Reykjavík Music Mess meðmæli #2 – Legend

23.5.2012 - Kristjana

Legend er dúett skipaður ekki ómerkari mönnum en Krumma Björgvinssyni og hljómborðsleikaranum Halldóri Björnssyni. Þeir Krummi og Halldór hafa lengi verið vinir og hafa verið að gera tónlist sitt í hvoru lagi í næstum 20 ár.

Þeir deila áhuga á elektrónísku goth poppi hljómsveita eins og Depeche Mode, Ministry, Bauhaus og Throbbing Gristle og tónlist Legend er í svipuðum dúr.

Spurningarnar 5

Legend voru svo vingjarnlegir að svara spurningunum okkar 5:

Hverjir eru stærstu áhrifavaldarnir ykkar?

“Fyrir þetta samstarf þá er það aðallega iðnaðarrokk frá áttatíu áratugnum. Mikill drif bassi og gamlir hljóðgervlar. Allt soldið ljúfsárt og kuldalegt.”

Hvað er næst á dagskrá hjá ykkur eftir RvkMM?

“Við erum að koma mikið fram og fylgja plötunni okkar, Fearless, eftir. Við erum að spila á tónlisthátið í Keflavík í næsta mánuði. Útgáfutónleikar í bígerð. Við erum bókaðir á Lunga á Seyðisfirði síðan er það Akureyri í Sept og fullt meira. Við erum með 3 tónlistamyndbönd á klippiborðinu, þannig að í sumar munu nokkur af þeim líta dagsins ljós.”

Með hverju mælið þið á RvkMM?

“Við mælum með því að þú reynir að sjá sitt hvor af öllu. Þetta eru allt frábærir listamenn sem koma þarna fram! En það má alls ekki missa af okkur ;-)

Bestu tónleikar sem þú/þíð hafið haldið?

“Okkur leið gríðarlega vel að spila á síðustu Airwaves hátið. Það voru vel heppnaðir tónleikar!”

Á hvað eruð þið að hlusta á núna?

Killing Joke – Discography, The Germs- The Complete Anthology, Gatekeeper – GIZA Ep, Nitzer Ebb – Showtime.”

Hvar og hvenær?

Legend spila á Reykjavík Music Mess aðfararnótt laugardags kl. 02:00 á Faktorý. Enn er hægt að nálgast einhverja miða á midi.is.

Hægt er að nálgast plötu Legend, Fearless, hjá vinum okkar gogoyoko.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

LEGEND á Hressó – styrktartónleikaröð gogoyoko og Hressó

18.4.2012 - Kristjana

Hressó og gogoyoko hafa startað nýrri tónleikaröð fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða. Hljómsveitin sem fram kemur hverju sinni velur sér málefni til að styrkja og verða tónleikagestir hvattir til þess að leggja málefninu lið með frjálsum framlögum, en frítt verður inn. Auk þess hafa gogoyoko og Hressó fengið 10 fyrirtæki með sér í lið sem, hvert um sig, munu leggja fram 50 þúsund krónur í söfnunina.

Tónleikaröðin hófst síðasta fimmtudag. Þá komu fram þau Elín Ey, Daníel Jón og Ylfa Marín en þau söfnuðu fyrir Médecins sans frontières eða Lækna án landamæra.

Annað kvöldið verður svo haldið á morgun, fimmtudaginn 19. apríl. Í þetta skiptið mun LEGEND mæta á Hressó og spila til styrktar Samhjálp.

LEGEND

LEGEND er skipuð þeim Krumma Björgvinssyni og Halldóri Á. Björnssyni en þeir hafa áður starfað saman í hljómsveitinni Esju. Legend varð til árið 2009 og heitir í höfuðið á samnefndri ævintýramynd Ridley Scott frá árinu 1985.

LEGEND sendu nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, Fearless, sem trónir nú efst á vinsældarlista gogoyoko.com. Á Fearless má heyra drungalegt norrænt rafpopp í anda Depeche Mode, Bauhaus og The Knife.

Svo er hægt að plana fram í tímann – því þetta eru þeir sem fram munu koma á styrktartónleikunum:

12. apríl – Elín Ey og Day (Daníel Jón og Ylfa Marín)
19. apríl – LEGEND
26. apríl – Ljósvaki, M-Band og ReTroBot
3. maí – Kiriyama Family
10. maí – Snorri Helgason
17. maí – For a Minor Reflection
24. maí – Eldar
31. maí – Kynnt síðar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Sarpurinn – Georg Atli

24.3.2011 - Georg Atli

Þetta verður svona “guilty pleasure” sarpur hjá mér í dag.

Tears for Fears – Ters Roll Down (Greatest Hits 82-92)

Á þessari plötu er barmafullt af klisjulegri 80′s synthum og margtuggnum tónum en einhvern veginn smellur þetta allt fyrir mig. Tears for Fears rétt náðu inn í lokin á nýbylgjunni og það er einhver hástemmd rómantík í öllu sem þeir gera. fyrir mér eru hápunktarnir á plötunni Head over Heals sem að ég hef áður sett inn og svo lagið Pale Shelter sem að er svo undarlega samið… það er eins og að viðlagið sé ekkert hluti af laginu heldur séu tveim lögum skellt saman. Það stingur líka skemmtilega í stúf við það sem að maður heyrir í Depeche Mode, sem að voru að meika það á sama tíma.

Ég datt niður á þessa plötu eftir að ég heyrði Gary Jules útgáfuna af Mad World. Kannaðist að sjálfsögðu við suma slagarana (Shout) en ekki næstum því alla.
Ég verð nefnilega að viðurkenna að ég hef aldrei hrifist af þessari klassísku 80′s poptónlist og á sumu (sem öðrum finnst vera klassík t.d Madonna og Queen) hef ég hreinlega óbeit, kannski einhver afneitun af því að ég ólst upp við þessa tegund tónlistar??

Ég viðurkenni það því treglega að ég féll fyrir Tears for Fears. Ég þori reyndar ekki að hlusta á neitt annað en þennan eina Best-of disk (úff hvað ég þoli ekki Best-of diska) sem að ég á en þetta er samt sem áður gott stöff… kannski að ég ætti að fara að skella Queen oftar á fóninn??

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | Comments Off

Topp 5 vontgott – Kristín Gróa

11.9.2009 - Kristín Gróa

Ókei svo verkefnið er að finna fimm artista sem maður fílar ekki og gefa dæmi um lag sem styður þá skoðun EN finna svo eitt lag með viðkomandi sem er undantekning og maður fílar. Eins og allir vita sem þekkja mig þá er breska sveitin Muse sú hljómsveit sem fer mest í taugarnar á mér af öllum. Á einhvern óskiljanlegan hátt á ég þó þrjár plötur með þeirri sveit og ég reyndi að finna eitt lag sem ég fíla en það tókst ekki… svo það útskýrir fjarveru þeirra á þessum lista.

5. Aerosmith

Vont: I Don’t Want To Miss A Thing

Væmið, klisjukennt og að eilífu tengt einu klénasta atriði kvikmyndasögunnar.

Gott: Sweet Emotion

Eitt af þessum úbersvölu lögum sem ég tengi við uppáhalds myndina mína og verður fyrir vikið enn úbersvalara. Namm.

4. Depeche Mode

Vont: Love In Itself

Ég veit ekki hvað það er en ég bara fíla Depeche Mode ekki. Sorrí!

Gott: Just Can’t Get Enough

Eitt af uppáhalds hlaupabrettislögunum mínum!

3. George Michael

Vont: Jesus To A Child

Ég hefði eiginlega getað valið hvaða lag sem er, er það ekki? Nema mögulega…

Gott: Faith

Kommon þetta er gott popplag! Það veldur mér aftur á móti miklum áhyggjum hvað ég virðist eiga mikið af George Michael tónlist. Hvaðan kemur þetta allt?

2. Guns N’ Roses

Vont: Paradise City

Ég meika Axl Rose og félaga bara alls ekki. Það er ein mesta sorg síðustu vikna að PS3 leikurinn Burnout Paradise skuli hafa þetta sem þemalag því ég fæ það alltaf á heilann þegar ég spila! Arg.

Gott: Don’t Cry

Mér finnst þetta pínku flott. Tjah eða það væri það ef Axl Rose væri ekki að syngja.

1. U2

Vont: Vertigo

Hratt á hæla Muse koma U2 á listanum yfir hljómsveitir sem ég meika ekki. Lengi vel gat ég þolað gömul lög með þeim en smá saman fór óþol mitt að færast yfir á þau líka. Svo er Bono líka kjánalegur.

Gott: Numb

Mjög svalt lag.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 hlaupalög – Kristín Gróa

27.2.2009 - Kristín Gróa

Kaldhæðni örlaganna olli því að þessi vika hefur verið latasta ræktarvikan mín í háa herrans tíð. Tjah sko kaldhæðni örlaganna eða leti, annað hvort :P Humm já en öll lögin á listanum mínum eru hlaupabrettislög því þegar ég er ekki að lyfta og blaðra við vinkonu mína þá er ég á hlaupabrettinu. Run run run!


5. Róisín Murphy – Cry Baby

Learn to walk before you run… þetta er gott upphitunarlag.


4. Boys Noize – &Down

Þetta lag virkar vel því það koma svona rólegir kaflar á milli þar sem maður getur minnkað hraðann og náð andanum.


3. Depeche Mode – Just Can’t Get Enough

Þegar maður er að hlaupa rólega þá er þetta fullkomið enda fer ég alltaf að brosa þegar ég heyri það, jafnvel þó ég sé að hlaupa. Hvernig er hægt að hlaupa brosandi?


2. Amii Stewart – Knock On Wood

Smá diskófílingur hjálpar manni á brettinu.


1. M.I.A. – Bird Flu

Ég er búin að sannreyna það að ég hleyp hraðast og með minnstri fyrirhöfn þegar þetta lag kemur í spilarann.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 – 1981 Georg Atli

23.1.2009 - Georg Atli

Ég fæddist árið 1981, hér kemur mitt topp fimm yfir tónlistarviðurði á árinu 1981:

1. 1. ágúst hefur MTV útsendingar og þetta er fyrsta lagið sem þau spila (lagið kom reyndar út 1979).


2. Bob Marley deyr 11. maí


3. Depeche Mode gefur út sína fyrstu plötu, Speak and Spell
, 6. október

4. Sonic Youth,

Mötley Crüe,

Metallica

og Kajagoogoo eru allar stofnaðar

5. Rolling Stones gefa út plötuna Tattoo You

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Litalög – Hjálmar

22.2.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Gestalistamaður vikunnar heitir Hjálmar en hann er mannfræðingur mikill og sem slíkur duglegur að koma auga á og vinna á ýmsum fordómum sem samfélagið hefur innrætt okkur. Gaman er að segja frá því að Hjálmar er að öllu leyti laus við þá litahræðslu sem hrjáir ófáann karlmannin. Sem dæmi um það hefur hann átt bleikan hello kitty síma í fjölda ára sem hefur orðið upphaf að mörgum áhugaverðum uppákomum, en það er saga fyrir annan dag.
Hér er litalisti Hjálmars.

Bonnie ´Prince´ Billy – Black
Ef einhver litur lýsir I See a Darkness plötu Will Oldham vel, þá er það hin svarti. Mig langar alltaf að slökkva á ljósunum, kveikja á kerti og fara undir feld þegar ég hlusta á þessa plötu. Það eru fáir textasmiðir sem draga mann eins vel inní hans kynjaheim og þessi rödd, full af trega. Svo fær Bonnie líka alltaf aukastig fyrir að leyfa hinum svartklædda Johnny Cash að syngja lag eftir hann.

Cocteau Twins – Cherry Coloured Funk
Ég elska Liz Fraser, það er bara engin eins og hún. Henni tókst ásamt sveinum sínum í Cocteau Twins að búa til nýjan heim. Það veit engin hvað hún var að syngja um og ekki var hún að reyna að skapa einhverja vonlensku, hún vildi bara ekkert að fólk skildi texta hennar og faldi þá með því að gera þá óskiljanlega. En það breytir engu, maður veit ekkert hvað hún er að syngja, en maður skilur hana alveg fullkomlega.

Depeche Mode – Black Celebration
Það verður að vera eitthvað 80´s lag og Depeche Mode voru þeir sem áttu heiðurinn af því að fylgja mér frá því að vera popp-nörd í það að vera indí-nörd. Og þessi plata sá um það. Þessi plata og þetta lag voru sándtrakkið við mín myrku unglingsár í Garðabænum. Ég mann en skýrt eftir því að syngja með þessu lagi í glampandi sól á óvenju heiðskýru vori. Úff … ég var meiri segja með hárið í sama stíl og þeir. Þykir leitt hvað þetta fór illa með ósonlagið.

Lucinda Williams – Blue
Lucinda Williams er svo svöl. Ég verð alltaf meira og meira skotinn í henni. Undurfögur og hrá rödd sem faðmar og dregur mann inní þann trega sem hún er að rifja upp. Það tekur mann nokkra daga og marga kaffibolla að átta sig á hvað kom fyrir … ,,Af hverju er ég svona mæddur.” Og þegar maður er búinn að fatta hvað það var, þá er tilvalið að hlusta bara aftur á hana.

Mark Eitzel – Blue and Grey Shirt
Ef einhver maður er blár af trega, þá er það hann Mark Eitzel. Hann er jafnlítið þekktur sem söngvari mega-trega bandsins American Music Club og hefur verið að semja lög um ástarsorg, sjálfsvorkunn, missir, dauða, gremju og allt hið skemmtilega í lífinu í tæpa þrjá áratugi. Hann er yfirleitt að syngja um líf sitt í hinu undirfögru borg San Francisco, borg sem er hvað þekktust fyrir sína litskrúðugu fortíð. Og öllum regnbogum verður að auðvitað að fylgja einhver grámygla, Mark hefur nóg af henni.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off

Topp 5 góð lög með tónlistarmönnum sem ég fíla ekki – Erla Þóra

15.2.2008 - Erla Þóra

5. Sprengjuhöllin – Verum í sambandi.
Er ekki enn búin að “jump on the bandwagon” hvað varðar Sprengjuhöllina. Fíla þá bara ekkert sérstaklega. Og fílaði þetta lag ekki heldur þangað til systir mín góð benti mér á að hlusta betur á textann. Yndislegur texti. Ætla samt að halda áfram að vera skeptísk á Sprengjuhöllina.

4. Súkkat – Jóhann.
Já Súkkat er klárlega ekki fyrir mig. En þetta lag hefur eitthvað svona eerie hold on me. Það er eiginlega bara hálfskrítið hvað mér finnst það töff.

3. Depeche Mode – My own personal Jesus.
Það er vægt til orða tekið að segja að ég fíli ekki Depeche Mode. Fæ alveg grænar þegar ég heyri röddina í söngvaranum. En þetta lag hefur mér alltaf fundist afskaplega töff.

2. Rolling Stones – Angie.
Now don’t get me wrong, það er ekki það að ég fíli ekki flest lögin með RS, ég bara fíla ÞÁ ekki. Nema kannski trommarann… hann er fínn. Get samt sjálfri mér um kennt, hef bara ekki hlustað nógu mikið á þá. En þetta lag er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Það er líka mega sega skemmtilegt að syngja með því.

1. Bubbi – Syneta / Sem aldrei fyrr
Bubbi fer virkilega, virkilega í taugarnar á mér. Virkilega. Það var ekki fyrr en í fyrra að ég var neydd til að hlusta eitthvað á hann af ráði af fyrrverandi nágrönnum mínum sem eru frekar miklir Bubba fans. Hefur reyndar alltaf fundist “Sem aldrei fyrr” gígantískt flott. Vissi lengi vel ekki hvað lagið hét og ég hummaði viðlagið fyrir svoooo marga í svona 2 ár (no lie, lofa!). Skemmst frá því að segja að það fattaði enginn hvað ég var að reyna að syngja.
Synetu uppgötvaði ég hinsvegar í sumarbústað með vinkonunum. Arndís vinkona mín setti lagið á og sagði okkur að þegja og hlusta. Ég fékk hroll. Ég fæ enn hroll.
Mikið fer Bubbi samt í taugarnar á mér. Ég fæ hroll líka yfir því… bara a different kind.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Topp 5 aksturslög – Vignir

16.12.2007 - Kristín Gróa

Seini hálfvitinn…

5. Dave Dee, Dozy, Beaky, Mick & Titch – Hold Tight
Uppáhalds aksturslagið mitt um þessar stundir en þetta heyrði ég í B-myndinni Death Proof eftir hans Quentin Tarantino. Lagið er notað í mjög subbulegu atriði en er samt virkilega gott lag. Ég læt hér atriðið fylgja með en það er bara fyrir þá sem hafa séð myndina annars gæti það verið eins og alnetsnjörðarnir segja: “spoiler”…

4. Future Sound of London – We Have Explosive
Allir sem hafa spilað Wipeout 2097 á fyrstu Playstation tölvunni hljóta að skilja þetta val.

3. Korn – Dead Bodies Everywhere
Þegar ég var í Kvennó var ég oft á rúntinum með vinum mínum. Við vorum oft á bílnum hans Kalla en hann var (og er) mikill græjukall og var alltaf með einhverjar nýjar græjur í bílnum sínum og hin og þessi bassabox. Þegar prófa átti græjurnar var þetta lag oft notað ásamt bassaplokkinu sem kemur á 0:21 í Freak on a Leash með sömu hljómsveit. Annars minnir þetta lag og önnur Korn lög mikið á þennan tíma. Korn, Kent, Placebo, Incubus, Depeche Mode tribute platan, U.N.K.L.E.,

2. Nine Inch Nails – Just Like You Imagined
Ég er mikið fyrir það að keyra einn og hlusta á mína tónlist rosa hátt. Þess vegna er rosalega auðvelt að biðja mig um að sækja einhvern á Keflavíkurflugvöll ef ég hef bara nógu góða tónlist með. Græjurnar í bílnum þurfa ekkert að vera góður, einu kröfurnar mínar eru þær að ég geti ekki heyrt í sjálfum mér syngja. Þetta lag fyllir alveg ótrúlega vel bílinn af hljóði og er með frábæra uppbyggingu.

1. Led Zeppelin – Whole Lotta Love
Hérna hefði getað staðið “Led Zeppelin – Hvaða lag sem er!” Annað hvert lag Led Zeppelin er besta aksturslag í heimi. Er hægt að nefna lög eins og Babe, I’m Gonna Leave You, Rock n Roll, Good Times Bad Times, Ramble On, Stairway to Heaven og Black Dog.
Ég valdi Whole Lotta Love af því að það er með eitt besta gítarriff sem til er í heimi hér en er reyndar með pínu downtime þegar allir eru í einhverri voðalegri psýkadelíu en svo á 3:01 byrja allir að tromma á stýrið sitt og hækka.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 trúarlög – Vignir

30.11.2007 - Kristín Gróa

5. George Michæl – Faith
Jú, maður verður að halda í trúna…. og leðurjakkann.

4. Gus Gus – Believe
I’m no jesus but I’m close to him,
We talk all the while.
I’m no jesus but he comforts me,
We walk side by side.

Daníel Ágúst er ágætis staðgengilsjesús, reddar manni ef maður er að drukkna og svona.

3. Depeche Mode – Personal Jesus
Dave Gahan reddar manni ef að Jesús svarar ekki bænum manns.

2. Monty Python – Every Sperm is Sacred
Kaþólska kirkjan hefur í gegnum tíðina passað upp á að fólk sé örugglega duglegt að fjölga sér í þeirra nafni og ekki sulla öllu út um allt. Helsti gallinn er að maður gæti misst börnin sín í læknisfræðilegar tilraunir.

1. A Perfect Circle – Judith
You’re such an inspiration for the ways
That I’ll never ever choose to be
Oh so many ways for me to show you
How the savior has abandoned you
Fuck your God
Your Lord and your Christ
He did this
Took all you had and
Left you this way
Still you pray, you never stray
Never taste of the fruit
You never thought to question why

Maynard fær útrás fyrir tilfinningum sínum um trú móður sinnar og hvernig hún gaf kirkjunni allt sitt líf.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin