Topp 5 ártöl – Georg Atli

5.11.2011 - Georg Atli

Jæja já…. mér virðist það vera alveg ómögulegt að ná að skrifa fleiri svona umfjallanir um Airwaveskvöldin þannig að ég er bara að hugsa um að sleppa því og skrifa bara Topp 5 lista um það sem að mér fannst alveg frábært (hefði líklega verið viðeigandi að tækla þetta þannig frá upphafi en…) og meira að segja passar hann inn í þema vikunnar, ártöl (í gegnum ártalið 2011). Miðvikudagurinn og fimmtudagurinn eru ekki með í þessum lista af því að ég var búinn að skrifa um þá. Hápunktarnir þaðan er samt Náttfari, Markús and the Diversion Sessions, Sóley, Fist Fokkers og Beach House


Topp 5 Airwavesártalið 2011 – Georg Atli

5. Hermigervill á NASA (Sunnudagur)

Sunnudagurinn kom mér meira á óvart en í fyrra, brjáluð dagskrá á NASA og fullt af fólki sem var alveg til í að halda partýinu gangandi. Hermigervill sá svo til þess að partýið var geðveikt gott. Það er ekki auðvelt að fá fullt hús af útlendingum til að detta í stuð þegar að maður spilar skemmtara, hljóðgervla og syntha útgáfur af klassískum íslenskum lögum en Hermigervill er bara svo ótrúlega góður í því sem að hann gerir að ég er viss um að þau voru öll að raula Sísí í marga daga.

4. Hljómsveitin Ég í Hörpu (Föstudagur)

Ef það er eitthvað sem ég hef lært á undanförnum árum þá er það að Hljómsveitin Ég er geðveikt góð… líka á tónleikum. Það er ótrúlegt hvað það er hægt að leika sér mikið með popp/rokk lög á þeim 2 til 4 mínútum. Snilldar hljómsveit sem á skiliið miklu meiri athygli en hún fær.

3. Tune-Yards á NASA (Föstudagur)

Þetta var ein af hljómsveitunum sem ég “varð að sjá” og ég var alls ekki einn um það. Röðin fyrir utan NASA var fáránlega löng! Ég verð líka aðeins að minnast á að það er pínu undarlegt að hafa bara 3 dyraverði á vakt þegar að það er alveg gefið að það myndast löng röð á svona viðburðum. Í stuttu máli var Merrill Garbus og félagi hennar (sem ég held að enginn viti almennilega hvað heitir) frábær í alla staði, það er á svona tónleikum sem að Airwaves miðinn og röðin og allt það borgar sig fullkomlega.

2. John Grant í Hörpu (Laugardagur)

John Grant var hitt nafnið sem ég “varð að sjá”. Ég varð ekki heldur fyrir vonbrigðum með hann. Tónleikarnir hans voru einlægir og innilegir og allt skilaði sér fullkomlega. Það er sjaldgæft að sjá tónlistarmenn vera svona svakalega mikið “alvöru”. Svo syngur hann líka vel og textarnir hans eru hnyttnir og niðurdrepandi en samt einhvern veginn skemmtilegir. Virkilega gott.

1. Reykjavík! á Kexinu (Laugardagur)

Ég svona hálfpartinn datt inn á þessa tónleika. Ég var búinn að ákveða að sjá Reykjavík! bara á sunnudeginum og fara á eitthvað annað þetta kvöld en síðan hætti ég við það og ákvað að vera ömurlegur á sunnudeginum og vera bara heima þá (hvort eð er bara fullir útlendingar í bænum þá). Þetta reyndist vera gríðarlega góð ákvörðun. Þvílíkt snilld sem þessi hljómsveit er á sviði! Þessir off-venue tónleikar toppuðu semsagt allt það góða sem hátíðin hafði annars upp á að bjóða. Þeir voru svo góðir að mér varð næstum flökurt eftir tónleikana… flökurt af snilld. Svona tónleikar fá mann til að langa að vera sjálfur í hljómsveit.

Reykjavík! á Airwaves 2011 (off venue) from toppfimm on Vimeo.

Ég ákvað snarlega að mæta líka á tónleikana þeirra á sunnudeginum, það var líka góð ákvörðun.

Það þarf líka að minnast á eftirfarandi atriði sem voru líka mjög flott: Dad Rocks!, Of Monsters and Men og Sudden Weather Change

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Listar, Tónleikar | Comments Off

Airwaves fimmtudagskvöld – Georg Atli

26.10.2011 - Georg Atli

Úff hvað við erum eitthvað ógeðslega léleg þessa daganna, hér er fyrsta skrefið til þess að breyta því…

Þegar að ég skoðaði dagskránna fyrir hátíðina þá sá ég strax hvað fimmtudagskvöldið var erfitt. Alltof margt skemmtilegt að sjá og ég átti ótrúlega erfitt með það að velja og hafna. Kannski var það þess vegna sem ég kom mér svona seint af stað? Ég fór amk allt of seint af stað og missti þess vegna af allskonar sem ég ætlaði að sjá… eins og t.d. Hauschka í Fríkirkjunni (er enn að bölva því).

Ég náði samt að sjá svolítið (alltof lítið) af því sem var að gerast í Eldborgar sal Hörpu. Þar rétt náði ég í eittoghálft af síðustu lögum Daníels Bjarnasonar sem Sinfoníuhljómsveit Íslamds lék. Þau voru geðveikt flott. Það var ótúleg upplifun menningarplebba eins og mig (sem hefur aldrei séð Sinfóníuhljómsveitina spila á alvöru tónleikum!) að fá að sjá og upplifa þetta, þó að það hafi ekki verið nema eitt og hálft lag. Það fylgir því einhverskonar undarleg gapandi tilfinning (veit ekki alveg hún heitir en hún veldur því að maður gapir) að koma inn í Elsborg. Mér finnst þessi salur vera stórkostlegur.

Eftir að hafa séð þetta og var smá hlé á meðan að Sinfónían kom sér út úr salnum og ICE (International Contemporary Ensemble) hópurinn kom sér fyrir, þetta hlé ákvað ég að nýta til fulls og hljóp niður til að sjá Sean Lennon og Greg Sauniere spila einhvern þann trylltasta spuna sem ég hef séð undir sameiginlegu nafni Consortium Musicum. Það verður líka að nefna það að Sean Lennon var í algjöru aukahlustverki þarna, Greg Saunier er trommuleikari Deerhoof og besta lýsingin á hans frammistöðu þarna er líklega sú að hann var alveg sturlað góður. Hins vegar get ég ekki einu sinni sagt með fullri vissu á hvaða hljóðfæri Sean spilaði…

Eftir að hafa hlustað á trommurnar í smástund stökk ég aftur yfir í Eldborg og sá ICE spila verk Steve Reich. Það var mjög flott. Ég verð samt að viðurkenna það að fyrir hátíðina vissi ég ekkert um Steve Reich og byrjaði fyrst vikuna fyrir Airwaves að skoða hann eitthvað og ég er alveg viss um það að ef ég hefði þekkt verkin hans betur þá hefði þetta virkað betur fyrir mig. Ég hvet samt alla þá sem ekki þekkja til Steve Reich til þess að tjékka á honum, þetta er ansi gott.

Frá Eldborg hljóp ég (lesist sem “labbaði aðeins hraðar en venjulega”… hitt lítur bara betur út) niður á NASA og sá hljómsveitina Young Galaxy. Í rosalega stuttu máli þá var þetta ekkert sem hreif mig og ég forðaði mér fljótlega yfir í listasafnið til þess að sjá Beach House.

Þetta reyndist vera gríðarlega góð ákvörðun því að þrátt fyrir að hafa verið í Listasafninu (sem mér finnst vera einn af síðstu stöðum Airwaves á hverju ári) þá voru þau alveg frábær. Hljóðið var flott, lögin voru frábær, framkoman líflaus, stemningin var samt frábær og rödd Victoria Legrand er stórkostleg. Hins vegar kláraði ég ekki alveg tónleikana þeirra því að á Amsterdam var hljómsveitin Fist Fokkars að spila. Ég hafði komist að því á facebook að Fist Fokkers voru búinir að setja saman epískan lista yfir tökulög sem þeir fluttu á tónleikunum. Þar voru m.a. lög eins og Don’t Speak með No Doubt, Sinaed O’Connor útgáfu af Nothing Compares 2 U og Sabotage eftir Beastie Boys og í flestum tilfellum voru útgáfur Fist Fokkers betri en upprunalegu útgáfurnar. Frábært live band og ein af skemmtilegri tónleikum hátíðarinnar.

Moment kvöldsins var samt fyrsta lag Beach House Gila því að þau voru bara svo svakalega töff.
Beach House – Gila

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Airwaves miðvikudagskvöld – Georg Atli

18.10.2011 - Georg Atli

Já Airwaves komin og farin og allt var gott á meðan og er aðeins minna gott núna. Merkilegt hvað það er alltaf svona pínu tómleiki í gangi eftir svona frábærar hátíðir þegar að maður hefur ekki milljón tónleika að fara á á hverjum degi…

Við vorum gríðarlega léleg í því að pósta umfjöllunum (og bara almennt í færslunum) á meðan hátíðinni stóð en nú stendur það til bóta, ég ætla t.d. að byrja á því að setja inn miðvikudags umfjöllunina mína, gaman að því!

Miðvikudagur
Ég var búinn að ákveða það fyrir hátíð að vera duglegur í því að flakka á milli staða, reyna að sjá margt og svoleiðis. Með það í huga byrjaði ég í Kaldaljósasal Hörpu og ætlaði að sjá Náttfara (sem á “hvaðan kom þetta!?” plötu ársins en meira um það síðar). Þeir félagarnir spiluðu þrusu flott síðrokk í anda Mogwai og fleiri sveita sem ég nenni ekki alveg að nefna núna, en þetta var sem sagt mjög gott tjékkiði endilega á næstu tónleikum þeirra. Það er samt ekki hægt að segja að þeir hafi verið eitthvað mega hressir á milli laga eða í spileríinu en reyndar finnst mér alltaf skemmtilegt að sjá hljómsveitir eru með svona “no bullshit” viðhorf. Þeir spiluðu bara lögin sín vel og rétt, engin partý trikk eða neitt svoleiðs, bara virkilega gott, þungt og kraftmikið rokk og ról.

Næstir á sviðið voru NOLO og af því að ég hafði heyrt af því að þeir félagarnir væru að plana nýja plötu þá gat ég eiginlega ekki staðist það að sitja aðeins lengur. Í grófum dráttum þá sá ég ekki eftir því. NOLO voru hressir og skemmtilegir og ég fékk sýnishorn af nýju plötunni, hún hljómar vel. Fyrir ykkur sem vitið ekki hvaða hljómsveit þetta er þá er þetta tveir gaurar, annar spilar á gítar og hinn á syntha og hljómborð og eitthvað svoleiðis, tónlistin minnir mig bæði á MGMT (þ.e.a.s. hressu plötuna þeirra Oracular Spectacular) og Ratatat en eiginlega skemmtilegra og þeir eru gríðar hressir live.

Þegar að ég sá að Sóley var næst gafst ég eiginlega bara upp og ákvað að ég myndi bara eyða kvöldinu í Hörpu. Fínt sæti góð tónlist og engin röð (amk þegar að maður var kominn inn)… það er eiginlega ekki hægt að hafa það mikið betra á miðvikudagsairwaves.

En já. Sóley var sem sagt næst og hún er einstök. Það er oft skrifað/sagt um hana eitthvað um galdra og töfra og eitthvað svoleiðis og mér finst leiðinlegt að hamra á klisjum en það verður bara að segjast að það á rosa vel við að nefna einhverskonar galdra í þessu samhengi. Sóley nær alltaf að fanga áhorfandann algjörlega. Í þetta skiptið voru þau bara tvö, Sóley og Jón Óskar trommari (hafa verið fleiri með þegar ég hef séð hana) en það kom alls ekki að sök. Sóley notaði einhverskonar lúppur og dót (sem ég kann engin eiginleg skil á) en þannig gat hún tekið röddina sína upp og notað hana í undirspilið og var rosa flott. Á milli atriða er hún svo einstaklega einlæg og svona “alvöru” (ef það meikar sens…). Hún er svona eins og Mugison, manni finnst maður þekkja hana eða eins og maður sé á tónleikum hjá frænku sinni eða svoleiðis sko… allt voða heimilislegt og innilegt. Það er alveg sama hvað þér finnst um tónlistina hennar, hún vinnur þig yfir á tónleikum. Frábærir tónleikar.

Markús and the Diversion Sessions ar næstur á svið, hann tók með sér heila hljómsveit og vel það held að þau hafi verið 12 á sviðinu. Markús hefur hingað til aðeins gefið út eina E.P. plötu og þar var hann í lo-fi gírnum. Bara kassagítar og einstaka einfaldur trommutaktur, engin læti og allt saman voðalega huggulegt. Textarnir er ofur raunsæir og einlægir þó að þeir verði steypukenndir á köflum. Á tónleikum er eitthvað allt annað í gangi (enda 12 sinnum fleira fólk að spila tónlistina og það væri frekar kjánalegt að halda sig við bara einn kassagítar og svoleiðis) þarna var miklu meira rokk og miklu meira stuð í gangi. Satt að segja þá kom þetta mér ótrúlega á óvart, tónlistin var miklu stærri og skemmtilegri (þó að platan sé líka flott), Hljómsveitin virtist líka alveg vera að fíla sig þarna og Markús var ansi góður í hlustendaspjallinu milli laga.

Sá sem átti að loka kvöldinu var svo Snorri Helgason. Hann var sá sem að ég var spenntastur fyrir þetta kvöldið enda var hann að gefa út frábæra plötu og átti stuttu síðar stórkostlega útgáfutónleika, þannig að mitt viðmið var ansi hátt þegar hann byrjaði. Ég verð samt að viðurkenna að ég varð fyrir smá vonbrigðum með hann þetta kvöldið. Hljómsveitin sem hann er búinn að setja saman er frábær og Snorri sjálfur er að stimpla sig inn sem einn allra besti laga og textahöfundur íslands og í rauninni er ekkert hægt að kvarta yfir tæknilegri frammistöðu þeirra þetta kvöldið allt hljómaði voða vel. Það var samt eitthvað sem bara náði mér ekki. Ég veit ekkert hvort að það var það að ég var svona hrifin af atriðinu á undan eða miklar væntingar eða eitthvað allt annað, Snorri Helgason greip mig amk ekki þetta kvöldið.

Þetta kvöldið þá stóðu Markús and the Diversion Session uppúr annars frábærri byrjun á Airwaves 2011
Sweet Nothing by sonoFmono

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Airwaves fimmtudagskvöld – Kristín Gróa

14.10.2011 - Kristín Gróa

Eins og ég minntist á um daginn þá á Airwaves það til að koma algjörlega aftan að mér. Dagsetningin er þekkt ár fram í tímann en samt kemur það mér alltaf jafnmikið á óvart þegar er að komið að þessu og ég er alltaf algjörlega óundirbúin og aldrei búin að kynna mér erlendu böndin. Það verður örugglega til þess að ég missi af einhverju geðveiku en samt er mér eiginlega alveg sama því ég nýt hátíðarinnar alltaf og er þá ekki tilganginum náð?

Með árunum hefur viðhorf mitt til hátíðarinnar reyndar breyst aðeins og ég er frekar slök þegar kemur að því sem ég verð að sjá. Fyrir nokkrum árum síðan var það alveg mesta sorg ársins þegar tvær must-see hljómsveitir spiluðu á sama tíma eða ef ég missti hreinlega af einhverju. Það gleymist seint svekkelsið þegar við ég og frænka mín vorum eitthvað seinar út úr húsi á laugardagskvöldi og hlustuðum á óminn frá Clap Your Hands Say Yeah úr langri óhreyfanlegri röð fyrir utan Nasa á kaldasta Airwaves kvöldi sem ég man eftir. Mér fannst hátíðin eiginlega vera ónýt. Árið eftir sá ég þá svo spila í London og það var bara mjög gaman en meira út af félagsskapnum heldur en frammistöðu hljómsveitarinnar. Svona er þetta bara. Það sem maður er fyrir fram búinn að ákveða að sé best er svo kannski bara frekar leim og það sem maður hefur aldrei heyrt um er æðisgengið. C’est la vie. Whatever. Það er betra að njóta þess sem er í boði heldur en að svekkja sig á því sem maður einhverra hluta vegna getur ekki séð.

Þetta kæruleysi sem hefur heltekið mig í seinni tíð varð væntanlega til þess að ég beilaði á fyrsta kvöldi hátíðarinnar. Skítaveður, þreyta, matarboð og unaðslegt rauðvín í maganum sem gerði leigubílaferð í og úr bænum nauðsynlega urðu til þess að ég ákvað bara að vera heima.

Þrátt fyrir að veðrið væri síst betra í gær þá var ekkert annað í boði en að taka kvöldið með trompi til að bæta upp fyrir syndir dagsins á undan. Ég byrjaði dagskrána reyndar á því að taka frekar brútal spretti í ræktinni sem var eftir á að hyggja ekki svo gáfulegur undirbúningur fyrir tónleikakvöld. Nærri dauða en lífi skjögraði ég inn á Hressó um sexleytið þar sem Sin Fang voru að spila off-venue. Mig hefur langað að sjá hann/þau live aftur frá því að ég heillaðist algjörlega af Summer Echoes og þó þetta hafi ekki verið besti staðurinn til þess þá áttu on-venue tónleikarnir að fara fram á sama tíma og Beach House og ekki ætlaði ég að missa af því. Það er eiginlega hægt ekki meta þetta sem eiginlega tónleika þar sem tjald í roki er ekki besti tónleikastaður í heimi og það var pínu vandræðagangur hjá þeim (lengi að setja upp, slitinn gítarstrengur). Ég skemmti mér bara rosalega vel og fannst hápunktarnir án efa vera Clangour and Flutes og Nothings. Ef ég man rétt spiluðu þau líka tvö ný lög sem lofuðu virkilega góðu en önnur lög (Slowlights aðallega) nutu sín ekki alveg nógu vel akkúrat þarna. Ég held það skrifist samt algjörlega á venue-ið en ekki á þau sjálf og ég fór mjög sátt.

Ég gerði tónleikapásu til að ná í hálfveikan eiginmanninn í vinnuna og borða kvöldmat en brunaði svo beint niður í bæ aftur og ákvað að láta vaða beint í listasafnið. Við vorum mætt rétt áður en húsið opnaði og þreyttu fótunum mínum og hálfveika eiginmanninum þótti ekki leiðinlegt að fá sæti fremst á svölunum með besta útsýni í bænum.

Borko steig fyrstur á svið með ásamt hljómsveit. Ég hef nú satt að segja lítið hlutað á hann en renndi plötunni Celebrating Life einu sinni í gegn í gær svo ég vissi aðeins við hverju var að búast. Ef ég man rétt þá byrjuðu þeir á upphafslagi plötunnar, Continental Love, sem var eiginlega hápunkturinn en kannski var það bara af því ég hlustaði á það þrisvar fyrr um daginn og tengdist því aðeins meira en restinni. Mér fannst þetta bara ágætis frammistaða hjá þeim en ég hef á tilfinningunni að ég hefði notið tónleikanna betur ef ég hefði þekkt tónlistina meira.

Í hléinu gafst hálveiki eiginmaðurinn upp og hélt heim á leið svo ég var enn fegnari að hafa nælt í þetta prýðilega sæti enda þykir mér fátt leiðinlegra en að standa ein á tónleikum. Hjaltalín voru næst á svið og ég var nú nokkuð spennt fyrir að sjá þau enda ekki séð þau síðan þau komu fram með Páli Óskari á Airwaves 2009 og gjörsamlega trylltu salinn (ókei kannski var það Páll Óskar í bleiku glimmerjakkafötunum sem sá aðallega um það). Nú ætla ég að byrja á því að segja að ég hef aldrei hlustað meðvitað á Hjaltalín heldur hef ég bara heyrt í þeim í útvarpinu, í sjónvarpinu, eða á tónleikum). Þau tilkynntu það í upphafi tónleikanna að þau ætluðu aðallega að spila nýtt efni sem mér þótti nú aldeilis frábært og var spennt að heyra hvernig það væri. Það er skemmst frá því að segja að ég náði bara engu sambandi við þessi nýju lög. Mér fannst eiginlega ekki heil brú í þeim og þau voru að mínu mati pínu “indulgent” ef ég leyfi mér að sletta. Ég gat ekki séð að aðrir áhorfendur væru mjög ósammála mér því þeir sýndu lítil viðbrögð fyrr en kunnuglegt lag hljómaði loksins. Ég veit að kunnugleg lög fá betri viðbrögð en mér fannst bara himinn og haf á milli þeirra og nýju laganna. Ég hitti vinkonu mína eftir tónleikana og hún og hennar maður yfirgáfu listasafnið í miðju Hjaltalín setti því “það var svo ógeðslega leiðinlegt”. Úbbs.

Það lá mikið á að rífa upp stemninguna eftir þetta og Retro Stefson afgreiddu það mál með glans. Það er eiginlega öfugt farið með þau að ég hef talsvert hlustað á plöturnar þeirra (og þá aðallega Kimbabwe) en hef sjaldan séð þau live. Það er skemmst frá því að segja að þau gjörsamlega trylltu áhorfendur. Þau spiluðu ekki svo mörg lög en það voru öll réttu lögin (Senseni, Papa Paulo III, Velvakandasveinn, Kimba…) og interöktuðu svo rosalega við áhorfendur að ég hef sjaldan séð annað eins. Spilamennskan fór stundum aðeins út af sporinu því þau voru svo upptekin við að halda uppi stemningu en það er nú varla hægt að setja út á það þegar allir í húsinu voru að missa sig úr gleði. Það hlýtur að vera takmarkið.

Eftir þetta var komið að Beach House sem var sú sveit sem ég var spenntust fyrir á allri hátíðinni. Ég sver að ég fékk gæsahúð um leið og fyrstu tónarnir í Gila byrjuðu að spilast. Þvílík byrjun! Fjúff. Næst fóru þau beint í Walk In The Park og þaðan í Norway og mér var nú eiginlega bara allri lokið yfir þessu strax þá. Sviðsframkoman hjá þeim var nú ekki beint lífleg en vá hvað tónlistin bætti það upp. Vá vá vá. Þau spiluðu aðallega lög af hinni frábæru Teen Dream eins og við var að búast og ég kvarta ekki yfir því. Áhorfendur virtust vera að fíla þetta í botn og það varð allt vitlaust þegar upphafstónar Zebra fóru að hljóma. Ég verð að lokum að minnast á það hvað söngkonan Victoria er með alveg hreint magnaða rödd. Það er auðheyrt á plötunni en frábært að heyra hana live. Þetta var bara æðislegt allt saman.

Það hvarflaði að mér að fara inn á Amsterdam að sjá Deathcrush eftir að dagskrá lauk í listasafninu en þó það virtist ekki vera nein röð þá ákvað ég að nenna því ekki. Það hefur margt breyst frá því ég fór fyrst á Airwaves og þar á meðal það að ég þarf að mæta í vinnuna á föstudagsmorgnum!

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | Comments Off

Föstudagsárekstrar

14.10.2011 - Kristjana

Fyrir þá sem eiga ekki fancy síma fyrir Airwaves app: voila – árekstraskrá föstudagsins!

Árekstraskrá föstudags
Off-venue árekstraskrá föstudags

Tags: , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Meiri árekstraskrá!

12.10.2011 - Kristjana

Búin með fyrsta í Airwaves? Gaman? Til í morgundaginn? Díll! Árekstraskrá fyrir morgundaginn, official og off-venue. Gaman gaman :)

Árekstraskrá fimmtudags
Off-venue árekstraskrá fimmtudags

Tags: , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Georg Atli

12.10.2011 - Georg Atli

Það er svo fáránlega margt sem mig langar að sjá á Airwaves í ár að það hreinlega tekur því ekki að nefna það allt! Þess vegna ætla ég bara að nefna nokkur atriði sem ég ætla að reyna mjög mikið að sjá en þau verða ekki einu sinni í neinni sérstakri röð, því ég get ekki valið á milli:

Fist Fokkers

Besta live band sem ég hef séð lengi.

Beach House

Það virðist svolítið gleymast að nefna Beach House í þessum Airwaves upptalningum. Frábær sveit og hafa bara gefið út frábærar plötur og Teen Dream (2010) stendur þar uppúr.

Iceage

Ég held að það hafi flestir bent á þessa í gestalistunum sínum. Platan þeirra er frábær og ef live flutningurinn þeirra hálfdrættingur á við hana þá eru þeir í góðum málum.

Hauschka

Þýskur píanó snillingur sem minnir að mörgu leiti á John Cage.

22 Pisterpirkko

Finnar með smá “cult following”. Finnar eru svo töff að þetta getur ekki klikkað.

Sin Fang

Sin Fang er svona “must see” hvar sem hann/þau er/u. Betri en af plötu sem er fjandi erfitt þegar maður dælir út frábærum plötum

Tune-Yards

Platan er frábær og það er eitthvað við tónlistina sem segir mér að þetta band sé frábært á sviði.

Dad Rocks!

Smá hæp í kringum þetta band í kringum Airwaves… allt sem ég hef heyrt af nýju plötunni hljómar voða vel.

Björk

Ég er mjög tvístígandi með það hvort að ég eigi að nenna að mæta í röðina fyrir Björk á Sunnudeginum, bara 200 miðar í boði og fyrstir koma fyrstir fá þannig að maður þarf líklega að fara bara beint í röð eftir tónleika laugardagsins. Ég veit samt að hún alveg fáránlega flott á sviðinu.

Reykjavík!

Nýja platan frá Reykjavík! er að fara að detta í búðir og miðað við það sem að ég hef heyrt af henni (sem er reyndar mjög lítið) þá er þetta ein af betri plötum ársins.

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | 1 athugasemd »

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa

12.10.2011 - Kristín Gróa

Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:

Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri

Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.

Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!

5. Iceage

Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.

Iceage – White Rune

4. John Grant

Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.

John Grant – I Wanna Go To Marz

3. Glasser

Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.

Glasser – Home

2. tUnE-yArDs

W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.

tUnE-yArDs – Killa

1. Beach House

Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.

Beach House – Gila

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Fyrsti í Airwaves – tími kominn á árekstraskrá ársins

12.10.2011 - Kristjana

Ó sú gleði! Fyrsti í Airwaves 2011 er runninn upp. Þvílíkt framboð á súperdúperofurmegasega góðri og áhugaverðri tónlist hefur sjaldan sést. Og það er ekki bara opinbera Airwaves dagskráin sem er mögnuð heldur er off-venue dagskráin æði! Það er því gjörsamlega engin lögleg ástæða fyrir því að sleppa miðbæ Reykjavíkur og tónleikum tónleikum tónleikum þessa helgina.

Fyrir þá sem eiga armband og eru hræddir um að missa af uppáhalds hljómsveitinni, standandi í röð fyrir utan, er líklega lítið mál að rölta bara á næsta stað og sjá eitthvað nýtt og spennandi því ég sé ekki betur en flestar eða allar hljómsveitirnar spili minnst tvisvar. Magnað fyrirkomulag!

Hvort sem þú ert fátækur nemi sem átt ekki fyrir armbandi, sorgmæddur Owen Pallett aðdáandi sem fékk ekki miða eða manneskjan sem vill vera öllu viðbúin getur verið gott að hafa dagskrána á hreinu – vita hvað er í gangi á hinum stöðunum (ef röðin virðist ósigranleg). Og ekki er verra ef dagskráin er þannig úr garði gerð að þér sé gjörsamlega sama þó það hellist á hana, hún detti í gólfið eða þú týnir henni. Þess vegna er um að gera að prenta út árekstraskrá Topp fimm – ein blaðsíða á dag með öllu því sem Airwaves gleðinni fylgir. Yndi yndi og unaður. Einn, tveir og prenta.

Árekstraskrá miðvikudags
Off-venue árekstraskrá miðvikudags

Tags: , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin