Topp 5 erlendar plötur ársins 2012 – Snorri
11.1.2013 - Snorri
Jæja best að rísa upp frá dauðum til að pósta einum árslista – síðasti póstur var einmitt líka árslisti
Fullt af góðum plötum á árinu en ég finn að ég hlusta núna minna á heilar plötur en ég gerði þannig að stundum er erfitt að átta sig á heildargæðum þeirra. En Topp 5 plöturnar hef ég hlustað mikið á frá A-Ö.
Óþarfi að vera eitthvað feiminn – hér koma topp 20, sæti 20-6 á hundavaði og svo Topp 5 með smá röfli með:
20. Niki and the Dove – Instinct
19. Kindness – World, you need a change of mind
18. Wild Nothing – Nocturne
17. Lana Del Rey – Born to die
16. Choir of Young Believers – Rhine Gold
15. Exitmusic – Passage
14. Hot Chip – In Our Heads
13. Purity Ring – Shrines
12. Here We Go Magic – A Different Ship
11. Frank Ocean – Channel Orange
10. First Aid Kit – The Lion’s Roar
9. Grimes – Visions
8. Grizzly Bear – Shields
7. Django Django – Django Django
6. Chairlift – Something
5. Perfume Genius – Put Your Back N 2 It.

Persónuleg, brothætt, áhrifamikil. Ein hugrakkasta plata ársins.
4. Jessie Ware – Devotion

Nýjasta stjarnan í London senunni. Silkimjúk röddin og bóhem stíllinn minnir á hina einu sönnu Sade en Jessie setur sinn eiginn lit á þessa afar vel pródúseruðu plötu
3. Beach House – Bloom

Þau klikka aldrei. Kannski ekki mikil breyting frá síðustu plötu sem var alveg frábær en þessi formúla virkar og sum af bestu lögum hljómsveitarinnar frá upphafi eru á þessari plötu.
2. Iamamiwhoami – Kin

Þessi plata fór mjög leynt á árinu og vakti að mínu mati of litla athygli. Jonna Lee er þekkt fyrir afar súrealísk ‘high-concept’ myndbönd sem eru kafli út af fyrir sig en platan er full af frábærri elektróník og nær engan veikan blett að finna.
1. Alt-j – An Awesome Wave

Ég byrjaði ekki að hlusta almennilega á þessa plötu fyrr en seint á árinu 2012 en hún greip mig frá fyrstu hlustun. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa plötunni en hljómsveitin kemur með ferska vinda inn í bresku senuna. Á allt það lof sem hún hefur fengið skilið.
Tags: Alt-J, Beach House, Chairlift, Choir of Young Believers, Django Django, Exitmusic, First Aid Kit, Frank Ocean, Grimes, Grizzly Bear, Here We Go Magic, Hot Chip, iamamiwhoami, Jessie Ware, Kindness, Lana Del Rey, Niki and the Dove, Perfume Genius, Purity Ring, Wild Nothing
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off
Topp 5 lög ársins 2011 – Snorri
30.12.2011 - Snorri
Fullt af frábærum lögum árið 2011 og alltaf jafn erfitt að setja saman svona lista. En fæst orð hafa minnsta ábyrgð…
Hér eru þau topp 20 lög sem fylgja fast á hæla þeirra 5 efstu – Í stafrófsröð:
Active Child – Hanging On
Adele – Set Fire to the Rain
Ane Brun – Do You Remember ?
The Antlers – I Don’t Want Love
Bombay Bicycle Club – Lights Out, Words Gone
First Aid Kit – The Lion’s Roar
Fleet Foxes – Sim Sala Bim
Gardens & Villa – Cruise Ship
James Blake – The Wilhelm Scream
Lia Ices – Daphne
Lykke Li – I Follow Rivers
Mason – Boadicea
Neon Indian – Polish Girl
Peter Bjorn and John – Second Chance
SBTRKT – Wildfire (feat. Little Dragon)
Slow Club – Two Cousins
Toro y Moi – New Beat
Tune-Yards – Bizness
When Saints Go Machine – Kelly
Youth Lagoon – 17
Og svo topp 5:
5. PJ Harvey – The Glorious Land
Það er erfitt að velja eitt lag af þessari mögnuðu plötu en þetta lag hitti beint í mark í fyrstu hlustun þrátt fyrir lúðurinn alræmda.
4. Washed Out – Amor Fati
Lag sumarsins. Eitt af mörgum myndböndum tekið á Íslandi á árinu.
3. iamamiwhoami – ; john
Kom tæknilega ekki út á plötu þar sem Jonna Lee fer óvenjulegar leiðir við að koma tónlist sinni til skila en myndbandið var sett á Youtube á árinu. Og þvílíkt myndband.
2. Wild Beasts – Bed of Nails
Af einni af bestu plötum ársins sem fékk ef til vill of litla athygli.
1. Bon Iver – Holocene
Það þarf nú ekki að segja meir um þetta lag og plötu en þegar hefur verið gert. Íslenskt landslag í aðalhlutverki í myndbandinu eina ferðina enn og svínvirkar eins og vanalega. Gæsahúð ársins 2011.
Tags: Active Child, Adele, Ane Brun, Bombay Bicycle Club, Bon Iver, First Aid Kit, Fleet Foxes, Gardens & Villa, iamamiwhoami, James Blake, Lia Ices, Lykke Li, Mason, Neon Indian, Pallers, Peter Bjorn and John, PJ Harvey, SBTKRT, Slow Club, The Antlers, Toro y Moi, Washed Out, When Saints Go Machine, Wild Beasts, Youth Lagoon
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off
Tilnefningar til norrænu tónlistarverðlaunanna
5.1.2011 - Kristín Gróa
Fyrir jól sögðum við frá því að á by:Larm á næsta ári verður einhver norræn plata útnefnd besta plata Skandinavíu. Í gömlu færslunni getið þið séð hvaða 10 plötur voru efstar frá hverju landi en nú er sko búið að tilkynna hvaða 12 plötur verða formlega tilnefndar. Íslensku plöturnar á listanum eru Go með Jónsa og Innundir skinni með Ólöfu Arnalds. Húrra fyrir þeim!
Tilnefndu plöturnar verða lagðar fyrir alþjóðlega dómnefnd sem munu skera úr um það hver þeirra hlýtur norrænu tónlistarverðlaunin. Í dómnefndinni sitja:
Rob Young – Höfundur bókarinnar Electric Eden, fyrrum ritstjóri The Wire, skrifar nú fyrir Uncut og The Wire
Andres Lokko – Einn áhrifamesti tónlistarpenni á norðurlöndunum, skrifar fyrir Svenska Dagbladet
Laurence Bell – Eigandi Domino Records
Jeannette Lee – Fyrrum meðlimur í P.I.L., meðeigandi Rough Trade Records, umboðsmaður Duffy
Matthew Schnipper – Penni fyrir The Fader
Mike Pickering – Fyrrum starfsmaður Factory Records, nú A&R hjá Columbia Records UK
Tilnefningarnar eru:
Dungen – Skit i allt
Paleface – Helsinki – Shangri-La
Frisk – Frugt Dansktoppen møder Burkina Faso i det himmelblå rum hvor solen bor, suite
Susanne Sundfør – The Brothel
Robyn – Body talk
Jónsi – Go
Efterklang – Magic Chairs
Serena Maneesh – S-M 2: Abyss in B Minor
The Radio Dept. – Clinging to a scheme
Ólöf Arnalds – Innundir skinni
Kvelertak – Kvelertak
First Aid Kit – The big black & the blue
Tags: Dungen, Efterklang, First Aid Kit, Frisk, Jónsi, Kvelertak, Ólöf Arnalds, Paleface, Robyn, Serena Maneesh, Susanne Sundfor, The Radio Dept.
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off
Fimmtudagshressleiki!
19.2.2009 - Kristjana

Tags: arcade fire, Bright Eyes, Calvin Harris, Caribou, Carla Bruni, Chromeo, Dr. Dog, Eureka Birds, First Aid Kit, Fleet Foxes, Gogol Bordello, Man Man, Midnight Poutine, Plants & Animals, The Sarcastic Dharma Society, The Tom Fun Orchestra, Tom Waits
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | 3 athugasemdir »
Sænskar stelpur í skógi
4.9.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Við bjóðum einnig upp á Fleet Foxes syngja bakraddir fyrir Wilco þegar þeir taka I Shall Be Released eftir Bob Dylan
Og já fokking shjitt!
Tags: Bob Dylan, First Aid Kit, Fleet Foxes, Wilco
Flokkað undir Óflokkað | 7 athugasemdir »


