Topp 5 íslenskar plötur 2011 – Kristín Gróa

13.1.2012 - Kristín Gróa

Árið 2011 er í mínum huga ár íslenskrar tónlistar. Það kom út alveg gríðarlegt magn af vönduðum og skemmtilegum plötum og ég hef persónulega aldrei hlustað jafn mikið á íslenska tónlist. Húrra fyrir íslenskum tónlistarmönnum! Að vanda skulum við byrja á 10 plötum sem náðu ekki á topp fimm en mér þykir samt vert að minnast á:

Lay Low – Brostinn strengur
GusGus – Arabian Horse
Snorri Helgason – Winter Sun
Nolo – Nology
Vigri – Pink Boats
FM Belfast – Don’t Want To Sleep
Orphic Oxtra – Kebab diskó
Gang Related – Stunts & Rituals
ADHD – ADHD2
Ben Frost & Daníel Bjarnason – SÓLARIS

5. Reykjavík! – Locust Sounds

Rokkplata ársins! Gríðarlega metnaðarfull og skemmtileg plata sem rokkar fyrir allan peninginn. Ég hafði fram að þessu aldrei hlustað mikið á Reykjavík! en hafði horft dáleidd á þá live enda leitun að betra live bandi. Nú er ég farin að hlusta og mun aldrei hætta.

4. Mugison – Haglél

Þetta er líklega plata ársins svona almennt séð enda náði hún til allra. Ég hef aldrei hitt neinn sem hefur nokkuð slæmt um Mugison eða hans tónlist að segja og þar held ég einmitt að töfrarnir séu. Hann er allra. Hann er nógu kúl fyrir hipsterana en nógu alþýðlegur fyrir ömmurnar. Allir vinna. Það er frábært að sjá viðtökurnar við þessari plötu og þær eru algjörlega verðskuldaðar. Þetta er í raun látlaus lítil plata en stundum er minna meira.

3. Sin Fang – Summer Echoes

Þessi plata er líklega andstaðan við Haglél. Hér er ekkert lítið, látlaust eða einfalt heldur allt svo gríðarlega flókið og samofið að þegar ég hlusta þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig í fjáranum maðurinn fer að því að láta þetta allt passa svona fullkomnlega saman. Mér finnst platan sterk út í gegn en ég heillaðist samt mest af laginu Fall Down Slow sem varð mitt fyrsta ofspilaða lag ársins 2011.

2. Sóley – We Sink

Ég viðurkenni að þegar ég hlustað á Theater Island í fyrsta sinn þá náði ég henni ekki alveg en eftir að hafa séð Sóley spila live þá gaf ég henni annan séns og heillaðist algjörlega. Ég beið því We Sink með mikilli eftirvæntingu og varð engan veginn fyrir vonbrigðum. Mér finnst ég vera að fara inn í annan heim þegar ég set þessa plötu af stað og í hvert sinn hlusta ég frá upphafi til enda… nema kannski þegar ég er að spila Smashed Birds á repeat en það er algjörlega uppáhalds. Það er líka alveg ofboðslega gaman að heyra lögin af plötunni live en Sóleyju og Jóni Óskari tekst á einhvern undraverðan hátt að spila bara tvö en koma samt öllu til skila.

1. Of Monsters And Men – My Head Is An Animal

Það má alveg ásaka mig um að vera hlutdræga þegar kemur að Of Monsters And Men og ég skal alveg gangast við því. Ég get hins vegar lofað því að ég myndi ekki setja þau á toppinn á árslistanum mínum óverðskuldað og staðreyndin er sú að hef ekki hlustað jafnmikið á nokkra íslenska plötu á árinu. Mér finnst hún alltaf skemmtileg, fæ aldrei leið á lögunum og syng með hverju lagi. Mér finnst ekki eitt slakt lag á þessari plötu og ég er ekki hissa á að EP platan Into The Woods hafi toppað Billboard Heatseekers listann. Framtíðin er björt!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Annáll Kimi Records

13.1.2012 - Kristín Gróa

Kimi Records átti glimrandi gott ár í músík og stóð að útgáfu nokkurra hljómplatna sem hafa fengið prýðilegar viðtökur, eins sáu þeir um dreifingu og kynningu á nokkrum titlum. Árið hófst með útgáfu á annarri breiðskífu Sin Fang, Summer Echoes, en hún kom út í mars. Fékk hún prýðilegar viðtökur, en fólki þykir þetta að öllu jöfnu mjög góð plata. Því næst kom platan Don’t Want to Sleep með FM Belfast (Morr music gaf út). Platan fór í verslanir þann 3. júní síðastliðinn. Í ágúst gáfum við út aðra breiðskífu Snorra Helgasonar og nefnist hún Winter Sun. Sú plata féll vel í kramið hjá skrípentum og hlustendum og meðal annars valdi Dr. Gunni hana sem plötu ársins.

Um mitt sumar fór allt að tryllast á skemmtistöðum miðborgarinnar sökum óvæntasta smells ársins. Niðrá strönd í sexy schidt endurgerð fékk fólk til að æpa af fögnuði og gleði. Í tilefni því gaf Kimi lagið út á rafrænu formi í þessari dansvænu útgáfu og var því vel tekið.

Í lok ágúst gáfu jaðarjazzararnir í ADHD út sína aðra breiðskífu, ADHD 2 og sömuleiðis komu út plöturnar Stop That Noise með Hellvar og Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög, en Kimi sá um dreifingu á þessum titlum.

2. september gáfum við út plötuna We Sink (í samstarfi við Morr music) með henni Sóley. Sú plata endaði ofarlega á flestum árslistum og þykir platan frábær í alla staði.

Þann 1. október kom platan Haglél út með Mugison og hefur hún slegið öll met og hefur meðal annars verið seld í um 28 þús eintökum. Um miðjan október komu svo út tvær plötur. Við upphaf Airwaves hátíðina kom út platan Mount Modern með Dad Rocks! í tilefni af fyrstu tónleikum hans hér á landi, en Snævar Albertsson er að öllu jöfnu búsettur í Danmörku. Svo kom út platan Locust Sounds með Reykjavík!, 14 laga plata sem fer alla leið í rokkinu.

Sömuleiðis gáfum við í Kima út okkar fyrstu kvikmynd, í samstarfi við Kjartansson ehf, en myndin Backyard kom út á DVD og fylgir hljómdiskur með myndinni og inniheldur hann lög úr myndinni.

Í nóvember kom svo út platan Nology með Nolo. Unggæðingarnir úr úthverfum höfuðborgarinnar enduðu útgáfuárið okkar með bravúr, en platan þykir unaðsleg.

Í apríl hélt Kimi Records sína fyrstu tónlistarhátíð og kölluðum við hana Reykjavík Music Mess, þar úði og grúði af músík og minnistæðustu tónleikar hátíðarinnar voru frábærir tónleikar Deerhunter, goðsagnakennd framkvæmd Sudden Weather Change á tónlist Ghostigital, en þar nutu þeir aðstoðar Einars Arnar Benediktssonar. Reykjavík Music Mess verður svo haldin aftur á þessu ári, en að þessu sinni í maí.

Allt í allt gott ár hjá þeim tónlistarmönnum sem Kimi leggur lag sitt við.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off

Úrvalslisti Kraums

7.12.2011 - Georg Atli

Nú er desember og árslok nálgast óðfluga, en þá er einmitt frábærlega gaman (og erfitt) að vera tónlistarnörd og kynna sér alla árlistanna. Hér á Íslandi er það yfirleitt (amk undanfarin ár) tónlistasjóðurinn Kraumur sem ríður á vaðið með sinn 20 plötu úrvalslista. Sá listi var birtur í gær en endanlegur listi verður svo birtur 16. des.

Samkvæmt heimasíðu Kraums fer valið fram á eftirfarandi hátt:

Framkvæmd Kraumslistans 2011 er með þeim hætti að sex manna dómnefnd valdi 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en við honum tekur 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 20 aðilum sem allir hafa mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðla. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Í úrvalslistanefnd áttu sæti ásamt Árna Matthíassyni: Andrea Jónsdóttir, Trausti Júlíusson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir og Hildur Maral Hamíðsdóttir.

Þessar plötur komust á úrvalslistann:

  • ADHD – ADHD2
  • Anna Þorvalds – Rhízoma
  • Ben Frost og Daníel Bjarnason – SÓLARIS
  • Dead Skeletons – Dead Magick
  • FM Belfast – Don’t want to sleep
  • For a Minor Reflection – EP
  • Helgi Hrafn Jónsson – Big Spring
  • Hljómsveitin Ég – Ímynd Fíflsins
  • Lay Low – Brostinn Strengur
  • Nolo – Nology
  • Of Monsters and men – My Head is an Animal
  • Ofvitarnir – Stephen Hawking/Steven Tyler
  • Ragga Gröndal – Astrocat Lullaby
  • Reykjavík! – Locust Sounds
  • Samaris – Hljóma Þú (ep)
  • Sin Fang – Summer Echoes
  • Skurken – Gilsbakki
  • Snorri Helga – Winter Sun
  • Sóley – We Sink
  • Sólstafir – Svartir Sandar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Meira af Fonal Records

16.6.2011 - Georg Atli

Við fengum þær góðu fréttir að frábæra fólkið sem kemur frá Fonal ætli að spila meira og á fleiri stöðum en bara á Bakkus á laugardaginn, húrra! Það er líka frítt inn á þetta og ADHD og Forgotten Lores ætla líka að spila þarna…. þetta er nú aldeilis eitthvað!

Finnsk menningardagskrá á Hemma & Valda þann 17. júní

Finnska útgáfufélagið Fonal Records mun halda tónleika á Bakkus Bar laugardagskvöldið 18. júní kl. 20 með hljómsveitunum Lau Nau, Jarse, Es og Islaja. Til að hita upp fyrir þessa tónleika mun útgáfan standa að tvíþættri menningardagskrá á skemmtistaðnum Hemmi & Valdi föstudaginn 17. júní. Fyrri hluti dagskránnar eru útitónleikar í Sirkusporti (á vegum Gogoyoko) kl. 17 þar sem tónlistarmenn á vegum útgáfunnar munu leika af fingrum fram í svokölluðu Fonal Impro Set. Þar munu einnig koma fram ADHD og Forgotten Lores. Síðari hluti dagskránnar fer svo fram hjá Hemma & Valda en þar munu þau leika tónlist, sýna myndbönd og kynna afurðir sýnar fyrir gestum og gangandi.

Frítt er inn á alla viðburði Fonal Records hér á landi og er heimsókn þeirra í boði Sendiráðs Finnlands, Kimi Records og Nokia.

að lokum vísum við bara aftur á soundcloudið hjá Fonal og látum einhverja bara “jukebox”-ið þeirra fylgja með:

Fonal Jukebox by Fonal Records

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Úthlutun Kraums 2011

12.5.2011 - Georg Atli

Í gær tilkynnti Kraumur hvaða verkefni hefðu fengið styrki þetta árið.

Síðan 2008 hefur Kraumur styrkt meira en 70 hljómsveitir og ýmis verkefni tengd tónlist. Þetta er alltsaman frábært og vonandi heldur Kraumur þessu lengi áfram. Í ár fengu 15 verkefni og hljómsveitir styrki sem að námu samtals 9 milljónum. Þessi fengu styrki í ár (tölur fengnar beint af heimasíðu Kraums):

Pascal Pinon, Tónleikahald og kynning á frumburði sínum erlendis – 1.200.000
Retro Stefson*, Tónleikhald og kynningarstarf, Norðurlönd og Evrópa – 1.000.000
Árstíðir, Tónleikahald og dreifing í Rússlandi og Austur Evrópu – 800.000
Dikta*, Tónleikahald og kynning á verkum sínum í USA – 800.000
Endless Dark, Undirbúningsvinna og kynning á verkum sínum erlendis- 700.000
adhd, Kynningarvinna og tónleikar innanlands – 600.000
Kalli, Kynningarvinna á erlendum vettvangi – 600.000
Anna Þorvaldsdóttir, Undirbúningur og upptökur á portrait hljómdisk – 600.000
Who Knew, Tónleikahald á erlendum tónlistarhátiðum – 600.000
Eistnaflug, Innrás: Tónlistarhátíð í Neskaupsstað – 500.000
Aldrei fór ég suður, Innrás: Námskeið fyrir tónlistarmenn og gesti – 400.000
Guðmundur Steinn Guðmundsson, Innrás: Tónleikar innanlands – 300.000
Póst rokk & ról, Innrás: Tónleikar Lockerbie og fleiri um landið – 300.000
Sjóræningahúsið, Innrás: Tónleikasería á Patreksfirði – 300.000
Sleepless in Reykjavik, Myndbandagerð um íslenskt tónlistarlíf – 300.000
Samtals: 9.000.000

*Kraumur hefur áður stutt við undirbúning og upptökur á breiðskífum Dikta (Get it Together) og Retro Stefson (Kimambwe), sem sveitirnar vinna nú að því að gefa út og kynna á erlendum vettvangi – með stuðningi Kraums.

Persónulega finnst mér skemmtilegast að sjá annars vegar allar þessa tónleika og tónlistarhátíðir sem fara fram út á landi og svo líka Sleepless in Reykjavík því að mínu mati er þetta rosa flott framtak er í gangi þar og ætti að fá mun meiri athygli.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin