Topp 5 lög ársins 2011 – Snorri
30.12.2011 - Snorri
Fullt af frábærum lögum árið 2011 og alltaf jafn erfitt að setja saman svona lista. En fæst orð hafa minnsta ábyrgð…
Hér eru þau topp 20 lög sem fylgja fast á hæla þeirra 5 efstu – Í stafrófsröð:
Active Child – Hanging On
Adele – Set Fire to the Rain
Ane Brun – Do You Remember ?
The Antlers – I Don’t Want Love
Bombay Bicycle Club – Lights Out, Words Gone
First Aid Kit – The Lion’s Roar
Fleet Foxes – Sim Sala Bim
Gardens & Villa – Cruise Ship
James Blake – The Wilhelm Scream
Lia Ices – Daphne
Lykke Li – I Follow Rivers
Mason – Boadicea
Neon Indian – Polish Girl
Peter Bjorn and John – Second Chance
SBTRKT – Wildfire (feat. Little Dragon)
Slow Club – Two Cousins
Toro y Moi – New Beat
Tune-Yards – Bizness
When Saints Go Machine – Kelly
Youth Lagoon – 17
Og svo topp 5:
5. PJ Harvey – The Glorious Land
Það er erfitt að velja eitt lag af þessari mögnuðu plötu en þetta lag hitti beint í mark í fyrstu hlustun þrátt fyrir lúðurinn alræmda.
4. Washed Out – Amor Fati
Lag sumarsins. Eitt af mörgum myndböndum tekið á Íslandi á árinu.
3. iamamiwhoami – ; john
Kom tæknilega ekki út á plötu þar sem Jonna Lee fer óvenjulegar leiðir við að koma tónlist sinni til skila en myndbandið var sett á Youtube á árinu. Og þvílíkt myndband.
2. Wild Beasts – Bed of Nails
Af einni af bestu plötum ársins sem fékk ef til vill of litla athygli.
1. Bon Iver – Holocene
Það þarf nú ekki að segja meir um þetta lag og plötu en þegar hefur verið gert. Íslenskt landslag í aðalhlutverki í myndbandinu eina ferðina enn og svínvirkar eins og vanalega. Gæsahúð ársins 2011.
Tags: Active Child, Adele, Ane Brun, Bombay Bicycle Club, Bon Iver, First Aid Kit, Fleet Foxes, Gardens & Villa, iamamiwhoami, James Blake, Lia Ices, Lykke Li, Mason, Neon Indian, Pallers, Peter Bjorn and John, PJ Harvey, SBTKRT, Slow Club, The Antlers, Toro y Moi, Washed Out, When Saints Go Machine, Wild Beasts, Youth Lagoon
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off
Airwaves 2008 – miðvikudagskvöld
16.10.2008 - Kristín Gróa
Airwaves er byrjað! Við byrjuðum hátíðina á föstum liðum eins og vanalega… þ.e. að eyða hálfu kvöldinu í röð. Ahh Airwaves, I’ve missed you. Við allavega afrekuðum að heyra en ekki sjá Bob Justmann á Hressó sem kom ánægjulega á óvart. Ekki það að ég hafi búist við einhverju slæmu heldur var bara meira fútt í þessu en síðast þegar ég sá hann, hörkuband og svona. Melikes. Melikes hins vegar ekki Hressó sem tónleikastaður, hljóðið var slæmt og lögunin á staðnum er alveg glötuð því maður sér ekki baun nema standa alveg fremst. Bú á það.
Anywho, eftir þetta ákváðum að rölta yfir á Tunglið þar sem var lengsta röð sem ég hef nokkurntíma séð á þessari hátíð og er ég þó sjóuð í þeim málum. Eftir að hafa heppilega hitt vinkonur mínar sem stóðu ekki skelfilega aftarlega í röðinni og beðið kreisí lengi úti í kulda og rigningu (hallelúja fyrir regnhlífum) komumst við loksins inn þegar Hjaltalín voru að byrja að spila. Fólksfjöldinn þarna inni var algjörlega út úr kortinu… hiti, sviti, olnbogaskot og troðningur en Hjaltalín voru skemmtileg og hress. Eftir Hjaltalín gáfumst við upp mannmergðinni og fórum bara heim en þetta var ágætis upphitun fyrir það sem koma skal.
Kvöldið er nokkuð opið en ég er nokkuð viss um að sjá Fuck Buttons, El Perro Del Mar og Lay Low. Annars er ég spennt fyrir The Mae Shi, Florence & The Machine, FM Belfast og Ane Brun en það fer eftir því hversu snemma ég mæti í bæinn og hversu seint ég meika að fara að sofa hvað verður fyrir valinu. Já!
El Perro Del Mar – Glory To The World
The Mae Shi – The Lamb And The Lion
Tags: Airwaves, Airwaves 2008, Ane Brun, Bob Justman, El Perro Del Mar, Florence & the Machine, FM Belfast, Fuck Buttons, Hjaltalín, Lay Low, The Mae Shi
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | Comments Off
