Topp 5 ártöl – Kristín Gróa

4.11.2011 - Kristín Gróa

Það er hægt að leika sér mikið með ártalaþemað en ég ákvað að nota árin sem nánustu fjölskyldumeðlimir eru fæddir, bara svona af því bara. Fyrstur er pabbi, svo mamma og svo bræður mínir þrír. Bónuslagið kemur frá árinu sem ég fæddist.

Billie Holiday – Strange Fruit (1939)

Áhrifamesta lag Billie Holiday, Strange Fruit, kom fyrst út árið 1939. Þetta lag er alltaf jafn óhugnanlegt og áhrifin minnka ekkert með endurtekinni hlustun.

Bing Crosby – White Christmas (1942)

Mér þykir fyrir því að skella á ykkur jólalagi í upphafi nóvember en það er eiginlega ekki hægt að horfa framhjá því að lagið White Christmas var eitt vinsælasta lag ársins 1942 og hefur fest sig í sessi sem eitt þekktasta jólalag allra tíma.

The Beatles – Thank You Girl (1963)

Elsti bróðir minn fær Bítlalag á sínu ári enda kynnti hann mig fyrir Bítlunum sem varð til þess að ég fór að hlusta á almennilega tónlist. Maður getur þróast fullkomnlega með Bítlunum, byrjað á einhverju catchy og barnalegu eins og She Loves You og endað í einhverju frekar súru og spennandi.

Bob Dylan – Tombstone Blues (1965)

Bob Dylan gaf út tvær plötur árið 1965, fyrst Bringing It All Back Home í mars og svo Highway 61 Revisited í ágúst. Það eitt og sér er algjörlega mindblowing.

Buffalo Springfield – Broken Arrow (1967)

Lag ársins 1967 kemur af hinni stórmerkilegu plötu Buffalo Springfield Again sem kom út þetta ár. Já þetta var mín leið til að koma Neil Young lagi á listann. Maður verður að hafa alla anga úti!

Bónus: Psychedelic Furs – Pretty In Pink (1981)

Bara svona af því ég er svo pretty in pink!

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 orðabók – Kristín Gróa

14.8.2009 - Kristín Gróa

Vegna þess að ég hafði ekki íslenska orðabók tiltæka þegar listinn var gerður þá fékk ég random orð frá dictionary.com.

tender –adjective

1. soft or delicate in substance; not hard or tough: a tender steak.
2. weak or delicate in constitution; not strong or hardy.
3. (of plants) unable to withstand freezing temperatures.
4. young or immature: children of tender age.
5. delicate or soft in quality: tender blue.
6. delicate, soft, or gentle: the tender touch of her hand.
7. easily moved to sympathy or compassion; kind: a tender heart.
8. affectionate or loving; sentimental or amatory: a tender glance.
9. considerate or careful; chary or reluctant (usually fol. by of).
10. acutely or painfully sensitive: a tender bruise.
11. easily distressed; readily made uneasy: a tender conscience.
12. yielding readily to force or pressure; easily broken; fragile.
13. of a delicate or ticklish nature; requiring careful or tactful handling: a tender subject.


5. Billie Holiday – Tenderly

Lady Day syngur ljúft lag.


4. Handsome Furs – Legal Tender

Dan Boeckner og konan hans Alexei Perry mynda hljómsveitina Handsome Furs og þetta er upphafslag plötunnar Face Control sem kom út fyrr á árinu.


3. Chromeo – Tenderoni

Chromeo eru alltaf hressir.


2. Otis Redding – Try A Little Tenderness

Þetta lag hefur verið tekið upp í ótal útgáfum en þessi þykir yfirleitt vera með þeim best heppnuðu. Backup bandið hans hérna eru engir aðrir en Booker T. & the MG’s!


1. Elvis Presly – Love Me Tender

Þetta finnst mér alltaf jafn fallegt.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 live lög

14.11.2008 - Kristín Gróa

Það er gamalt og klassískt í þetta sinn hjá mér…


5. Cheap Trick – I Want You To Want Me (Live At Budokan 1978)

Cheap Trick voru brjálæðislega vinsælir í Japan (eins og má heyra af skrækjunum!) og tóku þessa plötu upp í Budokan áður en þeir náðu vinsældum á heimsvísu. Platan varð svo megahittari og gerði þá að stjörnum… þeir hafa nú reyndar ekki enst vel með tímanum en mér finnst þetta lag brjálæðislega skemmtilegt.


4. Billie Holiday – Lover Man (Oh Where Can You Be?)

Ég hef verið að hlusta mjög mikið á Billie Holiday upp á síðkastið eftir langt hlé. Ég vel þetta lag nokkurnveginn af handahófi því úr nógu góðu er að velja hjá henni og ekki veit ég hvar eða hvenær þetta er tekið upp… en live er það og það dugar.


3. Neil Young & Crazy Horse – Down By The River (Live At The Fillmore East 1970)

Ég get alveg sagt ykkur það strax að ef þið eruð ekki fyrir Neil Young gítarsóló þá getið þið alveg eins sleppt því að hlusta á þetta lag. Neil Young gítarsóló eru hins vegar nánast einu gítarsólóin sem ég meika yfirhöfuð svo ég fæ alveg gæsahúð og verki og þessar rúmu tólf mínútur fljúga hjá.


2. Johnny Cash – Folsom Prison Blues (Live At Folsom Prison 1968)

Hello, I’m Johnny Cash… úff þessi rödd! Besta opnunarlína lags ever?


1. Bob Dylan – Like A Rolling Stone (Live At The Free Trade Hall, Manchester 1966)

Sögulega auðvitað mjög merkilegur performans enda löngu orðið frægt þegar einn æstur áhorfandi hrópar “Judas!” í upphafi lagsins og allir klappa. Merkilegast er auðvitað að Dylan lætur þetta ekkert á sig fá heldur gjörsamlega hrækir laginu út úr sér af þvílíkum krafti. Rafmagnað!

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 peningalög – Erla Þóra

26.9.2008 - Erla Þóra

5. The Flying Lizards – Money (That’s what I want)

Skondin notkun á laginu í Empire Records.

4. Donna Summer – She works hard for the money

She works hard for the money,
so you better treat her right.

Rosa girl power í gangi hérna!

3. Notorious B.I.G. – Mo’ Money, Mo’ Problems.



Its like the more money we come across
The more problems we see

Það hefur sannað sig að meiri peningum fylgja bara meiri vandamál.

2. Billie Holiday – God bless the child

Money, you’ve got lots of friends,
crowding round the door.
When you’re gone, spending ends,
They don’t come no more.

Afskaplega fallegt lag um peninga.

1. The Beatles – Can’t buy me love



Tell me that you want the kind of things,
that money just can’t buy.

Æðislegt lag sem hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég var krakki. Ennþá æðislegra er lagið í þessu atriði úr A Hard Day’s Night myndinni, þeir eru bara svo fyndnir! “Sorry we hurt your field mister”. Skylduáhorf að horfa allavega frá 1:48-1:52.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | 3 athugasemdir »

Topp 5 mótmælalög

20.4.2007 - Kristín Gróa

1. Billie Holiday – Strange Fruit
Southern trees bear strange fruit
Blood on the leaves and blood at the root
Black bodies swinging in the southern breeze
Strange fruit hanging from the poplar trees

Ég sver að ég fæ hroll í hvert skipti sem ég heyri þetta lag. Þarna er að verið að syngja um “lynching”, þ.e. þegar svartir menn voru hengdir og jafnvel brenndir.

2. Sam Cooke – A Change Is Gonna Come
It’s been a long, a long time coming
But I know a change gonna come

Aftur er verið að syngja um kynþáttaofsóknir í Bandaríkjunum. Þetta lag er svo tregafullt en um leið fullt af von um betri tíð og Sam Cooke syngur það ótrúlega fallega.

3. Bob Dylan – The Times They Are A-Changing
Come senators, congressmen
Please heed the call
Don’t stand in the doorway
Don’t block up the hall

Það er úr nógu að velja þegar kemur að mótmælalögum Dylans og þetta er kannski meira svona “call to arms” lag heldur en bein mótmæli. Ég lít samt á þetta sem mótmæli gegn eldri kynslóðinni á þessum tíma og tregðu þeirra til að breytast og aðlagast breyttum heimi.

4. Neil Young – Ohio
Tin soldiers and Nixon coming
We’re finally on our own
This summer I hear the drumming
Four dead in Ohio

Fjallar um það þegar fjórir nemendur létust eftir að hafa verið skotnir af lögreglunni á mótmælum gegn innrás Bandaríkjahers inn í Kambódíu. Þetta lag spilaði Neil Young upphaflega með CSN&Y en það var samið og sungið af honum sjálfum svo ég eigna honum það bara. Hér er það í frábærri live útgáfu af Live At Massey Hall 1971.

5. The Specials – Ghost Town

Government leaving the youth on the shelf
This place, is coming like a ghost town
No job to be found in this country

Hérna var verið að mótmæla miklu atvinnuleysi á stærstu iðnaðarsvæðunum í mið- og norður Englandi í stjórnartíð Margaret Thatcher. The Specials komu frá Coventry þar sem atvinnuleysið fór yfir 20% á þessum tíma.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin