Tónleikasamantekt

4.5.2011 - Georg Atli

Fullt af tónleikum eins og venjulega og við ætlum að taka þá saman og setja í eina færslu ykkur til yndisauka. Ef það er eitthvað sem að við gleymum/vitum ekki af endilega látiði okkur vita með því að senda okkur smá línu, t.d. hér, hér eða jafnvel í pósti, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com

Miðvikudagur

Á Rósenberg verða Steini Eggerts og Óperuídýfurnar að syngja um lífið. Byrjar kl. 21:00 og miðinnm kostar 1500 kr.

Fimmtudagur

Í Tjarnarbíói munu Bjartmar og Bergrisarnir fagna plötunni Skrýtin veröld og góðu ári með tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 2500 krónur inn. Miðasala á midi.is.

Á Rósenberg verður Rokkabillýband Reykjavíkur með sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1800 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar hér.

Á Dillon verður mikið af tónlist en þar koma fram The Assasin Of A Beautiful Brunette, Postarctica og The Wicked Strangers. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.

Á Norðurpólnum verða þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni ‘Rafmagnslaust á Norðurpólnum’ og í þetta sinn eru það Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég sem koma fram. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Hressó verður Valdimar með tónleika sem eru hluti af tónleikaröð Gogoyoko. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður rótarkvöld með Atla Kanilsnúð. Sjá nánar hér.

Á Boston verður franski tónlistarmaðurinn Michael Wookey að spila frá kl. 21:00.

Á Prikinu verður mánaðarlegt breakbeat.is kvöld en þar koma fram Maggi B, Kalli og Skeng. Hefst klukkan 21:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Dillon koma fram hljómsveitirnar Gang Related, Ofvitarnir og No To Self. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður Svínarí #2 og þar verða hljómsveitirnar Who Knew, Hellvar og The Hydrophobic Starfish. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Á Sódóma verður bandaríska hljómsveitin White Cowbell Oklahoma með tónleika. Einnig koma fram The Vintage Caravan og Texas Muffin. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á BAR11 verður Wildcat rockabilly tryllingur með El Camino, 59′ers, Haffa Haff, Daníel Ágúst og Krumma. Frítt inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Rósenberg verða tónleikar með Láru Rúnars og Lay Low. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á efri hæðinni á Faktorý verða hljómsveitirnar Valdimar og Æla með tónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér. Á neðri hæðinni verður DJ Margeir og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Sunnudagur
Á Rósenberg verður Thor Kristinsson með tónleika, þeir byrja kl. 21:00 og það kostar 1500 kr. inn

Á Faktorý verður SunnuJazzinn á sínum stað

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Kristín Gróa, Tónleikar | 2 athugasemdir »

Tónleika samantekt!

2.2.2011 - Georg Atli

Við feiluðum í síðustu viku þannig að þetta kemur bara tekið með trompi núna og linkað hægri-vinstri, til að bæta það upp! Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með öllu en það er bara ekki alveg nógu auðvelt þannig að stundum þá er eitthvað í gangi sem að við vitum ekki um. Ef að það gerist og þú veist af því þá má alveg endilega senda okkur áminningu um það á þetta póstfang: toppfimmafostudegi@gmail.com eða setja það í komment hér fyrir neðan!

Miðvikudagur
Á Faktorý verða styrktartónleikar fyrir Davíð Örn Arnarsson en þar ætla Johnny Stronghands, Brother Grass, Illgresi, Johnny and the Rest og Lay Low, húsið opnar kl. 20:30 og aðgangseyririnn er 1500 kr og allur ágóði rennur beint til Davíðs Arnar.

Fimmtudagur
Á fimmtudagskvöldið verða rosalegir rokktónleikar en Benny Crespo’s Gang og Cliff Clavin að halda tónleika á Faktorý. Húsið opnar kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Á Sódómu verða 3B Bitter Blues Band með tónleika. 1000 kall inn og húsið opnar kl. 22:00

Föstudagur
Þetta föstudagskvöldið verður Muckfest á Faktorý þar kostar 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja stundvíslega kl 21:30. Fram koma hljómsveitirnar Mammút, MUCK, Sudden Weather Change, Swords of Chaos og Me, The Slumbering Napoleon þannig að þetta verður væntanlega rosalegt.

Á Sódómu verður Óli Dóri, útvarpsmaður á X-inu og gestalistamaður Topp 5 með DJ-set.

Laugardagur
Faktorý heldur áfram með góða dagskrá og nú er komið að tónleikum með hljómsveitinni Æla og Sin Fang tónleikarnir byrja kl. 23:00 og það kostar 1000 kr inn.

Klassart verða með tónleika á Sódómu á laugardagskvöldinu, þeir byrja kl. 22:00 og klassísku 1000 krónur veita þér aðgang

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun *Gestalisti* – Ágúst Bogason

6.10.2010 - Georg Atli

Seinni gestalistamaður dagsins á Topp 5 er útvarpsmaðurinn Ágúst Bogason, hann er annar af þeim sér um þáttinn Hið Opinbera á Rás 2 (sem er á dagskrá föstudagskvöldum kl. 20-21) og er einn af meðlimum Jan Mayen sem er að spila á Amsterdam á fimmtudagskvöldinu kl. 00:30, en þeir loka kvöldinu þar.

Það sem Ágúst Bogason mælir með er:

1. Ham

2. Neon Indian

3. Æla

4. Kimono

5. Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Styrktartónleikar á Sódómu.

28.9.2010 - Georg Atli

Ég var að fá tilkynningu um að þann 8. okt fara fram styrktartónleikar á sódómu. Tilkynningin var um það bil svona:

Þorbjörg Elín Fríðhólm Friðriksdóttir er sjúklingur með langvinna lungnaþembu. Hún hefur þurft að styðjast mikið við ytri öndunarvél í baráttu sinni við sjúkdóminn.

Þó svo ytri öndunarvél og ýmis annar sjúkrabúnaður sé kominn í hús eftir vel heppnaða söfnun sem Þorbjörg Elín Fríðhólm Friðriksdóttir og aðstandendur stóðu fyir, þá á ekki að leggja árar í bát. Þorbjörg ætlar að halda áfram söfnun sinni fyrir tækjabúnaði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Þetta hefur haldið baráttuandanum í Þorbjörgu og ætlar hún því að halda ótrauð áfram.

Höldum baráttuandanum áfram og leggjum henni lið. Árangurinn var ótrúlegur síðast.

Reikningsnúmer söfnunar Þorbjargar er 542-14-401515 og kennitalan er: 061051-4579.

MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT!!

Staðfestir gestir: noise, Coral, Æla, Vicky, Hellvar, Kallakór Kaffibarsins, Bróðir Svartúlfs…bætist meira við! Stay tuned!

þarna verða semsagt fullt af skemmtilegum hljómsveitum og þetta er gott málefni þannig að það er um að gera að skella sér! Fáum svo myndband af off-venue tónleikum Vicky á Airwaves 2008 í þokkabót.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin