjun en svakalegt lag með skuggalegu myndbandi.
Michel Gondry að ég held…flott, saga inn í sögu inn í sögu inn í sögu…
Myndband með móral
Hreyfanlegt herbergi getur verið smellið
Tags: Aphex Twin, Björk, Jamiroquai, Michel Gondry, Radiohead, The Presidents of the United States of America
Flokkað undir Listar, Árni |
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.
