Koma sér í gírinn???

31.1.2012 - Georg Atli

Jæja nú erum við búin að vera of léleg í alltof langan tíma. Við erum búin að fá fullt af póstum um allskonar sem er búið að vera að gerast og ég ætla að reyna að bæta aðeins upp aðgerðarleysið núna í dag og næstu daga. Við biðjumst bara afsökunar á færsluleysinu og lofum bót og betrun.

Byrjum á því að segja frá því að Steve Sampling vera að senda frá sér nýtt efni (kom út 26. jan). Þetta er önnur platan sem hann gefur út hjá Möller Records. Þetta stóð um plötuna í fréttatilkynninguni:

“Distance er önnur plata Steve Sampling’s á vegum Möller Records. Platan er undir sterkum diskó áhrifum og er vinalegt viðmót til hús- og sálartónlistarinnar og inniheldur söng frá Braga Eirík (úr Johnny & The Rest / Epic Rain).”

Síðan kemur plata Ben Frost og Daníels Bjarnasonar, SÓLARIS (sem er frábær), á vínyl í byrjun febrúar. Hægt að forpanta hér.

Síðan kom á netið skemmtileg stuttheimildarmynd um Airwaveshátíðina, gaman að því.

AIRWAVES – a Rockumentary from Gudjon VIDEO on Vimeo.

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 íslenskar plötur 2011 – Kristín Gróa

13.1.2012 - Kristín Gróa

Árið 2011 er í mínum huga ár íslenskrar tónlistar. Það kom út alveg gríðarlegt magn af vönduðum og skemmtilegum plötum og ég hef persónulega aldrei hlustað jafn mikið á íslenska tónlist. Húrra fyrir íslenskum tónlistarmönnum! Að vanda skulum við byrja á 10 plötum sem náðu ekki á topp fimm en mér þykir samt vert að minnast á:

Lay Low – Brostinn strengur
GusGus – Arabian Horse
Snorri Helgason – Winter Sun
Nolo – Nology
Vigri – Pink Boats
FM Belfast – Don’t Want To Sleep
Orphic Oxtra – Kebab diskó
Gang Related – Stunts & Rituals
ADHD – ADHD2
Ben Frost & Daníel Bjarnason – SÓLARIS

5. Reykjavík! – Locust Sounds

Rokkplata ársins! Gríðarlega metnaðarfull og skemmtileg plata sem rokkar fyrir allan peninginn. Ég hafði fram að þessu aldrei hlustað mikið á Reykjavík! en hafði horft dáleidd á þá live enda leitun að betra live bandi. Nú er ég farin að hlusta og mun aldrei hætta.

4. Mugison – Haglél

Þetta er líklega plata ársins svona almennt séð enda náði hún til allra. Ég hef aldrei hitt neinn sem hefur nokkuð slæmt um Mugison eða hans tónlist að segja og þar held ég einmitt að töfrarnir séu. Hann er allra. Hann er nógu kúl fyrir hipsterana en nógu alþýðlegur fyrir ömmurnar. Allir vinna. Það er frábært að sjá viðtökurnar við þessari plötu og þær eru algjörlega verðskuldaðar. Þetta er í raun látlaus lítil plata en stundum er minna meira.

3. Sin Fang – Summer Echoes

Þessi plata er líklega andstaðan við Haglél. Hér er ekkert lítið, látlaust eða einfalt heldur allt svo gríðarlega flókið og samofið að þegar ég hlusta þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig í fjáranum maðurinn fer að því að láta þetta allt passa svona fullkomnlega saman. Mér finnst platan sterk út í gegn en ég heillaðist samt mest af laginu Fall Down Slow sem varð mitt fyrsta ofspilaða lag ársins 2011.

2. Sóley – We Sink

Ég viðurkenni að þegar ég hlustað á Theater Island í fyrsta sinn þá náði ég henni ekki alveg en eftir að hafa séð Sóley spila live þá gaf ég henni annan séns og heillaðist algjörlega. Ég beið því We Sink með mikilli eftirvæntingu og varð engan veginn fyrir vonbrigðum. Mér finnst ég vera að fara inn í annan heim þegar ég set þessa plötu af stað og í hvert sinn hlusta ég frá upphafi til enda… nema kannski þegar ég er að spila Smashed Birds á repeat en það er algjörlega uppáhalds. Það er líka alveg ofboðslega gaman að heyra lögin af plötunni live en Sóleyju og Jóni Óskari tekst á einhvern undraverðan hátt að spila bara tvö en koma samt öllu til skila.

1. Of Monsters And Men – My Head Is An Animal

Það má alveg ásaka mig um að vera hlutdræga þegar kemur að Of Monsters And Men og ég skal alveg gangast við því. Ég get hins vegar lofað því að ég myndi ekki setja þau á toppinn á árslistanum mínum óverðskuldað og staðreyndin er sú að hef ekki hlustað jafnmikið á nokkra íslenska plötu á árinu. Mér finnst hún alltaf skemmtileg, fæ aldrei leið á lögunum og syng með hverju lagi. Mér finnst ekki eitt slakt lag á þessari plötu og ég er ekki hissa á að EP platan Into The Woods hafi toppað Billboard Heatseekers listann. Framtíðin er björt!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Annáll Bedroom Community

13.1.2012 - Georg Atli

Nokkur af minnisstæðustu viðburðum Bedroom Community útgáfunnar á árinu 2011:

-Bedroom Community fjölskyldan stækkaði; Puzzle Muteson gaf út sína fyrstu plötu En Garde í júní.

-Nico Muhly frumflutti tvær óperur; Two Boys og Dark Sisters auk þess að semja talsvert fleiri verk.

-Ben Frost og Daníel Bjarnason fluttu verkið SÓLARIS á völdum stöðum og gáfu svo út plötuna í nóvember við frábærar undirtektir.

-Ben vann einnig með Brian Eno sem hluti af Rolex verkefninu 2010-2011, samdi tónlist við kvikmyndirna Sleeping Beauty og The Invisibles og valdi hljómsveitir á Donau hátíðina.

-Daníel frumflutti nýtt verk í byrjun ársins – Birting- sem var svo tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem Tónverk ársins en Daníel var jafnframt tilnefndur sem Tónhöfundur ársins.

-Valgeir Sigurðsson samdi Nebraska fyrir Chiara Quartet, samdi tónlistina við Architecture of Loss eftir danshöfundinn Stephen Petronio og var afar upptekinn í hinum ýmsu hljóðverum þar sem hann vann m.a. tónlist með Bedroom Community listamönnunum, Feist, Damon Albarn og Hilary Hahn & Hauschka.

-Fyrsta kvikmynd útgáfunnar leit dagsins ljós. Everything Everywhere All The Time var frumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík og svo sýnd á CPH:DOX kvikmyndahátíðinni í Danmörku.

-Hljóðverið Gróðurhúsið var tekið í gegn og fékk fjölmargar heimsóknir.

-Bedroom Community áttu stórt ár á Iceland Airwaves hátíðinni, með eftirminnilega tónleika Puzzle Mutesoná Iðnó, flutningi á verkum eftir Daníel og Valgeir ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu og hinna árlegu off venue tónleika á Kaffibarnum.

-Líkt og síðasta ár var svo lokahnykkurinn Yule, áður ófáanlegt efni eftir Bedroom Community listamennina sem hægt var að nálgast frítt ef verslað var í gegnum vefsíðu útgáfunnar í desember.

Framundan er svo ekki síðra ár, en útgáfan vill þó lítið gefa upp um 2012 plön sín. Nýjum viðbótum við Bedroom Community er þó lofað sem og aktífu ári.

Hér má sjá listamenn útgáfunnar telja upp þeirra minnisstæðustu viðburði ársins.

Og athugið að hægt er að taka þátt í Facebook leik útgáfunnar, neðst í fréttinni, þar sem 12 heppnir verða dregnir út og geta valið sér Bedroom Community plötu.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Ben Frost & Daníel Bjarnason – Sólaris

22.12.2011 - Georg Atli

Ég verða að viðurkenna að mér finnst ég ekki hafa alveg nógu mikla vitneskju um tónlist á klassíska skalanum til að skrifa mjög mikið eða ítarlega um þessa plötu og þess vegna verður þetta í styttri kantinum.

Þetta samvinnuverefni Ben Frost og Daníels Bjarnasonar kom út fyrir stuttu hjá Bedroom Community (rosalega metnaðarfullt og áhugavert útgáfufyrirtæki, tjékkiði á því). Þetta tónverk er hugsaður þannig að það fylgi kvikmynd Andrei Tarkovsky, tónlistin var spunnin við kvikmyndina og síðan var tónlistin keyrð í gegnum allskonar tæki og forrit sem ég kann nákvæmlega engin skil á og svo spiluð af hjlómsveit fyrir plötuna.

Tónlistin er rosalega þung og það er stundum virkilega erfitt að hlusta á hana. Hún er myrk og skrítin og stundum er hún hreinlega ógnvekjandi en samt undurfalleg.

Þetta er tónverk sem ætti að hlusta á í góðum græjum og helst að spila frekar hátt. Sólaris er einn af þessum hlutum sem á að njóta og það ætti eiginlega að njóta hennar í einrúmi. Eini gallinn er að á köflum þá vantar greinilega hluta af verkinu til að tónlistin ná fullum áhrifum, en þannig er það yfirleitt með kvikmyndatónlist.

Sólaris kemur út hjá Bedroom Community og það er hægt að kaupa hana hér.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | Comments Off

Jólajólalög

7.12.2011 - Georg Atli

Desember og allt sem honum fylgir er farið að íþyngja sumu fólki. Á meðal þeirra hluta sem geta farið í taugarnar á fólki svona í kringum jólin eru léleg/leiðinleg jólalög, það virðist nefnilega vera alveg ótrúlega mikið af þeim til og líka alveg ótrúlega mikið af fólki sem vill spila þau upp á nýtt og þá jafnvel í verri útgáfum. Sem betur fer eru samt ekki öll jólalög leiðinleg. Til dæmis þá gaf Stafrænn Hákon út heila jólaplötu í fyrr sem er afspyrnu skemmtileg og Morðingjarnir gerðu líka jólalag og m.a.s. var (fín) jólaábreiða á þeirri smáskífu.

Í ár koma líka jólalög og núna um daginn sendi Melchior frá sér jólalag sem er hægt að kaupa á hjá gogoyoko.

Það er svo orðin árlegur viðburður að jaðarútgáfan Bedroom Community sendi frá sér jólatengdann safndisk (kom líka út í fyrra, er það ekki þá orðin hefð?!). Lagalistinn í ár lítur svona út:

Puzzle Muteson — Will You Love Me Tomorrow
Nico Muhly — Once in Royal David’s City
Daníel Bjarnason — Spindrift / Montauk in February Remix
Valgeir Sigurðsson — Flesh and Wine and Firewood
Ben Frost — Stomp / Scanner Remix
Nico Muhly — The Holly and the Ivy
Ben Frost — The Gravity of Numbers
Daníel Bjarnason — Air to Breath / Montauk in February Remix
Sam Amidon — How Come That Blood / FM Belfast Remix

og að lokum þá sendi hljómsveitin Gang Related (sem á eina af topp plötum ársins) frá sér jólalag á dögunum og það er ókeypis að sækja á soundcloud síðunni þeirra, næs!

Gang Related – Jesú Jólasveinn

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Úrvalslisti Kraums

7.12.2011 - Georg Atli

Nú er desember og árslok nálgast óðfluga, en þá er einmitt frábærlega gaman (og erfitt) að vera tónlistarnörd og kynna sér alla árlistanna. Hér á Íslandi er það yfirleitt (amk undanfarin ár) tónlistasjóðurinn Kraumur sem ríður á vaðið með sinn 20 plötu úrvalslista. Sá listi var birtur í gær en endanlegur listi verður svo birtur 16. des.

Samkvæmt heimasíðu Kraums fer valið fram á eftirfarandi hátt:

Framkvæmd Kraumslistans 2011 er með þeim hætti að sex manna dómnefnd valdi 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en við honum tekur 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 20 aðilum sem allir hafa mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðla. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Í úrvalslistanefnd áttu sæti ásamt Árna Matthíassyni: Andrea Jónsdóttir, Trausti Júlíusson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir og Hildur Maral Hamíðsdóttir.

Þessar plötur komust á úrvalslistann:

  • ADHD – ADHD2
  • Anna Þorvalds – Rhízoma
  • Ben Frost og Daníel Bjarnason – SÓLARIS
  • Dead Skeletons – Dead Magick
  • FM Belfast – Don’t want to sleep
  • For a Minor Reflection – EP
  • Helgi Hrafn Jónsson – Big Spring
  • Hljómsveitin Ég – Ímynd Fíflsins
  • Lay Low – Brostinn Strengur
  • Nolo – Nology
  • Of Monsters and men – My Head is an Animal
  • Ofvitarnir – Stephen Hawking/Steven Tyler
  • Ragga Gröndal – Astrocat Lullaby
  • Reykjavík! – Locust Sounds
  • Samaris – Hljóma Þú (ep)
  • Sin Fang – Summer Echoes
  • Skurken – Gilsbakki
  • Snorri Helga – Winter Sun
  • Sóley – We Sink
  • Sólstafir – Svartir Sandar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

SÓLARIS komin út

16.11.2011 - Georg Atli

Platan SÓLARIS eftir Ben Frost & Daníel Bjarnason er komin út á alheimsvísu á vegum Bedroom Community. Hún er þegar farin að fá prýðis dóma, til að mynda 8 stjörnur af 10 á hinni virtu tónlistarsíðu Drowned in Sound.

Um er að ræða tónverk eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason en íslenskur frumflutningur á verkinu var á Listahátíð í Reykjavík í júní síðastliðnum. Það var Unsound hátíðin í Kraká sem pantaði verkið í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá útgáfu skáldsögunnar Solaris eftir pólska rithöfundinn Stanislaw Lem, en verkið er unnið fyrir Krakársinfóníettuna.
SÓLARIS er samið fyrir þrjátiu strengja- og ásláttarleikara, gítara, rafhljóðfæri og breytt píanó. Um kvikmyndaverk með tónlistinni sáu Brian Eno og Nick Robertson þar sem unnið var upp úr römmum úr Solaris-kvikmynd Andrei Tarkovsky frá árinu 1972.

Lagalisti plötunnar er sem hér segir:

1. We Don’t Need Other Worlds, We Need Mirrors
2. Simulacra I
3. Simulacra II
4. Snow
5. Reyja
6. Cruel Miracles
7. Hydrogen Sulfide
8. Unbreakable Silence
9. You Mean More To Me Than Any Scientific Truth
10. Saccades
11. Venia

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Airwaves fimmtudagskvöld – Georg Atli

26.10.2011 - Georg Atli

Úff hvað við erum eitthvað ógeðslega léleg þessa daganna, hér er fyrsta skrefið til þess að breyta því…

Þegar að ég skoðaði dagskránna fyrir hátíðina þá sá ég strax hvað fimmtudagskvöldið var erfitt. Alltof margt skemmtilegt að sjá og ég átti ótrúlega erfitt með það að velja og hafna. Kannski var það þess vegna sem ég kom mér svona seint af stað? Ég fór amk allt of seint af stað og missti þess vegna af allskonar sem ég ætlaði að sjá… eins og t.d. Hauschka í Fríkirkjunni (er enn að bölva því).

Ég náði samt að sjá svolítið (alltof lítið) af því sem var að gerast í Eldborgar sal Hörpu. Þar rétt náði ég í eittoghálft af síðustu lögum Daníels Bjarnasonar sem Sinfoníuhljómsveit Íslamds lék. Þau voru geðveikt flott. Það var ótúleg upplifun menningarplebba eins og mig (sem hefur aldrei séð Sinfóníuhljómsveitina spila á alvöru tónleikum!) að fá að sjá og upplifa þetta, þó að það hafi ekki verið nema eitt og hálft lag. Það fylgir því einhverskonar undarleg gapandi tilfinning (veit ekki alveg hún heitir en hún veldur því að maður gapir) að koma inn í Elsborg. Mér finnst þessi salur vera stórkostlegur.

Eftir að hafa séð þetta og var smá hlé á meðan að Sinfónían kom sér út úr salnum og ICE (International Contemporary Ensemble) hópurinn kom sér fyrir, þetta hlé ákvað ég að nýta til fulls og hljóp niður til að sjá Sean Lennon og Greg Sauniere spila einhvern þann trylltasta spuna sem ég hef séð undir sameiginlegu nafni Consortium Musicum. Það verður líka að nefna það að Sean Lennon var í algjöru aukahlustverki þarna, Greg Saunier er trommuleikari Deerhoof og besta lýsingin á hans frammistöðu þarna er líklega sú að hann var alveg sturlað góður. Hins vegar get ég ekki einu sinni sagt með fullri vissu á hvaða hljóðfæri Sean spilaði…

Eftir að hafa hlustað á trommurnar í smástund stökk ég aftur yfir í Eldborg og sá ICE spila verk Steve Reich. Það var mjög flott. Ég verð samt að viðurkenna það að fyrir hátíðina vissi ég ekkert um Steve Reich og byrjaði fyrst vikuna fyrir Airwaves að skoða hann eitthvað og ég er alveg viss um það að ef ég hefði þekkt verkin hans betur þá hefði þetta virkað betur fyrir mig. Ég hvet samt alla þá sem ekki þekkja til Steve Reich til þess að tjékka á honum, þetta er ansi gott.

Frá Eldborg hljóp ég (lesist sem “labbaði aðeins hraðar en venjulega”… hitt lítur bara betur út) niður á NASA og sá hljómsveitina Young Galaxy. Í rosalega stuttu máli þá var þetta ekkert sem hreif mig og ég forðaði mér fljótlega yfir í listasafnið til þess að sjá Beach House.

Þetta reyndist vera gríðarlega góð ákvörðun því að þrátt fyrir að hafa verið í Listasafninu (sem mér finnst vera einn af síðstu stöðum Airwaves á hverju ári) þá voru þau alveg frábær. Hljóðið var flott, lögin voru frábær, framkoman líflaus, stemningin var samt frábær og rödd Victoria Legrand er stórkostleg. Hins vegar kláraði ég ekki alveg tónleikana þeirra því að á Amsterdam var hljómsveitin Fist Fokkars að spila. Ég hafði komist að því á facebook að Fist Fokkers voru búinir að setja saman epískan lista yfir tökulög sem þeir fluttu á tónleikunum. Þar voru m.a. lög eins og Don’t Speak með No Doubt, Sinaed O’Connor útgáfu af Nothing Compares 2 U og Sabotage eftir Beastie Boys og í flestum tilfellum voru útgáfur Fist Fokkers betri en upprunalegu útgáfurnar. Frábært live band og ein af skemmtilegri tónleikum hátíðarinnar.

Moment kvöldsins var samt fyrsta lag Beach House Gila því að þau voru bara svo svakalega töff.
Beach House – Gila

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Nýtt frá Sigurrós!?

11.8.2011 - Georg Atli

Núna rétt áðan voru strákarnir í Sigur Rós að senda frá sér þetta fína stutta myndskeið:

Þessi trailer gæti annað hvort verið fyrir heila nýja plötu (sem Daníel Bjarnason ætlar að sjá um strengjaútfærslur á) eða nýjan DVD live disk sem að búið að vera slúðra um á netinu (sem á að vera upptaka af þessum tónleikum frá 2008). Mér finnst seinni valkosturinn líklegri útaf áhorfandaskaranum sem sást í og svo voru þeir greinilega að spila á einhverjum tónleikum… Mér fannst það líka sérstaklega merkilegt að myndbandsbrotið er allt í mónókróm og ef að DVD-ið er allt þannig þá gefur það alveg örugglega mjög skemmtilegan fílíng.

Hvað sem þetta verður þá verður það alveg örugglega rosalega flott og eigulegt…

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Solaris á Listahátíð á laugardag (í kvöld)

4.6.2011 - Georg Atli

BEN FROST, DANÍEL BJARNASON OG KRAKÁRSINFÓNÍETTAN Á LISTAHÁTÍÐ
KVIKMYNDAVERK EFTIR BRIAN ENO OG NICK ROBERTSON

Í Hörpu, Silfurbergi, laugardaginn 4. júní kl. 20:00

We don‘t need other worlds, we need mirrors
– Music for Solaris er tónverk eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason sem þeir flytja á Listahátíð í Reykjavík nú á laugardaginn ásamt Sinfóníettu Krakárborgar. Við tónlistina er sýnt kvikmyndaverk eftir Brian Eno og Nick Robertson sem byggir á kvikmynd Tarkovskys, Solaris, frá árinu 1972. Tónverkið er samið í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá útgáfu skáldsögunnar Solaris eftir pólska rithöfundinn Stanislaw Lem. Það er samið fyrir þrjátíu strengja- og ásláttarleikara, gítara, rafhljóðfæri og breytt píanó þar sem hlutum eins og skrúfum og strokleðrum er komið fyrir milli strengja píanósins til að breyta hljómi þess. Ben Frost leikur á rafmagnsgítar sem hann keyrir í gegnum ýmsa hljóðeffekta og Daníel leikur á breytt píanó. Kvikmyndaverk eftir Brian Eno og Nick Robertson sem er hluti af flutningi verksins er unnið upp úr römmum úr kvikmynd Tarkovskys. Music for Solaris var frumflutt á Unsound tónlistarhátíðinni í Kraká í október síðastliðnum og var einnig flutt í Lincoln Centre í New York á Unsound Festival New York og á Donau Festival í apríl.

Verkið er væntanlegt á plötu frá Bedroom Community síðar á árinu.

Nánari upplýsingar og miðasölu má finna hér.

Tags: ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin