LEGEND á Hressó – styrktartónleikaröð gogoyoko og Hressó

18.4.2012 - Kristjana

Hressó og gogoyoko hafa startað nýrri tónleikaröð fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða. Hljómsveitin sem fram kemur hverju sinni velur sér málefni til að styrkja og verða tónleikagestir hvattir til þess að leggja málefninu lið með frjálsum framlögum, en frítt verður inn. Auk þess hafa gogoyoko og Hressó fengið 10 fyrirtæki með sér í lið sem, hvert um sig, munu leggja fram 50 þúsund krónur í söfnunina.

Tónleikaröðin hófst síðasta fimmtudag. Þá komu fram þau Elín Ey, Daníel Jón og Ylfa Marín en þau söfnuðu fyrir Médecins sans frontières eða Lækna án landamæra.

Annað kvöldið verður svo haldið á morgun, fimmtudaginn 19. apríl. Í þetta skiptið mun LEGEND mæta á Hressó og spila til styrktar Samhjálp.

LEGEND

LEGEND er skipuð þeim Krumma Björgvinssyni og Halldóri Á. Björnssyni en þeir hafa áður starfað saman í hljómsveitinni Esju. Legend varð til árið 2009 og heitir í höfuðið á samnefndri ævintýramynd Ridley Scott frá árinu 1985.

LEGEND sendu nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, Fearless, sem trónir nú efst á vinsældarlista gogoyoko.com. Á Fearless má heyra drungalegt norrænt rafpopp í anda Depeche Mode, Bauhaus og The Knife.

Svo er hægt að plana fram í tímann – því þetta eru þeir sem fram munu koma á styrktartónleikunum:

12. apríl – Elín Ey og Day (Daníel Jón og Ylfa Marín)
19. apríl – LEGEND
26. apríl – Ljósvaki, M-Band og ReTroBot
3. maí – Kiriyama Family
10. maí – Snorri Helgason
17. maí – For a Minor Reflection
24. maí – Eldar
31. maí – Kynnt síðar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa

12.10.2011 - Kristín Gróa

Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:

Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri

Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.

Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!

5. Iceage

Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.

Iceage – White Rune

4. John Grant

Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.

John Grant – I Wanna Go To Marz

3. Glasser

Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.

Glasser – Home

2. tUnE-yArDs

W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.

tUnE-yArDs – Killa

1. Beach House

Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.

Beach House – Gila

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt

8.6.2011 - Georg Atli

Margir tónleikar á döfinni og allt það… hafiði samband ef við erum að gleyma einhverju eða bara ef ykkur langar til að hafa samband, það er alltaf gaman að fá aðdáendapóst. Facebook, Twitter, comment, tölvupóstur

Þetta verður unnið í einhverjum skorpum þannig að það er ágæt að tjékka á okkur reglulega ef þið viljið hafa allt á hreinu. og þó að það sé langt liðið á Miðvikudag, þá byrjum við á honum…

Miðvikudagur
Á Faktorý verða Berndsen og Forgotten Lores. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Á Rósenberg verður Solla Soulful með útgáfutónleika í tilefni þess að platan hennar Open a Window var að koma út, þeir byrja kl. 21:30 það kostar 1000 kr. inn og það er enginn posi á staðnum en aftur á móti verður platan seld þar.

Á NASA verða svo Steelheart að spila. Það kostar 3500 kr. inn og Dúndurfréttir, Atrum og Exizt hita upp. Húsið opnar kl. 19:00. Mér skilst að það sé uppselt í forsölu en einhverjir miðar séu seldir við hurð.

Fimmtudagur
Á Sódómu verða Andvari, Mukkaló og Vigri með tónleika. Það kostar einungis 500 kall inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Gogoyoko verður með Sumarpartý á Hressó. Partýið byrjar kl. 20:00, það er ókeypis inn og hljómsveitirnar Agent Fresco og Sudden Weather Change verða að spila.

Á Dillon verða hljómsveitirnar The Dandelion Seeds, No to Self og Moy.

Á Faktorý verða styrktartónleikar fyrir Útidúr (þau eru að fara til Þýskalands að túra). Nolo, Sóley og Jón Þór (úr Lada Sport og Dynamo Fog) ætla að spila með þeim. Það kostar 1000 kr. inn og húsið opnar kl. 21:00

Á Rósenberg verða Pétur Ben og Elín Ey að spila. Þar kostar 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:30

Í Þjóðleikhúskjallaranum verða útgáfutónleikar Emmsjé Gauta. Það verður fullt af öðru fólki þarna líka eins og sjá má hér. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:30

Föstudagur
Þór Breiðfjörð verður að spila á Rósenberg ásamt hljómsveit. Tónleikarnir (afmælistónleikarnir hans) byrja kl. 22:00 og ég hreinlega veit ekkert hvort að það kostar inn…

Laugardagur
Á Faktorý verða plötusnúðarnir Joni (Slagsmålsklubben) og Viktor (My Empire) að spila. Það kostar 1500 kall in við hurðina og húsið opnar kl. 22:30

Á Sódóma verður sumargleði. Þar ætlar hljómsveitin Green Lights að koma saman aftur og Samaris verða þarna líka og svo hugsanlega fleirri (getið fylgst með hér)… Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kall inn.

Hljómsveitirnar Miri, Vigri og Bob verða á Faktorý, í tilefni þess að Miri er að fara að spila á NXNE. 1000 kr. inn og húsið opnar kl. 22:00

Á Faktorý verða plötusnúðarnir Karíus & Baktus (REYK VEEK) og Djezus (Boston/NY). Partýið þar byrjar kl. 23:00 og aftur veit ég ekki hvort að það kostar eitthvað inn, en ég býst við því.

Sunnudagur

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleika samantekt!

9.2.2011 - Georg Atli

Það er kominn miðvikudagur og það þýðir að það sé komin tími á samantekt. Fullt að gerast en af því að við erum örugglega að missa af einhverju þá biðjum við ykkur að senda okkur endilega línu um þá tónleika sem að vantar í dagatalið/smantektina okkar, þið getið gert það í comment eða skrifa á facebook-veggin okkar eða jafnvel sent okkur póst: toppfimmafostudegi@gmail.com
Við erum líka að reyna að muna að linka á facebook eventa en stundum þá er nennan takmörkuð og þá getiði alltaf ýtt á rauðu dagsetningarnar á dagatalinu til að fá frekari upplýsingar.

Miðvikudagur
Elín Ey og Johnny Stronghands verða á Boston kl. 21:00 og það kostar ekkert inn.

svo er líka Classic quiz á Faktorý… kannksi ekki alveg tónleikar en samt skemmtilegt!

Fimmtudagur
Á Sódómu verða Jimi Hendrix Project með tribute tónleika. Þeir ætla að flytja lög af helstu plötum Hendrix þannig að það verður örugglega gott. 1000 kall inn og það er enginn posi þannig að það verður bara tekið við peningum. Byrjar. kl. 21:00

Rósenberg ætlar svo áð hýsa Lights on the Highway, þeir tónleikar byrja kl. 21:00 og þar kostar líka 1000 kall inn

Á Dillon verða hljómsveitin My brother is pale og tónlistarmaðurinn Markús að spila. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og að sjálfsögðu kostar ekkert inn.

Stórmenningartónleikar kvöldsins verða svo í Háskólabíó en þar ætlar sinfóníuhljómsveitin að flytja m.a. verk eftir Richard Strauss, sem að Stanley Kubrick gerði ódauðlegt í 2001: A Space Oddysey. Tónleikarnir byrja kl. 19:30

Föstudagur
Á Bakkus verða útgáfutónleikar The Dandelion Seeds. Tónleikarnir byrja kl. 21:00, það kostar ekkert inn og hljómsveitirnar Just Another Snake Cult og Hollow Veins verða líka að spila.

Á Sódómu verða XXX Rottweilerhundar og kostar skitinn þúsundkall inn.

Á Dillon munu hljómsveitirnar Bob, Caterpillarmen og Lady in the Radiator koma fram. Frítt inn og allir velkomnir.

Svo verða styrktartónleikar á Faktorý. Þeir verða til styrktar Péturs Kristjáns sem að slasaðist í Austurríki í janúar síðastliðnum. Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn (má örugglega borga meira ef að maður vill!) Maður fær mikið fyrir þann pening því að Retro Stefson, Who Knew og Of Monsters and Men ætla allar að sjá til þess að engum leiðist.

Laugardagur
Techno.is heldur upp á 6 ára afmælið sitt á Faktorý og það kvöld er einmitt líka árslistakvöld. Exos, Balrock (Plugg’d), A.T.L, Invert, Richard Cuellar, Danni Bigroom og Oculus ætla að sjá um stuðið, sem að byrjar kl. 00:00.

Á Sódómu verður svo Rockabilly kvöld Glymskrattans. Þar verða hljómsveitirnar The 59′s, Langi seli & Skuggarnir og Blues Willis verða að spila og líka Arnar Ingi (The Johnny Cash Kid) og Óli Dóri verður að DJ-ast.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleika samantekt! *uppfært*

13.1.2011 - Georg Atli


Það virðast vera einhver rólegheit í tónleikahaldi borgarinnar þessa helgina en á móti kemur að þeir tónleikar sem verða örugglega flottir.

Fimmtudagur
NASA heldur svakalega stuðningstónleika á fimmtudagskvöldinu, þeir verða til stuðnings 9-menningunum. Það er alveg fáránlega flott line-up en fram koma m.a.
Páll Óskar, Sin Fang, Diskóeyjan, KK og Ellen, Parbólurnar, Reykjavík!, Múm, Steini úr Hjálmum, Prinspóló, Ellen K og Pétur H., Elín Ey og svo verður óvæntir leynigestir. Þannig að þetta verður væntanlega alveg svakalegt. Það kostar amk. 500 kr. inn (þar sem þetta eru styrktartónleikar þá má alveg borga meira) og tónleikarnir byrja kl. 20:30.

Fimmtudagsrokkið er á sínum stað á Dillon og þar ætla hljómsveitirnar Draumhvörf, Moy og Thetans of Punchestown að spila. Það kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 22

Föstudagur
Ókeypis rokkið heldur áfram á Dillon en nú eru það El Camino, Finnegan og Foreign Monkeys að spila. Byrjar kl. 22 og eins og fyrr sagði er ókeypis inn.

Laugardagur
Á Sódóma verða Agent Fresco, Rökkurró og Loji að trylla lýðinn (býst ég við). Það kostar 1000 kall inn og byrjar kl. 22:00 ->Two Tickets to Japan bættust við þetta kvöld

Á Dillon verða enn og aftur rokktónleikar, Cliff Clavin, Finnegan og Tamarin spila. Þeir byrja kl. 22:00 og nú kostar 500 kall inn.

Allar nánari upplýsingar (linkar á m.a. facebook eventa o.fl.) má finna á tónleikadagatalinu okkar (bara smella á dagsetninguna). Erum við að gleyma einhverju?? Sendu okkur þá línu á toppfimmafostudegi@gmail.com

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Smá tónleika ábending.

18.12.2010 - Georg Atli

Af því að ég er enn með smá bömmer yfir því að hafa gleymt að setja tónleika samantekt þá ætla ég að benda sérstaklega á nokkra tónleika í dag og á morgun sem verður alveg örugglega gaman að sjá (ath nánari upplýsingar eru á dagatalilnu okkar, bara að smella á dagsetninguna):

Fyrst ber að nefna tónleika Agent Fresco í Nikitagarðinum kl. 16:00 í dag (laugardag). Þar ætla Elín Ey, Of Monsters and Men og Beatmakin Troopa að sjá um stuðið frá kl. 16 og alveg til kl. 21:00 en þá er komið að Agent Fresco. Frítt inn og mér skilst að það verði jólaglögg á svæðinu.

Seinna um kvöldið (kl. 22 þannig að það er nánast í beinu framhaldi) ætlar Orphic Oxtra að vera með útgáfutónleikana sína á Faktórý. Þau gáfu út samnefnda plötu fyrr á árinu og þar spilar Orphic Oxtra alveg fáránlega skemmtilega Balkan-Klezmer blöndu, þannig að þar verður örugglega frekar sveitt stemning. 1000 kall inn og bæði Hyrrokkinn og Sudden Weather Change hita upp.

Kl. 23:00 ætla Stóns að halda upp á afmælið hans Keith Richards. Ef þú fílar Rolling Stones þá verðuru að sjá tribute-ið hjá Stóns, mér skilst að það sé frekar nálægt snilldinni sem alvöru Stones tónleikar séu. Þetta gerist á Sódómu og það kostar 1500 kall en frítt fyrir þá sem eru fæddir 18. des!

Og á sunnudag (á morgun) verða jólatónleikar Seabear í Tjarnarbíó, þau gáfu út eina af bestu plötum ársins snemma á þessu ári, þannig að það væri slæmt að missa af þessu. Síðast þegar að ég vissi þá voru örfáir miðar eftir og hver þeirra kostar 2000 kr. Hudson Wayne hita upp og húsið opnar 20:00

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar vikunnar!

18.11.2010 - Kristjana

Ég er eiginlega degi of seint að setja tónleika round-upið inn því í gærkvöldi var fyrsta event tónleikavikunnar: hlustunarparty Agent Fresco á Kaffibarnum þar sem útgáfu A Long Time Listening var fagnað. Kannski ekki eiginlegir tónleikar en spennandi, skemmtilegt og fyllilega þess virði að skreppa í miðbæ höfuðborgarinnar á miðvikudagskvöldi.

Eins og sést á tónleikadagatalinu hérna til hliðar er eitthvað í boði öll kvöld vikunnar. Reyndar er eitthvað í boði flesta daga mánaðarins. Nóg úrval. En höldum okkur við the task at hand. Round-up vikunnar verður á punktaformi, ’cause that’s how I roll:

Fimmtudagur 18. nóv:

Föstudagur 19. nóv:

Laugardagur 20. nóv:

  • Á Rósenberg verður Melchor í góðu glensi
  • L’Esprit du Clan verður á Sódóma kl. 22:00
  • Á Faktorý ætla Captain Fufanu og Hunk of a Man að sjá um stuðið. Mætið ekki seinna en 23:00 ef þið viljið ná báðu.

Sunnudagur 21. nóv:

  • Rósenberg stendur sig vel – með daglega live tónlist. Spottarnir eru hljómsveit sunnudgasins.

Mánudagur 22. nóv:

Þriðjudagur 23. nóv:

  • Rúna og band eiga kvöldið á Rósenberg

Erum við að gleyma einhverju? Er eitthvað sem vantar inn á viðburðadagatalið? Ábendingar eru að sjálfsögðu alltaf vel þegnar á toppfimmafostudegi@gmail.com :)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin