Topp 5 dónólög – Krissa
10.3.2009 - Kristjana
‘Pínu’ sein vegna tölvuleysis. Oh well.
Minn listi er meira dónÓ lög en dónA lög…því dónó er gaman.
5. Client feat. Carl Barât – Pornography
Það er ekki hægt að hlusta á þetta lag án þess að hugsa e-ð dónó þegar röddin í Carl bætist við!
Úffdípúffpúff!
3. Liars – It Fit When I Was a Kid
Way out
on the crystal sea
protecting you and me
is a battleship
Öll ‘ahhh’in eru bara of!
Slísböllurinn að standa sig. Ef maður kemst ekki í dónó skap við að heyra þetta þá skeður það líklega bara aldrei múaha
Söngur Olgu gerir þetta lag bara ómótstæðilegt!
Tags: Carl Barât, Client, Liars, Massive Attack, Olga Kouklaki, Poni Hoax, Serge Gainsbourg
Flokkað undir Kristjana, Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 dúettar – Krissa
12.9.2008 - Kristjana
Tags: Antony and the Johnsons, Bob Dylan, Boy George, Carl Barât, Client, David Bowie, Erykah Badu, Frank Sinatra, Jane Birkin, Johnny Cash, Nancy Sinatra, Queen, Serge Gainsbourg, The Roots, Will Oldham
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Topp 5 nostalgíulög – Krissa
25.1.2008 - Kristjana
Ég man ennþá eftir að hafa keypt smáskífuna með þessu lagi í sumarfríi úti í Englandi hlustað á hana u.þ.b. 24/7 restina af fríinu. Ég man eftir að hafa legið með headphones yfir hausnum og hlustað aftur og aftur og náð textanum. Ég man líka hversu glöð ég varð alltaf þegar myndbandið kom á MTV á nóttunni. Og ennþá glaðari þegar ég dró tólf ára systur mína á Trainspotting þegar hún kom í bíó og lagið hljómaði undir endaatriðinu! Ég fæ ennþá alltaf kjánaglott út að eyrum þegar ég heyri þetta lag og langar að vera smástelpuskotin í Johnny Lee Miller og Ewan McGregor, horfa á Trainspotting á repeat á VHS, langar í fjölskyldufrí til Englands…og bara almennt að vera 14 ára aftur.
Vá nostalgía! Í hvert skipti sem ég heyri þetta lag dett ég aftur í að vera ástfanginn 10. bekkingur, hangandi öllum stundum með kærastanum, hlustandi á Bleach. Þetta er ennþá eitt af uppáhalds Nirvana lögunum mínum.
Fyrsta lagið sem ég man eftir að hafa heyrt með The Cure. Ég var örugglega bara pínulítil og heyrði það í útvarpinu heima eða eitthvað en það hefur greinilega setið í mér því alltaf þegar ég heyri þetta lag fæ ég óstjórnlega löngun til að dansa og syngja með og vera almennt eins og ófeiminn krakki
2. Dire Straits – Walk of Life
Stóri bróðir tók út eitthvað æði fyrir Brothers in Arms þegar ég var bara pons þannig að ég var alltaf að hlusta með. Mér finnst Walk of Life pínu vera lag okkar systkinanna þannig að ég verð alltaf sjálfkrafa glöð þegar ég heyri það. Svo skemmir ekki fyrir að videoið við lagið er 80s hallærislegt út í hið óendanlega!
1. Client feat. Carl Bârat – Pornography
Þetta er eitt af lögunum okkar Kristínar. Þetta er lag ársins 2005, árið sem við vorum saman öllum stundum, árið sem við vorum munaðarlausar um páskana en héldum þá hátíðlega saman á gömlu Freyjunni uppdressaðar yfir indverskum mat, árið sem við uppgötvuðum frosnar margarítur, árið sem við fórum fyrst á Glastonbury og vonuðum að Carl myndi hoppa upp á svið með Client, árið sem við áttum fullkomna túristahelgi í höfuðborg Íslands, árið sem við fórum í roadtrip til Ísafjarðar, árið sem við bjuggum til eldrauðan varalit og fórum svo uppdressaðar á 11una (af öllum stöðum) að sjaldan hefur annað eins sést…þetta lag stendur fyrir góða tíma og frábæra stelpu.
Tags: Carl Barât, Client, Dire Straits, Nirvana, The Cure, Underworld
Flokkað undir Kristjana, Listar | 4 athugasemdir »
Topp 5 nostalgíulög – Kristín Gróa
25.1.2008 - Kristín Gróa
Lag af hinni vanmetnu plötu The Great Escape sem ég gleypti í mig á unglingsárunum, nýbúin að uppgötva Blur og yfir mig ástfangin af Damon Albarn. Þetta var fyrsta lagið sem ég pikkaði sjálf upp á píanóinu og ég spilaði það svo oft að mér finnst ég vera aftur fjórtán þegar ég heyri þetta.
Ég var í hljómsveit á framhaldsskólaárunum og við komum einu sinni fram á kaffihúsakvöldi í skólanum. Ég sá um að lemja kúabjölluna í þessu lagi og fannst ég standa mig nokkuð vel. Það var ekki fyrr en eftir á að einhver sagði mér að ég hefði staðið á bak við sviðstjaldið og það eina sem sást var kúabjallan og einhver dularfull hendi sem sló á hana. Ég fæ enn smá kjánahroll þegar ég heyri þetta lag.

3. Desmond Dekker – The Israelites
Ég á svo ótrúlega sterka minningu um þetta lag frá Glastonbury 2005. Ég og Krissa vorum að þvælast um markaðssvæðið, hundleiðar á því að vaða drulluna upp að hnjám þegar við ákváðum að skoða inn í einn básinn. Um leið og við stigum inn byrjaði þetta lag að spilast og innan skamms voru allir í búðinni farnir að dilla sér og brosa til hvors annars. Ég man ég hugsaði “ég er á fokking glastonbury… hverjum er ekki sama um smá drullu?”.

2. Neil Young – Only Love Can Break Your Heart
Minnir mig á háskólaárin og þá sérstaklega þegar ég var að læra undir tölfræðipróf heima hjá bróður mínum og setti After The Goldrush af rælni í spilarann til að reyna að lina þjáningarnar. Ég hef verið heltekin af Neil Young síðan.

1. Nouvelle Vague – Too Drunk To Fuck
Ég bakka um sirka þrjú ár í hvert skipti sem ég heyri þetta lag. Ég og Krissa vorum alltaf á gömlu Freyjunni fyrir djamm (sem var frekar oft) og áður en við fórum út var skylda að hlusta á þetta og Pornography með Client. Rosalega margar margarítur og rosalega mikið af góðri tónlist… þetta var æðislegur tími.
Tags: Blur, Client, Damon Albarn, Desmond Dekker, neil young, Nouvelle Vague, pixies
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 3 athugasemdir »
Topp 5 lög flutt af stelpnahljómsveitum – Kristín Gróa
4.5.2007 - Kristín Gróa
1. The Supremes – You Can’t Hurry Love
No I can’t bear to live my life alone
I grow impatient for a love to call my own
Ég sagði alltaf að þetta væri einkennislagið mitt enda krónískt einhleyp og þó það eigi ekki við lengur þá er þetta samt eitt af uppáhalds lögunum mínum. Ég er reyndar með fáránlegt 60′s stelpnahljómsveita fetish og hefði auðveldlega getað fyllt listann með slíkum lögum. The Shirelles, The Ronettes, The Shangri-Las, The Angels, The Tammys, The Dixie Cups og ég gæti talið endalaust áfram. Þetta er þó toppurinn og það tekur efsta sætið á listanum fyrir hönd allra hinna.
2. Client feat. Carl Barat – Pornography
And I love the way you talk to me
And I love your whole philosophy
Þó ég og Krissa höfum upplifað mikið af tónlist saman þá er þetta pottþétt “lagið okkar”. Það minnir mig bara alltaf á Krissuna mína… páskadaginn sem við héldum upp á saman, ótalmörgu margarítukvöldin á Freyjunni og síðast en ekki síst Glastonbury ferðina þar sem við þraukuðum einmitt í gegnum heilt Client sett í klessu dauðans til að vera í fremstu röð á Bright Eyes. Ahhh good times… og þó við séum hvorugar sérlega miklir aðdáendur Client þá er þetta lag bara alveg fáránlega gott og það skemmir svo sem ekkert fyrir að Carl Barat skuli stynja þarna með
3. OOIOO – UMA
Ef þið hafið ekki heyrt þetta lag þá VERÐIÐ þið að tékka á því ekki síðar en núna! OOIOO er hliðarverkefni trommarans úr japönsku noiserokksveitinni The Boredoms en ólíkt þeirri sveit eru hér bara stelpur innanborðs. Ég held ég hafi aldrei heyrt jafn geðveikislega en um leið catchy tónlist og þessa. Hearing is believing.
4. Le Tigre – Deceptacon
I’m a gasoline girl with a vaseline mind but
Wanna disco?
Wanna see me disco?
Ég tengi þetta lag einhverra hluta alltaf við Ellefuna og kannski hefur það eitthvað að segja um það af hverju ég kemst alltaf í stuð við að heyra það. Le Tigre hafa orð á sér fyrir að vera mjög pólitískar og miklir femínistar en ég er svo grunn að mér finnst þetta bara hresst og það er nóg fyrir mig.
5. Chicks On Speed feat. Peaches – We Don’t Play Guitars
We like using gaffer tape
But we don’t play guitars
Ég held að allt sem Peaches kemur nálægt verði sjálkrafa alveg óendanlega töff og þetta lag er óneitanlega mjög töff.
Tags: Carl Barât, Chicks on Speed, Client, Le Tigre, OOIOO, Peaches, The Supremes
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 3 athugasemdir »








