Topp 5 lög sem ég vildi að ég hefði samið – Kristín Gróa
14.2.2011 - Kristín Gróa
Vá þessi listi kemur of seint en betra er seint en aldrei. Ég get ekki samið lag fyrir fimm aura og að sjálfsögðu vildi ég alveg hafa samið öll lög sem mér finnst frábær. Meikar það ekki sense? Þessi fimm lög eru uppáhaldslög sem ég væri alveg til í að hafa samið.
5. Al Green – Simply Beautiful
Þetta lag er svo einfalt en samt svo munúðarfullt einhvernveginn. Eitt af þessum lögum sem hreyfa alltaf við mér
Besta lagið af hinni algjörlega frábæru The Decline Of British Sea Power sem ég fjallaði einu sinni um í Sarpinum. Ástæðan fyrir að þetta lag ratar á listann er sú að ég misheyrði línurnar Have I been standing here for so long? Natura’s found a way of telling you that it was going wrong sem Have I been standing here for so long? You should have found a way of telling me that it was going wrong. Sú lína fannst mér alveg geggjað flott á svona ástarsorgar leveli en svo þegar ég fattaði að mér misheyrðist þá varð ég hundfúl.
3. Richard & Linda Thompson – The Calvary Cross
Eitt af alltime uppáhalds. Það er eitthvað svo skrítinn gangur í þessu lagi en samt er það í raun mjög einfalt. Af hinni stórgóðu I Want To See The Bright Lights Tonight.
2. Okkervil River – So Come Back, I Am Waiting
Ég er sökker fyrir löngum kórusalausum lögum með lúppandi stefjum. Það hljómar óskiljanlega en ég get ekki útskýrt það betur. Neil Young og Bob Dylan eru sérfræðingar þegar kemur að þessu.
Talandi um Neil Young, ekki hélduð þið að ég myndi sleppa honum? Ég vildi helst hafa samið öll lögin hans (og VERA hann… í húðinni hans… nei ok ojj krípí) og þar á meðal þetta.
Tags: al green, British Sea Power, neil young, Okkervil River, Richard Thompson
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Sarpurinn
23.6.2010 - Kristín Gróa
Í sarpi vikunnar ætla ég að fjalla um hina algjörlega geðveiku plötu The Decline Of British Sea Power með bresku hljómsveitinni British Sea Power. Ég trúi eiginlega ekki að mér hafi ekki dottið í hug að skrifa um þessa plötu fyrr en núna því það er ekkert lítið sem ég hef hlustað á hana.
Ég fékk þessa plötu í afmælisgjöf frá bróður mínum haustið 2003 þegar ég var nýflutt í fyrstu íbúðina mína svo ég fæ alltaf flashback þangað þegar ég hlusta. Lagið Apologies To Insect Life endurvekur þessa tilfinningu sérstaklega þar sem ég og Krissa áttum það til að spila það óleyfilega hátt og tryllast óeðlilega mikið yfir því á óguðlegum tímum. Ahhh good times.
Rólegri lögin eins og Carrion minna mig meira á þegar við Krissa sáum þá spila á Reading 2004. Það var ótrúleg upplifun því það var á þessum tíma (og er kannski ennþá?) hefð fyrir því að fólk kæmi með trjágreinar og ýmsan gróður á BSP tónleika. Það voru því allir að veifa trjágreinum og ekki má gleyma hegranum góða sem var í aðalhlutverki á tónleikunum. Algjörlega ógleymanlegt og æðislegt.
Að lokum verð ég að minnast á hið epíska Lately sem er 14 mínútur að lengd og byrjar á setningunni Lately you seem like another language sem er geggjuð lína sem segir einhvernveginn allt. Textarnir eru annars almennt mjög góðir því þeir eru fullir af vísunum í bókmenntir og sögu en eru samt persónulegir og hreyfa við manni.
The Decline Of British Sea Power er fyrsta plata BSP og að mínu mati sú allra besta. Hún kom út árið 2003 og árið 2005 fylgdi platan Open Season sem er alveg þokkalega góð líka. Eftir það hætti einn aðalnáunginn í hljómsveitinni til að stofna hljómsveitina Brakes (en fyrsta plata þeirrar sveitar er stórgóð og verðskuldar sinn eiginn sarp). Eftir það hefur farið frekar lítið fyrir BSP en þeir hafa þó gefið út tvær plötur sem þóttu alveg ágætar en ekki mikið meira en það.
Apologies To Insect Life
Carrion
Lately
Tags: British Sea Power
Flokkað undir Kristín Gróa, Sarpurinn | 2 athugasemdir »
Topp 5 lagatitlar – Krissa
5.12.2008 - Kristjana
5. Man Man – 10 lb moustache
VÍJJ! Hver syngur um 10 punda moustache?
4. Maus – Síðasta ástin fyrir pólskiptin
3. Birdy Nam Nam – Il y a un cauchemar dans mon placard
2. British Sea Power – Apologies to Insect Life
Eitthvað sem ég mun aldrei gera! Most aaawesome lag samt!
1. Nouvelle Vague – Too Drunk to Fuck
Tags: Birdy Nam Nam, British Sea Power, Man Man, Maus, Nouvelle Vague
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 New York lög – Krissa
20.4.2008 - Kristjana
Ég ætlaði að gera topp5 lista yfir lög með New York tónlistarmönnum/hljómsveitum um New York o.s.frv. o.s.frv. Ég skipti hinsvegar um skoðun á miðri leið, ákvað að vera sjálfhverf og velja þau 5 lög sem mér finnst vera ofur-New-York lög, lög sem ég tengi á einhvern hátt við borgina, lög sem ég myndi hlusta á væri ég þar and all that jazz so voila:
5. TV on the Radio – The Wrong Way
TV on the Radio eru reyndar frá New York, Brooklyn to be precise (auðvitað eru þeir baseaðir í Brooklyn). Fáranlega skemmtilegir og ég hefði í raun getað valið hvaða lag sem er með þeim. Þetta er hinsvegar í örlitlu uppáhaldi þrátt fyrir að ég sé búin að vera að hlusta á það stanslaust síðan það kom út – það er einfaldlega ekki hægt að fá nóg af þessu lagi.
Lagið sem þú hlustar á í subwayinu while discreetly peoplespotting.
4. Death From Above 1979 – Black History Month
Las einhvern tíma að hugmyndin að þessu lagi hefði komið í subway ferð í New York. Hvort sem eitthvað er til í því eður ei dettur mér borgin alltaf í hug þegar ég heyri lagið.
Lagið sem þú hlustar á þegar þú situr í garði/úti á svölum/uppi á þaki og spjallar
3. Man Man – Push the Eagle’s Stomach
Man Man eru ekki frá New York og lagið er ekki um New York (ekki svo ég viti allavega) en það spliffar ekki donk, ég sá þá fyrst í Bowery Ballroom og var ekki mikið búin að hlusta á þá fyrir tónleikana þannig að fyrir mér eru Man Man New York tónlist. Þetta lag er eins og borgin: skemmtilegt, allt að ske, smá af öllu, ört og brjálæðið allsráðandi.
Lagið sem þú hlustar á þegar þið langar að dansa um í 37fm íbúðinni þinni, hoppa í sófanum og syngja með: “moustache, moustache, moustache”.
2. Bonde Do Role – Marina Gasolina
Sjáið þið ekki fyrir ykkur að vera í einni af þessum alræmdu pínulitlu Manhattan leiguíbúðum og dilla ykkur í ‘stofunni’ við þetta lag meðan þið takið ykkur til fyrir kvöldið?
Lagið sem þú hlustar á þegar þú ert á leiðinni út í ógó pógó góðan mat og djamm með stelpunum/strákunum.
1. British Sea Power – Apologies to Insect Life
Undir-þriggja-mínútna-brjálæði. Fullkomið fyrir borgina þar sem allstaðar er fólk og freistingar og tónlist og eitthvað skemmtilegt að gera og góður matur til að borða og og og…fullkomið lag fyrir fullkomna borg
Lagið sem þú hlustar á í headphones meðan þú röltir um, air-trommar óvart pínu og syngur með vegna einskærrar gleði yfir að vera í borg borganna…
TV on the Radio – The Wrong Way [.mp3] [myspace] [video]
Death From Above 1979 – Black History Month [.mp3] [myspace] [video]
Man Man – Push the Eagle’s Stomach [.mp3] [myspace] [video - live í Nashville]
Bonde Do Role – Marina Gasolina [.mp3] [myspace] [video]
British Sea Power – Apologies to Insect Life [.mp3] [myspace} [video - live í Brixton]
Tags: Bonde Do Role, British Sea Power, Death From Above 1979, Man Man, TV on the Radio
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Topp 5 fyllerís-/djammlög – Krissa
23.8.2007 - Kristjana
Já, ég veit að ég er alltaf alltof alltof sein en ég ætla bara samt að fá að vera memm…so here goes
5. Nouvelle Vague – Too Drunk to Fuck
“Oh je suis trop bourrée
Pour uhm, pour baiser”
Mér finnst Nouvelle Vague útgáfan bara skemmtilegri en sú upprunalega. Þetta er lagIÐ sem við Kristín hlustuðum bara alltaf á á gömlu Freyjugötunni sumarið 2005 – djammsumariNU. Þetta er lagið sem við hlustuðum á þegar við vorum í fínum kjólum að dansa endalaust í hringi í litlu stofunni til að láta pilsin sveiflast í almennilegan hring. Þetta er lagið sem við hlustuðum á þegar við bjuggum fyrst til frosnar margaritur. Þetta er lagið sem við hlustuðum á sem dinnertónlist þegar allir voru í útlöndum og við eyddum páskunum saman. Þetta er blimmin’ awesome lag og vel viðeigandi á hvaða djammi sem er!
4. The Arcade Fire – Neighborhood #3 (Power Out)
“Kids are swinging from the power lines
Nobody’s home, so nobody minds”
Víjj þetta er svo mikið sing-along song. Power Out er lagið sem maður ‘transdansar’ við eins og ónefndur drengur myndi kalla það. Loka augunum, dansa og syngja eins hátt og maður mögulega getur…
3. The Funerals – Pathetic Me
Fullkomið til að setja á þegar maður kemur aftur heim en vill ekki fara að sofa strax. Pathetic Me er ‘eftirdjamm’ lagið.
2. The Cure – Close to Me
“I never thought this day would end
I never thought tonight could ever be
This close to me”
Uppáhalds Cure lag einnar af uppáhalds manneskjunum mínum í heimigeiminum. Dillirassa-sing-along lag eftir Robert Smith! Gerist það eitthvað betra?
1. British Sea Power – Apologies to Insect Life
“Oh Fyodor you are the most attractive man
Oh Fyodor you are the most attractive man I know,
Your Russian heart is strong and has been bleeding for too long”
Ojjj þetta er svo goooott lag! Fullkomið sem síðasta lag til að hlusta á áður en farið er út og verða enn hressari. Eina sem gæti mögulega verið betra er að vera í litlu tjaldi á meðalstóru festivali, umkringdur fullt af fólki, greinum og plasthegrum og heyra lagið live…!!!
ooog honourable mentions: Piano Man með Billy Joel og Tiny Dancer með Elton John. Lögin eru indistinguishable því bæði eru fáranlega góð og bæði segja þau: “það er Laugardagur, ég er á Dillon, ég er með skemmtilegu fólk og það er búið að vera fáranlega gaman en nú er verið að loka og tími til kominn að fara á næsta stað”
Tags: arcade fire, Billy Joel, British Sea Power, Elton John, Fylleríslög, Nouvelle Vague, Robert Smith, The Cure, The Funerals
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »






