Sarpurinn – Georg Atli

16.11.2010 - Georg Atli

Svona af því að raddirnar um nýja plötu frá einu mesta og besta tónskáldi sögunnar verða æ háværari þá er ágætt að kíkja örsnöggt á síðustu plötuna hans.

Aphex Twin – Druqs

Aphex Twin er eiginlega mystískur karakter frekar en eiginlegur tónlistarmaður. Í fyrsta lagi gerir hann stórkostlega tónlist sem engin leið er að eyrnamerkja á einhvern ákveðinn hátt (sést t.d. vel á þessari plötu) heldur blandar hann öllu saman og og snýr því á hvolf. Sjálfur flokkar hann tónlistina sína undir “Braindance” sem er reyndar ansi gott nafn! Í öðru lagi hefur hann verið að gefa út tónlist undir  8 mismunandi nöfnum (sem ég veit af en þau gætu vel verið fleiri), vegna þess að hann vill sjálfur ákveða hversu margar plötur hann gefur út og hverslags tónlist er á þeim. Að lokum hefur hann það fyrir venju að ljúga hiklaust í öllum viðtölum sem hann fer í, t.d. sögur um það að hann hafi keypt sér skriðdreka á Ebay.

Ein svona sagan er þannig að Madonna (sem var amk. einu sinni mikill aðdáandi) hringdi í hann og bað um að fá að vera með í einhverju lagi frá honum. Hann svaraði víst þannig að það væri lítið mál og þegar Madonna kom í stúdíóið hans var henni rétt textablað þar sem á stóð “MOO!”… Madonna átti að baula eins og kýr í laginu. Góð saga en það er erfitt að vita hvort hún sé sönn…

Platan Druqs verður seint talin með bestu verkum Aphex Twin (Richard D. James) en hún er samt rosalega góð og mjög merkileg. Platan hljómar milu meira eins og einhverskonar safnplata. Þarna virðist Aphex Twin hafa hent 30 lögum (sem hann valdi af handahófi) í plötuútgefandann sinn og sagt honum að gefa þeta út því hann vantaði pening (önnur góð saga segir að hann semji tónlist einungis fyrir sjálfan sig en gefi bara út 2. flokks efni sem hann týmir að senda frá sér þegar honum vantar pening).

Lög plötunnar eru þannig mjög blönduð, sumt minnir mann á fyrstu plötuna hans (Selected Ambient Works 85-92), annað hljómar eins og eitthvað af þessu gallsúra industrial “Drill n’ Bass” sem var á Richard D James Album og svo setur hann stundum í píanógírinn og hljómar eins og að hann hafi verið að hlusta á Eric Satie og hugsað “ég get gert þetta!”.

Það er reyndar eitt af píanó lögunum af plötunni sem varð til þess að ég fór að hlusta aftur á Aphex Twin (eftir alltof langa hvíld!). Lagið Avril 14th var nefnilega samplað af tveimur ólíkum artistum fyrir stuttu. Annars vegar voru það snillingarnir í Lonely Island (Saturday Night Live) sem gerðu lagið Iran So Far (þetta er snilld!), þar er lagið byggt upp í kringum lagið hans Aphex Twin og vakti víst ekki mikla lukku hjá honum (og örugglega ekki heldur hjá Mahmoud Ahmadinejad!). Síðan samplaði Kanye West lagið inn í sitt lag (Blame Game, líklega besta lagið af nýju plötunni hans og besta lag sem Kanye hefur nokkurn tíman gert!) en allavega þá koma nokkur lög hér þannig að þið getiðkannski áttað ykkur aðeins á plötunni.

Lög:
Aphex Twin – Avril 14th
Aphex Twin – Father
Aphex Twin – Omgyjya Switch7
Aphex Twin – Vordhosbn
Aphex Twin – Cock Ver10

Kanye West – Blame Game (ft. John Legend, Chris Rock)

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | 1 athugasemd »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin