Músíktilraunir 2012
6.2.2012 - Georg Atli
Nú fer að skella á einn af skemmtilegustu tónlistarviðburðum íslands. Á hverju ári hópast hæffileikaríkar unghljómsveitir ísland saman á einn stað og keppa í Músíktilraunum og það hefur sýnt sig að þaðan koma að minnsta kosti 2-3 virkilega áhugaverðar hljómsveitir á hverju ári. Persónulega held ég að það sé ekkert mikið betri leið til að vekja á sér athygli hérlendis en að taka þátt í Músíktilraunum, enda fylgist ég alltaf nokkuð spenntur með. Í tilefni af því að fresturinn til að sækja um er að líða þá fengum við stutta fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.
Músíktilraunir 2012 nálgast óðfluga en skráning hefst 20.febrúar. Því er tími kominn fyrir hljómsveitir og tónlistarmenn að hefja undirbúning fyrir umsókn. Oft er talað um að Músíktilraunir hafi verið stökkpallur fyrir ungar og óreyndar hljómsveitir út í hinn „harða tónlistarbransa“. Hljómsveitir á borð við Kolrössu Krókríðandi, Botnleðju, Maus, Mínus, Jakobínarínu, Agent Fresco og nú Of Monsters And Men eru ágætis vitnisburður um að ýmis ævintýri taka við að loknum tilraununum.
Margar af þessum ofangreindu hljómsveitum stukku í djúpu laugina að loknum Músíktilraunum. Þær tóku upp sínar fyrstu breiðskífur, fóru í hljómleikaferðalög til fjarlægra landa, spiluðu með heimsfrægum hljómsveitum og upplifðu „rokkdrauminn“ á ýmsa vegu. Það er ekki síst reynslan og samveran við aðra tónlistarmenn sem er svo verðmæt og mikilvægur þáttur fyrir þá sem taka þátt. Nýjar hugmyndir og hljómsveitir spretta upp og blómstra í íslensku tónlistarflórunni.
Það er einmitt einn helsti tilgangur Músíktilraunanna. Þetta er því einstakt tækifæri fyrir alla sem eru að grúska í tónlist til þess að koma fram á flottum stað með góðum græjum, fá verðmæta reynslu og kynnast öðrum íslenskum tónlistarmönnum.
Verðlaunin verða stórglæsileg, eins og undanfarin ár, en verðlaunað er fyrir fyrstu þrjú sætin, ásamt
hljómsveit fólksins, gítarleikar, bassaleikara, forritara/hljómborðsleikara, söngvara/rappara, trommara
og textagerð.
Hvetjum alla til að taka þátt
Opið er fyrir umsóknir frá 20. febrúar – 5. mars
Skila þarf inn 2 lögum með umsókn
Nánari upplýsingar:
musiktilraunir[at]itr.is
www.facebook.com/musiktilraunir1
www.musiktilraunir.is
Tags: Agent Fresco, Botnleðja, Jakobínarína, Kolrassa Krókríðandi, Mínus Maus, Músíktilraunir, of monsters and men, Samaris
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar |
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.



