Tónleikar vikunnar

17.3.2011 - Kristín Gróa

Krakkar mínir! Bara komið fimmtudagskvöld og engin tónleikasamantekt. Afsakið, afsakið þúsund sinnum! Við tökum þetta þá bara létt og rennum yfir föstudags- og laugardagskvöld.

Föstudagur:

Mig langar alveg sérstaklega að benda ykkur á það sem er að gerast á Faktorý þetta kvöld því þar koma fram hljómsveitirnar Of Monsters And Men, Orphic Oxtra og Who Knew. Tilefni tónleikanna er að styrkja væntanlega plötugerð Of Monsters And Men en þau eru að fara í hljóðver að taka upp sína fyrstu plötu núna í lok mars. Það kostar þúsundkall inn, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og þetta verður geðveikt! Sjá nánar hér.

Á Sódóma verður líka gaman en þar munu Valdimar, Hljómsveitin Ég og Spacevestite troða upp. Húsið opnar 22:00, það kostar þúsundkall inn og nánari upplýsingar má finna hér.

Á Nasa spilar hljómsveitin Dr. Spock sem hluti af 10 ára afmælistónleikaröð staðarins. Húsið opnar 23:00 og það kostar þúsundkall inn. Nánari upplýsingar á nasa.is.

Á Rósenberg ætlar cover bandið A Band on Stage að rokka 80′s style. Byrjar kl. 22:00 og kostar 1000 kall inn.

Það verður Psychadelic Sonic Vibes kvöld á Dillon en þar ætla hljómsveitirnar Dandelion Seeds, Bob og Baku Baku að troða upp. Frítt inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Tónleikar til styrktar kaffistofu Samhjálpar verða í Háskólabíó kl. 20:00. Fullt af atriðum m.a. Hjálmar, KK, Ferlegheit og Ellen Kristjáns, 2900 kr. inn

Síðan verða útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Ferlegheit í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi… bara svona ef einhvern langar í smá road-trip. 1000 kall inn, platan á tilboði og tónleikar byrja kl. 22:00

Laugardagur:

Á Sódóma verður annar tvípunktsdagurinn en það er tónleikaröð fyrir alla fjölskylduna! Pælingin er sú að kl. 16:00 eru áfengislausir tónleikar fyrir alla fjölskylduna þar sem kostar 500 krónur fyrir yngri en 18 ára en 1000 krónur fyrir þá sem eldri eru. Seinna um kvöldið (22:00) fara svo fram “fullorðins” tónleikar þar sem aldurstakmarkið er 18 ár og kostar þúsundkall inn. Í þetta sinn koma fram hljómsveitirnar Agent Fresco og Cliff Clavin á báðum tónleikunum en Ikea Satan bætist svo við um kvöldið. Nánari upplýsingar má finna hér.

A Band on Stage ætlar (aftur) að vera á Rósenberg. Næstum sömu formerki og á föstudagskvöldinu nema það að nú byrjar ballið kl. 20:00.

Í Tjarnarbíó verður rafveisla en þar ætla vinir hans Bjössa Biogen að vera með tribute tónleika. 6 tíma prógram með fáránlega flottu line uppi og meðal annars ætlar sjálfur Þórhallur Skúlason (Thor) að mæta og vera með AJAX tribute…. það má ekki missa af því! Miðasala fer fram á miði.is

Fyrir hörðu hausana þarna úti þá er skylda að benda á að Heaven Shall Burn er með tónleika á Amsterdam og þar verða líka Gone Postal, Angist og Ophidian I.

Á Dillon verða ókeypis tónleikar 22:00, eins og svo oft áður. Þetta kvöldið ætla Spacevestite, Morgan Kane og Örför á spila.

Sunnudagur
SunnuJazzinn verður á sínum stað á Faktorý. 21:00 og ókeypis inn.

Þetta er allt og sumt sem við vitum um í bili en gæðin á viðburðum eru svo mikil að það verður hvort sem er erfitt að velja! Ef þið vitið um eitthvað sem er í gangi, kommentið þá endilega eða skrifið á facebook síðuna okkar og við uppfærum yfirlitið.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 eitt nafn – Georg Atli

19.2.2010 - Georg Atli

Krissa fann uppá þessum lista og þegar hún var að kynna hugmyndina kom hún með tvö nöfn hugmyndinni sinni til stuðnings, þau voru Sting og Cher, mér leist illa á þennann lista…

…en svo fór ég að skoða safnið mitt og mundi þá (sem betur fer) eftir allskonar góðum listamönnum sem kalla sig bara einu nafni.


5. Santogold – Shove It

Ég er svosem ekkert brjálaður aðdáandi Santogold (sem heitir Santigold núna) og það eru margir aðrir sem ættu í rauninni frekar að vera hérna en mér finnst þetta lag lag samt alger snilld.


4. Ajax – Ruffige

Ajax samdi örugglega bestu raftónlistina sem hefur verið gerð á Íslandi og nostalgían sem kemur hjá mér þegar ég hlusta á þetta lag er rosaleg, það er næstum því að ég fari að leita að glosticks og tómu iðnaðarhúsi til að halda risa rave (Bauhaus einhver???). Annars þá var þetta lag á hinni svakalegu safnplötu Icerave sem Björgvin Halldórsson (meðal annara) sá víst um að setja saman og ég veit að þeir voru tveir í hljómsveitinni en Þórhallur var aðalmaðurinn og þetta er líka bara svo magnað lag að ég ætla að svindla og setja það hingað inn!

3. Ø/Mika Vainio – Kesamaa/Summertime

Mika Vainio er finnskur snillingur. Raftónlistargaur sem finnst gaman að gera tilraunir, þessi tegund af tónlist heitir víst microsound. Mér finnst það gott nafn.


2. Megas – Tvær Stjörnur

Uppáhalds Megasarlagið mitt í dag, það breytist reyndar á hverjum degi. Þessi maður er meistarinn!


1. Squarepusher – Port Rhombus

Handahófskennt val úr Squarepusher safninu. Tom Jenkinson er ekki bara einn snjallasti raftónlistargæjinn í dag, hann er líka ótrúlega fær bassaleikari og spilar oftast sjálfur allar bassalínurnar í lögunum sínum live.

p.s. sést það nokkuð að ég er að hlusta mikið á elektróník þessa daganna??

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin