Topp 5 lög ársins 2012 – Kristín Gróa
18.1.2013 - Kristín Gróa
Ég var bókstaflega að deyja yfir þessum lista en hei til þess er runners-up listinn!
Perfume Genius – Hood
A$AP Rocky – Goldie
AlunaGeorge – You Know You Like It
Danny Brown – Grown Up
Port St. Willow – Amawalk
Major Lazer – Get Free
Guided By Voices – Class Clown Spots A UFO
Jessie Ware – Wildest Moments
Japandroids – The House That Heaven Built
Frank Ocean – Pyramids
5. Tilbury – Tenderloin
Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta lag er en mér er bara alveg sama. Það kemur mér alltaf í gott skap, ég fæ aldrei leið á því og mér er fyrirmunað að hlusta á það án þess að dilla mér. Æðislegt lag af æðislegri plötu.
4. Death Grips – I’ve Seen Footage
Arg þetta lag er svo brútal! Ég hef reynt að hlusta á The Money Store í bútum því það er svo líkamlega erfitt að hlusta á hana að ég meika hana varla í heilu lagi. Þessi sprengja er aftur á móti passleg. I’VE SEEN FOOTAGE!
3. Sky Ferreira – Everything Is Embarrassing
Hin unga Sky Ferreira gaf út EP plötuna Ghost á árinu og þó mér hafi þótt hún vera dálítið út um allt svona stíllega séð þá lofaði hún góðu. Hápunkturinn þar er þó án efa hin fullkomna poppgersemi Everything Is Embarrassing sem myndi sóma sér vel á stórsmellasafnplötu frá níunda áratugnum. Ég meina það á allra besta hátt. Algjörlega frábært lag sem borast inn í hausinn á manni.
2. Grimes – Oblivion
Mér fannst Visions gríðarlega ofmetin plata en það breytir því ekki að Oblivion er alveg tryllt. Þegar ég heyrði það fyrst þá hugsaði ég “lag ársins!” og ég hef eiginlega ekki skipt um skoðun. Ég ofspilaði lagið reyndar svo mikið í byrjun árs að ég á erfitt með að fá sama high núna þegar ég hlusta og ég fékk þá. Það sem ég fíla best við þetta lag er að það er svo innilega stelpulegt en samt svo grjóthart. Ég fíla það og ég fíla vídjóið líka.
1. Bat For Lashes – Laura
Ég hélt það væri ekki hægt að búa til svona klassísk lög lengur. Þetta lag er svo gjörsamlega tímalaust að það gæti komið frá hvaða áratug síðustu fimmtíu ára sem er. Ég verð að viðurkenna að ég hlusta eiginlega alltaf á þetta lag með lokuð augu og kreppta hnefa. Þetta er bara þannig lag.
Tags: A$AP Rocky, AlunaGeorge, Árslisti, Bat For Lashes, Danny Brown, Death Grips, Frank Ocean, Grimes, Guided By Voices, Japandroids, Jessie Ware, Major Lazer, Perfume Genius, Port St. Willow, Sky Ferreira, Tilbury
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp erlendar plötur ársins 2012 – Kristín Gróa
11.1.2013 - Kristín Gróa
Fyrst eru það tíu runners upp í engri sérstakri röð:
Liars – WIXIW
Frankie Rose – Interstellar
Daughn Gibson – All Hell
Perfume Genius – Put Your Back N2 It
Frank Ocean – Channel Orange
Bat For Lashes – The Haunted Man
Metric – Synthetica
The Shins – Port Of Morrow
La Sera – Sees The Light
Death Grips – The Money Store
5. Grizzly Bear – Shields
Ég er eiginlega alveg hissa á því að þessi plata hafi endað á topplistanum mínum. Ég hef alltaf verið dálítið efins með Grizzly Bear, þ.e. ég hef ekki heillast af plötunum þeirra þó ég hafi tekið stök lög og ofspilað þau algjörlega (Knife og While You Wait For The Others fara þar fremst í flokki). Ég var því frekar lítið spennt þegar Shields kom út og nennti eiginlega ekkert að hlusta á hana. Það var svo ekki fyrr en undir lok árs sem ég ákvað að tékka betur á henni og hún var þá auðvitað alveg skothelt.
4. Kendrick Lamar – good kid, m.A.A.d. city
Þetta er að mínu mati rappplata ársins og ég er víst ekki ein um þá skoðun. Ég veit ekki hvað ég get sagt um hana sem hefur ekki áður verið sagt. Þetta er mjög persónuleg plata sem segir söguna af góðum strák sem elst upp í slæmu hverfi. Hann kemur þessu svo vel til skila að mér finnst ég alveg skilja hvernig það er að vera 17 ára strákur í Compton þó ég sé 31 árs kona á Íslandi. Meikar ekkert sense!
3. Sharon Van Etten – Tramp
Þegar ég renndi Tramp í gegn í fyrsta sinn þá var það með hálfum huga og ég var ekkert sérlega hrifin. Það er þó einhvernveginn þannig að sumar plötur eru slow burners og það þarf að sýna smá staðfestu til að leyfa þeim að síast inn. Þegar ég fór að sjá mikið lof um plötuna þá ákvað ég að gefa henni annan séns og komst þá að því að hún er algjörlega frábær. Lögin eru frekar ólínuleg og fylgja ekki hinu hefðbundna verse-kórus formi en það er einmitt það sem heillar mig. Ef þið hafið ekki gefið þessari séns þá hvet ég ykkur til að gera það hér með.
2. Japandroids – Celebration Rock
Fyrsta plata Japandroids, Post-Nothing, var á árslistanum mínum árið 2009 enda algjörlega frábær plata. Á þeirri plötu var undirtónninn hálfgerð hræðsla við að verða fullorðinn og að vilja ekki yfirgefa partíárin. Ég gat tengt við línuna “We used to dream – Now we worry about dying – I don’t want to worry about dying.” þá og nú er eins og Japandroids eldist í sama takti og ég sjálf því ég get enn frekar tengt við Celebration Rock. Það er frekar óvenjulegt að sterkustu lög plötunnar séu þau síðustu en ég á mjög erfitt með að gera upp á milli The House That Heaven Built og Continuous Thunder. Þau eru bæði mjög tilfinningarík og tosa í hjartað en gera það á svo ofboðslega ólíkan hátt. Post-Nothing var frábær plata en á Celebration Rock fara Japandroids skrefinu lengra og sýna virkilega breidd og dýpt.
1. Fiona Apple – The Idler Wheel Is Wiser Than The Driver Of The Screw And Whipping Chords Will Serve You More Than Ropes Will Ever Do
Ég vissi um leið og ég setti þessa plötu af stað að hún yrði á toppnum á árslistanum mínum þetta árið. Fiona Apple er kannski ekki afkastamikil í plötuútgáfunni en ég fyrirgef henni það alveg þegar hún gefur út hvert snilldarverkið á fætur öðru. Eins og ég hélt mikið upp á Extraordinary Machine þá finnst mér þessi enn betri. Hún er stórkostlega skrítin en samt svo ofboðslega mannleg og venjuleg um leið. Fiona syngur um ástina og hluti sem allir geta tengt við en gerir það bara á allt annan hátt en allir aðrir. Hún orðar hlutina óvenjulega en samt á akkúrat þann hátt að maður skilur nákvæmlega hvað hún er að meina og tilfinningarnar á bak vð það. Ég var svo heppin að sjá hana live í San Francisco í haust og það var alveg mögnuð upplifun eftir að hafa hlustað svona mikið á plötuna. Án efa hennar besta verk til þessa.
Tags: Árslisti, Bat For Lashes, Daughn Gibson, Death Grips, Fiona Apple, Frank Ocean, Frankie Rose, Grizzly Bear, Japandroids, Kendrick Lamar, La Sera, Liars, Metric, Perfume Genius, Sharon Van Etten, The Shins
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 íslenskar plötur ársins – Kristín Gróa
4.1.2013 - Kristín Gróa
Ég á sífellt erfiðara með íslensku árslistana því það er gefið út þvílíkt magn af gæðatónlist hér ár eftir ár að það er vandasamt að velja aðeins fimm plötur til að minnast á. Það að vera erlendis flæktist þó aðeins fyrir mér þetta árið svo ég var dálítið ótengd íslenskri plötuútgáfu og átti jafnvel erfitt með að nálgast sumar plötur svo þið hafið þann fyrirvara í huga.
5. Þórir Georg – I Will Die And You Will Die And It Will Be Alright
Þessi plata kom mér gríðarlega mikið á óvart. Þó Þórir Georg sé hér einn á ferð þá finnst mér platan vera fyllri en hans fyrri verk og hún hefur mjög heilsteyptan hljóm sem fer Þóri vel. Hann er engin stórsöngvari en röddin hans hefur vissan sjarma sem fer lögunum vel. Það er eins og hann gefi í við hverja plötu og þetta er að mínu mati hans besta verk til þessa.
4. Hjaltalín – Enter 4
Ég hef haft blendnar tilfinningar í garð Hjaltalín í gegnum tíðina og er vandamálið líklega algjörlega mín megin. Ég heyri að þetta er metnaðarfull tónlist flutt af gríðarlega hæfileikaríku fólki en ég hef átt erfitt með að tengjast tónlistinni. Það kom mér því á óvart að þessi nýja plata, sem er líklega óaðgengilegasta verk hljómsveitarinnar til þessa, hafi verið fyrsta platan til að heilla mig virkilega. Sagan á bak við plötuna gerir áhrif hennar vissulega meiri en aðalmálið er að hér eru á ferðinni virkilega falleg lög sem mynda sterka heild.
3. Moses Hightower
Moses Hightower hafa gert hið ógerlega sem er að búa til sannfærandi soul tónlist sem er klassísk en samt svo óneitanlega íslensk. Þetta er svona eins og með Hjálma og reggíið, þetta ætti ekki að vera hægt en það virkar og miklu meira en það. Það gengur einhvernveginn allt upp á þessari plötu. Hljóðfæraleikurinn og söngurinn er algjörlega óaðfinnanlegur eins og við er að búast en lagasmíðarnar eru líka frábærar. Lög eins og Stutt skref og sérstaklega Sjáum hvað setur standa upp úr og eru raunar svo góð að ég féll hálfpartinn í stafi þegar ég heyrði þau fyrst.
2. Pétur Ben – God’s Lonely Man
Það er einhver rosalegur kraftur í Pétri á þessari plötu og hann hrífur mann algjörlega með sér. Mér finnst hann ekki stíga feilspor hérna, lagasmíðarnar eru fyrsta flokks og textarnir sömuleiðis virkilega áhrifamiklir. Þetta er á allan hátt metnaðarfull og flott plata sem ætti að sanna það að Pétur er einn af okkar fremstu tónlistarmönnum.
1. Tilbury – Exorcise
Tilbury komu eins og þruma úr heiðskíru lofti með hið heillandi lag Tenderloin sem er án efa íslenska lag ársins. Algjörlega fullkomið lag og góð kynning fyrir plötuna Exorcise. Væntingar mínar til plötunnar voru miklar og sem betur fer stóðst hún þær fyllilega. Mennirnir á bak vð Tilbury eru vissulega engir nýgræðingar í íslensku tónlistarlífi en engu að síður verð ég segja að þetta er alveg sláandi góð debut plata. Það eru ekki eitt eða tvö eða þrjú góð lög á þessari plötu heldur er hún skotheld alveg út í gegn. Ég hef staðið mig að því að hlusta á hana oft í röð og slíku tek ég afar sjaldan upp á. Meira af þessu takk.
Tags: Árslisti, Hjaltalín, Moses Hightower, Pétur Ben, Tilbury, Þórir Georg
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 uppgjör – Rósa Guðrún
22.1.2010 - Rósa Guðrún
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Anita O’day er jazzsöngkona af gamla skólanum sem ég kolféll alveg fyrir á síðasta ári þökk sé tónlistarsafni Borgarbókasafnsins. Hún er hreint út sagt dásamleg og slær ekki slöku við drotningunni Ellu Fitz.
Set inn link á eitt sem nú allir þekkja:
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Var alltaf á leiðinni að tékka á Bon Iver. Hafði alltaf heyrt Skinny Love í bílnum á leiðinni hingað og þangað og söng alltaf hástöfum með. Elska svona einfaldar lagasmíðar sem virka svona hrikalega vel.
5. Hver er bjartasta vonin? Hef ekki hugmynd um hver gæti verið bjartasta vonin. Dettur helst í hug smástráka hljómsveitina Sykur sem eru að koma sterkir inn á Íslandi allavega. Hafa hlotið gríðarlegar vinsældir á síðustu mánuðum. Hef ekki séð þá sjálf en kannski maður skellir sér til að vera hipp og kúl eins og hinir einhvert kvöldið
6. Bónusspurning að eigin vali – Hverja viltu helst sjá á tónleikum 2010?
Tags: 2009, Anita O'Day, Árslisti, Árstíðir, Beyonce, Bon Iver, BSig, Ella Fitzgerald, Gus Gus, Hafdís Huld, Helgi Valur, Jónas Sig, Monotown, Nico Muhly, Sykur, Uppgjör
Flokkað undir Listar, Rósa Guðrún | 2 athugasemdir »
Topp 5 uppgjör – Georg Atli
22.1.2010 - Georg Atli
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Eins og svo margir þá neyðist ég til að kvarta yfir lélegu tónleika ári, en ég náði samt nokkrum ansi góðum og þeir voru báðir í þessari rosa snjöllu tónleikaröð Manstu ekki eftir mér. Ég sá Megas og Senuþjófana flytja Millilendingu (hann var rosalegur!) og líka Ensími taka Kafbátamúsík það var gaman.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Í ár uppgötvaði ég loksins Beach Boys. Ekki það að ég hafi ekki vitað af þeim eða eitthvað svoleiðis en mér hefur bara aldrei þótt þetta vera neitt sérstaklega skemmtilegt en síðan loksins asnaðist ég til að fara að hlusta á þetta aftur og enn einu sinni og fannst það bara mjög skemmtilegt og Pet Sounds er geðveikt góð plata! Líka Ariel Pink, það voru nokkuð margar hljómsveitir sem sóttu innblástur í Ariel Pink’s Haunted Graffiti á árinu og hann fékk svona uppreisn æru, hann hefur reyndar bara verið að gefa út sólóplötur síðan 2003 þannig að hann telst kannski ekki vera gamalt.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Ég varð nú ekkert fyrir rosalegum vonbrigðum með neitt á þessu ári, nefni kannski helst plötuna með The Temper Trap, ég heyrði lagið Sweet Disposition í fyrra og hélt að það væri enn ein góð Áströlsk hljómsveit að koma en aldeilis ekki platan þeirra var ótrúlega léleg plata…. þetta er eins og nýja dótið frá U2 nema bara miklu lélegra (og mér finnst U2 í dag ekki vera góð hljómsveit).
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Neutral Milk Hotel. Ég er búinn að vera á leiðinni að hlusta á þetta í langan tíma en bara aldrei lagt í það.
5. Hver er bjartasta vonin?
Mér finnst The XX vera rosa efnileg og líka svíarnir í JJ, þau gáfu út tvær plötur í fyrra (JJ nº 1 og JJ nº 2) og í ár ætla þau að gefa út sína þriðju plötu sem að á að heita JJ nº 3. Og svo féll ég alveg fyrir annari plötu Wild Beasts og á eftir að fylgjast spenntur með næstu útgáfum. Ég held líka að hljómsveitin Fanfarlo (mjög Beirut-legt) eigi eftir að gera það ansi gott á næstu árum.
6. Bónusspurning að eigin vali: Hvaða plötum á árinu 2010 ertu spenntastur yfir?
Fullt af góðum plötum að fara að koma út:
Arcade Fire, The Strokes, Massive Attack, Frightened Rabbit, Yeahsayer, The Magnetic Fields, The National, Four Tet, MGMT, Panda Bear, Interpol, Fleet Foxes, Cat Power, Sleigh Bells, The Walkmen og fullt fullt fullt í viðbót
Tags: 2009, arcade fire, Ariel Pink, Árslisti, Beach Boys, Beirut, Cat Power, Ensími, Fanfarlo, Fleet Foxes, Four Tet, Frightened Rabbit, Interpol, JJ, Massive Attack, Megas, MGMT, Neutral Milk Hotel, Panda Bear, Senuþjófarnir, Sleigh Bells, Temper Trap, The Magnetic Fields, The National, The Strokes, The Walkmen, The XX, U2, Uppgjör, Wild Beasts, Yeahsayer
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 lokauppgjör 2009 – Kristín Gróa
22.1.2010 - Kristín Gróa
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Ég verð að segja að árið 2009 var slakasta tónleikaár lífs míns. Það var lítið að gerast í tónleikahaldi hér heima og það voru engar tónlistarhátíðir eða borgarferðir með awesome tónleikum (ahh 2008 ó hvað ég sakna þín). Hvað er þá eftir? Iceland Airwaves auðvitað! Airwaves hefur alltaf verið endalaus uppspretta gleði og hamingju og þó það væri minna af spennandi artistum þetta árið en vanalega þá var samt mikil gleði og unaður. Skemmtilegasta móment Airwaves þetta árið var alveg óvænt Hjaltalín og Páll Óskar í bleiku diskókúlu jakkafötunum að trylla lýðinn í listasafninu. Hvern hefði grunað að það yrði hápunktur tónleikaársins míns?
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
The Jesus Lizard. Hvernig gat ég ekki hafa hlustað á þá áður?
The Jesus Lizard – Monkey Trick
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Ég man satt að segja ekki eftir neinum mega vonbrigðum þetta árið. Ég kveikti aldrei almennilega á Josephine með Magnolia Electric Co. sem voru viss vonbrigði því mér finnst Jason Molina awesome. Kannski þarf ég bara að gefa þessu meiri séns. Svo voru það kannski engin persónuleg vonbrigði fyrir mig en hvað var með Peter Bjorn And John plötuna Living Thing? Hún sökkaði!
Magnolia Electric Co. – Josephine
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Það var margt sem ég trassaði þetta árið en ég held að Veckatimest með Grizzly Bear fá titilinn mesta trass ársins. Ég byrjaði ekki að hlusta á hana fyrr en á Þorláksmessu þrátt fyrir að þetta væri ein umtalaðasta plata ársins! Hún er svo auðvitað góð… mjög góð. Annað sem ég er algjörlega búin að trassa er Logos með Atlas Sound, Psychic Chasms með Neon Indian og jj n° 2 með jj.
Neon Indian – Terminally Chill
5. Hver er bjartasta vonin?
Eins og vanalega var fullt af spennandi nýrri tónlist þetta árið svo það er pínku erfitt að velja á milli. Þar sem platan Post Nothing með Vancouver sveitinni Japandroids er sú debut plata sem náði efst á árslistann minn þá verð ég eiginlega að gefa þeim titilinn bjartasta von ársins. Flestir myndu líklega veðja á The XX og þó þau hafi ekki náð að heilla mig 100% þá held ég að þau eigi rosalega mikið inni enda rosalega ung og miðað við það er platan þeirra alveg mega. Úúú já og Delorean fær líka prik en EP platan hans lofar mjög góðu. Úúú og Smith Westerns sem eru bara 17 og gerðu samt alveg frábæra plötu sem gerir mig glaða í hjartanu.
Smith Westerns – Gimme Some Time
6. Bónusspurning að eigin vali – Hverju sérðu mest eftir að hafa misst af á árinu?
Glastonbury! Ó! Missi líka af á þessu ári! Ó!
Tags: 2009, Airwaves, Airwaves 2009, Árslisti, Atlas Sound, Delorean, Glastonbury, Grizzly Bear, Hjaltalín, Japandroids, Magnolia Electric Co., Neon Indian, Páll Óskar, Peter Bjorn and John, Smith Westerns, The Jesus Lizard, The XX, Uppgjör
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 lög 2009 – Krissa
17.1.2010 - Kristjana
Fyrirfram var ég búin að ákveða að ég gæti ekkert gert þennan lista því ég hefði ekki hlustað á neitt nýtt á síðasta ári. Svo fór ég að rifja aðeins upp og þá kom í ljós að ég er bara kjáni og hafði rangt fyrir mér – ég var með helling af lögum sem voru ‘lög ársins’. Eftir niðurskurð stóðu eftir alveg 15-20 sem ég gat engan veginn valið á milli. Þessi 5 eru semsagt pikkuð úr úrvalinu, kannski ekki endilega bestu lög sem komu út á árinu heldur meira lög sem einkenndu árið mitt
Runners up voru:
Grizzly Bear – While You Wait for the Others og Passion Pit – Sleepyhead hefðu líklega bæði endað á listanum nema vegna þess að ég hlustaði stanslaust á þau haustið 2008…og þau því þ.a.l. ekki 2009 lög fyrir mér.
Brasstronaut – Requiem for a Scene
La Roux – In for the Kill
Phoenix – Lisztomania
YACHT – The Afterlife
The Dodos – This is a Business
Yeah Yeah Yeahs – Heads Will Roll
og lög ársins voru:
5. Gossip – Heavy Cross
“It takes two!”
Kannski meira af soppy sentimental ástæðum en því að þetta sé besta lag ársins. Mögulega.
4. Bombay Bicycle Club – Always Like This
“Try to look proud But you’re not in the slightest It’s happening now And it’s always been like this”
Bassalína ársins og hressleiki extraordinaire sett saman af breskum strákum sem líklega eru rétt að sleppa úr mútum – I like it! Fyrsta sumarlag ársin 2009
3. The Phenomenal Handclap Band – 15 to 20
“You can see that you’re surrounded, so just turn yourself in We ain’t asking again We brought a lot of patience, but it’s all wearing thin”
Úff, það er bara eitthvað við þetta lag, taktinn, kúabjölluna…fæ ekki nóg af þessu.
2. The XX – Heart Skipped a Beat
“Heart skipped a beat And when I caught it you were out of reach”
Svo yfirmáta sexy lag að það nær ekki nokkurri átt. Pínu minimalískt. og letilegur söngurinn er bara of.
1. Sleigh Bells – Crown on the Ground
Taka gítarleikarann úr einhverju metalcore bandi og söngkonu úr girl bandi, blanda vel og sjá hvað kemur út? Sounds good! Pottþétt fáranlega skemmtileg live!
Tags: 2009, Árslisti, Bombay Bicycle Club, Brasstronaut, Gossip, Grizzly Bear, La Roux, Passion Pit, Phoenix, Sleigh Bells, The Dodos, The Phenomenal Handclap Band, The XX, Uppgjör, YACHT, Yeah Yeah Yeahs
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 plötur ársins… nr 1 – Georg Atli
17.1.2010 - Georg Atli
Númer 1… The Antlers með plötuna Hospice
Platan Hospice kom út í ágúst og þegar ég heyrði hana fyrst þá var ég alveg viss um að ég ætti ekki eftir að heyra neitt betra en þetta í ár. Þessi hljómsveit og þessi plata gripu mig alveg strax frá fyrstu tónunum í fyrsta laginu (sem var eiginlega annað lagið þar sem fyrsta lagið er svona intro). Eftir eina hlustun fékk ég alveg sömu tilfinninguna og maður fær stundum þegar eitthvað maður heyrir eitthvað í alveg fyrsta skipti og það er alveg stórkostlegt (eins og fyrst maður heyrði í t.d. Ok Computer með Radiohead), ég held að ég hafi verið með gæsahúð í tvo daga á eftir.
The Antlers var fyrst sólóverkefni manns sem heitir Peter Silberman en varð svo að alvöru hljómsveit rétt áður en átti að taka þessa plötu upp. Sagan á bak við plötuna er sú að Silberman fylgdist með barni úr fjölskyldunni deyja úr krabbameini og lokaði sig af í tæp tvö ár án þess að tala við neinn og samdi bara þessa plötu.
Hospice er Concept plata og öll lögin fjalla um unga stelpu sem deyr úr krabbameini en sagan segir frá þessari stelpu alveg frá því hún er greind og þangað til hún deyr og svo eru eftirmæli (epilogue). En öll lögin eru sungin útfrá þremur mismunandi sjónarhornum, frá stelpunni, frá hjúkrunarfræðingnum sem hugsar um hana og svo virðist vera sagt frá sjónarhorni kærasta.
Mér finnst þessi plata alveg einstök, hún er drungaleg og þung og erfið hlustunnar og sorgleg (það er soldið eins og að hafa verið kýldur í magann þegar hún klárast) en hún er líka einhvern veginn alveg rosalega falleg. Hún rís og fellur á dramatískan hátt og Silberman syngur stundum hátt og lagið verðu drynjandi kröftugt en í næsta lagi (eða bara næsta versi) rétt hvíslar hann í brotinni falsettu þannig að maður fær á tilfinningunni að maður standi við sjúkrarúm og verði að hvísla til að vekja einhvern. Það er einhvern veginn alltaf eins og þeir sem lögin fjalla um séu staddir bara rétt hjá manni.
Örugglega fallegasta plata sem ég hef heyrt en samt falleg á undarlegan og skrítinn hátt. Af því að þetta er Concept plata þá er það kannski ekki rétt að draga eitthvað eitt lag út því þá missir það allt samhengið við plötunna en mér finnst samt lagið Bear standa upp úr alveg frábærri plötu. En ég get samt eiginlega ekki mælt með henni af því það er bara svo erfitt að hlusta á hana!
Lög:
Myndbönd:
The Antlers – Shiva – A Take Away Show from La Blogotheque on Vimeo.
The Antlers – Two / Epilogue – A Take Away Show from La Blogotheque on Vimeo.
Tags: 2009, Árslisti, La Blogothèque, Peter Silberman, Radiohead, The Antlers, Uppgjör
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Topp 5 plötur ársins, númer EITT – Kristín Gróa
15.1.2010 - Kristín Gróa

1. El Perro Del Mar – Love Is Not Pop
Þessi plata fékk aldrei neina sérstaka athygli eða umtal en hún greip mig og á einhvern hátt skipti mig máli. Svona eins og For Emma, Forever Ago skipti mig máli. Þetta er breakup plata með upphafi og endi en það óvenjulega er að hún er frá sjónarhóli þess sem vildi enda sambandið, ekki þess sem situr sár eftir. Þetta er frábær, hnitmiðuð concept plata sem maður fær ekki tækifæri á að fá leið á þar sem hún rétt skríður yfir hálftímann.
Fyrsta lagið, Gotta Get Smart, fjallar um fyrsta skrefið… að segja upphátt að þetta sé búið. I’ve got something to tell you… Don’t wanna make you sad syngur Sarah Assbring með kökk í hálsinum og heldur áfram I gotta get smart and I’m done thinking it over. Þannig hefst það og næsta skref er í laginu Change Of Heart þar sem hún efast og biður um hann aftur en hann hlustar ekki. Svona heldur þetta áfram þar til hún lýkur þessu á A Better Love þar sem hún virðist vera búin að sætta sig við að þetta var það besta og það réttasta í stöðunni…Honey, you deserve better than me… You deserve a better love than me. Ótrúlega hreinskilin plata.
El Perro Del Mar – Heavenly Arms
Tags: 2009, Árslisti, Bon Iver, El Perre Del Mar, Sarah Assbring, Uppgjör
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 plötur ársins… nr 2 – Georg Atli
14.1.2010 - Georg Atli
Númer 2… Bill Callahan með plötuna Sometimes I Wish I Were an Eagle

Bill Callahan er einn af þessum tónlistar mönnum sem virðast ekki geta gefið út lélegar plötur, hann er búinn að vera að gefa út plötur síðan 1992 (þá undir nafninu Smog) og ekki ein einasta plata hefur verið léleg (sumar þeirra eru aðeins minna góðar en samt góðar). Núna er hann farinn að kalla sig sínu rétta nafni og hljómurinn hans er ekki alveg eins og hinn “klassíski” Smog hljómur en eru t´nlistarlega séð líklega rökrætt framhald af meistaraverkinu Supper og A River Ain’t to Much to Love sem voru síðustu tvær plötur Smog. Þessi plata er einhvern veginn bara Supper nr.2 (sem er ansi gott) en samt bara aðeins öðruvísi (ef þið fílið Smog þá fattiði kannski hvað ég er að reyna að segja). Fyrsta lagið á plötunni heitir Jim Cain og mér finnst einvern veginn eins og hann sé að reyna að útskýra (og kannski afsaka) af hverju hann skipti um nafn, og drap Smog, fyrir aðdáendum.
Tónlistinni hans var einusinni líst sem “a one man acoustic Joy Division” í einhverri grein sem ég las. Mér fannst þetta svo góð lýsing að hún límdist við hausinn á mér og ég er bara að hugsa um að reyna að láta hana útskýra allt. Reyndar eru síðustu plöturnar kannski aðeins of tækni tengdar til að teljast acoustic en samt…
Lög:
My Friend
Roccoco Zephyr
Jim Cain
Myndbönd:
Tags: 2009, Árslisti, Bill Callahan, Joy Division, Smog, Uppgjör
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off












