Cut Copy á NASA
18.7.2011 - Kristín Gróa
Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að hin frábæra ástralska hljómsveit Cut Copy ætlar að halda tónleika á NASA á miðvikudagskvöldið. Nú er ljóst að upphitun verður í höndum Péturs Ben og Eberg ásamt hljómsveit og svo Berndsen ásamt hljómsveit. Okkur barst þessi fína tilkynning sem útskýrir þetta allt saman í smáatriðum:
NÝJAR VIÐBÆTUR
Hér með tilkynnist að Berndsen ásamt hljómsveit og Pétur Ben & Eberg koma fram á tónleikum Cut Copy í Reykjavík og sjá um upphitun. Cut Copy sjálfir völdu Berndsen sérstaklega úr hópi nokkurra kandídata sem upphitunarband fyrir tónleika þeirra í Reykjavík, voru ánægðir með skífu hans Lover in the Dark. Berndsen fer mikinn þessa dagana með nýjan smell “Úlfur úlfur” sem hann tekur með sjálfum Bubba Morthens. Pétur Ben & Eberg munu einnig koma fram á tónleikunum og verða þetta fyrstu formlegu tónleikar þeirra saman. Þeir félagar eru nýbúnir að gefa út plötuna Numbers Game – þar sem Mugison, Gísli Galdur og Sigtryggur Baldursson eru meðal gesta – sem inniheldur m.a. lögin Come On Come Over og Over and Over sem nú er að gera það gott. Plötusnúðarnir Kanisnúðar leika á milli atriða.
TÓNLEIKARNIR
Tónleikar Cut Copy á NASA við Austurvöll, 20. júlí.
Cut Copy heimsækir Reykjavík sem lið í tónleikaferð sveitarinnar um heimsbyggðina í kjölfar útgáfu nýrrar breiðskífu; Zonoscope. Sveitin á að baki tvær fyrri breiðskífur – Bright Like Neon Love (2004) og In Ghost Colours (2008) – sem m.a. innihalda smellina “Saturdays”, “Future”, “Lights & Music”, “Hearts on Fire” og “Far Away”.
Zonoscope hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og jafnframt náð hærra á sölulista beggja vegna Atlantsála en fyrirrennar hennar. Hljóm Cut Copy mætti lýsa sem dansskotinni popptónlist undir sterkum áhrifum frá tónlist níunda áratugnum, en á nýju plötunni kveður að mörgu leiti við nýjan tón. Sveitin hefur verið borin saman við ólíka listamenn á borð við Kraftwerk, Hot Chip og Roxy Music.
Cut Copy þykir frábær tónleikasveit og hefur komið fram á mörgum helstu tónlistarhátiðum heims. Auk eigin lagasmíða eru Cut Copy liðtækir við að að vinna með og endurhljóðblanda aðra listamenn og má þar nefna Kaiser Chiefs, Bloc Party, Franz Ferdinand og Daft Punk – sem allar hafa fengið sveitina til að leika með sér á tónleikaferðum sínum.
Cut Copy vakti mikla lukku á nýafstaðinni Coachella hátíð – og leikur á mörgum helstu tónlistarhátíðum sumarsins (Sonar, Open Air Hultsdfred, Bestival o.fl.). Sveitin kemur hingað til lands beint af Pitchfork Music Festival í Chicago.
MIÐASALA
Forsala aðgöngumiða fer fram á Midi.is og verslunum Brim, Laugavegi 71 og Kringlunni. Miðasala fer einnig fram á NASA svo lengi sem miðamagn leyfir tónleikakvöldið sjálft.
DAGSKRÁ KVÖLDSINS
21.00 hús opnar
21.30 Pétur Ben & Eberg ásamt hljómsveit
22.15 Berndsen ásamt hljómsveit
23.00 Cut Copy
*Plötusnúðarnir Kanilsnúðar leika á milli atriða
Birt með fyrirvara um breyingar
Tags: Berndsen, Cut Copy, Eberg, Pétur Ben
Flokkað undir Kristín Gróa, Tilkynning | Comments Off
Fullt af “útlenskum tónleikum” á árinu
1.5.2011 - Georg Atli
Síðastliðin ár hafa verið ansi mögur þegar að það kemur að erlendum tónlistarmönnum að spila á Íslandi, að er líklega skiljanlegt. En núna í ár ætlar þetta heldur betur að breytast! Til að sanna mál mitt bendi ég ykkur á að lesa lengra…
Steingervingarnir í Eagles ætla að spila (löngu uppselt) og Cindy Lauper og svoleiðis… en svo eru líka alveg fullt af skemmtilegum tónlistarmönnum sem ætla líka að koma til okkar! Indíhausarnir eru náttúrulega búnir að fá ansi feitan bita með Deerhunter og Lower Dens (þó að þau ahfi ekki verið frábær þá er samt gaman að hafa séð þau) á Reykjavík Music Mess.
Svo kemur Elvis Costello og það er ansi flott dæmi. Harðkjarnaliðið fær svo að sjá eina af frægustu hljómsveitum þess tónlistarsviðs þegar Converge treður upp á Faktorý í júní (hafa þeir ekki komið áður??).
Maí er ansi góður tónleikamánuður því að þann 22. ætlar Caribou (og Sin Fang) að spila á NASA og það verður væntanlega geðveikt. Nokkrum dögum síðar verða spanjólarnir í hljómsveitin Ojos de Brujo að spila í tengslum við Listahátíð, það er alveg þess virði að tjékka á þeim ef að þið viljið heyra eitthvað aðeins öðruvísi eða ef að þið fílið “heimstónlist” (heimsins kjánalegasta nafn á tónlistarstefnu).
Síðan er Iceland Airwaves í október eins og venjulega og þar er þegar búið að tilkynna alveg heilan helling af flottum böndum, m.a. Beach House, tUnE-YarDs, Liturgy, John Grant og Zebra and Snake. Svo er einhver orðrómur um það að Fleet Foxes gætu verið á leiðinni þangað sem að væri frábært… en það eru mjög óstaðfestir orðrómar, ennþá.
Í gær var sagt frá því að Cut Copy ætli að spila í júlí. Ég held að það verði svakalegir partýtónleikar því að hressari syntharokksveit er vandfundin.
Svo er annar orðrómur um það að hljómsveitin Low (sem voru að gefa út plötu í byrjun apríl) sé væntanleg, en það er samt bara slúður sem að ég vona að verði að einhverju… þangað til að að það gerist getiði sótt þetta lag sem þau gáfu á heimasíðunni sinni.
Tags: Beach House, Caribou, Converge, Cut Copy, Cyndi Lauper, Deerhunter, Eagles, Elvis Costello, Fleet Foxes, John Grant, Liturgy, Low, Lower Dens, Ojos de Brujo, Sin Fang, tUnE-yArDs, Zebra and Snake
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 2 athugasemdir »
Nýtt myndband frá Cut Copy
18.2.2011 - Georg Atli
Hljómsveitin Cut Copy heillaði mig alveg með plötunni sinni In Ghost Colors sem kom út 2008. Stórskemmtilegt synthapop fyrir allan peninginn. Nýverið þá kom út ný plata frá þeim sem að heitir Zonoscope og hún hefur verið að fá fína dóma hér og þar í músíkheiminum. Í gær fékk ég svo sendan link á nýtt myndband frá þeim sem að kemur hér:
Cut Copy – Need You Now from Cut Copy on Vimeo.
Tags: Cut Copy
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Meira allskonar!
5.8.2010 - Georg Atli
Já topp5 er ennþá í sumarfríi en það er samt allskonar að gerast út um allt.
Jónsi gaf út nýtt myndband:
Iceland Airwaves tilkynntu fleirri bönd m.a. Apparat Organ Quartet, sem er eittt besta tónleikaband Íslandssögunnar þannig að það eru stórgóðarfréttir!
og tvö af þeim sem gáfu út bestu plötur ársins 2008 eru að hita upp í nýjar plötur og sendu frá sér smá forrétti. Annars vegar voru það áströlsku synthapoppararnir í Cut Copy (ný plata í byrjun 2011) og líka gítarundrið Marnie Stern (ný plata í október)
Sá líka á Pitchfork að Janelle Monaé var að gera annað tónlistarmyndband, núna við lagið Cold War. Myndbandið er mjög minimalískt ala Sinaéd O’Connor í Noting Compares 2 U bara með meira af andlitsmynd.
og síðan svona í lokinn langar mig að benda á að það eru ókeypis tónleikar í kvöld á Faktorý (gamla Grand Rokk), alltaf gaman að ókeypis! Þar ætla Two Tickets to Japan, At Dodge City og Bob að spila frá kl. 22.

Lög:
Cut Copy – Where I’m Going
Marnie Stern – For Ash
Apparat Organ Quartet – Stereo Rock & Roll
Tags: Airwaves, Apparat Organ Quartet, Cut Copy, Janelle Monáe, Jónsi, Marnie Stern, Sinaéd O'Connor
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Topp 5 Plötur 2008 – Georg
2.1.2009 - Georg Atli
1. Bon Iver – For Emma, Forever Ago
Einlægasta og fallegasta og sárasta og besta plata sem ég hef heyrt í langan tíma… (ok hún kom út í des 2007 en mér finnst hún svo góð að ég ætla samt að hafa hana efsta á 2008 listanum)
Skinny Love à la Blogothèque
2. Cut Copy – In Ghost Colors
…sækadelic-elektró-rokk??? Rosalega flott og gott og hressandi, soldið líkt MGMT en mér finnst þetta betra.
Hearts On Fire:
3. Fleet Foxes – Fleet Foxes
Nýliðar ársins með ótrúlega þægilega plötu (þægilegt er meint á sem bestan hátt), þeir fá fullt lánað allstaðar frá og gera það bara mjög vel.
White Winter Hymnal
4. Marnie Stern – This Is It And I Am It And You Are It And So Is That And He Is It And
She Is It And It Is It And That Is That
Óhljóða-pönk-krútt (eða eitthvað svoleiðis) með geðveikt flottum gítar!
Ruler
Hipp-hopp plata ársins
Vídjóið er hér, en það er víst ekki við allra hæfi (enda var það bannað af Youtube)… og það eru blikkljós svo ekki horfa ef þið eruð flogaveik…
Komust-ekki-alveg-á-listann-listinn
MGMT – Oracular Spectacular
Fucked Up – The Chemistry Of Common Life
Glasvegas – Glasvegas
Beck – Modern Guilt
Nick Cave – Dig, Lazarus Dig!
Vampire Weekend – Vampire Weekend
Portishead – Third
TV On The Radio – Dear Science
Tags: 2008, Árslisti, Beck, Bon Iver, Cut Copy, Fleet Foxes, Flying Lotus, Fucked Up, Glasvegas, Marnie Stern, MGMT, Nick Cave, Portishead, TV on the Radio, Uppgjör, Vampire Weekend
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 1 athugasemd »
Cut Copy
5.2.2008 - Kristín Gróa

Ástralska hljómsveitin Cut Copy hefur verið að fá dálitla umfjöllun upp á síðkastið enda ný plata á leiðinni. Sveitin hefur verið starfandi frá árinu 2001 svo þeir eru engir nýgræðingar en hafa þó bara gefið út eina eiginlega breiðskífu, Bright Like Neon Love árið 2004. Til að hita upp fyrir nýju plötuna hafa þeir fengið ekki ómerkari menn en Boys Noize og Superdiscount til að gera remix af fyrsta singúlnum. Mér finnst þetta bara nokkuð skemmtilegt, dálítið 80′s en það skemmir sjaldnast fyrir.
Cut Copy – Lights & Music
Cut Copy – Lights & Music (Boys Noize remix)
Cut Copy – Lights & Music (Superdiscount remix)
Tags: Cut Copy
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off


