Faktorý fagnar 2 ára afmæli!
26.7.2012 - Georg Atli
Faktorý á 2 ára afmæli og þar verður aldeilis fagnað! Kíkjið endilega á dagskránna sem við fengum senda!
Á fimmtudaginn verða fríir tónleikar með Agent Fresco, RetRoBot og Svissnesku hljómsveitinni Kapnorth. Tónleikarnir hefjast kl. 22.
Föstudagskvöldið verður á vegum plötusnúðateymisins Kanill þar sem plötusnúður frá Crosstown Rebels, Francesca Lombardo frá Ítlalíu spilar ásamt Kanilgenginu Steindór Jónsson, Jón Eðvald, Atli Kanill og Kanilsnældur.
Á laugardaginn verður byrjað snemma en þá ætlum við að bjóða uppá grillveislu frá kl. 20. Veitingar í boði fyrir gesti á meðan birgðir endast og allsherjar Reggae veisla með RVK Soundsystem genginu.
Tónleikar á efri hæð kl. 23 með Ojba Rasta og Amaba Dama og svo munu plötusnúðar frá RVK Soundsystem sjá um neðri hæðina eins og hún leggur sig fram á rauða nótt.
Sunnudagskvöldið verður svo samkvæmt vana. Lifandi jazz í hliðarsal kl. 21:30.
Komið og fagnið með okkur!
Faktorý – góðar stundir
Tags: Agent Fresco, Amaba Dama, Francesca Lombardo, Kapnorth, Ojba Rasta, ReTroBot
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Þoka, Funk That Shit, Prinspóló og Agent Fresco á Bar 11
8.5.2012 - Kristjana
Það er allt morandi í tónleikum þessa vikuna. Við fengum eftirfarandi frá Bar 11 en þar verður boðið upp á live tónlist á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld.
Fimmtudagurinn 10.maí: Þoka – Funk That Shit
Hljómsveitirnar Þoka og Funk That Shit munu leiða saman hesta sína á tónleikum í kjallar Bar 11 fimmtudagskvöldið 10. maí. Sveitirnar vöktu báðar verðskuldaða athygli á Músíktilraunum en þar lenti hljómsveitni Þoka í öðru sæti og Funk That Shit í því þriðja en auk þess unnu liðsmenn hljómsveitanna til einstaklingsverðlauna. Það er því frábært tækifæri fyrir alla tónlistarunnendur að sjá þessar skemmtilegu sveitir á fimmtudaginn.
Tríóið Þoka var stofnað í ársbyrjun 2012 af gítarleikaranum Reyni Haukssyni og hljómborðsleikaranum Heimi Klemenzsyni en síðar bættist svo Agnes Björgvinsdóttir söngkona í hópinn. Þoka leikur ljúfa og ómstríða tóna og stefnir á að gefa út sína fyrstu plötu nú á árinu
Funk That Shit er instrumental fönk band skipað af rythma hljóðfærum, gítar, bassa og trommum. Þeir byrjuðu að “djamma” síðasta sumar en höfðu lítið gert áður en þeir skráðu sveitina í Músíktilraunir 2012. Þar nældi sveitin sér í 3. sætið og bassa- og gítarleikari sveitarinnar fengu titlanna “Bassaleikari Músíktilrauna 2012″ og “Gítarleikari Músíktilrauna 2012″. Gerið ykkur tilbúin fyrir hina nýu “skagfirsku sveiflu”!
Húsið opnar klukkan 21:00 og er aðgangur ókeypis. Einnig verður DJ í búrinu fyrir og eftir tónleika.
Föstudagurinn 11.maí: Prinspóló
Allir tónlistaráhugamenn á Íslandi ættu að hafa heyrt um Prinspóló en hljómsveitin þykir ein sú skemmtilegasta þegar kemur að tónleikahaldi. Hljómsveitin sendi nýverið frá sér lagið Landspítalinn sem þegar hefur fengið góðar viðtökur í útvarpi.
Húsið opnar klukkan 21:00 og verður aðgangur ókeypis. Eftir tónleikar verður svo DJ í búrinu
Laugardagurinn 12.maí: Agent Fresco
Hljómsveitina Agent Fresco þarf ekki að kynna fyrir neinum enda hljómsveitin búin að vera ein öflugasta rokksveit landsins undanfarin ár. Hljómsveitin er einmitt að halda í víkíng til Evrópu og er þetta því kjörið tækifæri til að sjá hljómsveitina á tónleikum áður en að hún heldur út.
Húsið opnar klukkan 21:00 og er aðgangur ókeypis. Eftir tónleika verður svo DJ í búrinu
Tags: Agent Fresco, Funk That Shit, Prinspóló, Þoka
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off
Agent Fresco á Hressó
8.5.2012 - Kristjana
Það ættu flestir að vera farnir að kannast við styrktartónleikaröð gogoyoko og Hressó. Ef ekki, þá fjölluðum við m.a. um hana hér. Á fimmtudaginn er komið að næsta gogoyoko charity kvöldinu á Hressó og í þetta skiptið verða það Agent Fresco sem spila til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Sem fyrr er enginn aðgangseyrir en gestir eru hvattir til að leggja málefninu lið með frjálsum framlögum sem tekið verður á móti á tónleikunum. Gamanið verður á Hressó og hefst kl. 22:30.
Agent Fresco
Agent Fresco þarf nú varla að kynna en sveitin spilar polyrythmískt oddtime-rokk með djass ívafi. Þeir tóku þátt í Músíktilraunum árið 2008 og báru sigur úr bítum, en einnig fengu hljóðfæraleikararnir verðlaun fyrir gítarleik, trommuleik og bassaleik. Á Íslensku tónlistarverðlaununum 2008 hlaut hljómsveitin verðlaun sem Bjartasta vonin.
Agent Fresco hefur gefið út 2 plötur, en sumt efni fyrri plötunnar Lightbulb Universe var endurútgefið á nýjustu plötu þeirra, A Long Time Listening sem kom út í Nóvember 2010.
Framundan á styrktartónleikum Hressó og gogoyoko:
10. maí – Agent Fresco
17. maí – For a Minor Reflection & Futuregrapher
24. maí – Eldar & Chris Wyatt Scott
31. maí – Snorri Helgason
Tags: Agent Fresco, Gogoyoko
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off
Myndbandabrjálæði!
4.5.2012 - Georg Atli
eða a.m.k. slatti af myndböndum. Það er nefnilega búið að hrúga út skemmtilegum myndböndum núna upp á síðkastið og þá er um að gera að rifja smá upp.
Agent Fresco sendu frá sér myndband við lagið Tempo. Ég veit ekkert um það annað en að það er gert af Abza…. ég veit ekki einusinni hvort að það er manneskja eða fyrirtæki, enda skiptir það ekki öllu lagið er gott, myndbandið fínt og Agent Fresco eru á leiðinni á túr.
Stuðsveitin Sykur voru líka að gera myndband. Það er við lagið Curling og eins og flest allt með þessari hljómsveit er myndbandið mjög hressandi. Félagarnir hjá Reykjavík Rocks Production sáu um að búa það til.
Hinn mjög svo frábæri Futuregrapher gerði myndband í samvinnu við japanska hljóðlistamanninn Gallery Six en þeir gáfu út plötu fyrir ekki svo löngu síðan (Waterproof). Lagið heitir Deep Blue og myndbandið var tekið upp við Grundarfjörð. Við fengum póst um myndbandið og þar sagði : “Guðmann Þór Bjargmundarsson (Mummi) sér um leikstjórn og myndatöku á 8MM filmuvél og var myndbandið hluti af sýningu Kinosmiðju á NWF. [innsk. Northern Wave Film Festival] Árni Grétar sýnir nekt sína í myndbandinu, en útgáfan sem var sett á Youtube vefsíðuna er þó klippt aðeins til, en myndbandið verður sýnt óklippt á Extreme Chill hátíðinni í sumar.”
Að lokum er svo gott að enda á einu sem að fólk er alveg að missa sig yfir núna. Huldumaðurinn Kristmann Op sendi frá sér lagið Hátt Fjall og myndband í stíl. Þetta er einhvern veginn undarlega dáleiðandi og maður hreinlega getur ekki annað en horft til enda…. merkilegt. Svo er heil plata væntanleg síðar á árinu.
Tags: Agent Fresco, Futuregrapher, Kristmann Op, Sykur
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | Comments Off
Agent Fresco órafmagnaðir í Gamla Bíói
24.2.2012 - Kristín Gróa
Okkur barst tilkynning:
Hljómsveitin Agent Fresco spilar á órafmögnuðum tónleikum ásamt strengjasveit í Gamla Bíói föstudagskvöldið 9. mars. Sveitin kemur ekki oft fram órafmagnað en í þau skipti sem hún hefur gert það hefur hún hlotið mikið lof fyrir.
Agent Fresco gaf út breiðskífuna A Long Time Listening í lok árs 2010 en um þessar mundir er sveitin að undirbúa tónleikaferð um Evrópu sem verður í sumar til að fylgja á eftir útgáfu plötunnar, en hún mun koma út í Evrópu í maí á þessu ári. Á sama tíma er sveitin á fullu að semja efni fyrir nýja plötu sem mun þó ekki líta dagsins ljós fyrr en á næsta ári.
Upphitun verður í höndum Eldar sem er skipuð Valdimar Guðmundssyni og Björgvin Ívari Baldurssyni.
Miðaverð á tónleikana er 2500 kr. og er miðasala hafin á Miði.is, í verslunum Brim og í Gamla Bíói.
Þeir sem eiga almennileg headphones geta hitað upp fyrir tónleikana með því að rifja upp þessa snilld Agent Fresco órafmagnaðir í Norræna Húsinu, Airwaves 2010.
Tags: Agent Fresco, Eldar
Flokkað undir Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Músíktilraunir 2012
6.2.2012 - Georg Atli
Nú fer að skella á einn af skemmtilegustu tónlistarviðburðum íslands. Á hverju ári hópast hæffileikaríkar unghljómsveitir ísland saman á einn stað og keppa í Músíktilraunum og það hefur sýnt sig að þaðan koma að minnsta kosti 2-3 virkilega áhugaverðar hljómsveitir á hverju ári. Persónulega held ég að það sé ekkert mikið betri leið til að vekja á sér athygli hérlendis en að taka þátt í Músíktilraunum, enda fylgist ég alltaf nokkuð spenntur með. Í tilefni af því að fresturinn til að sækja um er að líða þá fengum við stutta fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.
Músíktilraunir 2012 nálgast óðfluga en skráning hefst 20.febrúar. Því er tími kominn fyrir hljómsveitir og tónlistarmenn að hefja undirbúning fyrir umsókn. Oft er talað um að Músíktilraunir hafi verið stökkpallur fyrir ungar og óreyndar hljómsveitir út í hinn „harða tónlistarbransa“. Hljómsveitir á borð við Kolrössu Krókríðandi, Botnleðju, Maus, Mínus, Jakobínarínu, Agent Fresco og nú Of Monsters And Men eru ágætis vitnisburður um að ýmis ævintýri taka við að loknum tilraununum.
Margar af þessum ofangreindu hljómsveitum stukku í djúpu laugina að loknum Músíktilraunum. Þær tóku upp sínar fyrstu breiðskífur, fóru í hljómleikaferðalög til fjarlægra landa, spiluðu með heimsfrægum hljómsveitum og upplifðu „rokkdrauminn“ á ýmsa vegu. Það er ekki síst reynslan og samveran við aðra tónlistarmenn sem er svo verðmæt og mikilvægur þáttur fyrir þá sem taka þátt. Nýjar hugmyndir og hljómsveitir spretta upp og blómstra í íslensku tónlistarflórunni.
Það er einmitt einn helsti tilgangur Músíktilraunanna. Þetta er því einstakt tækifæri fyrir alla sem eru að grúska í tónlist til þess að koma fram á flottum stað með góðum græjum, fá verðmæta reynslu og kynnast öðrum íslenskum tónlistarmönnum.
Verðlaunin verða stórglæsileg, eins og undanfarin ár, en verðlaunað er fyrir fyrstu þrjú sætin, ásamt
hljómsveit fólksins, gítarleikar, bassaleikara, forritara/hljómborðsleikara, söngvara/rappara, trommara
og textagerð.
Hvetjum alla til að taka þátt
Opið er fyrir umsóknir frá 20. febrúar – 5. mars
Skila þarf inn 2 lögum með umsókn
Nánari upplýsingar:
musiktilraunir[at]itr.is
www.facebook.com/musiktilraunir1
www.musiktilraunir.is
Tags: Agent Fresco, Botnleðja, Jakobínarína, Kolrassa Krókríðandi, Mínus Maus, Músíktilraunir, of monsters and men, Samaris
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Jólaplögg Record Records 2011 á NASA
15.12.2011 - Georg Atli
Jólaplögg Record Records 2011 á Nasa – Föstudagskvöldið 16. desember
Föstudagskvöldið 16. desember mun hið árlega Jólaplögg Record Records fara fram. Í ár verður það þó umsvifameira en síðustu ár og verður það haldið á Nasa við Austurvöll.
Þær eru góðar plöturnar sem hafa komið út hjá okkur í ár, en þær eru:
Pollapönk – Aðeins Meira Pollapönk
Sykur – Mesópótamía
Orphic Oxtra – Kebab diskó
Of Monsters and Men – My Head Is an Animal
Lockerbie – Ólgusjór
Á jólaplögginu koma fram hljómsveitirnar Of Monsters and Men, Agent Fresco, Sykur, Orphic Oxtra og Lockerbie.
Forsala miða er hafin á Miði.is og er miðaverð í forsölu 1500 kr.
Tags: Agent Fresco, Lockerbie, of monsters and men, Orphic Oxtra, Sykur
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Kaffi, Kökur og Rokk og Ról!!
27.10.2011 - Georg Atli
Einhverra hluta vegna virðist það hafa farið framhjá mörgum að það er alveg gríðarlega skemmtileg tónleikaröð er í fullum gangi. Á (næstum) hverjum þriðjudegi síðan í byrjun september hefur Arnar Eggert Thoroddsen haft yfirumsjón með Kaffi, kökum og rokki og róli og fengið stórann hóp af skemmtilegustu hljómsveitum íslands til að spila saman.
Tónleikaformið er aðeins öðruvísi en gengur og gerist því húsið opnar kl. 20:00, tónleikarnir byrja svo hálftíma seinna og eru búnir um kl. 22:00. Já og það kostar bara 500 kall inn OG það eru kökur og kaffi! og allt áfengislaust að sjálfsögðu. Þriðja hvern þriðjudag er svo UNG SÁÁ með dagskrá.
Ég er búinn að ná að mæta tvisvar og sjá Agent Fresco og Mammút og síðan Retro Stefson og NOLO og í bæði skiptinn hefur verið frábær skemmtun. Það er einhvern veginn allt miklu afslappaðra á þessum kvöldum, salurinn er í minni kanntinum, hljóðið fínt og stemningin hefur verið mjög innileg og þægileg. Ég mæli hiklaust með þessu!
Hingað til hafa eftirfarandi bönd mætt og leikið listir sínar:
Benni Hemm Hemm + Prinspóló, Saktmóðigur + Hellvar, Agent Fresco + Mammút, Sóley + Samaris, Snorri Helga + Hermigervill.
Í gær voru svo Retro Stefson og NOLO að spila þar sem NOLO spiluði lög af væntanlegri plötu og Retro Stefson sýndi það og sannaði að það er enginn (í heiminum!?) betri í því að byrja partý en þau, þegar að þau fengu fullt af ófullu fólki til að dansa eins og enginn væri morgundagurinn auk þess að standa og sitja nákvæmlega eins og Retro-liðar sögðu til um og mér skilst að það sé ekkert svo auðvelt.
Næsta þriðjudag verða svo svakalegir rokktónleikar þegar að Reykjavík! og Hljómsveitin Ég mæta í Edrúhöllina (Efstaleiti 7) og ég ætla að halda því fram að það megi enginn missa af því.
Það sem eftirlifir vetri lýtur dagskráin þannig út:
8. nóv: UNG SÁÁ með dagskrá
15. nóv: Ekki Búið að Tilkynna (EBT)
22. nóv: Lára + Rúnar Þórisson
29. nóv: EBT
6. des: UNG SÁÁ með dagskrá
13. des: SKÁLMÖLD + Angist
20. des: Lay Low + gestir
27. des: Mugison + Jónas Sig
Tags: Agent Fresco, Benni Hemm Hemm, Hellvar, Hermigervill, Hljómsveitin Ég, Mammút, Nóló, Prinspóló, Reykjavík!. Retro Stefson, Saktmóðigur, Samaris, Snorri Helgason, Sóley
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Airwaves gestalisti dagsins – Arnar Eggert Thoroddsen
10.10.2011 - Georg Atli
Airwaves gestalistamann dagsins ætti ekkert að þurfa að kynna. Arnar Eggert Thoroddsen er einn af menningarpennum morgunblaðsins, dómari í Músíktilraunum og eitthvað ofsalega margt annað. Auk þess sem hann er mikill aðdáandi harða rokksins. Þessa dagana er hann líka að skipuleggja tónleikaröð (sem er mikil snilld) og í næstu viku eru einmitt tónleikar með Snorra Helgasyni og Hermigervli .
Það er alltaf eitthvað um rokk af níðþunga taginu á Airwaves og hér svona það helsta sem er að æsa upp þau gen í mér.
Endless Dark
Strákarnir í Endless fara með þetta post-hardcore sitt upp í hæstu hæðir. stórkostlegt tónleikaband. Bandið hefur þróast út og suður frá upphafi vega en virðast hafa neglt stefnuna núna og hafa verið að vaxa vel og dafna.
Agent Fresco
Hvað getur maður sagt? Besta rokkband Íslands í dag (fyrir utan Ham nottulega) og sem tónleikaband eru þeir ósigrandi. Ég man varla eftir ástríðufyllra bandi, það gefur alltaf allt í þetta og Arnór Núðla er frontari dauðans.
Ham
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þessa meistara, bestu sveit Íslands fyrr og síðar. Segi bara: HAM, HAM, HAM, HAM, HAM, HAM, HAM, HAM….
Hamferð
Færeyingar sem spila dramatískt doom með heimabrugguðum, færeyskum þunglyndisrigningarbrag. Hörkuband og flott live.
Deathcrush
Geðveikt band frá Noregi með svaka rokkskutlum í forgrunni, tvær Kim Gordon á verði einnar. Nafnið er það flottasta sem maður hefur heyrt lengi, en fyrsta plata Mayhem heitir þessu nafni (sem ég á á vínyl. Og nei, hún er ekki til sölu. Keypt á útsölu í Skífunni 1991 á 99 kr.)
Iceage
Djöfull er ég að fíla þessa dönsku sveit. Nett Joy Division í gangi (sjá nafn) en annars tryllt póstpönk með hardcoreáhrifum. Þetta geta Danirnir!
Liturgy
Svartmálmur frá Brooklyn. Ég fíla þennan ameríska vinkil á svartþungarokkið, eins og Wolves in the Throne room, þar sem unnið er með tónlistarformið en ekki endilega ímyndir. Liturgy virðist skipuð lattelepjandi hippsterum sem dæla síðan út avant-garde black metali. Thumbs up!
Muck
Æðisleg íslensk hljómsveit sem var einna fyrst sveita hérlendist til að þræða listfengu, avant neðanjarðar og nýbylgjurokki saman við brjálaða grindkeyrslu. Mér finnst vænt um þessa drengi.
Muck @ Holan from Ægir Freyr Birgisson on Vimeo.
Tags: Agent Fresco, Airwaves 2011, Deathcrush, Endless Dark, Ham, Hamferð, Iceage, Liturgy, MUCK
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Gestalisti | Comments Off
Ný tónleikaröð í haust: Kaffi, kökur & rokk & ról
30.8.2011 - Kristjana
Þriðjudaginn 6. september hefst ný og spennandi tónleikaröð. Dagskrárstjóri verður Arnar Eggert Thoroddsen sem segist vilja “búa til tónleikaröð sem snýst um tónleika, eins barnalega og það hljómar”. Mér finnst það hljóma vel! Með Kaffi, kökur & rokk & ról vilja aðstandendur raðarinnar brjóta upp hið hefðbundna tónleikaform. Tónleikarnir verða því á hverju þriðjudagskvöldi. Húsið opnar 20:00, tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:30 og klárast fyrir 22:00. Aðgangseyrir verður aðeins 500 kr á hvert kvöld og innifalið er kaffi og nýbakaðar kökur eins og fólk getur í sig látið.
Margir skemmtilegustu og áhugaverðustu tónlistarmenn landsins munu koma fram á þessum sælkeratónleikum – þar sem meiningin er að tónlistaráhugamenn geti mætt, í upphafi viku, og notið tónlistarinnar. Benni Hemm Hemm og Prins Póló ríða á vaðið þann 6. september. Í haust munu svo t.d. Mugison, Jónas Sig, Agent Fresco, Lára, Skálmöld og Samúel Jón Samúelsson Big Band koma fram – ásamt fjölmörgum öðrum.
Kaffi, kökur & rokk & ról mun eiga samastað í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, einnig þekkt sem Vonarhús SÁÁ, og munu aliir tónleikar fara þar fram. Nóg verður því af kökum og kaffið mun flæða, en annað ekki – enda tónlistin í fyrirrúmi.
Semsagt: Benni Hemm Hemm og Prins Póló þann 6. í Efstaleiti 7 kl. 20:00. Fylgist svo með á næstunni fyrir frekari upplýsingar um næstu þriðjudagskvöld.
Tags: Agent Fresco, Benni Hemm Hemm, Jónas Sig, Lára, Mugison, Prinspóló, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Skálmöld
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off










