Reykjavík Music Mess kveður Nasa með aukatónleikum

23.5.2012 - Kristjana

Reykjavík Music Mess gleðin eykst með hverjum deginum því nú hefur verið tilkynnt að sérstakir aukatónleikar verði haldnir á Nasa á fimmtudaginn, þann 24. Dikta, Tilbury, Cheek Mountain Thief og Morðingjarnir munu koma fram og tónleikarnir hefjast upp úr kl. 21. Reykjavík Music Mess miði mun veita aðgang en einnig verður hægt að kaupa miða einungis fyrir fimmtudagskvöldið á miði.is og við inngang og er miðaverðu einungis 1.000 kr.

Eins og við höfum áður nefnt munu alls 18 hljómsveitir koma fram á hátíðinni yfir helgina – á Nasa, Kex Hosteli og Faktorý. Meðal þeirra eru Reykjavík!, Benni Hemm Hemm, My Bubba & Mi frá Danmörku, Snorri Helgason og Laura J. Martin frá Englandi. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu hennar www.reykjavikmusicmess.com. Svo er um að gera að minna enn og aftur á að frítt er inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hostel.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess haldin í annað sinn

27.4.2012 - Kristjana

Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí næstkomandi. Hátíðin mun fara fram á Faktorý Bar og Kex Hosteli. Meðal þeirra sem munu koma fram á hátíðinni eru Benni Hemm Hemm, Snorri Helgason, Jarse (FI), My Bubba & Mi (DK), Cheek Mountain Thief (UK/IS), Legend, Úlfur og fleiri. Tilkynnt verður um endanlega dagskrá og uppröðun þann 4. maí.

Reykjavík Music Mess var haldin í fyrsta sinn síðasta vor og komu þá fram meðal annars Deerhunter, Mugison, Lower Dens, Sin Fang og Nive Nielsen.

Miðasala á hátíðina hefst föstudaginn 4. maí og mun hún fara fram á www.midi.is. Frítt verður inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hosteli.

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Lay Low, Benni Hemm Hemm og Prinspóló tilkynna tónleika

8.12.2011 - Kristín Gróa

Tilkomumikill lúðraþytur í bland við lágstemmt þjóðlagapopp hefur verið einkennismerki Benna Hemm Hemm alla tíð og þetta kvöld verður engin breyting þar á. Talið verður jafnt í sígilda slagara sem og nýrra efni.

Lay Low kemur nú fram með hljómsveit en þau hafa verið dugleg að spila víðs vegar um landið í haust. Nýja platan hennar sem kom út nú á dögnum, Brostinn strengur hefur heldur betur fengið góðar viðtökur. Fullt fullt af stjörnum komnar í hús og yfirlýsingar um að þetta sé besta plata Lay Low til þessa. Það getur vel verið, enda var mikið lagt í þessa fyrstu plötu Leiló á íslensku.

Prinspóló gaf í fyrra haust út hljómplötuna Jukk og hafa lög eins og Niðrá Strönd, Hakk & Spaghettí og Skærlitað gúmmulaði límst í huga einhverra. Hljómsveitin hefur verið iðin við tónleikahald á Íslandi og einnig og lagt undir sig nokkur lönd í Evrópu, þar á meðal Pólland. Prinspóló er hugarsmíð Svavars Eysteinssonar frá Breiðholti og með honum leikur hin konunglega hirð.

Faktorý
Föstudaginn 9. desember
Húsið opnar 21:30
Tónleikar hefjast kl 22
1000 krónur

Tags: , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Nýtt myndband frá Benna Hemm Hemm!

18.11.2011 - Georg Atli

Klukkan er 15:00! Hér er nýja myndbandið sem var búið að lofa!! Það er næs! Lesið meira um það hér!!!

Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Nýtt myndband frá Næsaranum

18.11.2011 - Georg Atli

- Við lag Benna Hemm Hemm, FF ekki CC-

Í dag, 18. nóvember 2011, kl. 15 á íslenskum staðartíma verður nýtt myndband frumsýnt víðsvegar um internetið. Myndband þetta er í leikstjórn Næsarans og er við lagið FF ekki CC eftir Benna Hemm Hemm af hin stórgóðu Skot (er kom út í fyrra á vegum Kimi Records). Platan kom nýverið út á erlendum mörkuðum sem og sjötomma með viðkomandi lagi. Á bakhlið sjötommunnar er að finna stórgóða endurgerð FM Belfast á sama lagi. Eins er bakhlið á umslaginu endurgerð af FM Belfast sömuleiðis.

Um Næsarann:

Næsarinn er hópur sem settur var saman þegar Spaugsstofan var tekin af dagskrá RÚV. Nú er Spaugsstofan á Stöð 2. Næsarnir eru: Árni Vilhjálmsson, Máni Sigfússon, Sindri Már Sigfússon, Örvar Þóreyjarson Smárason og fleiri.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Nýtt myndband frá FM Belfast

18.11.2011 - Georg Atli

FM Belfast voru að senda frá sér myndband við lagið Vertigo. Máni M. Sigfússon leikstýrir en hann virðist vera aðalmaðurinn í þeim bransa þessa dagana, en auk FM Belfast hefur hann nýlega gert myndbönd fyrir Sin Fang, Sóley, Snorra Helga og Benna Hemm Hemm.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Kaffi, Kökur og Rokk og Ról!!

27.10.2011 - Georg Atli

Einhverra hluta vegna virðist það hafa farið framhjá mörgum að það er alveg gríðarlega skemmtileg tónleikaröð er í fullum gangi. Á (næstum) hverjum þriðjudegi síðan í byrjun september hefur Arnar Eggert Thoroddsen haft yfirumsjón með Kaffi, kökum og rokki og róli og fengið stórann hóp af skemmtilegustu hljómsveitum íslands til að spila saman.

Tónleikaformið er aðeins öðruvísi en gengur og gerist því húsið opnar kl. 20:00, tónleikarnir byrja svo hálftíma seinna og eru búnir um kl. 22:00. Já og það kostar bara 500 kall inn OG það eru kökur og kaffi! og allt áfengislaust að sjálfsögðu. Þriðja hvern þriðjudag er svo UNG SÁÁ með dagskrá.

Ég er búinn að ná að mæta tvisvar og sjá Agent Fresco og Mammút og síðan Retro Stefson og NOLO og í bæði skiptinn hefur verið frábær skemmtun. Það er einhvern veginn allt miklu afslappaðra á þessum kvöldum, salurinn er í minni kanntinum, hljóðið fínt og stemningin hefur verið mjög innileg og þægileg. Ég mæli hiklaust með þessu!

Hingað til hafa eftirfarandi bönd mætt og leikið listir sínar:
Benni Hemm Hemm + Prinspóló, Saktmóðigur + Hellvar, Agent Fresco + Mammút, Sóley + Samaris, Snorri Helga + Hermigervill.

Í gær voru svo Retro Stefson og NOLO að spila þar sem NOLO spiluði lög af væntanlegri plötu og Retro Stefson sýndi það og sannaði að það er enginn (í heiminum!?) betri í því að byrja partý en þau, þegar að þau fengu fullt af ófullu fólki til að dansa eins og enginn væri morgundagurinn auk þess að standa og sitja nákvæmlega eins og Retro-liðar sögðu til um og mér skilst að það sé ekkert svo auðvelt.

Næsta þriðjudag verða svo svakalegir rokktónleikar þegar að Reykjavík! og Hljómsveitin Ég mæta í Edrúhöllina (Efstaleiti 7) og ég ætla að halda því fram að það megi enginn missa af því.

Það sem eftirlifir vetri lýtur dagskráin þannig út:
8. nóv: UNG SÁÁ með dagskrá
15. nóv: Ekki Búið að Tilkynna (EBT)
22. nóv: Lára + Rúnar Þórisson
29. nóv: EBT
6. des: UNG SÁÁ með dagskrá
13. des: SKÁLMÖLD + Angist
20. des: Lay Low + gestir
27. des: Mugison + Jónas Sig

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Kvikmyndatónleikar RIFF!

1.9.2011 - Georg Atli

Fréttatilkynning frá RIFF:

*Kvikmyndatónleikar RIFF 2011 haldnir í Fríkirkjunni.

*Skúli Sverrissson leikur lifandi tónlist undir sýningu When It Was Blue

*Sóley leikur ennfremur tónlist af væntanlegri breiðskífu

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður jafnan til kvikmyndatónleika meðan á hátíð stendur, og hafa ýmsir af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar leikið lifandi tónlist meðan á sýningu kvikmyndar stendur. Meðal þeirra sem þegar hafa spilað á kvikmyndatónleikum RIFF eru Hjaltalín, Benni Hemm Hemm og nú síðast Kría Brekkan árið 2010. Í ár mun Skúli Sverrisson taka slaginn í Fríkirkjunni og Sóley Stefánsdóttir, oft kennd við hljómsveitina Seabear, mun einnig koma fram.

Skúli Sverrisson flytur tónlist undir sýningu myndarinnar When It Was Blue eftir Jennifer Reeves (2008). Myndin er óður til þeirrar óspilltu náttúru sem er alls staðar á undanhaldi. Fegurð svæðanna er dregin fram með myndefni frá Íslandi, Nýja-Sjálandi, Vancouver, Nevada og víðar, og hefur Reeves þar að auki málað beint á filmuna.

Skúli hefur um árabil verið í hópi okkar fremstu bassaleikara. Hin seinni ár hefur hann unnið náið með listamönnum á borð við Ólöfu Arnalds, Ghostigital, hljómsveitinni Blonde Redhead og Laurie Anderson. Plötur hans, Sería (2006) og Sería II (2010) hafa heillað gagnrýnendur jafnt sem hlustendur upp úr skónum. Auk Skúla kemur Sóley Stefánsdóttir fram á tónleikunum en hún leikur efni af væntanlegri plötu sinni, We Sink, undir eigin myndefni. Tónlist Sóleyjar er að mestu drifin áfram af píanói, oft mörgum píanólínum sem fléttað er saman, og er tónlistin á köflum dökk og draumkennd. Sóley er meðlimur hljómsveitarinnar Seabear og leikur auk þess á hljómborð með Sin Fang.

Það er aðstandendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátiðar sérstök ánægja að geta haldið kvikmyndatónleikana í Fríkirkjunni, og fara þeir fram miðvikudaginn 28.september. Forsala miða er hafin á vef Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, www.riff.is

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Ný tónleikaröð í haust: Kaffi, kökur & rokk & ról

30.8.2011 - Kristjana

Þriðjudaginn 6. september hefst ný og spennandi tónleikaröð. Dagskrárstjóri verður Arnar Eggert Thoroddsen sem segist vilja “búa til tónleikaröð sem snýst um tónleika, eins barnalega og það hljómar”. Mér finnst það hljóma vel! Með Kaffi, kökur & rokk & ról vilja aðstandendur raðarinnar brjóta upp hið hefðbundna tónleikaform. Tónleikarnir verða því á hverju þriðjudagskvöldi. Húsið opnar 20:00, tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:30 og klárast fyrir 22:00. Aðgangseyrir verður aðeins 500 kr á hvert kvöld og innifalið er kaffi og nýbakaðar kökur eins og fólk getur í sig látið.

Margir skemmtilegustu og áhugaverðustu tónlistarmenn landsins munu koma fram á þessum sælkeratónleikum – þar sem meiningin er að tónlistaráhugamenn geti mætt, í upphafi viku, og notið tónlistarinnar. Benni Hemm Hemm og Prins Póló ríða á vaðið þann 6. september. Í haust munu svo t.d. Mugison, Jónas Sig, Agent Fresco, Lára, Skálmöld og Samúel Jón Samúelsson Big Band koma fram – ásamt fjölmörgum öðrum.

Kaffi, kökur & rokk & ról mun eiga samastað í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, einnig þekkt sem Vonarhús SÁÁ, og munu aliir tónleikar fara þar fram. Nóg verður því af kökum og kaffið mun flæða, en annað ekki – enda tónlistin í fyrirrúmi.

Semsagt: Benni Hemm Hemm og Prins Póló þann 6. í Efstaleiti 7 kl. 20:00. Fylgist svo með á næstunni fyrir frekari upplýsingar um næstu þriðjudagskvöld.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Benni Hemm Hemm heldur tónleika

17.8.2011 - Kristín Gróa

Benni Hemm Hemm ætlar að halda sína fyrstu tónleika á Íslandi á þessu ári miðvikudagskvöldið17. ágúst. Þeir munu fara fram á Faktorý Bar og hefjast kl. 22.

Benni Hemm Hemm er nýlega fluttur aftur til Íslands eftir langa dvöl í Skotlandi og er búinn að ræsa út hljómsveitina, æfa upp gamla og nýja slagara, auk skoskra þjóðlaga og íslenskra ábreiðulaga. Markús & The Diversion Sessions mun einnig koma fram á tónleikunum en þeir eru í svakalegu formi þessa dagana, en skemmst er að minnast frábærrar frammistöðu þeirra á Innipúkanum um Verslunarmannahelgina.

Það verður gaman, kósí, stuð og stemmning á Faktorý á miðvikudagskvöldið. Húsið opnar kl. 21 en Markús hefur leik kl. 22 og Benni Hemm Hemm stígur á stokk rúmum hálftíma síðar. Miðaverð er aðeins 1.000 kr. og verða miðar aðeins seldir við hurð.

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Tilkynning | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

June  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin