Topp 5 NSFW – Georg Atli

27.5.2011 - Georg Atli

Af því að við gerðum einu sinni lista með ósmakklegum lögum og ég snéri því upp á ósmekkleg myndbönd sem voru öll “not suitable for work” þá ákvað ég að taka aðeins öðruvísi vinkil á þetta. Listinn minn verður um Topp 5 ritskoðuð lög, þeas 5 lög sem að hafa einhvern tímann þótt mjög svo óviðeigandi og verið bönnuð í útvarpi. Það eru nefnilega oft ansi undarleg lög (eða frekar undarlegar ástæður gefnar fyrir því) sem að lög eru tekin úr útvarpsspilun. Nú eru svo svakalega mörg lög sem hafa verið bönnuð um allann heim að það er engin leið að fækka þeim niður í 5 þannig að ég ákvað að halda mig bara við breska BBC-ið og þá var það aðeins auðveldara…

5. Billie Holiday – Gloomy Sunday

Lagið var bannað af því að það var talið að væri valdur af sjálfsmorðum. Lagið er upphaflega frá Ungverjalandi og er samið af Rezss Seress og László Jávor. Árið 1930 varð til hávær orðrómur um það að lagið væri svo sorglegt að höfundur þess hefði framið sjálsmorð (hálf satt) og síðan valdið mörgum ungverskum táningum svo mikilli sálarangist að þau fóru að fremja sjálfsmorð i hrönnum…. núna í seinni tíð er talið að þetta hafi verið einhverskonar undarleg og brengluð markaðsherferð, huggulegt. Núna hefur það einhverskonar cult status hjá ýmsum dauðadýrkandi hópum og líka hjá þeim sem að dýrka svona urban legends , eins og sjá má hér (lagið sjálft byrjar á 1:17)

4. Frankie Goes to Hollywood – Relax

Þetta lag er náttúrlulega bara um kynlíf og að gera’ða. Myndmálið er ekekrt sérstaklega vel falið en það var sérstaklega (einhverra hluta vegna) textabúturinn “When you want to come/Come-oh oh oh” sem að fór fyrir brjóstið á BBC.

3. The Pogues – Fairytale of New York (feat. Kristy MacColl)

Þetta lag var bannað vegna orðbragðs (skiljanlega?) en vegna þess að hlustendur þrýstu svo mikið á stjórn BBC þá var lagið sett á B-listann… nú er þetta eitt af vinsælli jólalögunum (þó að þetta sé eitt af ójólalegustu jólalögum sem ég hef heyrt).

2. The Kinks – Lola

BBC neitaði að spila þetta lag vegna að það var talið að lagið gæti virkað sem auglýsing fyrir kók. Það er svo sem ekkert fráleitt hjá þeim…

I met her in a club down in old Soho
Where you drink champagne and it tastes just like coca-cola
C-O-L-A cola

1. The Beatles – A Day in the Life

Mér finsnt það merkilegt að það vara alveg nóg að Bítlarnir skyldu syngja “I’d love to turn you on” til þess að það var túlkað sem eiturlyfja referance (þetta var það alveg en það er algjört aukaatriði!) og eitt besta lag allra tíma var bannað í útvarpi…

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin