XMAS 2011 – til minningar um Hermann Fannar Valgarðsson

19.12.2011 - Georg Atli

Annað kvöld verður blásið til stórviðburðar í Hafnarfirðinum. Þar verða árlegir jólatónleikar X-ins (XMAS) sem að í þetta skiptið verða haldnir í minningu Hermanns Fannars, fyrrum alt muligt manns sem lést langt fyrir aldur fram í nóvember. Tónleikarnir eru (svona svolítið eins og Hemmi) aðeins öflugri en flest annað sem er í gangi í dag og flest stærstu nöfnin eru þarna (smellið á myndina að ofan til að sjá betur) og svo er líka mjög gaman að geta bent á það að hljómsveitin Súrefni ætlar að koma aftur saman og trylla gesti.

Allir eru að gefa vinnu sína og allur ágóði af miðaverðinu (sem er, að ég held, allt verðið) rennur svo í styrktar sjóð fjölskyldu Hemma þannig að þarna gætuði verið að skemmta ykkur frábærlega OG gera jólagóðverk ársins, sem verður að segjast að er ansi góður díll!

Svo ef að þið komist ekki eða hreinlega nennið ekki á tónleikana þá er líka hægt að leggja inn á þennan reikning:
Reikningsnr: 545-14-403403
Kennitala: 180507-3610

Eftir tónleikana verða svo fríar rútuferðir úr Hafnarfirði og inn í Kópavog, Garðabæ og að sjálfsögðu líka inn í höfuðborgina, þannig að fjarlægðin er engin ástæða fyrir því að sleppa þessu!
Hérna er hægt að kaupa miða og svo er hægt að læka hér og horfa á smá vídjó/auglýsingu fyrir viðburðinn sem útskýrir allt aðeins betur.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar vikunnar

17.3.2011 - Kristín Gróa

Krakkar mínir! Bara komið fimmtudagskvöld og engin tónleikasamantekt. Afsakið, afsakið þúsund sinnum! Við tökum þetta þá bara létt og rennum yfir föstudags- og laugardagskvöld.

Föstudagur:

Mig langar alveg sérstaklega að benda ykkur á það sem er að gerast á Faktorý þetta kvöld því þar koma fram hljómsveitirnar Of Monsters And Men, Orphic Oxtra og Who Knew. Tilefni tónleikanna er að styrkja væntanlega plötugerð Of Monsters And Men en þau eru að fara í hljóðver að taka upp sína fyrstu plötu núna í lok mars. Það kostar þúsundkall inn, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og þetta verður geðveikt! Sjá nánar hér.

Á Sódóma verður líka gaman en þar munu Valdimar, Hljómsveitin Ég og Spacevestite troða upp. Húsið opnar 22:00, það kostar þúsundkall inn og nánari upplýsingar má finna hér.

Á Nasa spilar hljómsveitin Dr. Spock sem hluti af 10 ára afmælistónleikaröð staðarins. Húsið opnar 23:00 og það kostar þúsundkall inn. Nánari upplýsingar á nasa.is.

Á Rósenberg ætlar cover bandið A Band on Stage að rokka 80′s style. Byrjar kl. 22:00 og kostar 1000 kall inn.

Það verður Psychadelic Sonic Vibes kvöld á Dillon en þar ætla hljómsveitirnar Dandelion Seeds, Bob og Baku Baku að troða upp. Frítt inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Tónleikar til styrktar kaffistofu Samhjálpar verða í Háskólabíó kl. 20:00. Fullt af atriðum m.a. Hjálmar, KK, Ferlegheit og Ellen Kristjáns, 2900 kr. inn

Síðan verða útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Ferlegheit í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi… bara svona ef einhvern langar í smá road-trip. 1000 kall inn, platan á tilboði og tónleikar byrja kl. 22:00

Laugardagur:

Á Sódóma verður annar tvípunktsdagurinn en það er tónleikaröð fyrir alla fjölskylduna! Pælingin er sú að kl. 16:00 eru áfengislausir tónleikar fyrir alla fjölskylduna þar sem kostar 500 krónur fyrir yngri en 18 ára en 1000 krónur fyrir þá sem eldri eru. Seinna um kvöldið (22:00) fara svo fram “fullorðins” tónleikar þar sem aldurstakmarkið er 18 ár og kostar þúsundkall inn. Í þetta sinn koma fram hljómsveitirnar Agent Fresco og Cliff Clavin á báðum tónleikunum en Ikea Satan bætist svo við um kvöldið. Nánari upplýsingar má finna hér.

A Band on Stage ætlar (aftur) að vera á Rósenberg. Næstum sömu formerki og á föstudagskvöldinu nema það að nú byrjar ballið kl. 20:00.

Í Tjarnarbíó verður rafveisla en þar ætla vinir hans Bjössa Biogen að vera með tribute tónleika. 6 tíma prógram með fáránlega flottu line uppi og meðal annars ætlar sjálfur Þórhallur Skúlason (Thor) að mæta og vera með AJAX tribute…. það má ekki missa af því! Miðasala fer fram á miði.is

Fyrir hörðu hausana þarna úti þá er skylda að benda á að Heaven Shall Burn er með tónleika á Amsterdam og þar verða líka Gone Postal, Angist og Ophidian I.

Á Dillon verða ókeypis tónleikar 22:00, eins og svo oft áður. Þetta kvöldið ætla Spacevestite, Morgan Kane og Örför á spila.

Sunnudagur
SunnuJazzinn verður á sínum stað á Faktorý. 21:00 og ókeypis inn.

Þetta er allt og sumt sem við vitum um í bili en gæðin á viðburðum eru svo mikil að það verður hvort sem er erfitt að velja! Ef þið vitið um eitthvað sem er í gangi, kommentið þá endilega eða skrifið á facebook síðuna okkar og við uppfærum yfirlitið.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Record Records annáll!

14.1.2011 - Georg Atli

2010 var gott ár hjá okkur á Topp 5 á Föstudegi og við gerðum allskonar: Sumir hættu hjá okkur og nýtt fólk byrjaði, það er fínt. Aðalmálið var að við opnuðum nýja síðu og breyttum aðeins um áherslur þó að föstudagslistarnir okkar séu alltaf aðal málið hjá okkur. Byrjuðum með nýja liði eins og Sarpinn og Plötu mánaðarins. Nýja tónleika dagatalið okkar og (næstum) vikulega samantektin (og aðrar almennar tónleika tilkynningar) hafa verið að vekja almenna lukku. Við tókum Airwaves með trukki og planið er bara almennt að gera enn betur á nýja árinu. Á 2011 ætlum við að reyna að koma með eitthvað nýtt og skemmtilegt til viðbótar og við þökkum fyrir fyrri lestur og heimsóknir og vonum að þetta ár verði snilld.

Á árinu erum við hjá Topp 5 á Föstudegi líka búin að vera í smá samstarfi með 2 af helstu plötuútgáfum landsins. Record Records og Kimi Records. Við höfum fengið plötur til umfjöllunar og tónleika til að sjá og opinbera stefnan er að fjölga fyrirtækjunum í þessu samstarfi (þannig að ef að þú ert í forsvari fyrir einhverja tónlistarmenn getur alveg sent okkur línu).
Við fengum forsprakka þeirra þá Harald Leví (RecordRecords) og Baldvin Esra (Kimi) til að taka saman útgáfuárið þeirra. Mér finsnt það viðeigandi að birta þessa pistla á sama degi og íslensku árslistarnir okkar koma.

Útgáfa Record Records 2010 var ekki af verri endanum.
Fyrsta útgáfan kom út í maí og var það hin afar hressandi barnaplata Meira Pollapönk með Pollapönk. Þetta var í fyrsta skipti sem Record Records reynir fyrir sér í útgáfu barnaplötu en þetta var nú engin venjuleg barnaplata enda er Pollapönk skipuð þeim Halla og Heiðari úr Botnleðju ásamt Guðna og Arnari sem leika saman í Dr. Spock, Ensími og fleiri böndum.
Platan fékk góðar viðtökur gagnrýnenda og almennings og þótti lagið 113 vælubíllinn vera algjört heilalím.

Í júní var svo gefin út 7″ smáskífa með Lödu Sport, Love Is Something I Believe In. Þar var á ferð 2 laga smáskífa með lögum sem hljómsveitin hafði samið áður en hún lagði upp laupana árið 2008 en hún kom saman í hljóðveri í mars á síðasta ári og tók upp þessi lög til að koma þeim út á smáskífu. Sveitin hefur þó ekki ákveðið að halda áfram að spila og fylgdi plötunni eftir með einungis tveimur tónleikum. Hér er á ferðinni ansi eigulegur gripur sem var framleiddur í mjög takmörkuðu upplagi.

Í október var síðan komið að því að gefa út plötuna Dry Land með Bloodgroup á vínyl. Sú plata kom út á geisladisk í desember 2009 en varð síðan loksins fáanleg í október 2010 fyrir vínyl perrana. Sú plata var einnig framleidd í takmörkuðu upplagi en hverju eintaki fylgir kóði svo að hægt sé að nálgast stafrænt eintak af plötunni frítt á netinu svo hægt sé að afrita hana á geisladisk eða mp3 spilara.

Nóvember mánuður var síðan ansi öflugur en þá komu út síðustu útgáfur ársins. Fyrst var það nýjasta plata hinnar goðsagnakenndu sveitar Ensími. Fyrsta platan í 8 ár! Gæludýr.
Þar fá loksins allir Ensími aðdáendur hér á landi nýjan skammt af lögum sem eru alveg hreint frábær! Á þessari plötu fara Ensími nýjar leiðir og ákváðu þeir að taka upp plötuna “live” sem skilar sér í hráum, en líflegum og skemmtilegum upptökum.

Það var síðan loksins komið að því í lok nóvember að fyrsta breiðskífa Agent Fresco kæmi út. Viðtökur almennings og gagnrýnenda sýndi það að eftirvæntingin fyrir þessari plötu var gríðarleg og seldist hún upp hjá útgefanda fyrir jólin!
Þetta er 17 laga kvikindi, samtals 66 mínútur og heitir A Long Time Listening og er titillag plötunnar nú farið að hljóma í útvarpi

-Haraldur Leví Gunnarsson

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Gestalisti | Comments Off

Tónleikar vikunnar *laugardagurinn uppfærður*

3.11.2010 - Georg Atli

Það er allt brjálað að gera í þessari tónleikaviku og þess vegna verður tónleika rándöppið þrískipt!!

Fyrst ber að nefna tónleikaröðina hjá Ting:Direkt, en þar eru aldeilis fínir tónleikar á döfinni.

Á Fimmtudeginum verður danska hljómsveitin Slaraffenland, færeyingarnir í Budam og íslenska stórsveitin Orphic Oxtra í Tjarnarbíó. Showið byrjar kl. 21:00, en þess má geta að balkansveitin Orphic Oxtra voru að gefa út sína fyrstu plötu og það sem ég hef heyrt lofar mjög góðu… en meira um það síðar.

Föstudagurinn stendur fyrir partý en þá verða norsararnir í Datarock og íslensku böndin Retro Stefson og Berndsen. Þetta verður á NASA og það opnar kl. 22:00 og stuðið verður væntanlega geðsjúkt því að öll þessi bönd kunna rosalega vel að spila á tónleikum!

Á laugardeginum verða Hjaltalín og Scola Cantorum að sýna listir sínar ásamt Wildbirds & Peacedrums, sem eru sænsk, að spila í Fríkirkjunni kl. 20:00. Miðar á alla hátíðina er hægt að kaupa á miði.is (3900 kr) og síðast þegar ég vissi var ekki uppselt og það er líka hægt að kaupa miða á stök kvöld (1500 á fyrri tvo tónleikana og 2900 kr fyrir miða á Hjaltalín og co.).

Hjá Hemma og Valda er svo allt morandi í gúmmelaði, þar verður haldin “Off-Venue Aftershock” helgi. Nánast non-stop tónleikar alla helgina og það kostar ekkert inn!!! Dagskráin er hér:

Föstudagur 5 nóv*

19:00 Jóhann Kristinsson
20:00 Danny Malone (US)
21:00 Blæti
22:00 Júníus Meyvant
23:00 Orphic Oxtra
00:00 Bróðir Svartúlfs
01:00 Vicky

*Laugardagur 6 nóv*

18:00 Heima
19:00 Ylja
20:00 TBA
21:00 Mukkaló
22:00 Andvari
23:00 7 Berg
00:00 Maxe and the crackers
01:00 Futuregrapher

*Sunnudagur 7. nóv*

18:00 The moody orchestra
19:00 Bowen Staines (US)
20:00 Ylja
21:00 Johnny Stronghands
22:00 Enkidu

Í kvöld (miðvikudag) verða svo Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót á Rósenberg og á Faktorý verða ókeypis tónleikar í nafni Stage Europe Networks. Þar verða hljómsveitirnar Hunting the Robot, …Kleinstadthelden, California Stories Uncovered, Geriko, World Service og The Assassin of a Beautiful Brunette, sem sagt mikið stuð í gangi þar.

Á fimmtudagskvöldinu verða tvennir útgáfutónleikar. Á Faktorý verður Sing For Me Sandra að fagna plötunni sinni, sem heitir Apollo’s Parade (hægt að hlusta hér!) og hún verður amk spiluð öll og hver veit hvað gerist meira en það! Who Knew ætla að hita upp og það er Ókeypis inn. Hinir útgáfutónleikarnir verða svo á Sódómu, en þar verða Cliff Clavin liðar væntanlega að gera allt vitlaust með sinni plötu,The Thief’s Manual. Sú plata er ansi góð og lög af henni hafa verið í ansi mikilli útvarpsspilun. Þar kostar 1000 kr. inn og opnar húsið kl. 21:00. Ef að einhverjum þótti þetta ekki níg þá verður hinn frábæri Prins Póló líka með útgáfutengda tónleika. Þeir verða á Venue kl. 21:00. Þar kostar ekki krónu inn og er enginn veit hvað/hverjir/hver Prins Póló er þá er amk hægt að hlusta á plötuna Jukk hér (áfram gogoyoko!!)

Á föstudagskvöldið er planið svona:

Danny Malone & Jóhann Kristinsson verða á Rósenberg. Svo áttu DR. Spock að vera á Faktorý en þeir þurftu að aflýsa vegna veikinda. Í Staðinn er hægt að fara á “sveittra bar-tónleika” á Sódómu þar sem Hjálmar og Nolo verða með partý af því að það var að koma út 200 síðna(!) ljósmyndabók um Hjálma. 1500 kr. miðinn þangað, bara selt við hurð og hún opnar kl. 22:00.

Danny Malone ætlar að aftur að vera á Rósenberg á laugardaginn en að þessu sinni er það Lára Rúnars sem ætlar að spila með honum. Á Faktorý verða svo, ótrúlegt en satt, ókeypis tónleikar! Núna er Fuzzfest og þar ætla að spila Dandelion Seeds, The Vintage Caravan, Perla, Sleeping Giant og Stg.Miller Misbehavious Daughters. Á Sódóma verða svo stórstjörnurnar Sverrir Stormsker og Kalli Bjarni. Stormsker ætlar að flytja nýtt efni af væntanlegri plötu og samkvæmt fréttatilkynningu þá munu þeir “rugla saman reitum og reita af sér rugl í bland við gömlu góðu perlurnar sem verða teknar í nýjum búningum!!” að getur ekki orðið neitt annað en merkilegt, húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn.

Nánari upplýsingar og hugsanlega tengla má svo finna í dagatalinu okkar hérna til hægri (og niður býst ég við…) og ég ætla að ítreka enn einu sinni að ef einhver veit um eitthvað sem hvorki er í upptalningunni né á dagatalinu að senda okkur endilega línu á toppfimmafostudegi@gmail.com.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

zvenni og senuþjófarnir…

20.3.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn


Bassinn í bítlalaginu
McCartney syngur bassann undir öllu saman, afar skemmtilegt.

Gamli maðurinn og Dr. Spock

Meira að segja þegar bandið er í pásu stelur hann senunni.

Röddin í gervitunglinu


Lou Reed lag en Bowie vælir í bakröddunum og er langbestur, sérstaklega í lokakaflanum.

Aftan við Laylu

Eftir að Clapton hefur lokið sínu af kemur að píanóinu og instróbútnum sem skýtur Laylu ref fyrir rass. Á sögu sem tengist því sem ég var búinn að segja frá áður. Trommari Derek & The Dominos Jim Gordon á stefið, prýðis trommari víst með skuggalega fortíð.


Skítt með flengda apa, lífrænar hárvörur, pylsur og baunir… Jonathan Richman er málið!

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Tiltektarlög – zvenni

18.1.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Burtséð frá smekk og gæðum hefur ólík tónlist mismunandi áhrif á mannveruna. Þegar ég var krakki spilaði kennarinn minn klassíska tónlist í kennslustofunni á mánudagsmorgnum til að róa bekkinn niður. Ég gæti vel trúað að það sé eitthvað til í því.
En þegar á að taka til hendinni held ég að taktfastari og meira ögrandi músík hjálpi.

Kick It – Peaches og Iggy Pop

Hresst lag til að komast í ham.

Sugar – System of a Down

Drifkraftur, hasar og læti. Gott á erfiða bletti.

Hyper Cleaner- Cleaning Women

Finnarnir í Cleaning Women með hljóðfæri búin til úr þvottagrindum, vírum og alls kyns smádóti sem kemur í ljós við góða tiltekt.

Skítapakk – Dr. Spock

Öskrar á að heimilið sé tekið í gegn.

100% – Sonic Youth

Gott band til að ryksuga við. Suguvælið passar líka ágætlega við surgleik bandsins.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin