Topp 5 lög ársins – Georg Atli

30.12.2011 - Georg Atli

Ég á alltaf í erfiðleikum með þennan lista, ég er einhvern vegin bara þannig að ég er miklu meira fyrir plötur en stök lög… eða það held ég alltaf, en svo fer ég að hugsa þetta aðeins betur og þá koma alltaf fullt af lögum í hugan á mér sem mér finnst alveg frábær, með eða án hinna laganna á plötunni. Mér fannst líka ótrúlega erfitt að skera niður í þessi lög og enn erfiðara að skera niður í topp 5 (sem sést líklega best á því að þau eru 6), öll hin lögin sem ég nefni eru nefnilega líka frábær. Hérna koma sem sagt lög ársins að mínu mati, fyrst nokkur sem komust ekki alveg á listann (í engri sérstakri röð) og svo topp fimm sex lögin mín.

Cass McCombs – The Lonely Doll
Kurt Vile – Baby’s Arms
Lower Dens – A Dogs Dick
PJ Harvey – The Words that Maketh Murder
James Blake – Wilhelm Screams
Foster the People – Pumped up Kicks
Skurken – Stiklur
Tune-Yards – Gangsta
Reykjavík! – Sneak
Unknown Mortal Orchestra – Ffunny Ffrends
FM Belfast – Happy Winter
Fist Fokkers – Emilio, Don by the Schoolyard
IMMO – Barcelona
Sir Michael Rocks – I See
Samaris – Góða Tungl

Topp 5-6 lög ársins:

5. – 6. Lana del Rey – Video Games

Söngurinn rétt svo lekur útúr henni en er samt ótrúlega flott.

5.- 6. Snorri Helgason – River

Frábært lag, frábær plata. að velja þetta lag fram yfir hin lögin á plötunni er samt smá svindl því að það græðir á myndbandinu, sem mér finnst vera vel heppnað.

4.The Antlers – I Don’t Want Love

Falsettan nær mér alltaf! Mér finnst The Antlers vera vanmetin hljómsveit, sé eiginlega eftir því að hafa sleppt þeim á Airwaves…

3. Náttfari – Lævís Köttur

Náttfari gerðu virkilega góða plötu og þetta lag er einfaldlega rosalegt.

2. Mugison – Stingum Af

Þetta er eins nálægt þvíað vera jafntefli og það getur orðið… en samt ekki. Mugison gaf út rosa flotta plötu og þetta lag er frábært, nær einhvern veginn til allra og fangar íslenskan sumarandi (úff.. háfleygt!) betur en flest annað.

1. Gotye – Somebody I used to know

Ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum síðan ég heyrði það fyrst, eina lagið sem að ég veit um (sem kom út í ár) sem náði til breiðaðr hóps en Mugison. Virkilega flott popp.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2011 – Kristín Gróa

30.12.2011 - Kristín Gróa

Yfirleitt er það plötulistinn sem ég á í mestum vandræðum með en árið 2011 virðist hafa verið ár lagsins. Það voru ótrúlega mörg lög sem heilluðu mig þetta árið og ég átti í virkilegum vandræðum með að velja fimm uppáhalds. Að sjálfsögðu byrja ég á tíu runners up í engri ákveðinni röð…

Cass McCombs – County Line
Lykke Li – Sadness Is A Blessing
Kurt Vile – Jesus Fever
tUnE-yArDs – Bizness
Zoo Kid – Out Getting Ribs
John Maus – Believer
Bon Iver – Holocene
Adele – Someone Like You
Shabazz Palaces – Swerving The Reeping Of All That Is Worthwile (Noir Not Withstanding)
Azealia Banks – 212

5. Tyler, The Creator – Yonkers

Þetta er án efa svalasta lag ársins. Bítið í þessu er alveg sjúkt og ég elska þennan þunga tón sem ómar undir öllu svo djúpur að eyrun víbra. Alveg frá byrjunarlínunni I’m a fucking walking paradox… no I’m not yfir í I’m not gay, I just wanna boogie to some Marvin yfir í …and stab Bruno Mars in his goddamn esophagus þá er þetta brútal og offensive en samt pínu kómískt. Hvernig er þessi náungi bara tvítugur og samt að gera þetta?

4. Lana Del Rey – Video Games

Lana Del Rey er kannski úthugsað fyrirbrigði og markaðsbrella en vá hvað það virkar. Þegar vídjóið fyrir Video Games sprakk á internetinu þá skildi ég hæpið. Ég skildi alla strákana sem voru alveg spólandi þegar þeir sáu þessa gullfallegu stúlku í sixties múnderingu mala I heard that you like the bad girls honey… is that true?. Haba haba. Hvernig var þetta aftur… all the guys want her and all the girls want to be her?

3. Gotye – Somebody That I Used To Know ft. Kimbra
Þetta er eitt af þessum lögum sem ég vildi óska að hefði ekki orðið vinsælt. Ef þið eruð tónlistarelítubjánar eins og ég þá vitið þið alveg hvað ég er að meina. Ég vil ekki fíla lag svona ógeðslega mikið sem flíspeysukonan á undan mér í röðinni í Bónus raular með þegar það spilast á Bylgjunni. Ég vil ekki fíla það sama og hún. Henni finnst Bruno Mars örugglega æðislegur. Þetta lag er bara svo ógeðslega gott að ég get ekki afneitað því. Ég get ekki heldur neitað því að ég er óþolandi merkileg með mig þegar kemur að tónlist. It is what it is.

2. Lia Ices – Love Is Won

Ég skil þetta lag ekki. Það er svo sérstakt og rythminn í því er svo spes en á einhvern óútskýranlegan hátt er það samt fullkomið. Þegar viðlagið kikkar inn þá fæ ég í alvöru gæsahúð í hvert einasta sinn. Þó hún hafi ekki verið fullkomin þá fannst mér platan Grown Unknown mjög vanmetin og ég reyni oft að lauma laginu Daphne inn á playlista við góðar undirtektir (það er meira straightforward og svo er Bon Iver líka í bakröddum svo það rennur ljúflega í fólk).

1. EMA – California

Ég veit ekki hvað það er sem gerir það að verkum að ég fæ ekki leið á þessu lagi. Það er er eiginlega engin melódía og hún talar textann út í gegn en þegar það kemur smá vísir að laglínu þá hefur það þeim mun meiri áhrif. Hún hefur verið kölluð póser og ég get ekki beint hrakið það (sjáið myndbandið við þetta lag sem sönnunargagn A) en ég er samt ekki alveg viss. Ég held að hver einasti plötudómur sem ég las um Past Life Martyred Saints hafi vísað í hversu hryllilega hráir og opinskáir textarnir hennar eru enda er nánast sársaukafullt að hlusta á suma þeirra (eins og Butterfly Knife). Ég veit bara að í hvert skipti sem ég hlusta á þetta lag þá er það eins og hnefahögg í magann.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Topp 5 sunnudagslög – Georg Atli

29.4.2011 - Georg Atli

Sunnudagslög eru eiginlega frekar erfitt viðfangsefni, því það eru til svo margar gerðir af sunnudögum (leti-, tiltektar-, þynnku-, barnaafmælis-, almennir hangisunnusdagar og svo margar aðrar tegundir)…. ég reyndi að hafa þetta frekar almennt en lögin sem að ég valdi henta (eftir á að hyggja) öll frekar hangi-/rólegum sunnudegi. Það er líklega best að vara ykkur við núna að ólíkt listanum hans Einars Birgis þá eru þessi lög flest frekar miklir partýpúperar.

5. Puzzle Muteson – En Garde

Þessi er alveg nýr. Það er Bedroom Community sem að gefur hann út og það er plata væntanleg á þessu ári sem að ég bíð spenntur eftir. Soldið meira stuð í þessu lagi en hinum lögunum á listanum mínum en þetta er samt alveg akkúrat svona sunnudagslag og það er ekki hægt að segja að þetta sé partýlag…

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

4. Cass McCombs – The Lonely Doll

Cass McCombs var að gefa út stórgóða plötu í þessari viku, Wit’s End. Þessi plata er eiginega bara sunnudagslög og þetta er fyrsta lagið af henni. Ef að þið vitið ekki hver hann er þá mæli ég alveg með því að þið tjékkið á honum, platan Catacombs (2009) er líka frábær.

3. Sun Kil Moon – Unlit Hallway

Mark Kozelek er einn af uppáhalds tónlistarmönnunum mínum. Þetta lag er af plötunni April sem kom út 2008. Í þessu lagi er það svo annar uppáhalds (Will Oldham) sem að syngur bakraddir.

2. Joseph Arthur – A Smile That Explodes

Ég “uppgötvaði” þennann þegar að ég féll alveg gersamleg fyrir plötunni hans Our Shadows Will Remain (2004). Hræðilega ljúft lag sem að maður ætti helst að hlusta á þegar að það er rigning og svoleiðis. Ekki spila þetta í föstudagspartýinu þínu… nema að þú viljir einhverra hluta vegna drepa niður stemninguna.

1. Leonard Cohen – Famous Blue Rain Coat

Leonard Cohen er ca. svalasti maður sem hefur gengið á jörðinni. Hann er líka sunnudagslagakóngurinn, ég gæti valið næstum því hvaða lag sem er (með honum) en þetta er algerlega uppáhalds Leonard Cohen lagið mitt, og af uppáhaldsplötunni minni með honum (Songs of Love and Hate).

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin