Topp 5 “þetta var vond hugmynd”
27.4.2012 - Kristín Gróa
5. Everybody’s Rockin’
Reyndar kannski ekki svo vond hugmynd þó öllum hafi fundist það þegar platan kom út. Menn er almennt ekki sammála hvort Young hafi verið að gefa Geffen puttann eða hvort hann hafi bara verið jafn ófyrirsjáanlegur og svo oft áður (og svo oft síðan). Mér finnst þetta reyndar ekkert svo hræðilegt en ég sé svo sem ekki sólina fyrir manninum. Þetta myndband er magnað!
4. Nicki Minaj á Grammy verðlaununum
Eins og mér finnst Nicki Minaj hafa sýnt smá snilld á köflum (rappið hennar á Monster t.d.) þá skil ég hana ekki. Ég píndi mig í gegnum nýju plötuna og fannst hún alveg fáránlega léleg og klikkuð en ekki jafn klikkuð og þetta Grammy atriði. Ég var að horfa á þetta í beinni útsendingu og gapti bara allan tímann.
3. Mick Jagger og David Bowie dansa á götunum
Hugmyndin var svo sem ekki svo slæm. Taka upp lag saman fyrir LiveAid? Frábært! Það sem var slæm hugmynd var þetta vídjó.
2. Að setja The Big Bopper, Ritchie Valens og Buddy Holly í sömu flugvél.
“The day the music died”. Kannski ekki alveg en engu að síður hræðilegt.
1. Metallica og Lou Reed gefa út Lulu
Ég gat nú ekki sleppt þessu þar sem þetta er alveg óskiljanlegt dæmi og slæm hugmynd frá upphafi til enda. Reyndar finnst mér Metallica slæm hugmynd frá upphafi til enda en það er nú annað mál…
Tags: Buddy Holly, David Bowie, Lou Reed, Metallica, Mick Jagger, neil young, Nicki Minaj, Ritchie Valens, The Big Bopper
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 And now for something completely different – Georg Atli
23.3.2012 - Georg Atli
Þema listans í dag (reyndar listans í síðustu viku en við horfum bara framhjá því) er listamenn sem tóku einhverstaðar mjög ákveðna stílskiptingu. Það er að þeir þeir færðu sig (einhversstaðar á ferlinum) yfir í allt aðra tónlistarstefnu eða breyttu tónlistinni sinni á mjög afgerandi hátt.
5. Kenny Rogers
áður en Kenny Rogers varð risastjarna þá var hann í nokkrum hljómsveitum og ein af þeim (The First Editions) flutti lagið Just Dropped In (To See What My Condition Was In). Það lag er ansi langt frá down-era kántrýinu sem næsti stóri smellurinn hans var.
Lag: Just Dropped In (To See What My Condition Was In)
4. Ronnie Dio
Ronnie James Dio var í mörgum hljómsveitum en er líklega best þekktur í hlutverki sínu í hljómsveitinni Dio (Holy Diver) eða sem hluti af Black Sabbath (Heaven & Hell) en Ronnie Dio var í allt öðru þegar að hann byrjaði. Til dæmis söng hann þetta lag:
Sem betur fer fyrir alla hélt hann ekki áfram á þessari braut.
3. Roy Orbison
OK þetta er smá svindl því Roy Orbison skipti tæknilega séð ekkert um stíl… en samt. Einu sinni var það eina sem ég vissi um Roy Orbison væri það að hann spilaði leiðinlega rólegheita létt-bylgju tónlist. Þetta var af því að ég hafði bara heyrt þetta lag. Í stuttu máli þá hafði ég rangt fyrir mér og þegar að ég heyrði hann t.d. taka lagið Go, Go, Go (Down The Line) þá fattaði ég að hann var eiginlega frekar svalur. Það segir meira en mörg orð að hann var átrúnaðargoð Bruce Springsteen og var meðlimur í Traveling Wilburys
2. Beck
Tónlistarlega er alveg ótrúlega langt á milli Midnite Vultures sem kom út 1999 og plötunar Sea Change sem kom út 2002.
Lög: Hollywood Freaks (Midnite Vultures) og Already Dead (Sea Change)
1. David Bowie
Augljósa valið. Ætli það sé einhver tónlistarmaður sem hefur endurskapað sinn tónlistarstíl jafnoft og David Bowie? Örugglega ekki á jafn árángursríkan hátt.
Tags: Beck, Black Sabbath, David Bowie, Dio, Kenny Rogers, Roy Orbison
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Topp 5 Airwaves tilhlökkun *Gestalisti* – Dr. Gunni
7.10.2010 - Georg Atli
Annar gestalistamaðurinn í dag er enginn annar en Dr. Gunni, en hann er eins og alþjóð veit mikill tónlistarspekingur og hefur gefið út spil og stjórnað útvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum og skrifað í blöðin og bækur og ég veit ekki hvað og hvað. Hann er líka einn af vinælli bloggurum landsins og það er alveg þess virði að kíkja á síðuna hans. Ekki nóg með það þá er goðsagnakennda hljómsveitin hans S/H Draumur eitt af aðalnúmerum Airwaveshátíðarinnir í ár. Það er líka vert að minnast á það að sú hljómsveit ætlar að endurútgefa plötuna sína Goð og það ætti að vera hægt að kaupa snilldina í stafrænni forsölu hér! (það er m.a.s. hægt að hlusta frítt!)
OG svo á hann líka afmæli í dag, þannig að topp 5 óskar Dr. Gunna til hamingju með afmælið!
S/H Draumur er að spila á NASA á fimmtudag kl. 23:00
Dr. Gunni – 5 atriði á Airwaves 2010
Sko, Airwaves er algjör frumskógur og alveg frábærlega mikið af fínu stöffi þarna. Ég tók þá ákvörðun að velja bara erlent efni, en það er auðvitað geðveikt mikið af spennandi íslensku stöffi líka. Ég mæli með Airwaves fitubrennslu mixinu 2010 (http://this.is/drgunni/mp3/Airwaves-fitubrennsla-2010.mp3), þar sem þú heyrir 30 erlend Airwaves bönd og getur brennt af þér fitu í leiðinni. En ok, skellum oss í þetta:
5. Toro Y Moi / Neon Indian
Hér eru tvö atriði sem merkimiðanum “Chillwave” hefur verið slengt á. Hljómsveitin Beach House er líklega þekktasta bandið í þessari deild. Músík er einhvers staðar mitt á milli Beach Boys, House tónlistar og My Bloody Valentine – nokkuð ferskt og svalandi stöff. Toro Y Moi er aðallega einn gaur, Chazwick Bundick, og fyrsta platan hans Causers of This kom út á þessu ári og er nokkuð fín. Neon Indian er í svipuðum fílingi, en það er bara meira popp í gangi hjá honum og meira bít. Það verður gaman að sjá hvernig þetta stöff er læf. Toro Y Moi er á Venue á föstudaginn kl. 23.30, Neon Indian er líka á Venue, en á laugardaginn kl. 23.30.
Toro Y Moi – Blessa á YouTube
4. Tunng
Bresk “þjóðlaga-rafræna”. Flott popp umvafið flottum rafstælum, án þess að það sé keyrt í kaf. Flottar raddir og gott stöff. Tékkaðu á síðustu tveimur plötunum með þeim, sú frá 2007, Good Arrows er tilraunakenndari. Svo held ég að þetta sé helvíti fínt læf. Tunng spila kl. 21.30 á laugardaginn í Listasafninu.
3. Diamond Rings
Demantahringirnir er nú bara einn Kanadamaður sem heitir John O’Regan. Hann er nýbyrjaður, fyrsta platan hans heitir Special Affections og er að koma út. Þetta er dáldið gott og hressandi indie popp, melódískt og röddin í gaurnum minnir mig á David Bowie, en samt bara smá. Ég vona að hann mæti með band en verði ekki bara einn eins og kleina með kassagítar, því það er mikið lagt í útsetningar í þessari tónlist og það væri gaman að sjá þetta á góðu blasti. Diamond Rings er á Venue á laugardaginn kl. 23.30.
2. Crocodiles / The Vandelles
Tvö góð bandarísk, sem koma úr sama bekk og Singapore Sling, þ.e. það má finna fyrstu plötu Jesus & The Mary Chain í plötuskápunum þeirra, plús Velvet Underground, The Sonics, The Stooges, Suicide o.s.frv. Það er þó alltaf einhver framþróun og hvorugt bandið – ekki frekar en Singapore Sling – að stæla hrátt. Crocodiles halla sér ítrekað í átt að taktföstu krautrokki og eru með góðan sens fyrir melódískri uppbyggingu. Tvær góðar plötur eru komnar út með þeim, sú seinni, Sleep Forever, var tekin upp af Simian Mobile Disco manninum James Ford. Minna bözz er í kringum The Vandelles, en þetta er þétt band engu að síður og fullt af góðu hrámeti á nýjustu plötunni þeirra, Del Black Aloha. Crocodiles spila á Sódómu á laugardaginn kl. 22.50. The Vandelles spila í Iðnó á föstudaginn kl. 20.
1. Timber Timbre
Ef ég mætti bara sjá eitt band á Airwaves myndi ég sjá þetta. Bandið er eins manns, aðalkarlinn heitir Taylor Kirk og er Kanadamaður, en hann er væntanlega með eitthvað lið með sér þegar hann spilar læf. Hann hefur víst gert 3 plötur, en ég hef bara heyrt þá nýjustu, samnefnda bandinu, sem er ógeðslega góð. Taylor er með þýða og flotta rödd og tónlistin er svona einhvers staðar á milli Julee Cruise (David Lynch dívan) og örlí Nick Cave með dassi af Mazzy Star og jafnvel furðumenninu Jandek – en samt er útkoman algjörlega sérstök. Ég heyrði lagið Magic Arrow í einum Breaking Bad þætti og vissi ekkert hvað þetta var. Þetta var bara svo flott að ég linnti ekki látum fyrr en ég var búinn að finna úr úr þessu á netinu. Timber Timbre spila kl. 19.30 á laugardaginn í Listasafninu.
Tags: Airwaves, Airwaves 2010, Beach Boys, Beach House, Crockodiles, David Bowie, Diamond Rings, Jandek, Jesus & The Mary Chain, Julee Cruise, Mazzy Star, My Bloody Valentine, Neon Indian, Nick Cave, S/H Draumur, Simian Mobile Disco, Singapore Sling, Suicide, The Sonics, the stooges, The Vandellas, Timbre Timbre, Toro y Mo, Tunng, Velvet Underground
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off
Topp 5 geimlög – Kristín Gróa
10.7.2009 - Kristín Gróa

5. Marc Bolan – Spaceball Ricochet (live)
Akústik glamrokk.

4. Blur – Strange News From Another Star
Smá doom and gloom.

3. Pixies – Space (I Believe In)
Kannski meira verið að tala um rými en geiminn en þetta er bara svo töff lag. Jeffrey with one F… Jeffrey! Jeffrey with one F… Jeffrey!

2. Belle & Sebastian – A Space Boy Dream
Ó-Belle & Sebastian-legasta lag sem Belle & Sebastian hafa flutt. Ég lofa. Það er fáránlega svalt og súrt og ekkert krúttulegt!
Já algjörlega fyrirsjáanlegt val en ég get ekki hunsað það. Þetta lag hljómar bara eins og geimurinn… ég get ekki útskýrt það en mér finnst ég heyra í víðáttunni og kyrrðin er áþreifanleg. Örvæntingin þegar allt fer úrskeiðis er síðan svo áþreifanleg að ég fæ smá hnút í magann og vona alltaf að eitthvað komi Major Tom til bjargar.
Tags: Belle&Sebastian, Blur, David Bowie, Marc Bolan, pixies
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
zvenni og senuþjófarnir…
20.3.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Tags: David Bowie, Derek and the Dominos, Dr. Spock, Eric Clapton, Jim Gordon, Jonathan Richman, Lou Reed, Paul McCartney, the beatles
Flokkað undir Listar | Comments Off
músík og myndir – zvenni
11.12.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Undone (the sweater song) – Weezer (Spike Jonze)
Einfalt og ögn sérstakt… trommarinn er í uppáhaldi… og hundarnir.
David Bowie & Mick Jagger – Dancing In The Street (David Mallet)
Skemmtilegt og einfalt bossadill… kemur öllum í gott skap.
Alright – Supergrass (Dom and Nic)
Gerist ekki hressilegra…
Wise up – Aimee Mann (Paul Thomas Anderson)
Atriði beint úr Magnoliu eftir Paul Thomas Anderson. Allir karakterarnir á botninum og ekkert nema vol og væl. Veit ekki hverjum datt í hug að láta persónurnar syngja með, þó líklega Anderson. Einhvern tímann sagði hann að handritið væri skrifað út frá lagabútum Mann og mig minnir að hægt sé að greina það á einhverjum stöðum. Alla veganna eiga lag og mynd afar vel saman.
Once in a Lifetime – Talking Heads (David Byrne & Toni Basil)
David Byrne er skrítinn…
Tags: Aimee Mann, David Bowie, David Byrne, David Mallet, Dom and Nic, Mick Jagger, Paul Thomas Anderson, Spike Jonze, Supergrass, Talking Heads, Toni Basil, Weezer
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp fimm bræðralögin hans Árna
21.11.2008 - Árni Sverrir
Þetta lag var ansi flott í Listasafninu á Airwaves um árið, alltaf skemmtilegt að sjá svona trommara á iði í stólnum. Svo var geðveik stemning eftir tónleikana, allir að syngja Knife saman…eða var það ekki?
The Hollies – He Ain´t Heavy, He´s My Brother
Top Gun var í miklu uppáhaldi hjá mér og stóru systur, ásamt Hrafninn flýgur og Punktur, punktur, komma, strik. Því miður er Top gun eina myndin með bræðralagi…þessi klisja verður því að fá að fljóta með.
The Chemical Brothers – Leave Home
„Bræðurnir leysa vandann!“ (sagt með Jafarrödd)
Taupin telur lagið misskyldasta lag sem hann hefur samið. En það ku fjalla um mann nýkominn heim frá Víetnam og trúlega kemur bróðir hans eitthvað við sögu…
Lagið jafnan talið með torræðari lögum Bowie og ýjað að því að það fjall um stjúpbróðir Bowies Terry sem var víst geðklofi
Tags: David Bowie, Elton John, Grizzly Bear, The Chemical Brothers, The Hollies
Flokkað undir Listar, Árni | Comments Off
Drami og læti… – zvenni
31.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Life on Mars? – David Bowie
Take a look at the lawman
Beating up the wrong guy
Oh man!
Wonder if he’ll ever know
He’s in the best selling show
Is there life on Mars?
Skrítinn texti fullur af handahófskenndum setningum sem samt sem áður gera lagið afar dramatískt.
Sunburnt – Muse
And Ill hide from the world
Behind a broken frame
And Ill burn forever
I cant face the shame
Rokkdramadrottningarnar í Muse fá að sjálfsögðu sæti á listanum.
Disarm – Smashing Pumpkins
Disarm you with a smile
And leave you like they left me here
To wither in denial
The bitterness of one who’s left alone
Ooh, the years burn
Ooh, the years burn, burn, burn
Corgan og co í þunglyndi og drama að vanda…
July Morning – Uriah Heep
In my heart…
in my mind…
in my soul…
La la la la ! ! !
Dramatískasta lallala í heimi…
I’m Not Crying – Flight of the Conchords
These aren’t tears of sadness because you’re leaving me
I’ve just been cutting onions
I’m making a lasagna
For one
Flight of the Conchords eru á góðri leið með að eiga lag fyrir hvert tækifæri en hér eru þeir á dramatískari nótunum…
Tags: Billy Corgan, David Bowie, Flight of the Conchords, Muse, Smashing Pumpkins, Uriah Heep
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp 5 lög til að dansa við – Kristín Gróa
27.10.2008 - Kristín Gróa
Betra er seint en aldrei…
5. Beck – Gamma Ray
Þetta er strax orðið eitt af uppáhalds Beck lögunum mínum og þá er nú mikið sagt. Þetta er svona frekar rólegur dans en mjög grúví.
4. Jamiroquai – Canned Heat
Ég enduruppgötvaði þetta lag í síðustu viku og mundi þá að ég fer alltaf ósjálfrátt að diskódansa þegar ég heyri það. Pínu vandræðalegt í vinnunni en hei…
3. Familjen – Det Snurrar I Min Skalle
Þar sem ég hlusta aldrei á útvarpið þá fór þetta lag alveg fram hjá mér þangað til í síðustu viku (hei maður getur ekki alltaf verið með á nótunum hehemm) en svo núna get ég ekki hætt að hlusta á það. Það var sko líka aldeilis dansað við það um helgina!
2. The Knack – My Sharona
Reality Bites dansinn blívar alltaf. Verst að ég held það fatti enginn nema KVE hvað ég er að gera (af því þau eru að gera það líka!) og allir aðrir halda að ég hafi misst vitið.
1. David Bowie – Rebel Rebel
Hér á ég við single útgáfuna því hún er miklu hressari og dansvænni en albúm útgáfan. Það er bara eitthvað við þetta lag sem kveikir algjörlega í mér. Þegar gítarriffið spilast í fyrsta sinn þá fer ég ósjálfrátt að kippast til og dansa kjánalega með öllum líkamanum. Ég elska þetta lag svo mikið!
Tags: Beck, David Bowie, Familjen, Jamiroquai, The Knack
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »
Strengir – zvenni
3.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Ég er einfaldur maður með einfaldar þarfir og að mínu mati eru strengjaútsetningar vandmeðfarnar. Listin er að nota þær aðeins í neyðartilvikum og þá aðeins til að styrkja hin hljóðfærin og heildarmyndina. Varast skal að flækja hlutina ef þess þarf ekki.

Astral Weeks af plötunni Astral Weeks sem er loksins smollin inn í hausinn á mér. Búið að taka smá tíma en núna næ ég henni varla úr spilaranum. Strengjaútsetningar eru alltaf í bakgrunni laganna og hjálpa til við hæga stígandann í mörgum þeirra, eins og þessu hérna.

Snyrtileg strengjanotkun. Kemur hægt og róleg meira inn í lagið án þess að fara yfir strikið. Styður þetta fallega og mannlega ástarlag á afar smekklegan hátt.

Mick Ronson og David Bowie hjápuðu Reed með Transformer plötuna. Sá einu sinni viðtal við Reed þar sem hann var í stúdíói að tala um upptökuferlið á plötunni mörgum árum seinna. Hann spilar lagið og lækkar niður í öllu nema strengjunum í endanum á “Your gonna reep just what you sow” partinum, kreditar Ronson fyrir útsetningunni, lygnir aftur augunum og leyfir strengjunum að klára lagið.

Var aldrei alveg viss með Damien Rice. Ekki viss um hvort hann hefði efni á þessari ofurdramatík sem einkennir textana hans. En þetta lag finnst mér toppa allt og snúa því á haus. Það að skella fullum strengjum í síðasta lagi plötunnar og klímaxa það svo með óperusöngkonunni syngjandi um eskimóann finnst mér svo fyndið að ég fyrirgef honum allt hitt þunglyndisvælið og í raun sættist við það. Ef hann getur gert sona grín að þessu öllu gæti verið að hann sé ekkert að plata með hitt.

Starálfur – Sigur Rós
Þó eru undantekningar. Sigur Rós má alltaf nota strengi, það er bara flott. Líklega af því að það er engin tilgerð í gangi hjá þeim.
Tags: Damien Rice, David Bowie, Jethro Tull, Lou Reed, Mick Ronson, Sigur Rós, Van Morrison
Flokkað undir Listar | Comments Off











