Íslensk tónlistarmyndbönd á Northern Wave Film Festival
31.1.2012 - Georg Atli
Næstkomandi mars (2.-4. mars 2012) verður haldin alþjóðleg stuttmyndahátíð í Grundarfirði. Þó svo að það eitt og sér sé skemmtilegt verður valið íslenska tónlistarmyndband ársins í leiðinni og mér finnst það ennþá skemmtilegra. Ykkur til yndisauka þá ákvað ég að birta lista yfir þau myndbönd sem hafa verið tilnefnd hér að neðan og m.a.s. að linka á þau líka. Dyggir lesendur hafa alveg örugglega séð mörg myndbandanna áður hérna hjá okkur en þau eru samt mjög góð/skemmtileg þannig að það má alveg horfa aftur. Ég mæli meira að segja eindregið með því að þið horfið á öll myndböndin. Hins vegar nenni ég ekkert að skrifa um þau en bendi þess í stað á mjög skemmtilegt blogg frá Gogoyokoliðum. Það er líklega rétt að taka tvennt fram, í fyrsta lagi þá er listinn hér að neðan fenginn að láni af heimasíðu hátíðarinnar (northernwavefestival.com/) og í öðru lagi þá eru það áðurnefndir Gogoyokopennnar sem tilnefna myndböndin á listann.
ÍSLENSK TÓNLISTARMYNDBÖND TILNEFND AF GOGOYOKO.COM
123 Forever með Apparat Organ Quartet
Leikstjóri: Gerda Klotz
Feels Like Sugar með Hjaltalín
Leikstjóri:Rúnar Ingi
Because Of The Blood með Sin Fang
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Sneaky Boots með Kiriyama Family
Leikstjóri:Gunnar Örn Birgisson
Hellbound Heart með Reykjavík!
Leikstjóri:Bowen Staines
River með Snorra Helgasyni
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Tranquility með Who Knew
Leikstjóri:Einar Baldvin Arason
Implosions með Agent Fresco
Leikstjóri:Jónatan Grétarsson
Sharpen The Knife með Who Knew
Leikstjóri:Sigurjon Bjarni Sigurjonsson
Oh Dae Su II með We Made God
Leikstjóri:Óskar Bragi Stefánsson
Slowlights með Sin Fang
leikstjórn: Máni M. Sigfússon
Over með GusGus
Leikstjórn Ellenar Lofts & Thorbjarnr Ingasonar
Smashed Birds með Sóley
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir
Kimba með Retro Stefson
Leikstjórn: Árni Sveinssonar
Never Forever með Singapore Sling
Leikstjórn: Þórður Grímsson
Skeletons Having Sex on a Tin Roof með Orphic Oxtra
Leikstjórn: Bergrún Snæbjörnsdóttir
I Don’t Want To Go To Sleep Either með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Bed of Needles með Steed Lord
Leikstjórn: Steed Lord (ásamt Sonya Tayeh)
American með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Two Boys með Sin Fang
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir
Tags: Apparat Organ Quartet, FM Belfast, Gus Gus, Hjaltalín, Kiriyama Family, Orphic Oxtra, Retro Stefson, Reykjavík!, Sin Fang, Singapore Sling, Snorri Helgason, Sóley, Steed Lord, We Made God, Who Knew, Who Made God
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Nýtt myndband frá Apparat Organ Quartet!
5.9.2011 - Georg Atli
Það er alltaf merkilegt þegar að Apparat Organ Quartet gerir eitthvað nýtt og hér neðan getiði séð nýtt myndband frá orgel kvartetnum stórkostlega. Myndbandið er við lagið 123 Forever sem er á plötunni Pólýfónía.
Apparat Organ Quartet- 123 Forever from Joy & Thunder on Vimeo.
Myndbandið er gert af Gerda Klotz, sem ég veitt ekkert um annað en að þaðan kemur þetta myndband líka… skemmtilegt.
Tags: Apparat Organ Quartet
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Apparat Organ Quartet spila á Innipúkanum
6.7.2011 - Georg Atli
Búið er að staðfesta hljómsveitina Apparat Organ Quartet á Innipúkann sem fram fer um verslunarmannahelgina, dagana 29. – 31. júlí 2011. Aðrar sveitir sem koma fram eru m.a. Agent Fresco, Kippi Kanínus, Sólstafir, Skakkamanage og Snorri Helgason. Miðasala er hafin á midi.is og er miðaverð 4.500 krónur.
Apparat Organ Quartet skrifuðu sem kunnugt er undir hjá dönsku útgáfunni Crunchy Frog fyrir stuttu og felur það í sér erlenda útgáfu á plötunni Pólýfóníu í haust, en hún kom út seint á síðasta ári hjá 12 Tónum á Íslandi. Í kjölfarið stefnir hljómsveitin á að reyna að fylgja plötunni eftir og er til að mynda búið að staðfesta tónleika í Volksbühne í Berlín þann 18. september.
Fyrsti síngúll Pólýfóníu, “Konami”, er nú kominn í talsverða dreifingu og hefur verið að fá góð viðbrögð í hinum ýmsu miðlum. Einnig er nú hægt að nálgast lagið á iTunes, en platan sjálf kemur svo út þann 5. september hjá Crunchy Frog.
Nýlega fór í loftið ný heimasíða Apparat Organ Quartet – www.apparatorganquartet.com – en þar má finna helstu upplýsingar um hljómsveitina.
Tags: Agent Fresco, Apparat Organ Quartet, Kippi Kaninus, Skakkamanage, Snorri Helgason, Sólstafir
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantektin
11.5.2011 - Kristín Gróa
Það er ekki jafn rosalegt framboð af tónleikum og um síðustu helgi en það er samt fullt skemmtilegt í gangi! Ef við erum að missa af einhverju þá megið þið endilega láta okkur vita.
Miðvikudagur
Á Rósenberg verður léttur djazz og blús en þar mun nýskipað og (að okkur vitandi) ónefnt tríó koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Fimmtudagur
Á Rósenberg spilar dúettinn MoR en hann samanstendur af Margréti Eir og Róberti Thórhallssyni. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Sjá nánar hér.
Á Dillon verða styrktartónleikar en hljómsveitin Morning After Youth er að vinna að sinni fyrstu plötu og vantar smá aur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar litlar 500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Rósenberg ætlar hljómsveitin Árstíðir að spila efni af væntanlegri plötu í bland við eldra efni. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon spila hljómsveitirnar Caterpillarmen, Bob og Coral. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý ætlar hljómsveitin XIII að spila plötuna SALT í heild sinni. Einnig koma fram In Memoriam og Hoffman. Tónleikarnir hefjast á miðnætti og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Dillon verður Proggóvisjón fyrir þá sem hafa ekkert gaman að júróvisjón en þar koma fram Murrk, Postartica og Draumhvörf. Tónleikarnir hefjast kl. 10:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður kanilkvöld #3. Hefst kl. 23:30 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á NASA verður mikil júró gleði en þar verður Eurovision partý Páls Óskars með fullt af júró hetjum. Húsið er opið frá 00:00 – 05:00. Það kostar 2000 krónur í forsölu á midi.is en 2500 krónur við dyrnar. Sjá nánar hér.
Ef þig langar í algjört mótvægi við júróbrjálæðið verður opið hús í Hörpu allan daginn. Húsið opnar á laugardagsmorgun kl. 11 í tveimur minni tónleikasölunum, Norðurljósum og Kaldalóni. Þar koma fram Karlakórinn Fóstbræður, Gissur Páll Gissurarson, Kammersveit Reykjavíkur, Ólafur Arnalds, Caput-hópurinn, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Björn Thoroddsen og Kazumi Watanabe og tríó Tómasar R. Einarssonar.
Á laugardagskvöld kl. 20:00 byrja svo tónleikar í Silfurbergi, næststærsta sal Hörpunnar. Þar munu koma fram Apparat Organ Quartet, Mammút, Agent Fresco, Valdimar, Hjaltalín, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Lights on the Highway og HAM. Ókeypis er á alla tónleika í Hörpunni á laugardag.
Sunnudagur
Í Merkigili á Eyrarbakka koma söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi sem hluti af menningar- og bæjarhátíðinni Vor í Árborg. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Tags: Agent Fresco, Apparat Organ Quartet, Árstíðir, Björn Thoroddsen, Bob, Caput-hópurinn, Caterpillarmen, Coral, Draumhvörf, Gissur Páll Gissurarson, Ham, Hjaltalín, Hoffman, In Memoriam, Jón Tryggvi, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Kammersveit Reykjavíkur, Karlakórinn Fóstbræður, Kazumi Watanabe, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Lights on the Highway, Mammút, MoR, Morning After Youth, Murrk, Ólafur Arnalds, Páll Óskar, Postartica, Tríó Tómasar R. Einarssonar, Uni, Valdimar, XIII
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt *Uppfært*
23.3.2011 - Georg Atli
Að venju þá er bærinn fullur af tónleikum. Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með sem flestu en biðjum við ykkur um að senda okkur einhverskonar línu ef að þið vitið um eitthvað sem við gerum ekki. toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com og svo líka facebook-ið eða klassíska commentið bara.
Núna tek ég aðallega saman dagskrána fyrir miðvikudaginn en dagskráin uppfærist eftir því sem að nær dregur helginni þannig að endilega að tjékka á okkur aftur.
Miðvikudagur
Á Sódómu verða árlegir styrktartónleikar Kvennaskólans. Þar verða Sin Fang, Mukkaló, Valdimar, Fonetik Simbol ásamt Kristrúnu Lárus, My Brother is Pale og Kvennókórinn að sjá til þess að kvöldið verði skemmtilegt. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar bara 500 kall inn sem er ekkert neitt.
Dúettinn Heima verður á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:30 og það kostar 1000 kall inn.
Á Dillon verður Miðvikudagsmosh. Chino, Klikk og The Neighbours sjá um tryllinginn sem byrjar kl. 22:00 og kostar ekkert inn á.
Fimmtudagur
Stærstu tónleikar kvöldsins verða án efa á Sódómu en þar verður Apparat Organ Quartet með fyrri tónleika sína af tveimur. Í kvöld er það Borko sem að hitar upp og tónleikarnir eru stílaðir inn á vinnandi fólk og byrja því kl. 21:00. Ég held að það séu enn til miðar en ég er ekki viss, best bara að tjékka á 12 Tónum.
Á Faktorý verða Jón Jónsson og Lifun með tónleika. 1000 kall inn og fyrsta band fer á svið kl. 22:00
Á Hemma og Valda verður fyrsta kvöld TomTom Records sem að ber nafnið Heiladans 1 Yoda Remote, Prince Valium, Bypass og Tonik. Kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00
Á Rósenberg verða tónleikar með Mogadon “ásamt vinum, gestum, leynigestum, gæludýrum og austur-evrópskri þjóðlagahljómsveit”. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00
Föstudagur
Á föstudeginum verður brjálað að gera fyrir tónleikaþyrsta.
Í fyrsta lagi er fyrsta kvöld Músíktilrauna í Tjarnarbíó. Fullt af efnilegum hljómsveitum þar, tónleikarnir byrja kl. 19:00, og nánar hér.
Síðan eru seinni tónleikar Apparat Organ Quartet á Sódómu. Í þetta skiptið byrja þeir kl. 22:00 og Swords of Chaos hita upp.
Í Slippsalnum verða Agent Fresco og Árstíðir með órafmagnaða tónleika. Húsið opnar kl. 19:30 og það kostar skitnar 1000 kr. inn.
Á Amsterdam verða Vigri, Andvari og Örför. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00
Laugardagur
Á Faktorý ætlar Sin Fang að halda fría tónleika! Þar verður væntanlega hægt að fara og hlusta á lög af einni bestu plötu ársins og líklega eitthvað af eldra efni frá Sin Fang og svo ætla Munnfylli af Galli og O F F líka að koma fram. Húsið opnar kl. 22:00 og ég býst við því að það sé sniðugt að mæta snemma.
Á Sódómu verða styrktartónleikar. Þar verða hljómsveitirnar Morgan Kane, Finnegan, Noise, The Vintage Caraven, Endless Dark og Morning After Youth að troða upp ásamt Bödda úr Dalton. Allir listamennirnir ætla að gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskipur til Krabbameinsfélagsins. Aðgangseyrir eru 1500 krónur að lágmarki, nema að þeir sem eru með mottu borga 1000 kall (en auðvitað mega allir borga meira), húsið opnar 21:30.
Á Dillon verða síðan hljómsveitirnar Vigri, Virtual Times og Friday Night Idols. Þar er frítt inn og húsið opnar kl. 22:30
Sunnudagur
SunnuJazz á Faktorý.
Þá held ég að þetta sé komið í bili…
Tags: Agent Fresco, Andvari, Apparat Organ Quartet, Árstíðir, Borko, Bypass, Chino, Dalton, Endless Dark, Finnegan, Fonetik Simbol, Friday Night Idols, Heima, Jón Jónsson, Klikk, Kristrún Lárus, Lifun, Morgan Kane, Morning After Youth, Mukkaló, Munnfylli af Galli, My Brother is Pale, Noise, O F F, Prince Valium, Sin Fang, Swords of Chaos, The Neighbours, The Vintage Caraven, Tonik, Valdimar, Vigri, Virtual Times, Yoda Remote
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Tónleikar með Apparat
21.2.2011 - Georg Atli
Í morgun þá fengum við tilkynningu um það að Apparat Organ Quartet ætli að halda tvenna tónleika í mars. Þetta eru svo góðar fréttir að tilkynningin birtist hér með orðrétt:
Þær eru fáar hljómsveitirnar sem feta jafn ótroðnar slóðir og Apparat Organ Quartet. Sveitin var stofnuð árið 1999 og árið 2002 kom út plata samnefnd sveitinni. Þeirra fyrsta verk sló umsvifalaust í gegn og tónleikar, sem voru yfirleitt sjaldgæfir og með löngum millibilum, seldust ávalt upp. Biðin eftir annari plötu yrði þó enn lengri en það var ekki fyrr en 2010 sem meistarastykkið Pólýfónía leit dagsins ljós. Henni var einstaklega vel tekið, enda aðdáendur sveitarinnar orðnir langeygir eftir framhaldsskífu og var platan m.a. útnefnd „Plata ársins“ á Fréttablaðinu. Apparat komu fram á Iceland Airwaves við mikinn fögnuð og síðuðust tónleikar þeirra á Íslandi voru útgáfutónleikar þeirra á NASA í desember, en núna er loks komið að Sódómu. Margir kunna að fagna því að AOQ komi fram á Sódóma, enda nándin sem skapast á slíkum tónleikastað mun meiri en á stærri stöðum og því er óhætt að fullyrða að tónleikarnir bjóði upp á einstaka upplifun.
Apparat Organ Quartet var eins og áður sagði stofnuð árið 1999 af Jóhanni Jóhannssyni, Úlfi Eldjárn, Herði Bragasyni og Músíkvati. Stuttu síðar bættist svo trymbillinn Arnar Geir Ómarsson við hópinn. Sveitinni hefur verið líkt við ekki ómerkari nöfn en Kraftwerk, Wagner, Goblin, Terry Reilly, Steve Reich, Sigur Rós, The Glitter Band, Stereolab og Trans Am.
Apparat munu koma fram á tvennum tónleikum á Sódóma Reykjavík, fimmtudaginn 24. mars og föstudaginn 25. mars.
Miðasala hefst í 12 Tónum, Skólavörðustíg 15 þann 1. mars.
Upphitun verður kynnt von bráðar.
Nánar á www.sodoma.is
Hlustum svo á frábært lag til heiðurs Konami kóðanum.
smá uppfærsla: það er víst Borko sem að sér um upphitun fyrra kvöldið og Swords of Chaos seinna.
Tags: Apparat Organ Quartet
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Topp 5 íslenskar plötur – Georg Atli
14.1.2011 - Georg Atli
Mér fannst þetta síðasta ár vera alveg rosalega gott tónlistarár og sérstaklega þegar ég hugsa um íslenska tónlist. Fjölbreytnin er svakaleg og það er ekkert smá flott íslensk tónlist sem kemur út í næstum því hverri viku. Það er erfitt að fylgjast með allri þessari frábæru íslensku tónlist og ég verð eiginlega bara að biðjast afsökunar á því að hafa ekki hlustað nærri því nógu mikið á íslenska tónlist á árinu og þar með nefna ekki einhverja plötur hérna sem að ættu að vera hér….
en hér koma fyrst nokkrar plötur sem að komust næstum inn á loka Topp 5 listann minn :
(í engri sérstakri röð)
Retro Stefson – Kimbabwe -> Rosa flott plata.
Orphic Oxtra – Orphic Oxtra -> Íslenskt Balkan/Klezmer band… getur eiginlega ekki klikkað.
Stafrænn Hákon – Sanitas -> Aðgengilegasta platan þeirra hingað til og sú besta.
Prinspóló – Jukk -> Óvæntasta plata ársins og fáránlega skemmtileg, einlæg, fyndin og góð
Rökkurró – Í Annann Heim -> Virkilega flott plata.
Apparat Organ Quartet – Pólýfónía -> Snillingar
Agent Fresco – A Long Time Listening -> Loksins kom platan og hún var alveg þess virði að bíða.
Útidúr – This Mess We Made -> Er mjög spenntur fyrir þessu bandi, frábær á tónleikum
Nolo – No-Lo-Fi -> Eðal
Topp 5 íslensku plötur ársins:

5. Ólafur Arnalds – …And They Have Escaped The Weight of Darkness
Ég veit ekkert hvernig ég á að útskýra hvers konar tónlist þetta er… nema með því að segja að hún sé ótrúlega falleg. Ólafur Arnalds er alveg örugglega færasta tónskáld okkar Íslendinga.
Lag: Þú ert Sólin

4. Miri – Okkar
Miri-liðar sendu frá sér svo góða plötu að þeir endurvöktu fyrir mér löngu dauða tónlistartegund. Æðisleg plata í alla staði.
Lag: Góða Konan

3. Seabear – We Built a Fire
Seabear er topp hljómsveit og sendi frá sér frábæra plötu. We Built a Fire er hressari en fyrri platan og það er alls ekkert verra. Þetta er svona plata sem þú hlustar á einu sinni og tekur kannksi ekkert rosalega eftir henni í fyrstu hlustun en hún síaðist samt inn í hausinn þinn og þú hreinlega verður að hlusta aftur og þá fattaru að hún er geðveikt góð.
Lag: Lion Face Boy
2. Hljómsveitin Ég – Lúxus Upplifun
Ég er hef verið ánægður með þessa hljómsveit alveg frá því að Plata Ársins kom út og hef aldrei almennilega skilið afhverju hún þykir ekki meira kúl en hún er. Lúxus Upplifun er alveg rosalega góð, hún er einlæg, skemmtileg og vex með hverri hlustun.
Lag: Já/Þessir Vísindamenn

1. Sóley – Theater Island (E.P.)
Það er kannski smá svindl að setja E.P. plötu í efsta sætið en mér er alveg sama,. Sóley úr Seabear sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu á árinu og hún er klárlega plata ársins. Hún er frekar einföld, dregin áfram á píanó og söng og það er ekkert verið að gera einhverja flækjur bara til að gera flækjur. Ég vona bara að hún sendi eitthvað meira frá sér fljótlega.
Lag: Blue Leaves
Tags: Agent Fresco, Apparat Organ Quartet, Hljómsveitin Ég, Miri, Nóló, Ólafur Arnalds, Orphic Oxtra, Prinspóló, Retro Stefson, Rökkurró, Seabear, Sóley, Útidúr
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Kraumslistinn 2010
23.12.2010 - Kristín Gróa
Seinnipartinn í gær var tilkynnt hvaða plötur hlytu þann eftirsóknaverða heiður að komast á Kraumslista ársins 2010. Plötunum á listanum verður gert hátt undir höfði á næsta ári og ætti það að tryggja flytjendunum aukna athygli bæði hér heima og erlendis.
Áður hafði verið tilkynnt að eftirtaldar plötur væru tilnefndar til Kraumslistans:
Agent Fresco – A Long Time Listening
Amiina – Puzzle
Apparat Organ Quartet – Pólyfónía
Daníel Bjarnason – Processions
Ég – Lúxus upplifun
Jónas Sigurðsson – Allt er eitthvað
Kammerkór Suðurlands – Iepo Oneipo
Miri – Okkar
Momentum – Fixation, At Rest
Moses Hightower – Búum til börn
Nolo – No-Lo-Fi
Ólöf Arnalds – Innundir skinni
Prinspóló – Jukk
Retro Stefson – Kimbabwe
Samúel Jón Samúelsson Big Band – Helvítis Fokking Funk
Seabear – We Built a Fire
Sóley – Theater Island
Stafrænn Hákon – Sanitas
Valdimar – Valdimar
Quadruplos – Quadroplos
Sigurvegararnir voru svo:
Apparat Organ Quartet – Pólyfónía
Daníel Bjarnason – Processions
Ég – Lúxus upplifun
Jónas Sigurðsson – Allt er eitthvað
Nolo – No-Lo-Fi
Ólöf Arnalds – Innundir skinni
Topp 5 óskar öllum flytjendum innilega til hamingju með verðskuldað sæti á Kraumslistanum!
Tags: Apparat Organ Quartet, Daníel Bjarnason, Ég, Jónas Sigurðsson, Nóló, Ólöf Arnalds
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off
Topp 5 jólagjafir fyrir tónlistarnördið – Georg Atli
17.12.2010 - Georg Atli
Jólin eru aaaalveg að fara að koma og við ætlum í jólafrí (enginn sem nennir að gera lista á aðfangadag eða gamlársdag) þetta verður sem sagt síðasti listinn okkar á þessu ári, mér finnst samt alveg líklegt að einhver setji eins og eina og eina færslu. Í janúar komum mega fersk aftur með alla árslistana okkar og allir föstuliðirnir okkar byrja þá aftur á fullu. Gaman að því.
En til að halda okkur í jólagírnum (og hugsanlega hjálpa einhverjum með valkvíða…) ákváðum við að gera svona skemmtilegan jólatengdann lista, gjöriðisvovel!
5. White Stripes vínyl-byrjendapakkinn

Eina ástæðan fyrir því að þetta er svona neðarlega er hvað þetta er dýr pakki og svo eru plöturnar sem maður fær með eru ekkert rosa mikið að selja þetta sett… en maður fær plötuspilara.
4. Flott tónleika plakat

Vel útfærð tónleikaplaköt eru ekki bara listaverk heldur geta þau verið minningar. Þið getið séð meira hér og hjá Poster Cabaret
3. Hljómsveita varningur

Tónlistarnördi finnst alltaf kúl að vera merktur einhverri hljómsveit.
2. Matador at 21, 6 diska box settið

Matador útgáfan fagnar 21. árs afmæli sínu á þessu ári og gaf box sem er einskonar hljóð-sögubók, þar sem öll stóruböndin sem Matador hefur gefið út flytja lögin sín. Lögunum er svo raðað upp í tímaröð (eða svona næstum). Þetta er náttúrulega bara alveg fáránlegt box, listinn af stjarnfræðilega góðum hljómsveitum sem hafa gefið út hjá Matador er allt of langur til að koma með hér en ég get amk nefnt Sonic Youth, Pavement, Yo La Tengo, The Jon Spencer Blues Explosion og svo milljón önnur bönd. Skoðiði bara lagalistana á geisladiskunum!
1. Skemmtilegt og/eða skrítið hljóðfæri.

Til dæmis Theremin eða Stylophone eða sekkjapípa eða mandólín eða Nyatiti. Allt sem er skrítið og óvenjulegt er skemmtilegt!
auka tilnefning: Joy Division +/- endurútgáfan, kæmist inn á listann ef að hún væri ekki uppseld.
og svo bara til þess að þessi færsla sé ekki alveg tónlistar laus þá getiði hlustað á lag af nýju plötunni frá Apparat.
Tags: Apparat Organ Quartet, Joy Division, Pavement, Sonic Youth, The Jon Spencer Blues Explosion, White Stripes, Yo La Tengo
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Nýtt lag frá Apparat Organ Quartet!!
29.11.2010 - Georg Atli
Nú er orðið ansi stutt í það sem að ALLIR Íslendingar hafa beðið eftir, þann 9 desember næstkomandi kemur út ný plata með Apparat Organ Quartet. Platan mun heita Pólýfónía og óþolinmóðir geta keypt hana strax á föstudaginn hjá gogoyoko!

Til að hita okkur öll upp þá kom smáskífan Cargo Frakt út í dag (líka hjá gogoyoko). Njótið!
Tags: Apparat Organ Quartet
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off







