topp 5 OSTur – zvenni
6.2.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Rushmore
Mark Mothersbaugh úr Devo velur afar smellin lög í myndir Wes Anderson. Hér má heyra minirokkóperuna A Quick One, While He’s Away eftir Who undir hefndaratriðinu.
… svo I am Waiting með Stones…
……..
Wild at Heart
Magnað atriði:
….. “we got some dancing to do“… klippt á Powermad, snákaskinnsræðu Sailors, hnefahögg og sígrattubruna, afsökunarbeiðni og endað á Elvis og píkuskrækjum…
Hér syngur Sailor (Nicholas Cage) Love Me Tender fyrir tilvonandi eiginkonu sína á húddi kádiljálks… gerist hvorki svalara né rómantískara…
……..
Night on Earth
Tom Waits semur músík við kvikmynd Jim Jarmusch sem segir frá 5 leigubílum á 5 mismunandi stöðum í heiminum á sama tíma.
Upphafslagið Back in the Good Old World
og lokaatriðið (Good Old World (Waltz)) með þunglyndu og drykkfeldu finnunum…” hei Aki! veistu hvar þú ert?…. (þögn) já… Helsinki…”
……..
Twin Peaks
(…og meiri Lynch) Súrsætt intróið sýnir það sem virðist meinlausan og saklausan Tvídrangabæ þó illskan leynist undir yfirborðinu. Smekklega tjáð af Angelo Badalamenti hirðskáldi David Lynch.
Tónlistin leynist víða og kemur upp á ólíklegustu stundum eins og hér er Leland vaknar einn morguninn hvíthærður og brestur í söng konu sinni og frænku til mikillar undrunar…
já tónlistin liggur í loftinu… jafnvel í svarta kofanum og fær dverga til að dansa…
…….
Midt Om Natten
Kvikmynd eftir handriti og músík Kim Larsens. Sagan fjallar um örlagaríkann tíma í lífi hústökufólks í köben og er að mínu mati afar skemmtileg. Minnir að ég hafi fyrst séð hana í dönskutíma í grunnskóla og ekki meikað hana en líkað mun betur einhverjum árum seinna.
Hér syngur Kim Tik Tik upphafslag myndarinnar.
…og svo skondin sena er hann tekur Papirsklip með föndur áherslum handlagins vinar síns og Susana horfir á.
…………..
Tags: Angelo Badalamenti, Devo, Elvis Presley, Kim Larsen, Mark Mothersbaugh, Rolling Stones, The Who, Tom Waits
Flokkað undir Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 lög til að elda við – Gummi Jóh
2.5.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Gestalistamaður vikunnar er ofurbloggarinn og tónlistaráhugamaðurinn Gummi Jóh! Gefum honum orðið:
Einhverra hluta vegna á ég playlista sem ég spila alltaf þegar ég er að strauja skyrturnar mína og elda mat. Lögin eiga það öll sameiginlegt að vera hress og með góðu bíti, enda þarf maður að hafa eitthvað til að humma þegar maður er að skera niður sveppina. Eitt lagið er þó rólegt en það er bara svo afspyrnufalleg live útgáfa að það er ekki annað hægt en að leyfa því að fljóta með.
Playlistinn er frekar stór og því tók ég lögin sem eru mest spiluð á honum :
Sænsk / Finnski dúettinn sem engin virðist fíla, ekki einu sinni internetið. Ég varð þó dolfallinn fyrir þessu lagi og í kjölfarið gróf ég upp plötuna Heikki 2 sem er eyrnakonfekt.
2. E.L.O – Evil Woman
E.L.O er hljómsveitin sem engin þorir að viðurkenna að fíla. Það er synd því Jeff Lynne og félagar kunna að gera tónlist. Evil Woman er líka lagið sem ég hlusta á þegar ég set á mig slifsið með fyrsta bjórnum á föstudagskvöldi. Þetta er 100% fílingur.
3. Belle & Sebastian – Slow Graffiti (Live)
Árið er 1999 og Belle & Sebastian halda sína eigin tónleikahátíð sem þeir kalla Bowlie Weekender sem seinna varð að hátíðinni All tomorrows parties. Belle & Sebastian taka hér lagið Slow Graffiti sem er eitt fallegasta lagið þeirra í mínum huga. Stuart svo fáránlega brothættur en alltaf skín í gegn hvað hann er með þetta allt á hreinu.
Mark Motherbaugh og félagar í Devo hafa hér búið til hið fullkomna lag til að hlaupa við. Þeir sem mögulega halda því fram að Eye of the Tiger eða álíka pepp lög séu það hafa augljóslega ekki hlaupið við Gut Feeling. Ef maður er að falla á tíma, fólkið sem var boðið í mat er að detta í hús og ekkert að verða tilbúið skal setja þetta lag á. Þá reddast allt.
5. The Fall – Lost in Music
Eitt furðulegasta cover sem maður getur fundið sem samt svo flott. Mark E. Smith að taka Sister Sledge og gera það að sínu. Gítar riffið er eins og gott rauðvín, flauelismjúkt.
Tags: Belle&Sebastian, Devo, E.L.O., Heikki, Jeff Lynne, Mark Motherbaugh, The Fall
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off
Æ koddu aftur… – zvenni
7.3.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Ákveðið var að leyfa frjálslega túlkun á þema vikunnar sem er “come back” lög og hér er mín.
Ansi mörg lög hafa verið samin sem fjalla um þemað þ.e. bón eða ósk um að einhver eða eitthvað komi aftur og að hlutirnir verði eins og þeir voru áður. Slík lög eru oftar en ekki full eftirsjá eða fortíðarþrá sem eru afar mannlegar kenndir. Er okkur finnst við hafa glatað einhverju sem var okkur kært eða mikilvægur partur af lífinu er eðlilegur hlutur af aðlögunarferlinu að þrá fyrra ástand. Breytingar geta virst ógnandi og neikvæðar því þær neyða okkur til þess að horfast í augu við staðreyndir, veruleikann og loks inn á við þar sem tilvistarlegar spurningar blasa við og krefjast svara.
En hér er listi vikunnar…njótið.

hey come back Jonee
you´ve gotta come back now
Jonee Jonee Jonee
hey, come back Jonee
Jonee keyrði Datsuninn sinn inn í tengitrukk og það eina sem var eftir var gítarinn hans. Núna söknum við hans og viljum fá hann aftur heim,
komdu aftur heim Jonee, komdu aftur heim… Jonee vertu góður.
Come Back To Camden – Morrissey

Where taxi drivers never stop talking,
Under slate grey Victorian sky
Here you’ll find, my heart and I,
And still we say come back,
Come back to Camden
Morrissey samur við sig, einmana, örvæntingarfullur, raular lokaorðin og kallar á hjálp. En vill hann raunverulega hjálp?… er ekki viss.
Come Back From San Francisco – The Magnetic Fields

Come back from San Francisco
and kiss me; I’ve quit smoking.
I miss doing the wild thing with you.
Fallegt lítið lag um söknuð, fórnir, von og vonleysi.
So Come Back, I Am Waiting – Okkervil River

So come back and we’ll take them all on.
So come back to your life on the lam.
So come back to your old black sheep man.
Ég veit að þetta er allt í rugli en hættu þessu veseni og komdu heim til Lamba. Þetta reddast.
I Wish You Would – David Bowie (Sweet cover)

Come back baby I wish you would
There’s crying and the feeling won’t do no good
Eldsnemma um morguninn, er dagurinn var við það að bresta á stakk hún af, og nú er ekki gaman. Bowie tekur Sweetsönginn upp á sína arma og afar vel eins og öll lögin á Pin Ups plötunni góðu.
Tags: David Bowie, Devo, Morrissey, Okkervil River, The Magnetic Fields
Flokkað undir Listar | Comments Off
