Snorri
11.3.2010 - Kristín Gróa
Líffræðingur við framhaldsnám í New York sem er sennilega einn besti staður í heimi til að komast á tónleika og upplifa tónlistarmenningu allsherjar. Hvort sem er ópera, kammertónlist, kórtónlist, djass, blús, reggí, heimstónlist, hipp-hopp, teknó og svo auðvitað bæði klassískt og hipstera-rokk og popp. Allt við höndina í bræðslupottinum. Ef aðeins veskið væri eilítið ríkara og fleiri klukkustundir í sólarhringnum !!
5 spurningar!
1. Hver er fimmti uppáhalds liturinn þinn?
Látum okkur sjá. Best að fara í huganum í gegnum fataskápinn. Blár, svartur, grænn, grár…..GULUR !
2. Hvað er það fimmta sem þú gerir á morgnana eftir að þú vaknar?
a) snooza, b) setja á mig gleraugun, c) teygja mig í fartölvuna, d) hanga á netinu, e) FARA Á FÆTUR eftir dúk og disk.
3. Nefndu fimm uppáhalds tónlistarmennina þína.
Úff erfitt….. Björk, Karin Dreijer, Thom Yorke, Spencer Krug, Kate Bush.
4. Hverjijr eru fimm bestu tónleikar sem þú hefur farið á?
Enn erfiðara….minnið er orðið svo lélegt að ég ætla að takmarka mig við síðustu 4 ár eða svo, 2006-2009 (Er ekki búinn að fara á neina tónleika ennþá 2010). Klassísk tónlist ekki tekin með til að einfalda hlutina.
Ók, í tímaröð:
- Sufjan Stevens í Fríkirkjunni 2006
- Björk á Hróarskeldu 2007 meðan rigningin var sem mest
- Arcade Fire, Randall’s Island, New York haust 2007.
- Sunset Rubdown, Bowery Ballroom, New York haust 2007
- Amadou & Mariam, Webster Hall, New York 2009
Bónusverðlaun: Booka Shade á Hróarskeldu 2007, stiginn var trylltur dans !
5. Hverjum myndirðu helst vilja gefa high five?
High-Five á Charles Darwin.
Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa færslu.
