Nýtt lag og næstum ný hljómsveit
13.8.2012 - Georg Atli
Síðunni barst bréf! Ja eða sko tölvupóstur. Andri Ásgrímsson úr stórsveitunum Leaves og Náttfara er með í nýrri hljómsveit sem kallast Rif. Með honum í hljómsveitinni er liðsmenn úr Miri, Feldberg og Stafrænum Hákoni. Þið getið lesið meira um hljómsveitina hér að neðan og hlustað á lagið og ég bendi líka á að það er líka hægt að sækja lagið… ókeypis!
Hljómsveitin RIF hefur verið starfandi í u.þ.b. eitt ár og er nú að koma fram á sjónarsviðið með sitt fyrsta lag, Fagur dagur af væntanlegri plötu. Liðsmenn sveitarinnar koma úr ýmsum áttum. Verkefnið spratt upp úr hljómsveitinni Náttfara sem gaf út plötuna Töf síðastliðinn vetur en Andri og Haraldur eru meðlimir hennar auk þess að spila með Leaves, Feldberg og Stafrænum Hákoni. Ívar lemur húðir með hinni austfirsku Miri og er nýgenginn til liðs við RIF.
Sveitin hefur verið dugleg í stúdíóinu í vor og afrekstrinum má búast við á komandi vetri. Þetta er alþýðupopp-rokk, þjóðararfurinn er vel nýttur með textum eftir Stein Steinarr, Davíð Stefánsson í bland við frumsamda texta.
Tags: Feldberg, Miri, Náttfari, Rif, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Tónleikasamantekt helgarinnar
3.11.2011 - Kristín Gróa
Þið hafið eflaust tekið eftir því að það eru komnar margar vikur síðan við gerðum tónleikasamantekt. Lífið heldur manni of uppteknum. Það er bara þannig. Hei en það er margt skemmtilegt að gerast um þessa helgi og hér er það helsta!
Fimmtudagur
Á Faktorý ætla hljómsveitirnar Feldberg og Náttfari að halda sameiginlega tónleika í tilefni komandi tónleikaferðalags Feldberg til Japan. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á NASA verða Dúndurfréttir og sjálfur Eiríkur Hauksson með tónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og það kostar 2500 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar á nasa.is.
Á Norðurpólnum verða haldir síðustu tónleikar ársins í röðinni “Rafmagnslaust á Norðurpólnum”. Fram koma Pétur Ben og Samúel Jón Samúelsson Big Band auk þess sem DJ Lucky mun leika lög af upptrekktum grammófóni. Húsið opnar 20:30 en tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21. Það kostar 1500 krónur inn. Forsala miða á midi.is.
Föstudagur
Á Faktorý verður mikið dansistuð undir formerkjum Reyk Veek og byrjar fjörið um 22. Það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á NASA rekur þungarokkshljómsveitin Skálmöld endahnútinn á Evróputúrinn sinn. Einnig koma fram Otto Katz Orchestra og þeir Hilmar Örn Hilmarsson og Steindór Andersen. Það kostar 2000 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar á nasa.is.
Laugardagur
Á Faktorý verður mikið stuð því þar spila Retro Stefson. Ég sá þau á Airwaves og trúið mér þegar ég segi að það verður tryllt stemning! Þetta eru víst síðustu tónleikar sveitarinnar áður en þau fara í tónleikaferð um Evrópu. Forsala miðaa er hafin í Lólu, Laugavegi 55 og á Faktorý. Miðaverð er 1000 krónur í forsölu en 1500 krónur við dyrnar. Tónleikarnir hefjast kl. 23. Sjá nánar hér.
Sunnudagur
Á Faktorý verður Sunnu-Jazzinn á sínum stað en hann hefst kl. 21:30 og það er frítt inn.
Gleymdum við einhverju? Látið okkur vita í kommentunum eða sendið okkur póst eða hafið samband á Facebook eða bara eitthvað!
Tags: Dúndurfréttir, Eiríkur Hauksson, Feldberg, Hilmar Örn Hilmarsson, Náttfari, Otto Katz Orchestra, Pétur Ben, Retro Stefson, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Skálmöld, Steindór Andersen
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | 1 athugasemd »
Faktorý heldur upp á eins árs afmæli sitt!
13.7.2011 - Georg Atli
Tónleika- og skemmtistaðurinn Faktorý er orðinn eins árs gamall og fagnar því með látum þessa vikuna.
Það var helgina 15. – 18. júlí 2010 sem að hljómsveitirnar Hjálmar, Agent Fresco, Mammút, Feldberg, Benni Hemm Hemm og Retro Stefson stigu á svið og vígðu tónleikastaðinn Faktorý.
Nú þegar tónleikastaðurinn er orðinn eins árs gamall ber að fagna því með mikilli veislu og hefur Faktorý ákveðið að bjóða vinum sínum í fría tónleikaveislu alla næstu helgi.
Svona er dagskrá vikunnar:
Miðvikudagur:
Classic Pub Quiz kl. 20:00 – Ekkert þáttökugjald – fullt af vinningum!
Fimmtudag:
Dj Danni Deluxe kl. 22
Föstudagur:
Agent Fresco
For a Minor Reflection
Lockerbie
Úlfur Úlfur
Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ DJ KGB á neðri hæð frá miðnætti
Laugardagur:
Brain Police
The Vintage Caravan
Spector
Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ Dj Anna Rakel og Halli á neðri hæð frá miðnætti
Sunnudagur:
Sunnudagsjazzinn verður á sínum stað
Hefst kl. 21:30 – Frítt inn!
Tags: Agent Fresco, Benni Hemm Hemm, Brain Police, Feldberg, For a Minor Reflection, Hjálmar, Lockerbie, Mammút, Retro Stefson, Spector, The Vintage Caravan, Úlfur úlfur
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Tónleikar á Air d’Islande í París
22.3.2011 - Georg Atli
Um síðustu helgi var Íslandskynningar hátíðin, Air d’Islande, í París og henni lauk með tónleikum hljómsveitanna Feldberg, Hjaltalín og Lay Low. Tónleikarnir þóttu takast vel og við fengum fréttatilkynningu um það (sem fylgir hér á eftir). við fengum líka voðalega fínar myndir sendar frá ljósmyndaranum Christian Demare. Þetta er allt saman svo voða fínt að ég verð bara að deila þessu með ykkur.
Frábærir íslenskir tónleikar í París
Hjaltalín, Lay Low og Feldberg héldu einstaklega vel heppnaða tónleika á menningarhátíðinni Air d’Islande í París í gærkvöldi.
Tónleikarnir fóru fram á einum frægasta tónleikastað Parísar, Flèche d’Or, og þurfti að vísa fólki frá vegna mikils áhuga á þessum glæsilegu listamönnum. Um 500 manns voru á staðnum og voru viðtökurnar við hinum íslensku tónum hreint út sagt frábærar.
- Það var mjög ánægjulegt að geta boðið Parísarbúum upp á svona skemmtilega tónleikaupplifun og Hjaltalín, Lay Low og Feldberg eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna. Þessi mikli áhugi sýnir okkur að Air d’Islande hátíðin er búin að festa sig í sessi hér í París, aðsóknin hefur aldrei verið meiri, segir Ari Allansson, skipuleggjandi hátíðarinnar.
Tónlistarmyndirnar Himininn er að hrynja, en stjörnurnar fara þér vel eftir Gunnar B. Guðbjörnsson og Backyard eftir Árna Sveinsson voru einnig sýndar á hátíðinni í gær. (ath. var á laugardag)
Tags: Feldberg, Hjaltalín, Lay Low
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off









