Topp 5 sóló-mehh
31.8.2012 - Kristín Gróa
Garg þessi listi! Svo erfiður. Ég gafst eiginlega upp og ætla bara að lista upp fimm tónlistarmenn sem ég fíla síður sóló. Þetta er ekki vísindalegur listi heldur bara þeir fimm fyrstu sem mér datt í hug.
5. Brian Eno
Brian Eno hefur ekkert átt misheppnaðan sólóferil. Ég fíla bara tónlistina hans ekki en fíla Roxy Music aftur á móti mjög mikið. Það er nóg til að koma honum á listann!
4. Pete Doherty
Ókei hann er auðvitað bara í ruglinu en ég syrgi samt ennþá The Libertines. Vandamálið við Doherty er að þó hann sé algjör snillingur sem ber ábyrgð á mörgum perlum (úff Albion er t.d. alveg svakalegt) þá er hann svo óáreiðanlegur að meirihlutinn af lögunum hans eru bara hálf… uhmm… sóðaleg. Nú er ég mikill talsmaður þess að tónlist eigi að vera kæruleysisleg en öllu má nú ofgera. Þetta lag er reyndar nokkuð fullkomið þó það sé tæknilega ekki sóló.
3. Avey Tare
Ég er reyndar ekki ein af þeim sem dýrka og dái Animal Collective út fyrir endimörk alheimsins þó ég hlusti alveg á þá öðru hvoru. Ég náði hins vegar sólóplötunni hans Avey Tare engan veginn.
2. Lindsey Buckingham
Ást mín á Fleetwood Mac er vel þekkt en þegar kemur að Lindsey Buckingham vs. Stevie Nicks þá er ég Stevie manneskja alla leið. Þetta lag náði nokkrum vinsældum en mér finnst það frekar þunnt.
1. Billy Corgan
Hvað sem er hægt að segja um Billy Corgan þá elskaði ég Smashing Pumpkins á sínum tíma og get alveg sett Mellon Collie… á einstaka sinnum. Sólódótið hans var hins vegar algjört flopp.
Tags: Animal Collective, Avey Tare, Billy Corgan, Brian Eno, Fleetwood Mac, Lindsey Buckingham, Pete Doherty, Roxy Music, The Libertines, The Smashing Pumpkins
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Winter Sun kemur út á Gogoyoko
28.7.2011 - Georg Atli
Nýjasta útgáfa Kimi Records, platan Winter Sun með Snorra Helgasyni, mun fást í rafrænni forsölu á tónlistarveitunni www.gogoyoko.com frá og með deginum í dag, 28. júlí. Formlegur útgáfudagur plötunnar á geisladiski er svo 4. ágúst. Winter Sun er önnur breiðskífa Snorra Helgasonar undir eigin nafni, en áður hefur hann gefið út tvær breiðskífur með vinum sínum í Sprengjuhöllinni, þar á meðal hina geysivinsælu Tímarnir okkar. Winter Sun er tekin upp af Sindra Má Sigfússyni, hljóðblönduð af Snorra, Sindra og Bigga Sundlaugarverði og hljómjöfnuð af Alan Douches, en hann hefur meðal annars hljómjafnað plötur listamanna á borð við Fleetwood Mac, Animal Collective og Sufjan Stevens.
Snorri Helgason mun fagna þessum útgáfudögum, þeim fyrri með tónleikum á Innipúkanum laugardaginn 30. júlí kl. 22:00 og þeim seinni með útgáfutónleikum á Faktorý Bar fimmtudaginn 4. ágúst. Miðasala á báða viðburði er á www.midi.is
Tags: Animal Collective, Fleetwood Mac, Snorri Helgason, Sufjan Stevens
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Finnsk tónlistarveisla á Bakkus
14.6.2011 - Georg Atli
Fonal Records heimsækir Ísland
Fjórar finnskar hljómsveitir heimsækja Ísland í næstu viku og munu meðal annars halda tónleika á skemmtistaðnum Bakkus laugardaginn 18. júní. Engin aðgangseyrir er að tónleikunum og hefjast tónleikar um 22. Hljómsveitirnar Es, Islaja, Jarse og Lau Nau koma fram. Þær tengjast allar hinu mjög svo framsækna og virta hljómplötufyrirtæki Fonal Records frá Tampere í Finnlandi. Fonal Records er fremsta jaðarútgáfa Finnlands og þykir bjóða upp á það besta sem er að gerast í finnskri tónlistarsenu og hafa listamenn á mála hjá útgáfunni fengið mikla athygli á alþjóðavettvangi og má þar helst nefna Islaja, Paavuhaarju, TV-resistori, Es og Kemialliset Ystävät. Ákveðin samhljómur er meðal þeirra tónlistarmanna er gefa út á Fonal og má rekja hann til þjóðlagatónlistar, sækadelíu og tilraunakenndrar raftónlistar. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð félagsins um Norðurlöndin.
Heimsókn Fonal Records til Íslands er styrkt af Kimi Records, Sendiráði Finnlands, Bakkus Bar og Nokia.
Es:
Es er tónlistarlegt sjálf útgáfustjórans og eiganda Fonal, Sami Sänpäkkilä. Raftónlist Es er í senn tilraunakennd og poppuð og uppfull af allskyns skringilegheitum.
Islaja:
Islaja er sólóverkefni tónlistarkonunnar Merja Kokkonen. Síðasta plata hennar, Keraaminen Pää, hefur fengið frábærar viðtökur um heim allan. Í kjölfar útgáfu hennar hefur hún komið fram á tónleikum með Animal Collective og Thurston Moore. Tónlist Islaja má reyna að flokka sem þjóðlagarafpopp undir sækadelískum áhrifum.
Jarse:
Jarse er sólóverkefni Jari Suominen, en hann hefur getið sér gott orð með sveitum á borð við Shogun Kunitoki og Kiila. Tónlist Jarse er ekki ólík samstarfsmönnum hans hjá Fonal, þjóðlagaskotin raftónlist undir sækadelískum áhrifum.
Lau Nau:
Lau Nau er hliðarsjálf Lauru Naukkarinen. Lau Nau leikur þjóðlagaskotið skrýtipopp og er hljóðheimur hennar uppfullur af ólíklegum hljóðfærum og umhverfishljóðum.
(innsk.) Hér að neðan er svo sampler frá Fonal, bendi líka á flott lag frá íslandsvinunum í Tomutonttu, ef það er eitthvað sem að má treysta á þá er það að Finnar framleiði áhugaverða raftónlist þannig að ég hvet alla til að mæta þangað… svo er líka frítt inn þannig að það er ekki hægt að tapa á þessu!
Fonal sampler 2011 by Fonal Records
Tags: Animal Collective, Es, Islaja, Jarse, Kemialliset Ystävät, kiila, Lau Nau, Paavuhaarju, Shogun Kunitoki, Thurston Moore, Tomutonttu, TV-resistori
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Animal Collective – Bluish
22.9.2010 - Snorri
Hér er nýtt myndband frá Animal Collective, við lagið Bluish sem að mínu mati var eitt besta lagið af þeirra síðustu plötu, Merriweather Post Pavilion.
Myndbandið er eins og titillinn á laginu, mjög ‘Bluish’ og auðvitað stórfurðulegt eins og við er að búast frá Animal Collective.
Tags: Animal Collective
Flokkað undir Snorri, Óflokkað | Comments Off
Fullt af lögum!
8.9.2010 - Georg Atli
Minni á tónleika dagatalið okkar hérna til hægri, þið ættuð að geta fundið eitthvað skemmtilegt þar… fuuuulllt af skemmtilegum tónleikum framundan!

Ég er búinn að vera á leiðinni að setja mörg af þessum lögum hérna inn, í alveg merkilega langan tíma, en einhverra hluta vegna aldrei gert það… núna breytist það.
Byrjum á nokkrum nýjum og nýlegum lögum.
Í fyrsta lagi er Amiina að gera nýja plötu og búin að fá 2 nýja meðlimi og Dr. Gunni er að dreifa nýju lagi með þeim… af því að Topp 5 fílar íslenskt þá hoppum við á þá lest. (Takk Dr. Gunni!)
Svo var Justin Vernon/Bon Iver að syngja inn á lag með Kanye West, snilldarlag meira að segja.
Justin Vernon er greinilega þessi bissí týpa því hann var líka að syngja inn á lag með hljómsveitinni All Tiny Creatures.
Svo eitt lag sem kom út um daginn með eftirlæti allra hippsterana í dag Zola Jesus og annað með Fol Chen, sem er mjög skemmtilegt band
oooog svo uppáhaldið mitt tvö cover!!!
Lou Barlow (Lo-Fi hetja úr Sebadoh og Folk Implosion) kemur með live cover af laginu Bulletproof með La Roux.
síðan er það þessi fína útgáfa Taken by Trees (alveg þess virði að tjékka á þeirri hljómsveit) af laginu My Girls með Animal Collective, sem var einmitt eitt af bestu lögunum árið 2009! Platan þeirra East of Eden kom út í fyrra og svona sem bónusfróðleikur þá er heitir söngkonan í Taken By Trees Viktoria Bergsman og hún söng með Peter, Björn & John í laginu Young Folks.
Lög:
Amiina – What are We Waiting For
Kanye West – Monster (feat. Bon Iver, Jay-Z, Rick Ross, Nicky Minaj)
All Tiny Creatures – An Iris (feat. Justin Vernon)
Zola Jesus – Sea Talk
Fol Chen – The Holograms
Lou Barlow – Bulletproof (La Roux Cover)
Taken By Trees – My Boys (Animal Collective cover)
Tags: All Tiny Creatures, Amiina, Animal Collective, Bon Iver, Fol Chen, Jay-Z, Justin Vernon, Kanye West, Lou Barlow, Nicky Minaj, Peter Bjorn & John, Rick Ross, Taken By Trees, Zola Jesus
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 2 athugasemdir »
Topp 5 plötur ársins, númer FIMM – Kristín Gróa
11.1.2010 - Kristín Gróa
Ég verð að viðurkenna að það voru ekki jafnmargar plötur sem heltóku mig eins og árið 2008 enda var erfitt að fylgja því eftir. Síðasti árslisti hjá mér hljóðaði svona:
5. Wolf Parade – At Mount Zoomer
4. The Dodos – Visiter
3. Vampire Weekend – Vampire Weekend
2. Fleet Foxes – Fleet Foxes
1. TV On The Radio – Dear Science
Í þetta skipti ætlum við að telja plötur árins niður dag frá degi svo í dag birtast aðeins runners up og fimmta sætið.
Runners up:
Smith Westerns – Smith Westerns
Dirty Projectors – Bitte Orca
The Mountain Goats – The Life Of The World To Come
The Pains Of Being Pure At Heart – The Pains Of Being Pure At Heart
The XX – XX
Yo La Tengo – Popular Songs
Fever Ray – Fever Ray
The Thermals – Now We Can See
Grizzly Bear – Veckatimest
Animal Collective – Merriweather Post Pavillion
Fimmta besta plata ársins að mínu mati er svo:

5. Yeah Yeah Yeahs – It’s Blitz!
Áður en ég tala nokkuð meira um plötuna sjálfa þá verð ég að segja að þetta er hands down uppáhalds plötucoverið mitt þetta árið, ef ekki þennan áratuginn. Rosalega flott og einföld hugmynd sem grípur augað. Mér fannst þessi plata aldrei fá sérstaklega mikla umfjöllun og í síðasta toppfimm hittingi vorum við öll sammála um að hún væri gróflega vanmetin og að hún myndi örugglega ekki skora hátt á árslistunum. Já við vorum greinilega í ruglinu því hún skoraði síðan bara rosa hátt á árslistunum og lögin á henni líka. Jáhhá!
Burtséð frá því öllu þá er þetta bara killer plata sem er vissulega dálítið brotthvarf frá því sem YYY hafa verið að gera en inniheldur engu að síður nokkur af sterkustu lögum þeirra frá upphafi eins og Zero, Heads Will Roll og Hysteric.
Tags: 2009, Animal Collective, Árslisti, Dirty Projectors, Fever Ray, Fleet Foxes, Grizzly Bear, Smith Westerns, The Dodos, The Mountain Goats, The Pains of Being Pure at Heart, The Thermals, The XX, TV on the Radio, Uppgjör, Vampire Weekend, Wolf Parade, Yeah Yeah Yeahs, Yo La Tengo
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 lög ársins – Georg Atli
8.1.2010 - Georg Atli

Ég á yfirleitt rosalega erfitt með að velja þessa árslista og sérstaklega lög ársins! Það eru miljón trilljón lög sem maður hlustar á á einu ári og að velja úr þeim (og þá sérstaklega bara 5!) er næstum því bara kvöl. Ég ákvað að velja bara uppáhaldslögin mín af þeim plötum sem ekki komast inn á topp 5 plötur ársins listann minn (þannig að lög af plötum ársins eru undanskilin)… og svo nokkur lög til viðbótar.
Við byrjum á þeim lögum sem voru næstum því á listanum:
Jay-Z – D.O.A. – Hvernig ætli rappið verði á næstunni þegar kóngurinn er búinn að tilkynna það að Auto-tune sé hallærislegt??
Bat For Lashes – Daniel/Glass/Sleep Alone – allt alveg jafn góð lög get ekki valið á milli
Julian Casablancas – 11th Dimensions eða bara eitthvað af plötunni hans hún kom öll rosa mikið skemmtilega á óvart.
Raekwon – House of Flying Daggers - Besta lagið sem hefur komið frá einhverjum úr Wu- Tang Clan í langan tíma (án þess þó að allt hitt hafi verið lélegt)
Yeah Yeah Yeahs- Zero Vanmetin Plata
The Temper Trap – Sweet Disposition – Gott lag af plötu sem olli mér rosalega miklum vonbrigðum (spáði bandinu mikilli velgengni í fyrra)
Peter, Björn & John – Nothing to Worry About - Mega hresst lag
Animal Collective – My Girls – Ég verð bara að viðurkenna að ég er ekki alveg að ná Animal Collective en þetta lag er samt rosalega gott.
og svo topplistinn minn:
Þetta band er svo rosa hipp og kúl að það heitir bara JJ og platan þeirra heitir JJ n° 2 , ég held að þau séu sænsk og noti rosalega mikið af eiturlyfjum. Lagið er líka magnað það notar laglínu úr laginu Lollipop með Lil’ Wayne en syngja um E-pillur.
Ég spilaði þetta ansi mikið á árinu, það er af plötunni Veckatimest. Persónulega finnst mér bandið vera soldið of hæpað, platan er alveg góð en bara ekki jafn stórkostleg og margir vilja meina. Two Week stendur langt upp úr gæðalega séð.
Að mínu mati besta lagið af einu mestu stuð plötu ársins (Wolfgang Amadeus Phoenix), bandið minnir mig alltaf soldið á Ástralana í Empire of the Sun, bara betra og minna gay. Ég átti í miklum erfiðleikum með að velja á milli þessa lags og 1901 sem er án efa skemmtilegasta lagið á plötunni. Franskt gæðapop. Versta við plötuna er eiginlega það hvað þessi tvö lög eru fáránlega góð að maður nær oft ekkert framhjá þeim og ef meapur kemst framhjá þeim og hlustar á restina þá blikna öll hin lögin soldið í samanburðinum. Ef þið eigið hana þá ættuði að prufa að byrja á lagi þrjú þá fattar maður nefnilega að hún er í alvöru mjög góð.

2. The Flaming Lips – Watching the Planets (feat. Karen O)
Gallsúru snillingarnir í Flaming Lips komu með eina af sínum bestu plötum ( á eftir og Soft BulletinYoshimi Battles the Pink Robots) á árinu hún heitir Embryonic og þetta finnst mér vera besta lagið og það skemmir alls ekki fyrir að ofurtöffarinn Karen O úr Yeah Yeah Yeahs syngur með. Ég átti mjöööög erfitt með það að skilja þessa eftir á Plötulistanum mínum, hún er geðveik.
P.S. myndbandið við lagið er ansi undarlegt og ef þið eruð mjög skotin í Wayne Coyne getiði séð typpið hans í því…
Þetta lag kemur af plötunni sem heitir þessu líka ótrúlega sniðuga og alls ekkert óþolandi nafni ‘Album’ sem er annars full af hræðilega góðum lögum (t.d. Laura og Hellhole Ratrace) Lust for Life er alveg frábært, endalaust grípandi og nánast smitandi. Það er ekki hægt að hlusta á þetta lag án þess að fá það á heilann eða amk. syngja með viðlaginu. Platan er líka rosa góð en ekki alveg nógu góð til að komast inn á topp 5 hjá mér (reyndar kæmist hún líklega ekki inn á topp 20 heldur) en hún er samt rosa góð.
P.S. og til að halda áfram með vafasöm myndbönd með alsberu fólki þá er lust for life myndbandið hér.
Tags: 2009, Animal Collective, Árslisti, Bat For Lashes, Empire of the Sun, Girls, Grizzly Bear, Jay-Z, JJ, Julian Casablancas, Karen O, Peter Bjorn & John, Phoenix, Raekwon, The Flaming Lips, The Temper Trap, Uppgjör, Wayne Coyne, Yeah Yeah Yeahs
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Topp 5 lög ársins – Kristín Gróa
8.1.2010 - Kristín Gróa

Við skulum byrja á að rifja upp lagalistann minn frá því í fyrra:
5. Lykke Li – Dance, Dance, Dance af Youth Novels
4. Sigur Rós – Inní mér syngur vitleysingur af Með suð í eyrum við spilum endalaust
3. The Walkmen – In The New Year af You & Me
2. MGMT – Time To Pretend af Oracular Spectacular
1. The Dodos – Jodi af Visiter
Næst koma 10 runners up ársins 2009:
Bat For Lashes – Daniel af Two Suns
The Big Pink – Dominos af A Brief History Of Love
Bon Iver – Blood Bank af Blood Bank EP
Fever Ray – If I Had A Heart af Fever Ray
The Pains Of Being Pure At Heart – Young Adult Friction af The Pains Of Being Pure At Heart
Phoenix – Lizstomania af Wolfgang Amadeus Phoenix
Miike Snow – Animal af Miike Snow
Delorean – Seasun af Ayrton Senna EP
The Very Best – Warm Heart Of Africe (feat. Ezra Koenig) af Warm Heart Of Africa
Kurt Vile – Freeway af Constant Hitmaker
TOPP 5 LÖG ÁRSINS AÐ MATI KRISTÍNAR GRÓU!

5. Bibio – Ambivalence Avenue af Ambivalence Avenue
Fimmta sætið er alltaf erfiðast því þar skilur á milli þeirra sem komast á listann og þeirra sem gera það ekki. Ég verð að viðurkenna að fyrsta uppkast að þessum lista var með laginu Lizstomania með Phoenix í fimmta sæti en eftir því sem ég pældi meira í þessu þá fannst mér meira vit í því að láta Bibio ná inn á lista. Þetta frábæra byrjunarlag hinnar þokkalegu samnefndu plötu er því miður ekki alveg merki um heildargæði plötunnar (að mínu mati) en þetta lag eitt og sér er nægt tilefni til að gefa henni séns.

4. Julian Casablancas – Out Of The Blue af Phrazes For The Young
Það er nú reyndar lagið 11th Hour sem hefur feng en mér finnst þetta upphafslag hinnar frábæru Phrazes For The Young alveg kreisí gott og enn betra en hitt. Þessi plata kom mér reyndar algjörlega í opna skjöldu svo það er nokkuð óvænt sem Casablancas kemst á lista. Fyrir utan hvað kórusinn fær mig til að langa til að vera hífuð og syngja allt of hátt og snúa mér í hringi með hendurnar út í loftið (seriously… ég er að reyna að hemja mig akkúrat þessa stundina) þá er eitthvað svo frábært hvað gaurinn er ekkert að hlífa sér… Those who helped me along the way, I smacked them as I thanked them… Yes I know I’m going to hell in a leather jacket. Love it!

3. Animal Collective – My Girls af Merriweather Post Pavillion
Mér þykir mjög leiðinlegt að setja lag á lista sem bæði Pitchfork og Pop Matters settu á topp síns lista en ég get bara ekki litið framhjá því að þetta lag er eiginlega yfirnáttúrulegt. Percussionið, raddanirnar og öll skrítnu hljóðin gera þetta að einhverju algjörlega nýju og undarlegu en samt er það melódískt og grípandi og poppað.

2. Girls – Lust For Life af Album
Þegar gagnkynhneigður karlmaður byrjar fyrstu plötuna sína á Oh I wish I had a boyfriend þá langar mig að hlusta áfram. Tilfinningin hérna er svona “já ég er geðveikt klikkaður og messed up en þetta er allt á uppleið… kannski… vonandi”. Mér persónulega finnst Album vera frekar gloppótt plata (þrátt fyrir GRÍÐARLEGT hype) en það er ekki hægt neita því að væbið heillar mann og þarna eru nokkur killer lög, sérstaklega Lust For Life og Hellhole Ratrace.

1. Camera Obscura – French Navy af My Maudlin Career
Ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi þessarar hljómsveitar þannig lagað en vá þetta lag er bara something else. Þetta fær pottþétt verðlaunin kórus ársins því ég iða í sætinu og sveifla hausnum til og frá þegar hann kemur. Þetta er óneitanlega stelputónlist en herregud þvílík stelputónlist!
Tags: 2009, Animal Collective, Árslisti, Bat For Lashes, Bibio, Bon Iver, Camera Obscura, Delorean, Fever Ray, Girls, Julian Casablancas, Kurt Vile, Lykke Li, MGMT, Miike Snow, Phoenix, Sigur Rós, The Big Pink, The Dodos, The Pains of Being Pure at Heart, The Very Best, The Walkmen, Uppgjör
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 vond cover – Kristín Gróa
2.10.2009 - Kristín Gróa
Það eru til svo rosalega mörg vond cover að ég ákvað frekar að reyna að gera lista yfir cover sem líta vel út á blaðinu en eru svo í raun bara arfaslök. Svona “þið hefðuð átt að geta betur” lista.

5. Cat Power & Karen Elson – I Love You (Me Either) (Serge Gainsbourg cover)
Þetta hljómar svo vel… Cat Power með sína husky rödd syngur eitt af klúrari lögum allra tíma á móti eldheitu eiginkonunni hans Jack White. Tjah nema þær gera það með því að þýða textann orð fyrir orð og strípa allan kynþokkann úr laginu. Hvað er þá eftir?

4. Devendra Banhart – Don’t Look Back In Anger (Oasis cover)
Eitt af fáum Oasis lögum sem ég fíla enn og Devendra Banhart varð auðvitað að “skrítna” það.

3. Eels – Get Ur Freak On (Missy Elliott Cover)
Ég dýrka og dái Mark Everett og hann hefur gert mörg mjög flott cover (Daniel Johnston lagið Living Life kemur fyrst upp í hugann). Þetta er aftur á móti bara furðulegt.

2. Xiu Xiu – Isobel (Björk cover)
Ókei mér finnst Xiu Xiu reyndar alveg fáránlega mistæk í sinni tónlist en þetta er bara svo vont að það er sárt að hlusta.

1. Animal Collective – Polly (Nirvana cover)
Ég veit ekki hvernig menn með svona mikla hæfileika gátu gert svona slæmt cover. Það þarf í raun hæfileika til!
Tags: Animal Collective, Björk, Cat Power, Daniel Johnson, Devandra Banhart, Eels, Jack White, Karen Elson, Mark Everett, Missy Elliott, Nirvana, Oasis, Serge Gainsbourg, Xiu Xiu
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
læri, læri, tækifæri – zvenni
18.4.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
lag eitthvað af bjúga bjúga – Sigur Rós
Afar slakandi og ljúft, á erfitt með að hlusta á flókna texta við lærdóm, sérstaklega lestur svo instró verður venjulega fyrir valinu.. og það gerist varla betra en þetta.
All Blues – Miles Davis
Ætla ekki að þykjast þekkja kauða af neinu viti en hef hlustað stíft á 2 plötur hans við kenningalega rýni og ákafar skriftir. Afslappandi og þægilegt en um leið innblástur og hvatning. Fínn kokteill.
Tubular Bells (Moonshine) – Mike Oldfield
Banjó… gott við námsleiða.
Subliminal Sleep Learning – Dick Sutphen
Sem eilífðarstúdent hefur maður lært nokkur trix við lærdóminn. Í einum af mörgum rannsóknarleiðangrum mínum inn í undirheima óhefðbundinna lækninga og nýaldarsinna rakst ég á þetta. Þeta undirmeðvitundar lærdómur með Delta púlsinn tikkandi eins og greifinn af St. Germain í trylltasta þróunarhring… skuggalegur skítur.
The Purple Bottle – Animal Collective
Fyrir lokasprettinn er þetta afbragð, þó sungið sé af miklum móð þá meika textarnir með Animal Collective skemmtilega lítið sens svo það allt er í góðu…
Tags: Animal Collective, Dick Sutphen, Mike Oldfield, Miles Davis, Sigur Rós
Flokkað undir Listar | Comments Off










