Airwaves artistar (síðustu) vikunnar

4.10.2010 - Kristjana

Ég er auðvitað allt of sein með Airwaves artista vikunnar (fyrir síðustu viku) en þeir náðust ekki inn sökum óviðráðanlegra aðstæðna (lesist: surprise afmæli og failed Glastonbury miðakaupa). En ég er svo ótrúlega spennt fyrir þessu að ég ætla bara samt að fá að troða þessu inn.

Íslenski Airwaves listamaður (síðustu) vikunnar er Lára Rúnarsdóttir. Ef ég-fyrir-5-árum væri að lesa þetta yrði uppskeran hristur haus og vantrú. Ég nefnilega sá Láru nokkrum sinnum hita upp fyrir hina og þessa fyrir nokkrum árum og fannst nákvæmlega ekkert varið í tónlistina hennar. Ekkert. Eins leiðinlegt og það nú er. Þess vegna bjóst ég ekki við miklu í fyrra þegar ég heyrði að það væri að koma plata frá henni. En svo heyrði ég lögin og varð ótrúlega hissa. Popp. Gott popp! Gott popp er gott!

Ég viðurkenni því fúslega að ég syng með, dilla mér og boppa hausnum með lögunum hennar – sem svo festast í hausnum á mér næstu dagana og ég er því dæmd til að söngla þau stanslaust. Flott gott.

Hægt verður að sjá Láru hér og þar og allstaðar á Airwaves m.v. dagskrána:
MiðvikudagurNasa – kl: 20:00
FimmtudagurEymundsson, Skólavörðustíg – kl: 16:30 (off-venue)
FöstudagurMál og Menning, Laugavegi – kl: 19:00 (off-venue)
FöstudagurIðnó – kl: 21:40

Erlenda Airwaves hljómsveit (síðustu) vikunnar er svo kanadísk, frá Montréal, og er ein af þeim sem ég er spenntust fyrir að sjá. Think About Life byrjaði sem tvegga manna verkefni trommarans Matt Shane og hljómborðsleikarans Graham Van Pelt árið 2005. Þriðji meðlimurinn, söngvarinn Martin Cesar, bættist svo fljótt við.

Matt og Graham fluttu inn í loft apartment með fleiri tónlistarmönnum (hljómar þetta nokkkuð eins og steríótýpísk frásögn af hljómsveit?) og tóku þar upp fyrstu lög hljómsveitarinnar. Í lok 2005 byrjuðu Think About Life að túra – komu fram í Kanada, Bandaríkjunum og Japan og hituðu upp fyrir Wolf Parade og Art Brut.

Fyrsta plata Think About Life, samnefnd hljómsveitinni, kom út 2006 og Family, önnur platan, vorið 2009. Stuttu síðar bættist fjórði meðlimur hljómsveitarinnar, söngkonan og bassaleikarinn Caila Thompson-Hannant, við auk þess sem Matt Shane hætti og Greg Napier kom í staðinn. Síðan platan kom út hefur Think About Life m.a. túrað með Ratatat, Stars og You Say Party! We Say Die!

Ég ætla að skella ‘gott indípopprokk’ stimplinum á þau og spá ofurhressu eðaldilli á Nasa um miðnætti á föstudag. Væri kannski gaman að fylgjast með Caila í myndbandinu hér að neðan og ná dansmúvunum, þau eru svakaleg…sérstaklega þegar þau taka Beyoncé move-ið úr Single Ladies videoinu. Gott gott.

Think About Life – Havin’ My Baby [mp3]

Sidenote: Graham Van Pelt er með side project sem hann kallar Miracle Fortress. Van Pelt er aðalmaðurinn en hinir og þessir koma fram með honum live, m.a. Caila (úr Think About Life) og Jordan Robson-Cramer, trommari Sunset Rubdown. Miracle Fortress verður á Hressó á laugardeginum, ásamt Think About Life o.fl., á ‘Canadian Blast’ off-venue event. Eitt risastórt like á það. Sérstaklega því það gerir mér kleift að sjá Diamond Rings og Basia Bulat, sem ég myndi líklega missa af annars.

Think About Life verða á Nasa á föstudagskvöldinu og eiga að byrja kl: 00:10. Canadian Blast á Hressó (Timber Timbre, Diamond Rings, Snailhouse, Basia Bulat, Miracle Fortress og Think About Life) byrjar 15:00 á laugardegi og eiga Think About Life að byrja kl: 19:10 skv. off-venue dagskránni.

Svo er bara um að gera að tékka á þessu á clashfindernum og sjá hvernig þetta passar inn í planið :)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Topp 5 vildaðkæmutilíslands

26.3.2010 - Erla Þóra

5. Queen


Já allt í lagi, þetta eru smá draumórar í mér. Og náttúrulega ekki að fara að gerast. En hafið þið séð Freddie Mercury á sviði?! Eðal.

Queen – Bohemian Rhapsody (Live at Wembley 1986)

4. Arcade Fire


Já takk! Ég vil endurtaka nákvæmlega þessa 2007 gleði aftur (og preferably í þetta sinn ekki knee deep í drullu)

Arcade Fire – Wake Up (Live at Glastonbury 2007)

3. Beyonce


Hún er með svo mikið “show”. Er alveg killer á sviði blessunin.. eða svo segir YouTube mér allavega.

Beyonce – Single Ladies (Live 2009)

2. Radiohead


Ég get ímyndað mér að það sé ansi mikið upplifelsi að vera á Radiohead tónleikum (sjá link hér að neðan).

Radiohead – Paranoid Android (Live 2008)

1. Tom Waits


Tom Waits – Jersey Girl (Live 1986)

Ó hvað ég væri til í að kallinn skellti sér á klakann. Og tónleikarnir yrðu að vera í litlum sal. Fullkomið.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Cover dagsins

16.2.2010 - Georg Atli

Af því að ég það er orðið ansi langt síðan að ég setti inn coverlagafærslu þá ætla ég að deila þessari snilld með ykkur…

Beyonce gaf út plötuna I Am…. Sascha Fierce í fyrra á þeirri plötu var þetta afbragðs fína hip-pop lag Halo.

Sama ár gaf erki töffarinn Major Lazer (sem er hliðarsjálf snillingana Diplo og Switch) plötuna Guns Don’t Kill People…. Lazers Do! og svo í ár gerði hann cover af þessu lag og mér finnst það ennþá betra!

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 1 athugasemd »

Topp 5 uppgjör – Rósa Guðrún

22.1.2010 - Rósa Guðrún

Nýliða Topp 5 – Uppgjör 2009 – Rósa Guðrún

1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Ég fór nú ekki á ýkja marga tónleika á síðasta ári. Það eru kannski tvennir tónleikar sem standa uppúr þó. Aðrir tónleikar voru föstudagskvöldið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni. Það var nokkurskonar upphitunarkvöld fyrir laugardagskvöldið en þá var ég farin úr plássinu. Það sem var skemmtilegast á þessum tónleikum voru prýðispiltarnir í Árstíðum og síðan Jónas Sig., einnig stóðu piltarnir í BSig (núna Monotown) sig vel. Stemmning var mjög góð smitaði það frá sér í spilamennskunni.Hinir tónleikarnir voru tónleikar Nico Muhly á Airwaves tónlistarhátíðinni. Hann er nútíma tónskáld sem spilaði einn á flygil í Iðnó og var með smá elektróník með sér. Með honum spilaði og söng pilturinn Helgi Valur sem heillaði alla uppúr skónum með sínum fagra söng upp í hæstu hæðir og með fínu básúnuspili. Alveg hreint frábærir tónleikar sem komu skemmtilega á óvart.

2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?

Anita O’day er jazzsöngkona af gamla skólanum sem ég kolféll alveg fyrir á síðasta ári þökk sé tónlistarsafni Borgarbókasafnsins. Hún er hreint út sagt dásamleg og slær ekki slöku við drotningunni Ellu Fitz.
Set inn link á eitt sem nú allir þekkja:

3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?

Veit nú ekki hvort maður má tala svona. En jú það sem olli mér vonbrigðum á árinu var einna helst Hafdís Huld. Hafði einhvern veginn alltaf haft pínu væntingar til þessarar stelpu, þó ég hafi aldrei sérstaklega fylgst með henni. Vorkenndi henni alltaf líka smá í kringum Gus Gus rifrildið á sínum tíma. Hún hafði yfirleitt fengið góða dóma fyrir það sem hún var að gera og sérstaklega þá barnaplötuna sína Englar í Ullars0kkum. En þegar hún gaf út þessa leiðinlegu plötu á síðasta ári verð ég að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Hún hefur ágætis rödd, þó hún sé ekkert besta söngkonan, en lagasmíðarnar fundust mér ekki skemmtilegar og frekar barnalegar (og þetta á ekki að vera barnaplata) og textarnir þeim mun hallærislegri. Get heldur ekki lýst því hversu mikið ógeð ég var búin að fá á Kónguló. En hún fékk góða umfjöllun í fjölmiðlum og ágætisspilun svo það eru eflaust einhverjir ekki á sama máli. En þetta er nú barasta mín skoðun og eins gott að mennirnir séu ekki allir eins.

4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?

Var alltaf á leiðinni að tékka á Bon Iver. Hafði alltaf heyrt Skinny Love í bílnum á leiðinni hingað og þangað og söng alltaf hástöfum með. Elska svona einfaldar lagasmíðar sem virka svona hrikalega vel.


5. Hver er bjartasta vonin?

Hef ekki hugmynd um hver gæti verið bjartasta vonin. Dettur helst í hug smástráka hljómsveitina Sykur sem eru að koma sterkir inn á Íslandi allavega. Hafa hlotið gríðarlegar vinsældir á síðustu mánuðum. Hef ekki séð þá sjálf en kannski maður skellir sér til að vera hipp og kúl eins og hinir einhvert kvöldið ;)


6. Bónusspurning að eigin vali – Hverja viltu helst sjá á tónleikum 2010?

Held ég gæfi æru mína til að sjá Beyoncé á tónleikum shiiiiisck!!!!! Það yrðu án efa bestu tónleikar í HEIMI!!!! Hún er alveg ótrúleg :) …..og svo eru tútturnar með henni alveg fáránlega töff :) Ég meina gella sem getur dansað sungið og hlaupið um í 2 tíma á 15cm hælum á skilið Nóbelsverðlaun!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar, Rósa Guðrún | 2 athugasemdir »

Topp 5 lög ársins 2008 – Kristín Gróa

19.12.2008 - Kristín Gróa

Ókei ókei þetta er topp 5 en byrjum á 10 runners upp í engri sérstakri röð:

Sébastien Tellier – Divine
Vampire Weekend – Cape Cod Kwassa Kwassa
Beck – Gamma Ray
Fleet Foxes – White Winter Hymnal
Beyoncé – Single Ladies (Put A Ring On It)
Goldfrapp – A&E
Neon Neon – I Lust You (feat. Cate Lebon)
Wolf Parade – California Dreamer
Hercules & Love Affair Blind (feat. Antony Hegarty)
FM Belfast – Par Avion


5. Lykke Li – Dance, Dance, Dance af Youth Novels

Easy conversations, there’s no such thing
No I’m shy, shy, shy
My hips they lie ’cause in reality
I am shy, shy, shy

Þetta er eitt af þessum lögum sem ég elska að setja á þegar ég er ein heima með hvítvínsglas í hendi að finna mig til fyrir skemmtilegt kvöld. I was a dancer all along…


4. Sigur Rós – Inní mér syngur vitleysingur
af Með suð í eyrum við spilum endalaust

Ég er nýbúin að setja þetta lag á lagatitlalista en fyrir utan frábæran titil þá bara vá þetta er svo svakalega magnað lag. Ég held að ég hafi aldrei fílað Sigur Rósar lag svona rosalega… úffpúff.


3. The Walkmen – In The New Year af You & Me

Ég skal viðurkenna að ég hef ekki enn hlustað á þessa plötu í heild sinni því ég er búin að vera í plötukaupabanni en þetta lag hefur dugað mér alveg hreint ágætlega hingað til. Það er í augnablikinu mest spilaða lag í tónlistarsafninu mínu (ok sem núllstillist reyndar reglulega því iTunes er fucked en samt!).


2. MGMT – Time To Pretend af Oracular Spectacular

I’m feeling rough
I’m feeling raw
I’m in the prime of my life

Þetta átti svo vel við í ár að ég á bolinn.


1. The Dodos – Jodi af Visiter

Allt árið hefur ekkert lag hreyft jafn mikið við mér og þetta lag. Það eru svo mörg snilldarmóment hérna sem valda því að maginn tekur kipp og hoppar upp um 2 sentimetra að ég er alltaf í hálfgerðu uppnámi eftir að hlusta á það. Hvernig þeir geta spilað svona hratt og ákaft veit ekki… og samt er lagið ekkert hratt! Kreisí shit!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 myndbönd – Kristín Gróa

13.12.2008 - Kristín Gróa

5. Beyoncé – Single Ladies (Put A Ring On It)

Kannski ekki eitt besta myndband allra tíma en það er samt f*****g awesome og í mestu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Þessar mjaðmir! Ég dáleiðist við að horfa á hana…

Sjá hér!

4. Paul Simon – You Can Call Me Al

Lágvaxnasti maður poppsögunnar hittir hávaxnasta mann kvikmyndasögunnar og þeir bregða á leik. Bleika herbergið, Chevy Chase að mæma lagið og þessi absúrd stærðarmunur gera þetta að mjög eftirminnilegu myndbandi.

3. Peter Gabriel – Sledgehammer

Ótrúlega skemmtilegt myndband sem var mér skringilega ofarlega í huga við gerð þessa lista miðað við að ég hafði ekki séð það í mörg mörg ár.

2. Radiohead – Just

Hvað segir maðurinn í lokin?

1. Sigur Rós – Untitled 1 (Vaka)

Það er eiginlega ekki nokkur leið að velja eitt myndband frá Sigur Rós framyfir annað en þetta er ansi áhrifaríkt og fær því toppsætið.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 4 athugasemdir »

Topp 5 R&B – Kristín Gróa

12.10.2007 - Kristín Gróa

Það var ég sem stakk upp á þessum lista í einhverju stundarbrjálæði en svo lenti ég í bölvuðu veseni með hann. Þegar ég heyri “R&B” þá hugsa ég um MTV tónlist þar sem sætar stelpur syngja og hrista á sér rassinn og ljótir gaurar rappa eitthvað rugl á milli. Þegar ég fór að hugsa um listann þá lenti ég hins vegar í miklum vandræðum með að skilgreina R&B því þetta er svo vítt hugtak. Það er í raun hægt að flokka allt frá Ray Charles yfir í R. Kelly sem R&B en ég er að spá í að halda mig við nýlega tónlist.

5. Mary J. Blige – Family Affair

Þetta lag minnir mig alltaf á veturinn sem ég leigði með Berglindi vinkonu í Kópavoginum. Þetta var annað árið mitt í háskólanum (sem gerir þetta veturinn… uhh… 2001/2002) og við gerðum fátt annað en að horfa á sjónvarpið. Þá var þetta lag einmitt gríðarlega vinsælt og var spilað á repeat á PoppTíví og ég varð húkt.

4. Kelis – Milkshake

Kelis er svo töff. Það er í raun sama hvort maður tekur eitthvað gamalt eins og Caught Out There eða eitthvað nýlegt eins og hið frábæra Bossy, hún er alltaf með hlutina á hreinu. Lagið Young Fresh And New er reyndar alltaf í uppáhaldi hjá mér en þar sem ég er nýbúin að setja það á lista og þetta er alveg jafn flott þá fær það sætið í þetta sinn.

3. Erykah Badu – On & On

Mér hefur alltaf fundist Erykah Badu koma frá annari plánetu. Það er sko ekki tilviljun að hún var látin leika vúdúdrottningu í Blues Brothers 2000 oseiseinei. Maður hefur svo sem ekki heyrt mikið frá henni síðustu ár og það síðasta sem ég man um að hafa lesið um hana var að hún væri að hætta með André 3000. Nota bene þá eru nokkur ár síðan og ég man hvað mér fannst skrítið að þau væru fyrrverandi par því ég var alveg sannfærð um að hún væri bara geimvera og full af grænu slími að innan. Lagið er samt flott!

2. Beyoncé ft. Jay-Z – Crazy In Love

Ef einhver er fierce þá er það Beyoncé. Hún er geðveikislega sæt og flott, syngur fáránlega vel og lítur út fyrir að geta kýlt mann kaldan. Það sem meira er að þó hún hristi á sér rassinn eins og hinar stelpurnar þá gerir hún það á þann hátt að það fer ekki framhjá neinum hver er við stjórnina. Mér finnst hún vera einskonar Tina Turner nútímans… a force to be reckoned with. Ég held svei mér þá að þetta lag hafi snúið mér aftur til poppsins, þ.e. að geta viðurkennt að popptónlist er ekki alltaf drasl heldur getur hún stundum verið merkilegri tónlist en margt af indírokkinu sem á vanalega hug minn allan.

1. Amy Winehouse – Back To Black

Ekki veit ég hvernig lestarslysinu sem er Amy Winehouse tókst að gera þessa mögnuðu plötu eða hvernig þessi rödd getur komið úr þessum litla líkama. Það er eins og platan, og þá sérstaklega þetta lag, komi frá löngu liðinni tíð enda hljómurinn einhvernveginn gamall. Það eru ekki allir hrifnir af Mark Ronson en þetta gerði hann þó allavega vel og saman hafa þau náð þessum gamla R&B/soul hljómi. Ég hef örugglega spilað þetta lag oftar en nokkuð annað lag þetta árið.

Tags: , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin