Myndbönd og svoleiðis

6.6.2011 - Georg Atli

Jájá búinn að vera lægð í færslunum hérna hjá okkur, bætum úr því í vikunni. Lofa!
Til að byrja uppbætinguna þá kemur hérna ein færsla með svona allskonar myndböndum sem að ég er búinn að vera að skoða síðastliðnar vikur eða svo, en aldrei nennt að setja hingað inn:

Beirut kom með nýtt lag, það er gott. Allir hljóta að fíla Beirut af því að Zach Condon virkar bara sem svo ótrúlega næs gaur!

Beirut – East Harlem by Revolver USA

Það er komið go á Caribou, í þetta skiptið verða tónleikarnir 28 júní… nú þurfum við bara að vona að að verði ekki annað helvítis eldgos. Myndband við lagið Jamelia kom út einhvern tímann í byrjun árs en það er viðeigandi þrátt fyrir það.

Caribou – Jamelia from Video Marsh on Vimeo.

Kanye West gaf loksins út myndbandið við Monster, en það lak einhver frum útgáfa af því einhvern tíman fyrir síðustu jól… myndbandið er skrítið.

Björk sendi frá sér teaser fyrir lag af Biophilia verkefninu sínu, lagið heitir Crystalline… það er bæði sk´ritið og gott.

björk – road to crystalline from Björk on Vimeo.

DJ Leon Botha dó í gær, en hann var í töffarasveitinni Die Antwoord. Botha var litli skrítni gaurinn sem leit pínu út eins og fóstur. Hann var líka sá maður sem lifði lengst með þessum sjúkdómi og áhugaverður málari og allskonar.

Die Antwoord – Enter the Ninja from daniel michel on Vimeo.

Svo ætla ég að setja inn nýjasta myndbandið frá froðupopparanum Bruno Mars… ég verð að taka það fram að mér finnst lagið eiginlega alveg glatað, en myndbandið er frábært og sjálfur Leonard Nimoy (dr. Spock) sýnir stórkostleg tilþrif í því. Þið gætuð kannski bara horft á myndbandið á mute eða eitthvað en horfiði endilega á það.

… og svo verður eitthvað fullt að gerast í vikunni, fylgist með!

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fullt af “útlenskum tónleikum” á árinu

1.5.2011 - Georg Atli

Síðastliðin ár hafa verið ansi mögur þegar að það kemur að erlendum tónlistarmönnum að spila á Íslandi, að er líklega skiljanlegt. En núna í ár ætlar þetta heldur betur að breytast! Til að sanna mál mitt bendi ég ykkur á að lesa lengra…

Steingervingarnir í Eagles ætla að spila (löngu uppselt) og Cindy Lauper og svoleiðis… en svo eru líka alveg fullt af skemmtilegum tónlistarmönnum sem ætla líka að koma til okkar! Indíhausarnir eru náttúrulega búnir að fá ansi feitan bita með Deerhunter og Lower Dens (þó að þau ahfi ekki verið frábær þá er samt gaman að hafa séð þau) á Reykjavík Music Mess.

Svo kemur Elvis Costello og það er ansi flott dæmi. Harðkjarnaliðið fær svo að sjá eina af frægustu hljómsveitum þess tónlistarsviðs þegar Converge treður upp á Faktorý í júní (hafa þeir ekki komið áður??).

Maí er ansi góður tónleikamánuður því að þann 22. ætlar Caribou (og Sin Fang) að spila á NASA og það verður væntanlega geðveikt. Nokkrum dögum síðar verða spanjólarnir í hljómsveitin Ojos de Brujo að spila í tengslum við Listahátíð, það er alveg þess virði að tjékka á þeim ef að þið viljið heyra eitthvað aðeins öðruvísi eða ef að þið fílið “heimstónlist” (heimsins kjánalegasta nafn á tónlistarstefnu).

Síðan er Iceland Airwaves í október eins og venjulega og þar er þegar búið að tilkynna alveg heilan helling af flottum böndum, m.a. Beach House, tUnE-YarDs, Liturgy, John Grant og Zebra and Snake. Svo er einhver orðrómur um það að Fleet Foxes gætu verið á leiðinni þangað sem að væri frábært… en það eru mjög óstaðfestir orðrómar, ennþá.

Í gær var sagt frá því að Cut Copy ætli að spila í júlí. Ég held að það verði svakalegir partýtónleikar því að hressari syntharokksveit er vandfundin.

Svo er annar orðrómur um það að hljómsveitin Low (sem voru að gefa út plötu í byrjun apríl) sé væntanleg, en það er samt bara slúður sem að ég vona að verði að einhverju… þangað til að að það gerist getiði sótt þetta lag sem þau gáfu á heimasíðunni sinni.

Low – Try to Sleep

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 2 athugasemdir »

Plata mánaðarins

18.5.2010 - Snorri

Jæja, löngu kominn tími á nýja færslu um plötu mánaðarins, Swim með Caribou.

Eins og áður sagði þá eru elektrónísk áhrif meira ríkjandi á plötunni heldur en fyrirverum hennar og Dan Snaith starfaði með þekktum nöfnum úr elektróník-bransanum við gerð hennar. Þar á meðal Jeremy Greenspan úr því frábæra kanadíska bandi Junior Boys. Áhrifin eru greinileg, ekki síst á fyrsta lagi plötunnar, Odessa, sem gæti alveg verið lag með Junior Boys, þótt andi Caribou sé auðvitað allsráðandi. Þá endar platan á sama lagi þar sem það hefur verið remixað af engum öðrum en einmitt Junior Boys.

Tónlistarmyndbandið við lagið Odessa er fremur drungalegt, óskýrar þokukenndar myndir af blóðugri stúlku á gangi í snjó, uppstoppuð villifé og dádýr og sitthvað fleira.

Odessa
Odessa (Junior Boys Remix)

Tags: ,
Flokkað undir Plata mánaðarins, Snorri | Comments Off

Plata mánaðarins

2.5.2010 - Snorri

Þá er kominn maí og sumarið handan við hornið. Kominn tími á nýja plötu mánaðarins sem að þessu sinni er nýjasta afsprengi Dan Snaith sem kallar sig Caribou, hin sérdeilis frábæra og sumarlega Swim.

Þetta er fjórða plata Snaith, en einungis sú þriðja undir nafninu Caribou því í fyrstu kallaði hann sig Manitoba en þurfti að hætta því þar sem annar tónlistarmaður sakaði hann um nafnstuld. Tónlist Caribou er margslungin og erfitt að flokka hana eftir standardiseruðum tónlistarflokkunum, enda er Snaith óhræddur við að prófa nýja hluti. Áhrifa hefur gætt frá psykedelisku krautrokki sjöunda áratugsins, shoegaze og elektróník og er Snaith einstaklega góður í að sameina grípandi melódíur og afar þétt sánd. Tónlist hans er útpæld (sem er ekki skrítið því hann er með doktorsgráðu í stærðfræði) en jafnframt frjáls, melódísk og gjarnan mjög grípandi. Að sjá Caribou spila á sviði er mögnuð upplifun, því krafturinn og sándið nær hæstu hæðum og Snaith sjálfur er allt í öllu á sviðinu og sest t.d. gjarnan við trommusettið en þau eru yfirleitt amk tvö talsins á tónleikum.

Á nýju plötunni Swim, kveður við dálítið nýjan tón. Snaith virðist vera undir meiri áhrifum frá elektrónískri danstónlist, á köflum minnir sándið á þýskt mínímal teknó eins og t.d. Ellen Allien sem hefur ekki heyrst áður í tónlist Caribou. Snaith vann meðal annars með Kieran Hebden úr Four Tet og Jeremy Greenspan úr Junior Boys sem skýrir eflaust áhersluna á elektróník.
Titill plötunnar segir margt því flæði og sándstrúktúr flestra laganna á plötunni minnir á streymandi vatn.
Við fyrstu hlustum er platan ekki eins grípandi og t.a.m. síðasta plata hans Andorra, sem var undir miklum krautrokk áhrifum, en hið sumarlega, bjarta, kraftmikla sánd er enn til staðar, nú með markvissum danstakti og þótt margt komi á óvart þá fer ekkert á milli mála að hér er um Caribouplötu að ræða, og það alveg frábæra.

Hér er eitt afar sumarlegt teknólag af plötunni Swim.

Tags:
Flokkað undir Plata mánaðarins, Snorri | Comments Off

Fimmtudagshressleiki!

19.2.2009 - Kristjana

Fimmtudagsskemmtilegheit: ‘In Their Own Words: The Montréal Sessions’, Indyish Mixtapes vol. 2, c-hressleiki og cover dagsins!



In Their Own Words: The Montréal Sessions: Midnight Poutine er æði pæði skemmtilegt Montréalskt blogg sem ég gróf upp áður en ég flutti út í fyrra. Skrifa um tónlist og hellings fleira skemmtilegt. Í nýjustu færslum síðunnar er t.d. umfjöllun um tónleika, ábending um góðan burrito stað, heads up um að Spike Lee verði í gamla skólanum mínum (damn!), hokkípælingar um Habs, review um árlega moustache partyið á La Sala Rossa OG nýtt podcast! Ég var búin að steingleyma podcastinu þeirra en það er æði. Í nýjasta podcastinu er m.a. annar hluti af 10 í seríu sem heitir ‘In Their Own Words: The Montréal Sessions’ þar sem maður heyrir tónlistarmann/hljómsveit frá Montréal lýsa tónlist sinni sjálfir. Í þessum hluta er Plants&Animals. Gaman! :) Það eina sem mögulega er hægt að segja slæmt um Midnight Poutine er að alltaf þegar maður sér það fer mann að langa allsvaaaðalega í poutine…og maður fær hvergi svoleiðis búhú ;/

Í einu podcastanna sem ég hlustaði á í dag var minnst á The Tom Fun Orchestra. Lýsingin gekk út á að þau hljómuðu eins og Tom Waits að syngja með Arcade Fire. Lagið í podcastinu (Rum&Tequila) fannst mér reyndar hljóma meira eins og Tom Waits að syngja með Gogol Bordello eða Man Man (sem væri jafnvel enn betra en Waits og Arcade Fire!). En það gerði mig allavega forvitna þannig að ég ákvað að tékka aðeins betur á þeim og jú, You Will Land With a Thud hljómar svolítið eins og Tom Waits og Arcade Fire hafi ákveðið að búa til tónlist saman. Gaman! Allavega alveg þess virði að tékka á því :)



Indyish mixtapes, vol. 2: Annað sem ég var búin að gleyma. Nýtt ‘mixtape’ frá Indyish. Er á póstlista hjá þeim þannig að öðru hverju fæ ég bara tilkynningu um að einhver sé búinn að safna saman skemmtilegum lögum og henda inn for my listening pleasure. Styð það. Nokkur ágætis lög þarna inn á milli :)  Eureka Birds – Oh! My Dear er t.d. skemmtilegt og sungið af gaur með svo flotta rödd að það er hægt að hlusta á það á repeat ;)  

C-hressleiki: Ooog í tilefni af því að mánudagurinn var þemahlustunardagur (ég hlustaði bara á tónlistarmenn/hljómsveitir sem byrja á C) langar mig að benda ykkur á að fara í gegnum libraryið ykkar og gá hvort c-ið inniheldur ekki bara hressa tónlist? C-in mín gera það nefnilega (allavega vinnutölvulibraryið). Eina vafamálið var núverandi frakklandsforsetafrú, madame Carla Bruni, en hún er svo sem ekkert ofurdepressing heldur – bara ekkert ofurhress alltaf. Anywho, í tilefni af c-þemanu koma hér 3 random ofurhress lög með tónlistarmönnum/hljómsveitum sem byrja á stafnum c :)

Calvin Harris – Acceptable in the 80s
Caribou – Bees
Chromeo – Momma’s Boy

Cover dagsins

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | 3 athugasemdir »

Föstudagur…en ekki topp5!

6.2.2009 - Kristjana

Það er löngu sannað að ég er gúbbí! Til að halda í það góða reputation svaf ég næstum yfir mig í morgun OG gleymdi svo lista dagsins á tölvunni minni heima. Gurds! En hann kemur tomorrows. Í dag kemur því bara general föstudagshressleiki – þetta er e-ð sem toppfimm meðlimir munu dilla sér við í kvöld!

Til að byrja með, svona yfir sushiinu, er fínt að skella þessu á:
Bumblebeez 81 – Pony Ride (TV on the Radio remix) og Noah and the Whale – Rocks and Daggers

Næst ætti að sjást til toppfimm gellanna dillandi sér við:
Familjen – Det Snurrar I Min Skalle

Svo mun það líklega færast yfir í:
að syngja með Rolling Stones – She’s a Rainbow og dilla sér við The Cure – Friday I’m In Love og Kings of Leon – Sex on Fire
Ooog…svo væri blimmin’ awesome ef e-r tæki það á sig að leyfa okkur að heyra Yeti með Caribou e-s staðar í kvöld! Væri klár bónus :)

That’s all I ask… :P

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | 3 athugasemdir »

Lokauppgjör 2008 – Krissa

10.1.2009 - Kristjana

1. Bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Jebus minn ég sá svo mikið af góðum tónleikum á árinu, litlum sem stórum, nýju dóti og gömlu. Smærri tónleikarnir stóðu samt eiginlega upp úr á þessu ári og ég held ég þurfi að segja að Man Man (hversu oft get ég sagt það eiginlega) hafi verið bestir á Le National í Montréal í apríl. Voru á fullkomnum tíma, á fullkomnum stað, mér veitti svooo ekki af smá break og að skreppa í ofurhressleikann var exactly what I needed.

A close second var líklega að sjá The Kills þegar Kristín heimsótti Montréal deildina í maí. Bjóst einhvern veginn ekki við miklu en svo voru þau bara geðveik og það var svo brjálæðislega mikill kynþokki á sviðinu að maður varð næstum vandræðalegur við að horfa á það haha

2. Gamalt dót sem ég uppgötvaði á árinu:

Nashville Skyline plata Dylan var bara plata ársins hjá mér – eða allavega soundtrack fyrri hluta ársins! Úff púff! Hún hafði bara einhvern veginn farið alveg framhjá mér.

Svo telst það nú kannski ekki gamalt, en kom allavega ekki út á árinu, að ég afrekaði loksins að hlusta á Panda Bear eftir að hafa keypt Person Pitch í byrjun ársins. Og ég skil engan veginn afhverju ég hlustaði ekki á hann fyrr? Hvaða rugl var það eiginlega? Ég meina, Bros er bara svo fáranlega æðislega awesomely gott lag!

Og já, svo tók ég allsvaðalegt æði aftur fyrir The Milk of Human Kindness með Caribou eftir að sjá hann í apríl – hann var bara simply of góður og ég var með plötuna á repeat næstu vikurnar þegar ég rölti um götur Montréal – endurtók algjörlega æðið sem ég fékk þegar hún kom út :)

3. Vonbrigði ársins
Engin ein plata eða hljómsveit sem ég varð fyrir neinum gríðarlegum vonbrigðum með á árinu. En tónlistartengd vonbrigði ársins eru samt svo mörg að þau eru í punktaformi:

  • að missa af Dodos live í Montréal út af einhverju asnalegu eins og að þurfa að skila verkefni í skólanum eða e-ð.
  • að neyðast til að sitja undir Rihanna á undan Kanye. Ég bjóst nú við að það yrði allavega hresst eða e-ð en það var bara…leiðinlegt! Held í alvöru að það skásta sem ég hafi um málið að segja sé að sviðið var alveg fínt haha. Hún var allavega engan veginn góð upphitun!
  • að hafa gleymt (nei sko, bókstaflega, gleymt!) að mæta á El Perro del Mar og Lykke Li eftir að vera löngu búin að kaupa miða og vera búin að tala um tónleikana oft í vikunni. Fatta svo í hádeginu daginn EFTIR tónleika að ég átti að vera e-s staðar kvöldið áður.
  • að hafa ekki skellt mér á M.I.A. þegar hún var að spila úti. Man ekki hvort það var forgangsröðun sem réði eða hvað en það var klárlega rugl að fara ekki!
  • að hafa ekki séð Duchess Says þegar ég var nýkomin út til Kanada – heyrði plötuna viku seinna eða e-ð og varð ansi fúl!
  • Xiu Xiu tónleikarnir sem ég fór á voru pínu vonbrigði. Upphitunin (Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs) var betri en sjálft aðalnúmerið, allavega það kvöldið!
  • Og síðast, en alls ekki síst, sé ég eftir að hafa gengið út úr miðasölunni 5 mín áður en Tom Waits hóf spilerí í Mobile í Alabama í sumar – út af einhverju svona asnalegu eins og að sætin væru svo fáranlega léleg og miðaverðið svo hátt. Ég meina, hversu oft fær maður tækifæri til að sjá Waits live? Þó það sé bara í partial view? ;/

4. Ætlaði alltaf að tékka á en trassaði:

Bon Iver! Veit ekki hversu oft ég hugsaði að ég yrði að fara að tékka á honum en gerði ekki. Bara búin að heyra svona lag og lag og öll hljóma þau fáranlega vel. Spurning um að verða sér úti um hana hið fyrsta :)

5. Bjartasta vonin

Úff to the púff! Uhh…á ég að vera fyrirsjáanleg og segja bara Fleet Foxes? Kemur allavega fáranlega sterklega til greina! Verður spennandi að heyra plötu nr. 2 :)

6. Hvaða tónleikar komu þér mest á óvart á árinu?

Ég fór að sjá Patrick Watson ásamt alveg heilum helling af e-m öðrum tónlistarmönnum frá Montréal í janúar. Kvöldið var til að vekja athygli á Baie Déception sem er um inúítana í Nunavik og vesenið þar. Meira vissi ég eiginlega ekki áður en ég fór. Þegar ég mætti í Corona tók svo allt annað við mér en ég bjóst við. Flott gamalt leikhús, hálfkjánaleg mynd um inúítana til að byrja með, endalaust mikið af góðri tónlist, Patrick Watson auðvitað frábær en Brad Barr ekki síðri og ég hafði aldrei heyrt neitt með honum áður. Upplestur á frönsku og ég geðveikt sátt við að skilja part og part, þrátt fyrir að vera nýkomin út…úff þetta kvöld var bara yfirmáta frábært á allan hátt! Betri lýsing fæst á Midnight Poutine :)

Svo kom Sam Amidon mér skemmtilega á óvart á Airwaves :)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Topp 5 dýralög – Krissa

16.6.2008 - Kristjana

The Unicorns – I Was Born (A Unicorn)

Er ekki nauðsynlegt að hafa smá svona mythical beings með? Ég meina, ef einhyrningar væru til í alvöru væru þeir dýr ;) Ég næstum ofhlustaði á Who Will Cut Our Hair When We’re Gone? og fannst þetta lag bara endalaust skemmtilegt og fyndið.

Man Man – Push the Eagle’s Stomach

Þetta var nú bara úllen-dúllen-doff því það eru alveg 3 Man Man lög sem mig langaði að setja hérna (the other two being Spider Cider og Ice Dogs). Hreint brjálæði og skemmtilegheit og ‘mústassj, mústassj, mústassj’ sönglið er æði :)

Caribou – Yeti

OK, það er svosem ekkert búið að sanna að Yetis séu til, frekar en einhyrningar, en það er bara aukaatriði því ég elska elska ELSKA þetta lag! Eitt af fyrstu (ef ekki allra fyrsta) lögunum sem ég heyrði með Caribou og ég get engan veginn fengið nóg af því. Lætur mann vilja boppa hausnum, hrista rassinn, vera glaður og fagna lífinu.

The Beatles – Blackbird
Einfalt, stutt og fallegt :)

Bonnie ‘Prince’ Billy – Wolf Among Wolves

Úff, Master and Everyone var liggur við soundtrack lífs míns í byrjun ársins 2003. Þetta lag vekur upp svo margar minningar að ég fæ ennþá sting í magann þegar ég heyri það. Fallegt og hljómar svo ótrúlega einlægt. Ég fæ líka pínu illt í hjartað þegar ég heyri “why can’t I be loved as what I am?”

Og sem very special (jafnvel honourable) mention: Wild Horses í flutningi Iron&Wine og Calexico. Yndislegt lag að öllu leyti. Hef reyndar heyrt margar góðar útgáfur af þessu lagi (og þónokkrar slæmar) en þessi er í uppáhaldi núna. Það er bara eitthvað við þessa rödd.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Hot Chip

22.1.2008 - Kristín Gróa


Knáu Bretarnir í Hot Chip eru að fara að gefa út sína þriðju breiðskífu 4. febrúar næstkomandi. Platan kemur til með að heita Made In The Dark og ég er bara orðin ansi spennt fyrir að heyra hana. Það sem ég hef heyrt lofar góðu þó ég eigi aðeins eftir að melta það almennilega en það er svo sem lítið að marka fyrr en maður heyrir gripinn í heild. Ekki nóg með að þeir séu að gefa út nýja plötu heldur hefur veraldarvefurinn verið gjörsamlega morandi í remixum og coverum eftir þá upp á síðkastið (Caribou, Ladytron, Junior Boys, !!!, QOTSA, Scissor Sisters, Gorillaz, Amy Winehouse…) sem eru sum hver bara skrambi flott. Mér finnst coverið á Matthew Dear laginu Don And Sherri sérstaklega vel heppnað og mæli alveg með því.

Hot Chip – Made In The Dark af Made In The Dark
Hot Chip – One Pure Thought af Made In The Dark
Hot Chip – Don and Sherri (Matthew Dear Cover)

Tags: , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off

Caribou

5.7.2007 - Kristín Gróa


Það ætti að gleðja einhverja að Dan Snaith er að fara að gefa út nýja plötu undir Caribou nafninu í ágúst. Gripurinn kemur til með að heita Andorra og ef lögin tvö sem fylgja eru einhver vísbending um gæði plötunnar þá held ég að við séum í góðum málum. Ég er allavega mjög hrifin og get ekki beðið eftir að heyra meira.

Caribou – Melody Day
Caribou – She’s The One

Tags: ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin