Enn á Lífi…

9.9.2009 - Georg Atli

Jamm og jú topp 5 lifir ennþá þó að síðustu vikur hafi verið ansi daufar, við biðjumst öll afsökunnar á því (doðanum þ.e.a.s. ekki hinu) , en svona er þetta bara. Til að staðfesta það að það er ennþá eitthvað að gerast hérna þá ætlum við að kynna nýjan lið, Sarpinn.

Sarpurinn verður vonandi að reglulegum (bjartsýni Georg vonar það a.m.k. en raunsæi Georg heldur að hann verði líklega semi-reglulegur) lið hérna á endurlífguðum Topp 5. Í sarpinum finnast allskonar plötur gamlar og nýjar, góðar og vondar, langar og stuttar en allar eru þær á einn eða annann hátt gleymdar eða a.m.k. þess verðugar að rifja upp og í dag er það…

Ég fíla Mark Lanegan og finnst ótrúlega fáir vita af þessum stórmerkilega tónlistarmanni, þess vegna ákvað ég að fyrsta platan sem verður skrifað um hérna í í gömlu plötu horninu okkar skildi verða hin platan The Winding Sheet.

The Winding Sheet var fyrsta sóloplatan hans Mark Lanegan en hann var söngvari Seattle sveitarinar Screeming Trees (og seinna meðlimur í Queens of the Stoneage og The Gutter Twins, með Greg Dulli úr The Afgan Whigs). Sú sveit spilaði nokkurskonar sækadelik grunge (ég lýsi tónlistinni a.m.k. þannig) og þess vegna væri líklega mjög undarlegt að hlusta á þessa plötu í fyrsta sinn ef maður byggist við því að heyra einhverskonar tónlist í lýkingu við það (það er samt alveg hellings grunge hérna og maður gæti næstum haldið að þetta væri Alice in Chains).

Hérna (og alltaf á sólóplötunum) er Mark Lanegan i allt öðrum gír. Tónlistin hans er ákaflega dimm og drungaleg og þar kemur í ljós hversu sterkur textahöfundur hann er, sérstaklega vill ég benda á lög eins og „Ugly Sunday“ og „Mockingbird“. Þessi plata er líklega sísta platan hans en hún er samt ákaflega merkileg því hún leggur grunninn að meistaraverkinu hans, Whiskey for the Holy Ghost sem kom út 4 árum síðar.

Ef maður er mikill Nirvana aðdáandi er líka áhugavert að hlusta á lög eins „Down in the Dark“ og coverið af „Where Did You Sleep Last Night“ (sem Nirvana tók eins og allir ættu að vita á unplugged) en þar er Kurt Cobain í stórum hlutverkum sem söngvari í fyrra laginu og gítarleikari í því seinna (reyndar er Krist Novoselic líka þar á bassa).

EN þeir sem alls ekki fíla Grunge en fíla svona singer/songwriter fílínginn ættu þó líklega að halda sig fjarri þessari plötu en tjékka samt á seinni plötunum hans því hann batnar ótrúlega mikið með árunum og mér finnst hann einn af merkilegri söngvurum og textasmiðum Ameríku seinni ára.

Lag: Mockingbirds
Lag: Ugly Sunday
Lag: Down in the Dark
Lag: Where did you Spleep Last Night

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | 2 athugasemdir »

Topp 5 bræðralög – Erla Þóra

21.11.2008 - Erla Þóra

5. R.E.M. – 7 Chinese Brothers

Ágætis melódía hjá Stipe-aranum og félögum um kínverska bræður.

4. Nick Cave and the Bad Seeds – Brother, My Cup is Empty

Obb obb obb! Enginn peningur fyrir whiskey!

3. Alice in Chains – Brother

Angistarfullt lag… flott raddað.

2. Rufus Wainwright – He Ain’t Heavy, He’s My Brother

Afskaplega flott útgáfa hjá Rufus félaga mínum.

1. Dire Straits – Brothers in Arms

Fæ gæsahúð í hvert skipti sem ég heyri þetta lag! Bjúddífúll.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin