Inni með Sigur Rós opnunarmynd RIFF 2011 – opnunarkvöldið á NASA.

15.9.2011 - Georg Atli

Tónlistarmyndin “Inni” með Sigur Rós verður opnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, eða RIFF, í ár. Um Norðurlandafrumsýningu verður að ræða á opnunarkvöldi RIFF fimmtudaginn 22. september en myndin hefur aðeins verið sýnd áður á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir fáeinum vikum, þar sem hún hlaut glimrandi viðtökur. Vettvangur frumsýningarkvöldsins á hátíðinni er nýstárlegur í ár en það er tónleika- og skemmtistaðurinn NASA við Austurvöll. Helgast það ekki síst af opnunarmyndinni en “Inni” er tónlistarmynd sem umfaðmar áhorfandann í milliliðalaus samskipti við hljómsveitina, ekki ósvipað því að upplifa Sigur Rós á tónleikum. Ein önnur sýning á “Inni” fer í almenna sölu meðan á hátíðinni stendur og fer hún fram síðar á opnunarkvöldinu á NASA.

Inni” er önnur kvikmynd Sigur Rósar og fylgir í kjölfar marglofuðu heimildarmyndarinnar “Heima“. Leikstjóri hennar er Vincent Morriset, sem áður hefur meðal annars unnið með kanadísku hljómsveitinni Arcade Fire. Morisset gerði 16 mm afrit af upprunalegum stafrænum upptökum og síðan fleiri afrit, stundum í gegnum ljósstrending og fyrir vikið er “Inni” því líkust sem hún sé fjársjóður aftan úr forneskju. Inn á milli er síðan skotið myndbrotum frá síðasta áratug, sum allt frá því 1998. Þessi hliðsetning gefur áhorfandanum glögga mynd af uppruna Sigur Rósar, þróun hljómsveitarinnar, frumleika hennar og þau áhrif sem hún hefur haft.

Inni” var tekin upp á tvennum tónleikum Sigur Rósar í Alexandra Palace í London í nóvember 2008. Nokkrum dögum síðar kom Sigur Rós fram á eftirminnilegum tónleikum í troðfullri Laugardalshöll og hefur haft hægt um sig síðan.

Miðasala á RIFF er hafin í forsölu á heimasíðu hátíðarinnar, riff.is og miðasala í upplýsingamiðstöð hátíðarinnar hefst í dag, fimmtudag kl. 12:00, í Eymundsson við Austurstræti. RIFF stendur yfir dagana 22.september til 2.október”

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Topp 5 erlendar plötur 2010 – Snorri

24.1.2011 - Snorri

2010 var mikið tónlistarár. Svo mikið tónlistarár að ég er engan veginn búinn að taka það almennilega út. Það er fullt af plötum sem hafa fengið mikla athygli og góða dóma sem ég hef ekki enn tjekkað á t.a.m. Kanye West, Janelle Monae, Joanna Newsom, Deerhunter o.fl og aðrar sem ég hef hlustað á og verið hrifinn af en ekki náð að hlusta nógu oft til að geta kallað þær uppáhalds og þar má nefna Sufjan Stevens, Vampire Weekend, Owen Pallett og Robyn. Svona er þetta stundum. Á sama tíma hef ég hlustað endurtekið og tekið í ástfóstur margar aðrar plötur, sumar sem hafa vakið mikla athygli en einnig aðrar sem hafa fallið meir í skuggann á vettvangi umræðu og almenns hæps, en að mínu mati eiga mikið hrós skilið.

Þannig að – þær 10 plötur sem standa upp úr en komast ekki inn á topp 5 listann eru (í engri sérstakri röð):

The National – High Violet
Hot Chip – One Life Stand
Yeasayer – Odd Blood
Twin Shadow – Forget
Local Natives – Gorilla Manor
Gorillaz – Plastic Beach
Gayngs – Relayted
Bonobo – Black Sands
Surfer Blood – Astro Coast
The Morning Benders – Big Echo

PS Ég gerði ekki lista fyrir íslenskar plötur því ég er ekki alveg nógu vel inni í íslensku senunni, en plötur Jónsa og Ólafar Arnalds ættu vel heima í þessum topp 15 lista.

En þá eru það topp 5 plöturnar:

5. Laura Veirs – July Flame

Ég held mikið upp á þessa amerísku söngkonu sem er ekki vel þekkt utan indíheimsins en hún er afar fær lagahöfundur með sérstaka og fallega rödd. Allar plötur hennar eru afar góðar en sú nýjasta er talin vera hennar besta verk enda um afar heilsteypta indí-folk plötu að ræða.

Laura Veirs – July Flame
Laura Veirs – Life Is Good Blues

4. Four Tet – There Is Love In You

Eins og margir fleiri beið ég spenntur eftir nýjustu plötu Kieran Hebden. Platan hans Rounds frá 2003 er ein besta elektrónik-plata síðasta áratugar. Nýjasta platan There Is Love In You gefur Rounds lítið eftir og slær fáar ef þá nokkrar feilnótur.

Four Tet – Sing
Four Tet – She Just Likes To Fight

3. Javelin – No Más

Einhverra hluta vegna hélt ég að þessi plata hefði komið út 2009 og hafði hana því ekki í huga þegar ég valdi bestu lögin 2010 hér um daginn. En hún reynist vera frá 2010 og hefur að mínu mati sú plata fengið allt of litla athygli miðað við hvað hún er frábærlega skrítin og skemmtileg. Ekta Brooklyn-freak sánd fyrir súra en hressa partýið.

Javelin – Oh! Centra
Javelin – On It On It

2. Arcade Fire – The Suburbs

Plata sem toppaði marga árslista og það kemur ekkert á óvart enda frá einu allra besta bandi síðustu ára. Þessarar plötu var beðið með mikilli eftirvæntingu. Það tók mig nokkrar umferðir að falla fyrir henni en þegar það gerðist var ekki aftur snúið og hún er búin að vera á repeat síðustu mánuði. Frábær lög á frábærlega heilsteyptri plötu. Arcade Fire plötur eru eins og eiturlyf, aftur aftur meira meira !!!

Arcade Fire – Ready to Start
Arcade Fire – Half Light II (No Celebration)

1. Beach House – Teen Dream

Beach House hafa ekki verið lengi á sjónarsviðinu en hafa verið dugleg að gefa út nýjar plötur og þau virðast verða betri og betri með hverri plötunni. Ég veit ekki hvernig eða hvort þau munu toppa Teen Dream sem kom út snemma á árinu 2010 en er enn í mikilli spilun og vekur alltaf upp sömu gæsahúðartilfinninguna. Draumkennd, dramatísk og hvert lagið öðru betra.

Beach House – Norway
Beach House – 10 Mile Stereo

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off

Topp 5 erlendar plötur 2010 – Georg Atli

21.1.2011 - Georg Atli

Árið var gott og það var alveg fullt fullt af góðri tónlist. Eins og vanalega á árslitum þá var fáránlega erfitt að velja bara 5 plötur á listann og of ósanngjarnt að nefna ekki fleiri þannig að ég byrja á næstum því listanum mínum (og eins og alltaf er þetta ekki í neinni sérstakri röð):

The Tallest Man on Earth – The Wild hunt -> Sænskur Bob Dylan og þó að sú líking hljómi ekkert sérstaklega þá gerir tónlistin það.
Local Natives – Gorilla Manor -> Þessi plata hefði verið í 6. sæti. Þræl fínt popprokk.
The Black Keys – Brothers -> The Black Keys eru aftur farnir að gera það sem að þeir gera svo frábærlega; spila blúsrokk.
Das Racist – Sit Down Man -> Besta rappplata síðasta árs
Kanye West – My Beautiful Dark Twisted Fantasy -> Næst besta rappplata síðasta árs og ofmetnasta plata ársins
Grinderman - Grinderman 2 -> Skítugt, hart, hátt, pönkað gæða rokk frá söngvara The Birthday Party
Vampire Weekend – Contra -> Mest gleymda plata ársins, furðulega góð þó að þetta sé pínu það sama og á fyrri plötunni
Los Campesinos – Romance is Boring -> Ég skil ekki af hverju það eru ekki allir að blasta Los Campesinos
Sleigh Bells – Treats -> Dísæt og krúttuð óhljóða geðveiki
The National – High Violet -> Besta plata The National
Toro y Moi – Causers of This -> Vanmetnasta plata ársin
Sam Amidon – I See the Sign -> Allt sem Sam Amidon gerir er gott.

og svo Topp 5 plötur ársins:

5. Joanna Newsom – Have One on Me
Ég var lengi að fatta tónlistina hennar Joanna Newsom og fílaði engan vegin fyrstu plötuna hennar The Mil-eyed Mender (2004) og nennti ekki einu sinni að hlusta á plötuna Y’s (sem kom út í millitíðinni) en féll eiginlega strax fyrir fyrsta laginu sem ég heyrði af þessari plötu. Ég þyrfti líklega að gefa hinum plötunum meiri séns.

Lag: Jackrabbits

4. Fang Island – Fang Island
Þetta var það sem kom mér líklega mest á óvart í erlendri tónlist. Þetta er svo sem ekkert neitt sem að maður hefur aldrei heyrt áður, því þetta minnir á bæði Ratatat og íslensku ofurtöffarana í Retron. En þetta er samt rosalega skemmtilegt. Mjög skemmtilegt gítarrúnk af bestu gerð.

Lag: Sideswiper

3. Arcade Fire – The Suburbs
Arcade Fire náðu nýjum hæðum í dramatískri og yfirdrifinni tónlist sem hljómar eins og ef að þú tækir heila þáttaröð af einhverri sápuóperu og tækir allann ofleikinn og mjúku linsurnar og allt glysið go myndir breyta því í 16 lög og setja það á eina plötu… nema að tónlistin er geðveikt góð.

Lag: City With No Children

2. Gil Scott-Heron – I’m New Here
Gil Scott-Heron gaf út sína fyrstu plötu í 15 ár og hún var rosaleg. Fullt af flottum textum, þéttur taktur, coverlög sem engium datt í hug að myndu vera þarna og svakalega flott lög. Varð til þess að ég fór að hlusta á allt gamla stöffið hans aftur.

Lag: The Crutch

1. Titus Andronicus – The Monitor
Titus Andronicus kom mér mikið á óvart (fannst Airing of Grievences samt rosa góð)og gaf út alveg geðveikt góða pönk plötu, nútíma útgáfan af pönki en það er samt pönk. Þetta er grjót hart pólitískt og þrælskemmtilegt. Ég var allt árið alveg að fara að skrifa langan pistil um það hvað þessi plata er dásamlega skemmtileg og góð en einhvern veginn hætti ég alltaf við. Mest spilaða platan í 2010 plötusafninu mínu.

Lag: A Pot In Wich to Piss

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 lög ársins – Georg Atli

7.1.2011 - Georg Atli

Áður en ég set uppáhaldslögin mín frá árinu 2010 er ætla ég að viðurkenna 2 hluti…

fyrst þá ætla ég að segja að þrátt fyrir netöldina og dauða plötunnar og ofur i-Tunes playlista væðinguna þá finnst mér ótrúlega leiðinlegt að gera playlista og fell sjaldnast fyrir stökum lögum af plötum en oftar fyrir plötum í heild sinni.
Í öðru lagi (orðaleikur!!) þá finnst mér alltaf skrítið að sortera íslenska tónlist frá erlendri tónlist og gera þannig greinarmun á gæðum íslenskrar og erlendrar tónlistar… eins og að íslensk tónlist standist ekki samanburð eða eitthvað svoleiðis…. en ég ætla samt að gera það á næstu vikum og búa til tvo lista með plötum ársins. En það er bara af því að það kom svo fááááránlega mikið af góðri íslenskri tónlist út í ár að ef að ég myndi bara gera einn lista þá yrði fullt af erlendri tónlist útundan og það er bannað að skilja útundan.

Fyrst 5 næstum því uppáhaldslögin mín:

Hljómsveitin Ég- Elskan Mín
Cliff ClavinThis is Where we Kill More Than Time
Gorillaz – Superfast Jellyfish (feat. Gruff Rhys & De La Soul)
Sleigh Bells – Rill Rill
Das Racist – People are Strange

… og nú topp 5 lög ársins 2010:

5. Hot Chip – I Feel Better (feat. Bonnie ‘Prince’ Billy)

Hot Chip eru fínir en það er allt miklu betra með Bonnie ‘Prince’ Billy

4. Benni Hemm Hemm – Vilhjálmur af Poitou

Síðasta lagið af bestu plötu Benna Hemm Hemm til þessa (Skot). Hrikalega flott að klára plötuna á þessu lagi maður fer eiginlega strax og setur aftur í gang af því að það er vonlaust að hætta að hlusta á eitthvað sem kemur manni í brjálað stuð. Frábært lag í alla staði.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

3. Arcade Fire – Roccoco

Íburðurinn á nýjustu plötu Arcade Fire fór fram úr öllum mínum væntingum en á góðan hátt samt. The Suburbs er góð plata en þetta lag sendur samt uppúr að mínu mati, en maður tekur samt ekkert endilega eftir því við fyrstu hlustun, það svona læðist upp að manni.

Kimbabwe cover

2. Retro Stefson – Velvakandasveinn

Retro Stefson gáfu út plötuna Kimbabwe á þessu ári og strax á fyrstu tónunum í fyrsta laginu (tel introið ekki með í þessu) heyrir maður að hún er góð. Velvakandasveinn er fáránlega grípandi og eins og á allri plötunni (og reyndar líka á Montana) þá er einhver ótrúleg gleði í tónlistinni.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

1. Crystal Castles – Not in Love (feat. Robert Smith)

Í laginu í fimmta sæti sagði ég að allt væri betra með Bonnie ‘Prince’ Billy, það er ennþá satt en það er allt MIKLU betra með Robert Smith. Upprunalega útgáfan er eiginlega bara ekkert skemmtileg því að þar er allur söngurinn sunginn í gegnum Vocoder og það er ekkert skemmtilegt…. amk í því tilfelli. En þetta lag er frábært og hrikalega skemmtilegt og staðfestir grun minn um að það sé allt betra með Robert Smith.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Spike Jonze gerir Suburbs video fyrir Arcade Fire

19.11.2010 - Kristjana

Eru allir búnir að sjá nýja myndbandið sem Spike Jonze gerði fyrir Arcade Fire?

Tags: ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Plata ágústmánaðar: Arcade Fire – The Suburbs

31.8.2010 - Kristjana

Í þessari síðustu færslu um plötu ágústmánaðar verður ekki umfjöllun, ekki tóndæmi og ekki video. Þess í stað verður bara uppástunga um að fara beinustu leið á The Wilderness Downtown og tékka á nýja ‘myndbandinu’ við We Used to Wait. Og svo eitt stórt ‘takk’ til Arcade Fire, Chris Milk og Google fyrir job well done!

Gæti reyndar orðið smá möndl fyrir þau okkar sem ólust upp á Íslandi en þá er bara að velja draumagötuna í útlandinu, götu sem maður bjó tímabundið við erlendis (mmm nostalgía) nú eða velja stað í Montréal – svona í tilefni af því að þetta er Arcade Fire ;)

Tags:
Flokkað undir Kristjana, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins: Arcade Fire – The Suburbs

26.8.2010 - Kristjana

Síðast sagði ég að The Suburbs ynni verulega á með hverri hlustuninni. Hverju orði sannara. Ánægjuleg hliðarverkun þess er að núna finnst mér hvert og eitt lag líka betra og betra (ekki bara heildin). Á síðustu vikunni hef ég því fengið þrjú lög af plötunni algjörlega á heilann. Lögin þrjú, í tímaröð, voru:

Empty Room
Rococo
We Used to Wait

Tags:
Flokkað undir Kristjana, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins: Arcade Fire – The Suburbs

11.8.2010 - Kristjana

“So can you understand
Why I want a daughter while I’m still young?
I want to hold her hand,
And show her some beauty,
Before all this damage is done.”

Ágúst! Sumarið næstum búið? Getur ekki verið. En með ágúst kemur ný plata mánaðarins, sem að þessu sinni er The Suburbs – þriðja plata Arcade Fire. Funeral greip mig algjörlega við fyrstu hlustun. Eftir Tunnels þurfti ég að heyra næsta og svo næsta og…svo var allt í einu heil plata bara búin. Neon Bible kom mér á óvart. Veit ekki hvort ég bjóst við vonbrigðum eftir Funeral eða hvað en mér fannst hún kom allavega þægilega á óvart. Þannig að þegar ég setti The Suburbs á í fyrsta skipti vissi ég ekkert við hverju var að búast. Spennandiii…

Skemmst er frá því að segja að hún greip mig engan veginn strax eins og fyrstu tvær plöturnar. Ég renndi henni í gegn, hálfpartinn annars hugar, og pældi svo bara lítið í henni í nokkra daga. Þangað til í gær. Núna er ég búin að fara nokkrum sinnum í gegnum hana og hún vinnur á. Vá hvað hún vinnur á! Eina sem ég hefði átt að sleppa var að lesa þetta um daginn því “The surprise musical reference this time, twice used to great effect, is Abba. On the Régine-fronted Empty Room…” hefði ég verið til í að sleppa að lesa og heyra bara sjálf.

En góð er hún, og er bara að vera betri með hverri hlustuninni. Allt öðruvísi en fyrri tvær…en samt…samt svo mikið Arcade Fire. Líkar það. Mæli með þessu. Og læt mig dreyma um að endurtaka Arcade Fire live upplifunina…

Semi-random lagaval eftir hlustun dagsins:
Arcade Fire – City With No Children
Arcade Fire – The Suburbs
Arcade Fire – Modern Man

Tags: ,
Flokkað undir Kristjana, Plata mánaðarins | 6 athugasemdir »

Nýtt frá Arcade Fire!!!

21.6.2010 - Georg Atli

Af því að við vorum frekar léleg á föstudaginn og settum engann lista inn (greinilega alveg að koma sumarfrí hjá okkur) þá set ég inn 2 nýjustu lögin af væntanlegri Arcade Fire plötu (tvö fyrstu finnið þið m.a. hérna). Hún heitir Suburbs og á að koma út 2. ágúst í Bretlandi og þá væntanlega frekar fljótlega eftir það hér á Íslandi.

Lögin heita We Used to Wait og Ready to Start og þau eru, eins og við var að búast,  frábær.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | Comments Off

Komandi tímar….

9.6.2010 - Georg Atli

Nú þegar að fyrri helmingur ársins er alveg að verða búinn þá finnst mér alltaf pínu skemmtilegt að skoða hvaða tónlistamenn eru búnir að lofa nýrri plötu. Hérna kemur svo listinn yfir það sem mér finnst allra helst:

Nýja pltan hennar MIA kemur út seinna í þessum mánuði (hún heitir þessu svaka netvæna nafni:/\/\ /\ Y /\) og svo Trent Reznor hætti með NIN og stofnaði nýja hljómsveit sem heitir How to Destroy Angels og þau ætla að gefa út samnefnda EP plötu (held amk að það verði bara EP, er samt ekki alveg viss) í byrjun júlí.

Í ágúst kemur svo langþráð plata frá Arcade Fire og þau eru aðeins byrjuð að leka út kynningarefni sem lofar bara ansi góðu. Flippararnir í !!! eru líka með plötu í ágúst þrátt fyrir að trommarinn þeirra hafi dáið fyrr á árinu, hún á að heita Strange Wether, Isn’t It?.

Í september eru svo margar stórar plötur á leiðinni en Nick Cave og vinir hans í Grinderman senda frá sér Grinderman 2 og nýja Interpol platan kemur líka þá og Hot Sauce Comittee, Pt. 1 frá gamlingjunum í Beastie Boys. Kanye West platan  Good Ass Job á einnig að koma út í september og litli lærlingurinn hans Kid Cudi verður líka með nýja plötu þá og líka Panda Bear, Of Montreal og The Walkmen þannig að september verður ansi stór!

Svo skilst mér að hipparnir í Fleet Foxes og Anthony Hegarty að gefa út plötu í október… en ekki saman samt, þó að það yrði örugglega áhugavert.

Belle & Sebastian og danspoppararnir í Justice og Daft Punk ætla líka að gefa út plötu í ár en ég veit ekki hvenær.

og síðan en ekki síst þá eru Radiohead búnir að vera að teasa einhverri plötu í ár, en engin (nema kannski Thom Yorke) veit hvort það sé eitthvað til í því… það kom amk nýtt lag og þá vonar maður bara það besta.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin