Tvíeyki – zvenni
30.1.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Shatner & Nimoy

Þetta magnaða og “fjölhæfa” dúó gaf út plötu í sameiningu eftir að hafa átt farsælt samstarf á sjónvarpsskjánum. Báðir hafa gefið út plötur sitt í hvoru lagi en í tónlistinni eins og leiknum er það efnasamblanda beggja sem er uppskriftin að sjarmanum. Á plötunni Spaced out er búið að raða saman öflugustu lögum kappanna
Lifið lengi og dafnið…
Rocket Man og The Ballad of Bilbo Baggins
Proclaimers – I´m on my way
Skoskir, rauðhærðir gleraugnaglámar… og já tvíburar… gerist varla betra tvíeyki… og þeir eru á leiðinni…
Flight of the Conchords – Pencils in the Wind
Þó nýsjálenska parið Bret og Jemaine virðist gjarnan svamla í grunnu lauginni á það djúpa punkta og ríkt líkingamál og jú líklega er ástin soldið lík límbandsrúllu…

Sænsku æskuvinirnir Tómas og Jónas eru búnir að vera saman í fjölmörgum (og misstórum) böndum og hafa brallað ýmislegt. Hér er ekkert band að flækjast fyrir þeim heldur eru þeir einfaldlega Tómas og Jónas.
Incredible String Band – The Half-Remarkable Question
Stórmerkilegar pælingar hjá súru hippunum Mike Heron og Robin Williamson í Incredible String Band… eða að minnsta kosti hálf-stórmerkilegar.
Tags: Flight of the Conchords, Incredible String Band, Leonard Nimoy., Mike Heron, Proclaimers, Robin Williamson, Thomas og Jonas, William Shatner
Flokkað undir Listar |
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.
