Allir á Aldrei fór ég suður!
29.3.2012 - Georg Atli
Rétt áðan birtu snillingarnir á bak við Rokkhátíð alþýðunnar nöfn allra þeirra sem koma fram á hátíðinni. Enginn sem segir að í ár sé listinn frábærlega flottur er að ýkja. Listinn er allur að neðan en til að hita sig upp þá eru fyrst 2 hressandi myndbönd með Muck (það er nýtt) og svo Orphic Oxtra, þær eiga það einmitt líka sameiginlegt að vera fáránlega góð live.
Hljómsveitir sem koma fram árið 2012:
Áttavilltir
Cutaways
Gang Related
Gógó píur
Hótel Rotterdam
Jón Jónsson
Legend
Mugison
Orphic oxtra
Páll Óskar og Sunnukórinn
Skálmöld
Skúli Þórðar
Svavar Knútur
Sykur
Vintage caravan
701
Biggibix
Dúkkulísur
Gísli Pálmi
Gudrid Hansdottir
HAM
Ketura
Klysja
Lori Kelley
Muck
Nolo
Pollapönk
Postularnir
Retro Stefson
Reykjavík!
Snorri Helgason
Þórunn Antonía
Tags: Aldrei fór ég suður, MUCK, Orphic Oxtra
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Aldrei fór ég suður.
8.2.2011 - Georg Atli
Í morgun fengum við fréttatilkynningu frá nýskipuðum rokkstjóra tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður honum Jóni Þór. Hann bað okkur vinsamlegast að birta hana og af því að þetta er svo svakalega skemmtileg hátíð þá getum við ekki annað en birt hana. Hún er svona:
Stuðmælingar íbúa í Edinborgarhúsinu – Fréttatilkynning
- Opinn borgarafundur vegna Aldrei fór ég suður!
Fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20.00 munu aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og velunnarar hátíðarinnar blása til opins borgarafundar í sal Edinborgarhússins á Ísafirði. Aðal umræðuefni fundarins verður Rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, framtíð hennar og framþróun. Farið verður yfir síðustu hátíðir, hvað hefur verið gert rétt og hvað ekki og viðraðar verða hugmyndir um hvert hátíðin getur þróast.
Af forsvarsmönnum hátíðarinnar hafa heyrst fregnir af hugsanlegri þreytu en þær fregnir eru stórlega ýktar og ljóst að menn hafa fengið einhvers konar endurnýjun lífdaga í kjölfar stuðsamkomulags bæjaryfirvalda og vestfirðinga allra. Í ár hafa íbúar Ísafjarðarbæjar og nágrannabyggðarlaga nefnilega lýst yfir vilja til að bretta upp ermar og aðstoða við hátiðina og er því markmiðið að safna saman í góðan og öflugan hóp vaskra meyja og sveina til að stuðla að öflugri hátið í ár.
Takmark hátíðarhaldara er að ná samhug í verki og fá alla með í stuð. Stuð er mikilvægt. Þess vegna verður fundurinn stuðmældur með nýjustu tækni, stuðmæli sem hannaður var sérstaklega fyrir þetta tilefni en eins og flestir vita er stuð mælt í travoltum (tV). Með stuð að vopni er okkur allt mögulegt, þegar stuð heimamanna er tryggt mun það smitast til gesta okkar og ekki síst til allra þeirra sem koma munu fram á hátíðinni. Það eru fyrst og fremst tónlistarmennirnir sem gera þessa hátíð að því sem hún er og það er einbeittur vilji okkar að þeir fái greitt í gleði, kærleika, ánægju og stuði allra á svæðinu.
Aldrei fór ég suður verður nú haldin í áttunda sinn en ævintýrið hófst árið 2004. Hún mun fara fram um páskana, n.t.t. frá 20. – 24. apríl en hátíðin hefur náð að teygja vel úr sér yfir helgina með metnaðarfulla dagskrá af ýmsum toga. Nefna má að síðustu tvö ár hefur verið haldið málþing samhliða hátíðinni um margt sem viðkemur tónlistariðnaðinum, myndlistarsýningar, uppistand og svokölluð “off venue” dagskrá. Tilkynnt verður um þau dagskráratriði sem eru klár, hverjir munu standa á baki hátíðinni á ár og hverjir munu hýsa hátíðina.
Sjáumst vonandi sem flest..í stuði!
Kv,
Stjórnin …og Sigga Beinteins, nei, djók!
Tags: Aldrei fór ég suður
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Umsóknarferlið fyrir tónlistarsjóð Kraums hefst í dag.
6.1.2011 - Georg Atli
Við fengum fréttatilkynningu frá Kraumi. Í mjög stuttu máli segir þar að frá og með deginum í dag er hægt að sækja um styrk frá Kraumi fyrir þau tónlistartengdu verkefni sem fara í gang árið 2011. Það þarf ekkert endilega að vera hljómsveitir eða tónlistarmenn sem sækja um því að eins og stendur í tilkynningunni þá er “Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði og fræðsluverkefni.”
Ef að þið eruð að plana eitthvað stórt (eða lítið) þá skuluði endilega kynna ykkur málið betur hér og láta okkur svo vita hvað það er sem þið eruð að plana.
Hérna kemur svo fréttatilkynningin:
FRÉTTATILKYNNING:
Umsóknarferli Kraums tónlistarsjóðs fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2011 hefst fimmtudaginn 6. janúar. Hljómsveitir og listamenn úr öllum geirum tónlistar geta sótt um stuðning fyrir sín verkefni. Frá því Kraumur hóf starfsemi sína hafa yfir áttatíu listamenn og hljómsveitir hlotið stuðning frá sjóðnum og má þar nefna Mugison, Hjaltalín, Víkingur Heiðar Ólafsson, Elfa Rún Kristinsdóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Bang Gang, Daníel Bjarnason, kammerkórinn Carmina, tónlistarhópurinn Njútón, FM Belfast, Dikta, Celestine og Ólöf Arnalds. Kraumur hefur einnig haldið úti samstarfsverkefnum með Músíktilraunum Tónabæjar, Listahátíð í Reykjavík, Aldrei fór ég suður og fleiri aðilum.
Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2011. Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar geta þar sótt um stuðning fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði og fræðsluverkefni. Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér frekari upplýsingar um umsóknaferlið á heimasíðu Kraums:
(bein slóð; www.kraumur.is/umkraum/umsoknir2011)
Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð, en allar umsóknir skulu innihalda yfirlit yfir verkefnið sem sótt er um, upplýsingar um markmið þess og fjárhagsáætlun. Öllum umsóknum skal skila bréfleiðis. Umsóknarferlinu lýkur 1. febrúar 2011. Aftur verður auglýst eftir umsóknum í vor. Frekari upplýsingar um umsóknaferlið má finna á heimasíðu Kraums, þar sem umsækjendum eru einnig gefin ýmis ráð fyrir umsóknarferlið; www.kraumur.is
Kraumur tónlistarsjóður var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði og hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarviðinu.
Kraumur hefur komið víða við á fyrstu starfsárum sínum. Auk beins stuðnings við einstaka listamenn og hljómsveitir – og verkefni þeirra á sviði plötuútgáfu, tónleikahalds og kynningar á sér og verkum sínum innanlands sem utan – hefur Kraumur hrundið af stað og starfrækt eigin verkefni til breiðari stuðnings íslensks tónlistarlífs; m.a. Innrásinni til stuðnings tónleikhaldi innanlands, Kraumslistanum til að vekja athygli og styðja við íslenskri plötuútgáfu og þeim titlum sem þykja skara fram úr í frumleika og metnaði – og svokölluðum Hljóðverssmiðjum í samvinnu við Músíktilraunir, þar sem ungum og upprennandi listamönnum og hljómsveitum gefst kostur á að taka upp nýtt efni undir leiðsögn og fá ráð um næstu skref í ferlinum hjá reyndari tónlistamönnum.
Skil á umsóknum
Umsóknir skulu sendar bréfleiðis:
Kraumur, PO Box 124, 121 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar
…skemmtilegt.
Tags: Aldrei fór ég suður, Bang Gang, Celestine, Daníel Bjarnason, Dikta, Elfa Rún Kristinsdóttir, FM Belfast, Hjaltalín, kammerkórinn Carmina, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Músíktilraunir, Ólöf Arnalds, tónlistarhópurinn Njútón, Víkingur Heiðar Ólafsson
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Uppgjör Árna á árinu 2008
10.1.2009 - Árni Sverrir
Sæl öllsömul og afsakið listaleysið mitt að undanförnu.
Hér kemur árið mitt…
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Held að ég hafi aldrei verið jafnlatur við að sækja tónleika og í ár en bestu tónleikar ársins eru:
Neil Young á Hróa…hef sjaldan séð nokkurn mann spila á gítarinn sinn af jafnmikilli hörku.
Grinderman á Hróa…gredda og grár fiðringur en samt með snyrtileikann í fyrirrúmi.
Reykjavík! á Kaffibarnum…þegar við gengum inn þá stóðum við á milli bassaleikarans og trommarans. Svo var Bóas klifrandi upp á öllu, fólk að góla í míkrófóninn, guttar að grípa í gítara og spila með, Jack Daniels flöskur sem gengu um meðal áhorfenda og svo bara svaka gaman.
Stones tribute á Dillon sportbar…óskilgetinn sonur Jaggers kom þarna fram því líkindin voru skuggaleg.
Síðast en ekki síst er þegar Heiða í Unun tók Lög unga fólksins á Menningarnótt í Friðarhúsinu…takk Óskar fyrir óskalagið
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Hef átt góðar stundir með Koggu frænku minni að hlusta á tónlist og hef því uppgötvað Pílu pínu og Glám og Skrám á nýjan leik. Mjög góð lög, ekki síst hjá Röggu Gísla.
Fór loksins að hlusta almennilega á Neil Young í tilefni af hróa. Silver and gold stendur upp úr af þeirri hlustun.
Megas og Passíusálmarnir. Fór að kenna 17. öldina og sálmarnir létu mig ekki í friði.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Að hafa ekki farið á Þursana, Sigur rós, Björk í Norræna húsinu, Aldrei fór ég suður, Síldarbræðsluna í Borgarfirði eystri og Airwaves.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Fleet foxes
Kings of Leon
MGMT
Bonnie Prince Billie
FM Belfast
Ólafur Arnalds
Heima með Sigur rós
5. Hver er bjartasta vonin?
Bon Iver er svaka skemmtilegt
Sin fang bous kom sterkur inn rétt fyrir jól
6. Ætlarðu á Hróa 2009?
hugsanlega…
Tags: 2008, Airwaves, Aldrei fór ég suður, Árslisti, Björk, Bon Iver, Bonnie Prince Billy, Bræðslan, Fleet Foxes, FM Belfast, Glámur og Skrámur, Grinderman, Heiða, Hróarskelda, Kings of Leon, Megas, MGMT, Mick Jagger, neil young, Ólafur Arnalds, Píla pína, Ragga Gísla, Reykjavík!, Rolling Stones, Roskilde, Sigur Rós, Sin Fang Bous, Unun, Uppgjör, Þursaflokkurinn
Flokkað undir Listar, Árni | Comments Off
Roadtrip!
19.3.2008 - Kristín Gróa

Ég hef tekið að mér að vera sérlegur útsendari toppfimmáföstudegi á Aldrei fór ég suður – Rokkhátíð alþýðunnar. Þetta er mikið ábyrgðarhlutverk þar sem ég verð að sjúga í mig tónlist og skemmta mér fyrir okkur öll en ég er nokkuð viss um að ég ráði við það. Þar sem ferð á Ísafjörð þýðir roadtrip og þar sem það er ekkert roadtrip án tónlistar og þar sem ég er playlistasjúk þá er ég auðvitað búin að búa til massívan roadtrip playlista. Hann er allt of langur til að birta hérna en ég held að þessi lög verði pottþétt mest spiluð ef ég þekki mig og ferðafélagann nógu vel. Ójá þetta verður stelpuferð!
Moloko – Indigo
Mark Ronson feat. Amy Winehouse – Valerie
The Supremes – You Keep Me Hangin’ On
Gwen Stefani feat. Akon – The Sweet Escape
Tags: Akon, Aldrei fór ég suður, Aldrei fór ég suður 2008, Amy Winehouse, Gwen Stefani, Mark Ronson, Moloko, The Supremes
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 2 athugasemdir »



