Topp 5 lög með listamönnum sem bera aðeins eitt nafn -Theodór

19.2.2010 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

5. Without Me – Eminem.
Snilldarlag með stórkostlegum texta. Svo er ég alltaf svo mikill rapphundur innan við beinið, þó svo ég hafi nú aldrei verið einhver sérstakur Eminem aðdáandi. En þetta fær að fljóta með.
„No I’m not the first king of controversy
I am the worst thing since Elvis Presley
to do black music so selfishly
and used it to get myself wealthy“

4. The Wanderer – Dion.
Smá Sixtís fílingur kemur skapinu í lag. Boðskapur textans er kannski ekki til fyrirmyndar í nútímasamfélagi, en lagið er bara svo yndislega hressandi.

3. Nitemare Hippy Girl – Beck.
Uppáhaldslagið mitt með Beck. Hér er það fyrst og fremst textinn sem grípur mig enda mikil listasmíð.
„She’s a whimsical, tragically beauty
Self-conscious and a little bit moody“



2. Liquid Swords- Gza.

Meira rapp takk fyrir, um að gera að leyfa þessu að fljóta með fyrst maður var að hæla þessari plötu í Sarpinum.

1. Hurdy Gurdy Man – Donovan.
Þetta er uppáhaldslagið mitt þessa daganna. Það er eitthvað við þetta lag sem heillar mig óendalega. Það er sennilega hippinn í mér sem fílar þetta.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 í boði Buddy Miles Express

4.2.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

And now for something completely different… eða kannski ekki svo. Tónlistargrúskarinn Stefán Jónsson heldur úti síðunni Buddy Miles Express og skrifar þar reglulega mjög skemmtilega tónlistarpistla með hljóðdæmum. Hann gaf sér tíma til að sjóða saman einn toppfimm lista fyrir okkur sem kemur hérna sem smá innskot frá áður auglýstri dagskrá. Take it away…

Topp 5 byltingarlög


5. Thunderclap Newman – Something In The Air
Something in the Air/Wilhelmina [Single]
1969

Pródúsað af sjálfum Pete Townshend í The Who. Lagið hét upphaflega Revolution en hætt var við það nafn til að forðast rugling við samnefnt lag Bítlanna.


4. John Lennon – Give Me Some Truth
Imagine
1971

“Im sick and tired of hearing things
From uptight, short-sighted, narrow-minded hypocritics
All I want is the truth
Just gimme some truth
Ive had enough of reading things
By neurotic, psychotic, pig-headed politicians
All I want is the truth
Just gimme some truth”

Lennon í flugbeittum gír. Í uppgjöri við sig og sína og skefur ekkert undan! Þetta getur átt við í dag!


3. The Clash – The Guns Of Brixton
London Calling
1979

Kreppa, óeirðir, lögregluofbeldi og skemmdaverk og þetta er England í lok áttunda áratugarins og í þessu lagi The Clash er þetta allt saman pakkað snilldarlega saman í baneitraðan samfélagsskírskotunarkokteil! …annars bara frábært lag af frábærri plötu!


2. MC5 – Motor City Is Burning
Kick Out The Jams
1969

Gamalt John Lee Hooker lag í frábærum búningi þar sem framvarðarmaður MC5 liða Rob Tyner lofar leyniskyttur Svörtu hlébarðanna vegna aðkomu þeirra í frægum óeirðum í Detroit 1967.


1. Janis Ian – Society’s Child
Society’s Child (Baby I’ve Been Thinking)/Letter to Jon [Single]
gefið út 1965,1966 & 1967

Veit ekki alveg af hverju ég valdi þetta lag! Kannski að ég heyrði það fyrst í þætti um Bítlana og árið 1967 sem ég fann á bókasafni FVA hér í den. Þar heyrði ég þetta lag og líkaði vel við enda farinn að hlusta á Dylan, Donovan, Cohen o.fl. af meira mæli en áður þannig þessi unga vísna- og þjóðlagasöngkona hitti beint í mark með þessari samfélagsádeilu sem er sjálfsævisöguleg uppreisn gegn kerfinu. En það má geta þess til gamans að stelpan er ekki nema 13 ára gömul þegar hún semur og hljóðritar þetta lag en lagið fjallar um forboðna ást stelpu og blökkumanns á viðkvæmum tímum í sögunni!

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off

T5 speisaðir lagatitlar – Krissi

5.12.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Two Pints of Lager and a Packet of Crisps Please – Splodgenessabounds
Það er helber misskilningur að lagatextar þurfi að vera flóknir, útleitir og djúpir. Þetta vissu pönkararnir. Hinn ofureinfaldi texti Splodgenessabounds hittir allavega beint í hjartastað hjá mér.

Don’t Eat That Yellow Snow – Frank Zappa
Frank Zappa er klárlega konungur skrýtinna lagatitla. Hér er eskimóavísa sem kennir okkur að guli snjórinn er varhugaverður. Frábært lag og fyndið myndband.

Everybody’s Got Something to Hide Except Me and My Monkey – The Beatles
Lagið átt upphaflega að heita Come on, come on en var sem betur fer breytt í Everybody’s Got Something to Hide Except Me and My Monkey. Apinn ku vera Yoko en þau hjón reyndu að koma til dyranna eins og þau voru klædd (og stundum voru þau ekki einu sinni klædd).

The Intergalactic Laxative – Donovan
Vetrarbrautarhægðalyfið kemur sér vel fyrir geimfarann sem notar bleyju að sögn Donovan. Fallegt lag.

Too Old To Rock ‘n’ Roll, Too Young To Die – Jethro Tull
Dr. Gunni varpaði þeirri kenningu fram á dögunum að allir tónlistarmenn toppuðu fyrir þrítugt og studdi hana með ansi mörgum dæmum. Án þess að ég taki undir slíka alhæfingu má ljóst vera að margir sem meika það tussast áfram á fornri frægð og gefa út dapurt efni sem aðdáendur kaupa vegna þess að þá vantar bara eina plötu í viðbót í safnið. Sumir tónlistarmenn lenda örugglega í smá tilvistarkreppu þegar þeir eldast og velta fyrir sér hvort þeir séu of gamlir til að rokka og róla – en samt of ungir til að deyja.
En auðvitað er staðreyndin sú að þeir eru allra svalastir sem halda áfram að rokka og róla og rífa kjaft á meðan þeir geta. Niðurstaðan í Jethro Tull laginu er líka eftir því:
“No, you’re never too old to Rock’n'Roll if you’re too young to die.”
Blessuð sé minning Rúna Júl!!!

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off

The Darjeeling Limited

26.8.2008 - Kristín Gróa


Eftir að hafa verið í miklu stuði á menningarnótt vorum ég og Rósa vinkona ekki í miklu stuði á sunnudaginn svo við lágum eins og slytti uppi í sófa og horfðum á sjónvarpið mestallan daginn. Ég hef lengi ætlað að sjá Wes Anderson myndina The Darjeeling Limited og Rósu langar aftur til Indlands svo þegar við sáum myndina á VODinu þá þurftum við ekki að hugsa okkur lengi um áður en við settum hana af stað. Myndin sjálf þótti mér mjög góð en þar sem ég get ómögulega tjáð mig um kvikmyndir þá ætla ég bara að sleppa því að dásama hana frekar.

Aftur á móti get ég tjáð mig um soundtrack myndarinnar sem er algjört afbragð og þar gripu mig sérstaklega tvö lög, annars vegar gamla Rolling Stones lagið Play With Fire og hins vegar lagið Where Do You Go To My Lovely með manni að nafni Peter Sarstedt. Þegar síðarnefnda lagið byrjaði spurði ég Rósu hver þetta væri eiginlega sem væri að syngja og hún sagði “ég veit ekki… gæti þetta verið Donovan?”. Mér fannst því frekar fyndið þegar ég sló kauða upp á allmusic og sá að fyrsta línan í bio-inu hans er Listening to Peter Sarstedt today, you might think he’s the creation of some TV movie producer who tried to build a story around a character based on Donovan and only got it 25 percent right. Einmitt það. Lagið er gott samt.

The Rolling Stones – Play With Fire
Peter Sarstedt – Where Do You Go To My Lovely

Tags: , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 1 athugasemd »

Litalög…

19.2.2008 - Kristín Gróa

Án lita væri lífið ja… litlaust. Af því tilefni verður þema næsta lista Litalög.

Svo komið ykkur þægilega fyrir og hlýðið á gleðigjafann Donovan syngja um litina með aðstoð frá Pete Seger og banjóinu hans.

Colours – Donovan (með Pete Seger)
(you tube hlekkur)

Tags: ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Topp 5 bíólög – Krissa

27.7.2007 - Kristjana

Vááá hvað þetta er erfitt val! Öll tónlist úr öllum myndum ever?!? Jimminy! öll lögin úr Nightmare Before Christmas, Hip to be Square úr American Psycho, hálft soundtrackið úr Trainspotting, Amélie myndin eins og hún leggur sig, Northern Sky úr Serendipity, If You Want Blood og Money úr Empire Records, Dry the Rain úr High Fidelity, Bang Bang úr Kill Bill, helmingur 80s soundtracksins úr Donnie Darko, Tiny Dancer í Almost Famous, Bohemian Rhapsody í Wayne’s World, Stuck in the Middle úr Reservoir Dogs, Blower’s Daughter í Closer, …allt frábær lög sem gera góð atriði enn betri…og á maður svo bara að geta valið?!?

En, uppi standa 5 unbelievably girly movies, 5 atriði og 5 lög sem ég get horft&hlustað á út í hið óendanlega…

5. The The – This is the Day úr Empire Records
“All the money in the world
Couldn’t bring back those days.
You pull back the curtains, and the sun burns into your eyes,
You watch a plane flying across a clear blue sky.”

Lokaatriðið í Empire Records er bara búið til fyrir 14 ára stelpur…eins og ég var þegar ég sá myndina fyrst. Vinna í ógó pógó skemmtilegri plötubúð með tveimur alltof sætum strákum, skemmtilegri tónlist og berjast gegn því að vondi vondi eigandinn selji einhverri vondri keðju búðina? Enda svo á því að halda stórt party, vinna vonda kallinn og fagna uppi á þaki með bestu vinkonunnin og sætu strákunum…dansandi við The The? Gerist bara ekkert betra! :)

4. Bob Dylan – Most of the Time
“I can follow the path, I can read the signs,
Stay right with it, when the road unwinds,
I can handle whatever I stumble upon,
I don’t even notice she’s gone,
Most of the time.”

Eitt af uppáhalds Dylan lögunum mínum. Atriðið væri bara ekki nálægt því að vera jafn flott ef eitthvað annað lag hljómaði undir! Og alltaf þegar ég heyri Most of the Time minnir það mig á Rob í rigningunni…búhú

3. The Knack – My Sharona úr Reality Bites
“Never gonna stop, give it up, such a dirty mind.
Always get it up for the touch of the younger kind.
My my my my woo…M M M My Sharona…”

Æjj svooo gaman! Í hvert einasta skipti sem ég heyri þetta lag minnir það mig á 7-11 atriðið í Reality Bites þar sem Winona Ryder og Janeane Garofalo biðja afgreiðslugaurinn að hækka í útvarpinu og dansa svo á fullu meðan Ethan Hawke horfir afsökunaraugum á hann. Mann langar alltaf mest að vera með, dansa kjánalega dansinn og smoocha svo Ethan Hawke í rest myndarinnar múaha

2. Donovan – Colours úr Rules of Attraction
“Yellow is the color of my true love’s hair
In the morning, when we rise “

Eitt af uppáhalds uppáhalds uppáhalds atriðunum mínum! Tvískipt meðan þau eru að vakna, labba í skólann, inn ganginn…og rennur svo saman þegar þau hittast. Augnaráðið…pínu smirk-ið á ‘Dawson’ og þegar hún tekur sólgleraugun af nefinu á honum. Og atriðið er enn betra því Colours smellpassar undir!

1. The Shins – New Slang úr Garden State
“Dawn breaks like a bull through the hall,
Never should’ve called.
But my head’s to the wall and I’m lonely.”

Ekki nóg með að The Shins séu búnir að vera í ofboðslegu uppáhaldi hjá mér síðan Oh Inverted World kom út og að New Slang sé eitt af uppáhalds lögunum mínum í heiminum heldur er Garden State ein af uppáhalds uppáhalds myndunum mínum! Ef þessu er svo blandað saman við brilliant atriði með Natalie Portman og Zach Braff fæst frábær blanda…þar sem myndin og lagið njóta sín bæði 100%
“You gotta hear this one song, it’ll change your life I swear.” ahhh yeees!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | 1 athugasemd »

Topp 5 bíólög – Zvenni

27.7.2007 - Kristín Gróa

5. Head Over Heels – úr Donnie Darko (með Tears For Fears)

Flott sena sem byrjar er Donnie og félagar skoppa út úr skólabílnum. Það er búið að gefa í skyn að þeir hafi verið að fá sér í haus og myndavélin er á hlið en snýst strax við. Það er haldið rykkjótt inn í skólann og um leið eru helstu persónur myndarinnar kynntar.

4. Píanólagið í Goodfellas

Heyrði þetta lag í Goodfellas þegar ég var táningur og fannst alveg brilljant en vissi ekki hvaða lag þetta væri. Í langan tíma pældum vð Krissi bróðir í uppruna þess en án árangurs, Krissi keypti meira að segja disk með Donovan því hann var svo viss um að lagið væri á honum. En svo var ekki. Vorum svo alltaf að heyra það á Gullinu og af einhverri fáránlegri ástæðu kom það í hvert skipti beint á eftir Layla með Derek and the Dominos og var aldrei kynnt með nafni. Það var ekki fyrr en löngu seinna er ég heyrði Layla á disk að ég áttaði mig á því að “Píanólagið” sem við höfðum leitað að svo lengi væri í raun bara seinniparturinn af Layla. Soldið fúll en samt ánægður að vita loksins hvaða lag þetta væri.
Alla veganna, áhrifarík sena þegar líkin eru að finnast eftir hreinsunina í genginu í seinni hluta myndarinnar. Lagið byrjar en verður svo meira í bakgrunninum og Ray Liotta talar yfir og passar afar vel saman.

3. Search and Destroy úr Life Aquatic (The Stooges)

Bill Murray í stuði.

2. Wise Up með Aimee Mann úr Magnolia

Lagið byrjar er allt er komið í fokk í öllum sögunum. Allir eru daprir og einir og túlka það með því að syngja línu úr laginu með Aimee Mann.

1. Dánarfregnir og jarðarfarir með Sigur Rós úr Englum Alheimsins

Lag og mynd gera saman áhrifaríkan endi.
Gott, dramatískt og afar íslenskt.

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 vorlög sem fá mann til að langa að hlaupa um í grasinu og kasta frisbí og minna mann á að lífið er ekkert svo slæmt sko! – Krissa

13.4.2007 - Kristín Gróa

Úff púff hvað er erfitt að velja bara 5!!! But here goes:

The Cure – Close to Me
“I never thought this day would end
I never thought tonight could ever be
This close to me”

The definitive summer song! Robert Smith að vera hress – sem er náttúrulega oxymoron út af fyrir sig :) Allavega þetta er líka lagið sem er svo gaman að dansa við með Kristínu á sumrin…sérstaklega í stofunni á Freyjunni :)

Maus – 90 kr perla
“En ég vill endurgreiðslu, því þetta er gallað lag!
Það grúvar ekki neitt og það er erfitt að dansa við það!”

Er ekki kominn tími á íslenskt lag? Þetta er hressasta lag í heimi! Og það er líka um frábært lag ‘n all. Og mér hefur alltaf fundist röddin í Bigga flott!
90 kr. perla er líka the original dillirassalag. Það kom á undan Know Your Onion! með Shins og allt!

Það tók mig reyndar þónokkurn tíma að sætta mig við að hann syngur ‘ég vilL endurgreiðslu’ en ekki ‘vil’ – en hey…það sem maður fyrirgefur ekki fyrir ofursumarleg dillirassalög!

Kings of Leon – Milk

“She had problems with drinking milk
and being school tardy
She’ll loan you her toothbrush
She’ll bartend you party”

Ahhh 10 tíma lestarferðir með skemmtilegum stelpum, slatti af skemmtilegum N-írskum ferðafélögum, share-uðum ipodum og Kings of Leon! Hressleiki í hámarki! Góðar minningar :)

Yann Tiersen – Soir de Fête

“I love Paris in the springtime…” er SVO satt! Ég náði að búa í Frakklandi í hálft ár án þess að fara til París. Svo náði ég á þrjóskunni að halda það út í 3 ár í viðbót. Svo í fyrravor sprakk ég og fór í þónokkura daga ferð með unnustanum – nýbúin að fá hann heim eftir Kanadaútlegð – og VÁ hvað París er best! Soir de Fête var klárlega lag ferðarinnar og við klöppuðum með þegar við rauluðum það úti á götu og vorum bara kjánaleg í alla staði – það er fáranlega gaman!

Ferðin var með bestu ferðum sem ég hef farið í á ævinni og lagið minnir mig alltaf á ferðina. Þ.a.l. hlýtur lagið að vera eitt af mest vorlögunum! :)

Justin Timberlake – My Love
“If I wrote you a symphony
Just to say how much you mean to me
what would you do?”

Mér hefur alltaf fundist JT vera æði pæði! Fyrri diskurinn var 50:50 góður:ekki svo góður. En nýji er bara æði æði æði! Þessvegna er líka heppilegt að hann ætlar að spila í París kvöldið eftir að ég flýg út í maí! Og að ég á miða á besta stað! SKVÍT! Ætla að hlusta á þetta nonstop þangað til!

Það er reyndar smá svindl, a few honourable mentions:
The Beatles – Here Comes the Sun (of course!), Tv on the Radio – Wrong Way, Fujiya & Miyagi – Collarbone, Donovan – Colours, The American Analog Set – Know by Heart, Elbow – Mexican Standoff

Tags: , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | 1 athugasemd »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin