Kviksynði #2
31.1.2012 - Georg Atli
Við fengum smá tilkynningu um tónleika á Faktorý næsta laugardag:
Eftir góðar viðtökur fyrsta KVIKSYNÐI kvöldsins, haldið síðastliðinn nóvember hefur KVIKSYNÐI hópurinn ákveðið að endurtaka leikinn og halda “KVIKSYNÐI #2″. Hópurinn samanstendur af danstónlistartvíeykjunum Captain Fufanu og Bypass sem munu matreiða djúpa, harða og kynþokkafulla teknótónlist ofan í dansþyrstan múginn.
Þeim til halds og trausts verða plötusnúðarnir Vurt og Hypno og spreyta sig á spilurunum. Hypno hefur notið mikilla vinsælda erlendis og hefur meðal annars gefið út hjá plötufyrirtækinu PTN og undirútgáfu þeirra, Ramp Recordings, í Englandi.
Bypass og Captain Fufanu hafa verið að smeygja sér dýpra inn í raftónlistarsenuna hér á landi og hafa komið víðsvegar (hér á landi og að utan) fram læv og séð um endurhljóðblandanir á lögum tónlistarmannanna Tonik og Bjarkar og hljómsveitarinnar Vigri.
Á fyrsta KVIKSYNÐI kvöldinu fékk hópurinn til liðs við sig NonniMal ásamt því að spila sjálfir. Kvöldið var fest á filmu og hér má sjá myndband af kvöldinu og hina rífandi stemningu sem ríkti:
Ofur Hljóð/Ljós sjá svo um að tónlistin skili sér almennilega í Funktion One hljóðkerfinu fræga.
Tags: Björk, Bypass, Captain Fufanu, Tonik, Vigri
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Georg Atli
12.10.2011 - Georg Atli
Það er svo fáránlega margt sem mig langar að sjá á Airwaves í ár að það hreinlega tekur því ekki að nefna það allt! Þess vegna ætla ég bara að nefna nokkur atriði sem ég ætla að reyna mjög mikið að sjá en þau verða ekki einu sinni í neinni sérstakri röð, því ég get ekki valið á milli:
Fist Fokkers
Besta live band sem ég hef séð lengi.
Beach House
Það virðist svolítið gleymast að nefna Beach House í þessum Airwaves upptalningum. Frábær sveit og hafa bara gefið út frábærar plötur og Teen Dream (2010) stendur þar uppúr.
Iceage
Ég held að það hafi flestir bent á þessa í gestalistunum sínum. Platan þeirra er frábær og ef live flutningurinn þeirra hálfdrættingur á við hana þá eru þeir í góðum málum.
Hauschka
Þýskur píanó snillingur sem minnir að mörgu leiti á John Cage.
22 Pisterpirkko
Finnar með smá “cult following”. Finnar eru svo töff að þetta getur ekki klikkað.
Sin Fang
Sin Fang er svona “must see” hvar sem hann/þau er/u. Betri en af plötu sem er fjandi erfitt þegar maður dælir út frábærum plötum
Tune-Yards
Platan er frábær og það er eitthvað við tónlistina sem segir mér að þetta band sé frábært á sviði.
Dad Rocks!
Smá hæp í kringum þetta band í kringum Airwaves… allt sem ég hef heyrt af nýju plötunni hljómar voða vel.
Björk
Ég er mjög tvístígandi með það hvort að ég eigi að nenna að mæta í röðina fyrir Björk á Sunnudeginum, bara 200 miðar í boði og fyrstir koma fyrstir fá þannig að maður þarf líklega að fara bara beint í röð eftir tónleika laugardagsins. Ég veit samt að hún alveg fáránlega flott á sviðinu.
Reykjavík!
Nýja platan frá Reykjavík! er að fara að detta í búðir og miðað við það sem að ég hef heyrt af henni (sem er reyndar mjög lítið) þá er þetta ein af betri plötum ársins.
Tags: 22 Pisterpirkko, Airwaves 2011, Beach House, Björk, Dad Rocks!, Hauschka, Iceage, Reykjavík!, Sin Fang
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | 1 athugasemd »
Nýtt myndband frá Björk
24.9.2011 - Georg Atli
Björk var að senda frá sér nýtt myndband. Það er gert við lagið Moon (fyrsta lag plötunnar) og það gríðarlega útpælt og flott eins og allt í tengslum við þetta Biophilia verkefni hennar. Myndbandið er unnið í samvinnu við Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin sem er þekktir tískuljósmyndarar, hönnunarteymið M/M Paris og James Merry. Ég verð að viðurkenna það að ég kem James Merry ekki alveg fyrir mig en bæði Inez & Vinoodh og M/M Paris áður unnið með Björk m.a. í tengslum við myndbandið við Hidden
Place (sem kom út á Vespertine)
björk: moon from Björk on Vimeo.
Tags: Björk
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Nýtt lag frá Björk!
7.8.2011 - Georg Atli
Þriðja lagið af Biophilia verkefni Bjarkar, Virus kemur út í rafrænni forsölu á morgun… þangað til getið hlustað á lagið hér að neðan. Platan sjálf kemur svo út 27. september sem er rétt áður en að hún heldur tónleika í Hörpunni (sem er því miður löngu uppselt á). Langar líka að benda á heimasíðuna hennar… hún er geðveikt flott
Björk – Virus
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tags: Björk
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Björk sýnir Biophilia á Airwaves
8.7.2011 - Kristjana
Mögnuð viðbót við Airwaves! Í tengslum við hátíðina þetta árið mun Björk flytja Biophilia í Hörpunni í október. 6 sýningar verða, þar af tvær meðan á Airwaves stendur:
Mið. 12. okt – Harpa (Iceland Airwaves)
Sun. 16. okt – Harpa (Iceland Airwaves)
Mið. 19. okt – Harpa
Lau. 22. okt – Harpa
Þri. 25. okt – Harpa
Fös. 28. okt – Harpa
Þetta ætti að verða ansi gott show enda fylgir Björk í þetta skiptið 24 stelpna stúlknakór og ný og spennandi hljóðfæri.
Tags: Airwaves, Airwaves 2011, Björk
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off
Myndbönd og svoleiðis
6.6.2011 - Georg Atli
Jájá búinn að vera lægð í færslunum hérna hjá okkur, bætum úr því í vikunni. Lofa!
Til að byrja uppbætinguna þá kemur hérna ein færsla með svona allskonar myndböndum sem að ég er búinn að vera að skoða síðastliðnar vikur eða svo, en aldrei nennt að setja hingað inn:
Beirut kom með nýtt lag, það er gott. Allir hljóta að fíla Beirut af því að Zach Condon virkar bara sem svo ótrúlega næs gaur!
Beirut – East Harlem by Revolver USA
Það er komið go á Caribou, í þetta skiptið verða tónleikarnir 28 júní… nú þurfum við bara að vona að að verði ekki annað helvítis eldgos. Myndband við lagið Jamelia kom út einhvern tímann í byrjun árs en það er viðeigandi þrátt fyrir það.
Caribou – Jamelia from Video Marsh on Vimeo.
Kanye West gaf loksins út myndbandið við Monster, en það lak einhver frum útgáfa af því einhvern tíman fyrir síðustu jól… myndbandið er skrítið.
Björk sendi frá sér teaser fyrir lag af Biophilia verkefninu sínu, lagið heitir Crystalline… það er bæði sk´ritið og gott.
björk – road to crystalline from Björk on Vimeo.
DJ Leon Botha dó í gær, en hann var í töffarasveitinni Die Antwoord. Botha var litli skrítni gaurinn sem leit pínu út eins og fóstur. Hann var líka sá maður sem lifði lengst með þessum sjúkdómi og áhugaverður málari og allskonar.
Die Antwoord – Enter the Ninja from daniel michel on Vimeo.
Svo ætla ég að setja inn nýjasta myndbandið frá froðupopparanum Bruno Mars… ég verð að taka það fram að mér finnst lagið eiginlega alveg glatað, en myndbandið er frábært og sjálfur Leonard Nimoy (dr. Spock) sýnir stórkostleg tilþrif í því. Þið gætuð kannski bara horft á myndbandið á mute eða eitthvað en horfiði endilega á það.
… og svo verður eitthvað fullt að gerast í vikunni, fylgist með!
Tags: Beirut, Björk, Bruno Mars, Caribou, Die Antwoord, Kanye West
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Ný heimasíða Bjarkar
11.5.2011 - Georg Atli

Hey, eru ekki allir búinir að tjékka á nýju flottu heimasíðunni sem Björk er með…
Hún uppfærði heimasíðuna sína í tilefni “Biophilia” tónleikunum sínum og hún er mjög flott.
Á facebook hvetur hún aðdáendur sína til að prufa sig áfram með örvatökkunum og “shift” takkanum og draga hluti til og svoleiðis… á síðunni sko. Hlustum á smá lag í leiðinni.
Tags: Björk
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Topp 5 – 1 2 punch!
18.3.2011 - Snorri
Til útskýringar á lista vikunnar þá er 1 2 punch svokallað þegar fyrstu tvö lögin á tiltekinni plötu eru með betri lögum ef ekki bestu lögin á plötunni, opna plötuna með einstökum bravúr, lag nr 1 leiðir flott yfir í lag 2 og þau standa tvö saman á afskaplega impónerandi hátt eða bara eitthvað sem gerir það að verkum að þau valda svona 1 2 pönsji sem gleður hlustandann. Gjarnan fylgir rólegra eða dempaðra lag á eftir sem nr 3 en það þarf þó ekki alltaf að vera.
Eftirfarandi eru mér efst í huga þegar 1 2 punch er að ræða ! Öll eru þau af frábærum plötum og mörg snilldarlög bíða hlustunar síðar á plötunum en það er eitthvað við opnunina á þessum plötum sem stendur upp úr. Ekki orð um það meir, lögin standa fyrir sínu.
5. The National – The Boxer (Fake Empire og Mistaken for Strangers)

1. Fake Empire
2. Mistaken For Strangers
4. M83 – Before the Dawn Heals Us (Moon Child og Don’t Save Us From the Flames)

1. Moonchild
2. Don’t Save Us From the Flames
3. Arcade Fire – Funeral (Neighborhood #1 og #2 – Tunnels og Laika)

1. Tunnels
2. Laika
2. Patrick Wolf – Wind in the Wires (The Libertine og Teignmouth)

1. The Libertine
2. Teignmouth
1. Björk – Homogenic (Hunter og Jóga)

1. Hunter
2. Jóga
Tags: Björk, M83, Patrick Wolf, The Arcade Fire, The National
Flokkað undir Listar, Snorri | 1 athugasemd »
Karókídagar.
5.1.2011 - Georg Atli
Næstu 3 daga (6., 7. og 8. janúar) verður karókímaraþon í Norræna húsinu.

Ef að það eitt og sér er ekki nægilega merkilegt eða tónlistartengt fyrir ykkur þá er þetta ekkert venjulegt karókí maraþon. Í fyrsta lagi þá er það haldið til þess að vekja athygli á Auðlindamálinu (frekari útskýringar á því eru hér), í öðru lagi þá verður rosalega mikið af tónlistarfólki (ég renndi yfir eina “attending” síðu á facebook-eventnum og þar voru m.a. Sindri og Sóley úr Seabear og Snorri Helgason og svo verða margir fleiri) þarna að syngja og þannig getiði farið og sungið uppáhaldslagið ykkar og sagt með sæmilegri samvisku að þið hafið “troðið upp” með öllu þessu tónlistarfólki. Síðasta lagið er það að Björk (ásamt mörgum öðrum góðum manneskjum) er að halda utan um þetta og ætlar að syngja dúett með Ómari Ragnarssyni!!!!
Og ef þetta allt er ekki nóg til að fá fólk til að mæta þá veit ég ekki hvað gæti mögulega fengið fólk til að mæta….
og hérna er meira að segja kominn lagalisti! (á facebook)
Tags: Björk, Ómar Ragnarsson
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Topp 5 – Söngkonur
20.4.2010 - Snorri
Betra er seint en aldrei. Ég ákvað að einblína á söngkonur sem hafa einkennandi raddir sem skera sig úr. Einnig eru þessar söngkonur allar afar frumlegir og góðir lagasmiðir.
5. Marissa Nadler
Af þeim nýlegu söngkonum sem komu í kjölfarið á Joanna Newsom og eru hluti af hinni amerísku nu-folk senu þá hef ég heillast mest af Marissu Nadler. Hún býr yfir sérkennilegri rödd sem passar vel við fallega angurværa tónlistina en hún er frábær lagasmiður að mínu mati.
4. Cat Power
Hinn brothætti, þunglyndislegi söngur Cat Power er kannski ekki sá kröftugasti eða mest aðlaðandi en fáar söngkonur búa yfir jafn mikilli hrárri tilfinninganæmi sem hittir alltaf beint í hjartastað.
3. Kate Bush
Kate Bush er alger snillingur, fáar söngkonur eru jafn frumlegir tónlistarmenn og hún. Hún er ekki allra, ekki síst út af sérkennilegri röddinni, en ég persónulega fæ aldrei leið á henni.
2. Neko Case
Ég held að engin söngkona hafi eins ótrúlega hrífandi rödd og Neko Case. Það er einhver ótrúlegur kraftur í henni sem smýgur inn að merg og beini en jafnframt hlýja og einlægni. Hvort sem hún er að syngja með The New Pornographers eða sem sólóisti hrífur söngur hennar mann með sér.
1. Björk
Ég meina halló !! Fá rödd hefur heillað jafn marga sem og stuðað, sjokkerað, dáleitt, storkað osfv. Að hlusta á Björk beita röddinni er eins og að horfa á loftfimleika, stundum virðist hún á ystu nöf en ætíð í fullri stjórn. Þó hún sé kannski þekktust fyrir kraftmikinn og ákveðinn söng held ég að hún hafi náð hæstum hæðum sem söngkona á plötunni Vespertine þar sem hún leikur sér að því að svífa upp og niður raddsviðið hvort sem er á fíngerðan eða ofsafenginn hátt.
Tags: Björk, Cat Power, Kate Bush, Marissa Nadler, Neko Case
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off









